Morgunblaðið - 29.03.1955, Blaðsíða 1
16 síður
42. árgangur
73. tbl. — Þriðjudagur 29. marz 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þegar kartöflurnar fóru að fljúga ....
Þá fér allt í bál
BRUSSEL — S.l. laugardag urðu
óeirðir miklar í Brussel. Urðu
þær út af því að ríkisstjórnin
hugðist skera niður um 2 millj.
kr. (ísl.) framlag til katólskra
skóla, en auka framlag að sama
skapi til annara skóla. Gerðu þá
um 5000 manns uppsteit, flest
stúdentar í katólskum skólum. Og
þeim bættist brátt liðsafli unz
um 17 þús. manns voru taldir í
hópi þeirra er mótmæltu ætlun
ríkisstjórnarinnar í skólamálun-
um.
Lögreglan hugðist sefa lýðinn,
en þegar lýðurinn hóf að grýta
lögreglumennina með kartöflum
og fleiru, gripu lögreglumenn-
irnir til kylfa sinna og kom til
nokkurra átaka.
Um 1000 manns voru handtekn-
ir og yfirheyrðir. Öllum nema 34
hefur nú verið sleppt úr haldi, en
þessum 34 verður stefnt fyrir
rétt fyrir hegðun sína.
Myndin sýnir, þegar lögreglu-
mennirnir þoldu ekki Iengur við,
er lýðurinn grýtti þá. Gripu þeir
til kylfa sinna og handtóku þá
er ósiðlegast Iétu.
- NYJUNG I LÆKNAVISINDUM -
Sjjúklingurinn lifði 40
mín. skurðaðgerð á hjarta
Ný vél annaðisf störf hjarfans á meðan
ÞAÐ VAR á þriðjudaginn var, hinn 22. þ. m., sem 5 ára gömul
telpa var lögð á skurðarborð í hinni heimsfrægu Mayo-sjúkra-
stofnun í Rochester í Bandaríkjunum. Hjartasjúkdómur, sem er
algengur í börnum, hafði frá fæðingu þjáð litlu telpuna, en þann
sjúkdóm er ekki hægt að lækna nema með því að opna hjartað
með skurðarhníf. Sú aðgerð tekur langan tíma og þann tíma lifir
sjúklingurinn ekki án starfsemi hjartans.
Frakkar samþ. her-
væbingu Þýzkal.
EFTIR að efri deild franska þingsins samþykkti Parisarsamn-
ingana með miklum atkvæðamun s. 1. sunnudag, þykir nú
augljóst, að öll ríki Atlantshafsbandalagsins samþykki sáttmál-
ann. Hann verður tekinn til meðferðar í efri deild belgiska þings-
ins hinn 1. apríl og víst er að þar verði sáttmálinn staðfestur.
Innan skamms mun öldungadeild Bandar,ikjaþings fjalla um
samninginn og fullvist er einnig talið að þar verði samþykkt aðild
Þýzkalands að Atlantshafsbandalaginu og ákvörðunin um endur-
hervæðingu Þýzkalands.
Löndunarbannið rœtt
í brezka þinginu ?
Fjór-
veldaráðstefna
LUNDÚNUM 28. marz. — Á
morgun, þriðjudag, mun Sir
Winston Churchill gefa brezka
þinginu skýrslu um stefnu og
sjónarmið Bretlands í tilraun-
um þeim. er fram hafa farið
til þess að koma á fjórvelda-
ráðstefnu.
En við hlið skurðborðsins í
Mayo-stofnuninni stóð ný-
byggð vél, sú einasta sem til
er í heiminum. Þetta er svo-
kölluð „hjarta-lungna vél“ og
var smíðuð í því skyni að ann-
ast starfsemi hjartans, á með-
an á áðurnefndri skurðaðgerð
stendur. Reyndist vélin mjög
vel og telja sérfróðir menn
að með tilkomu hennar sé
blaði flett í sögu læknisfræð-
innar.
litla telpa. Fram til þessa hafa
þau átt litla lífsvon. En með
tilkomu þessarar vélar er fram-
tíð þeirra bjartari. Það er stór-
kostlegt að vera nálægur er slík
tímamót eiga sér stað í lækning-
um. Á morgun verður okkur öli-
um sem starfa í sambandi við
hjartasjúkdóma sýnd vélin og
Frh. á bls. 11.
í KVÖLDFRÉTTUM Ríkisút-
varpsins birtist eftirfarandi frétt
um fiskveiðideilu Breta og ís-
lendinga. í skeytum til Mbl. var
ekkert á þetta mál minnst, og í
þingfréttatíma brezka útvarpsins
kl. 10 í gærkvöldi, var ekki
minnst á málið. En frétt Ríkis-
útvarpsins var svohljóðandi:
„Sir Anthony Eden utan-
ríkisráðherra Breta, svaraði í
dag fyrirspurn í Neðri deild
brezka þingsins varðandi
brezk-íslenzku fiskveiðideil-'
una — hvað lausn hennar liði.
Sagði Eden að viðræður færi
nú fram fyrir luktum dyrum
um lausn þessarar deilu á
vegum Efnahagssamvinnu-
stofnunarinnar og auk þess
stæði brezka stjórnin í
diplomatisku sambandi við ís-
lenzku ríkisstjórnina um lausn
deilunnar.“
INNBÁS Á MATSU
UM MIÐJAN APRÍL ?
Uggur meðal valdamanna í Washington
K
WASHINGTON, 28. marz — frá Reuter-NTB
OMMÚNISTASTJÓRN Kína hefur safnað svo miklu herliði á
strönd meginlandsins gengt eyjunum Matsu og Quemoy, að
eins miklar líkur eru fyrir því, að innrás þess herafla á eyjarnar
takist og að takast megi að hrekja þennan her til baka. — Þann-
ig segir í skýrslu bandaríska landvarnaráðuneytisins.
★ ÓSTAÐFEST FRÉTT
Til Washington hafa borizt
óstaðfestar fregnir um, að
Kínastjórn hafi í hyggju að
gera innrás á Matsu um miðj-
an aprílmánuð og á Quemoy
mánuði síðar. Hefur frétt þessi
valdið nokkrum ugg í röðum
embættismanna í varnarmál-
* RÁÐSTEFNAN
En nú hefur verið ákveðin í
Indónesíu ráðstefna ríkja í Asíu
Svo virðist, sem möguleikar á
FRASOGN ISLENZKA
LÆKNISINS
íslenzkur læknir er starfar í
slíkri ráðstefnu . hafi aukizt Bandaríkjunum hefur skrifað
nokkuð í vikulokin síðustu, er heim um þennan atburð. Segir
Frakkar samþykktu endanlega hann m. a. svo í bréfi sínu: —
Parísarsáttmálann og Bulgan- pað var gífurlegur spenningur
in marskálkur hefur lýst því þegar „hjarta-lungna vélin“ var
ýfir, að hann sé reiðubúinn reynd í gær og gekk allt ljóm-
að ræða við Vesturveldin. j andi vel. Þessi 5 ára telpa hefði
Talið er, að Bretar séu látizt innan fárra vikna ef ekki
hlynntastir því, að utanríkis- hefði verið hægt að gera þessa
ráðherrar stórveldanna hittist aðgerð. Þúsundir barna hafa
á fundi. —Reuter NTB I samskonar hjartagalla og þessi
Samúðarverkfalli á Kefla-
víkurfln»velli aflvst
-y
Ástæða þess var almenn óánægja
verkamanna.
ÍMNS OG KUNNUGT er beindi stjórn Alþýðusambands íslands
J þeim tilmælum til verkalýðsfélaganna á Suðurnesjum að þau
gerðu samúðarverkfall á Keflavíkurflugvelli. Urðu 5 verkalýðs-
télög við þeirri beiðni og átti verkfallið að hefjast hjá Sameinuðum
verktökum, Hamilton og varnarliðinu í dag, 29. marz.
Vegna almennrar óánægju verkamanna með þessa ákvörðun
hafa verkalýðsfélögin nú ákveðið að fresta samúðarverkfallinu
um óákveðinn tíma. Munu það ekki kvað sízt hafa verið verka-
menn utan af landi, sem voru óánægðir með að hefja slíkt verk-
fall. En þeir hefðu þurft að fara heim til sín, margir um langan
veg, og jafnvel óvíst, livort þeir hefðu fengið ferðir til heim-
kynna sinna úti á landi.
og Afríku. Meðal þátttökuríkj-
anna er Kína. Vona menn að á
meðan sú ráðstefna stendur yfir
muni Kína ekki hefja innrás á.
eyjarnar.
Engar !and-
búnaðarrðrur
HELSINGFORS 28. marz. Mið-
stjórn finnskra landbúnaðar-
vöruframle’ðenda hefur tilkynnt
að engar landbúnaðarvörur verði
sendar á markað eftir 14. apríl,
hafi ríkisstjórnin fir.nska ekki
gengið að kröfum bænda um
hækkað vöruverð. Hefur finnska
sambandið snúið sér til landbún-
aðarframleiðenda í Noregi, Sví-
þjóð, Ðanmörku og íslandi, og
beðið þá ekki að selja landbún-
aðarvörur til Finnlands eftir
þennan tíma. Danmörk og Sví-
þjóð hafa þegar svarað jákvatt.
NTB
Verkfall þar
LIVERPOOL 28. marz. — Verk-
fall 12000 hafnarverkamanna í
Liverpool er nú líklegt til að
breiðast út til allra stærstu hafn-
arborga Englands. Ástæða verk-
fallsins er deila á milli flutninga-
verkamanan og hafnarverka-
manna. — 90 skip hafa tafizt
vegna verkfallsins. —Reuter.