Morgunblaðið - 29.03.1955, Page 16
Veðurúflif í dag:
S og SV gola eða kaldi, skýjað
með köflum.
73. tbl. — Þriðjudagur 29. marz 1955
Iþrótfir
Sjá bls. 7,
Rök kommúnista í
bygqb á úreltu
öddviti þeirra heiur í meir en úr
svikizt um að geia út kjörskrú
Borgarafundur sýndi undanhald
kommúnisla.
Kópavogi
manntali
i
GÆR var haldinn almennur borgarafundur í barnaskólanum
í Kópavogi. Var það meirihluti hreppsnefndar, þ. e. kommún-
istar, sem boðuðu tii fundarins. Munu þeir hafa ætlað að láta
þennan fund verða sér til styrktar í andstöðunni við hina sjálf-
sögðu réttiætiskröfu um kaupstaðarréttindi. En þegar þeir sáu að
ræðumenn hreppsnefndar-minnihlutans fengu miklu betri undir-
tcktir á fundinum, þá glúpnuðu kommúnistar og hættu við að
koma fram með nokkra ályktunartillögu. Snerist málið þannig
í höndunum á þeim.
OSMEKKLEG ARAS
ODDVITA
Það vakti sérstaka athygli og
xeiði á fundi þessum, þegar odd-
viti hreppsins, Finnbogi Valdi-
marsson, bar það fram að undir-
skriftalistar undir áskorun til Al-
þingis hefðu verið falsaðir. Þótti
þetta ósmekklegt hjá oddvitan-
«m og varð varla skilið öðru vísi
-en svo að hann væri að bregða
760 Kópavogsbúum um skjala-
fölsun.
VÉFENGJA MEÐ 2 ÁRA
KJÖRSKRÁ
Kommúnistar reyndu að gera
•undirskriftalistana sem allra
tortryggilegasta. Þeir sögðu að
yfir 200 manns á listanum væru
ekki á kjörskrá, sumir ekki bú-
settir í Kópavogi, þarna væru út-
lendir ríkisborgarar og allt þar
fram eftir götunum.
Þessar ásakanir þeirra eru
bysgðar á miklum misskiln-
ingi. Og stafar sá misskilning-
ur þeirra fyrst af því að kjör-
skrá sú sem Finnbogi Valdi-
marsson birti samdægurs og
fundurinn var haldinn, er
byggð á tveggja ára gömlu
manntali eða frá árinu 1953.
Slík kiörskrá er að sjálfsögðu
ekki til neins gagns nú í dag.
NVJASTA MANNTAL
Þeir aðilar sem söfnuðu undir-
skriftum gæt.tu þess hinsvegar
að byggja allar athuganir sínar
á manntalinu frá s.l. ári, sem nú-
gildandi kjörskrá á skv. lögum
að byggjast á. Skv. þeirri athug-
tm voru gerðar ýmsar athuga-
semdir við undirskriftalistann,
þegar hann var sendur félags-
málaráðunevtinu, Það var t, d.
bent á það og ekkert feiumál. að
xneðal undirskrifta voru nöfn
tveggja erlendra ríkisborg-
ara, sem eru Kópavogsbúar,
en allt bendir til að þeir fái ríkis-
borgararétt næstu daga, þar sem
allsherjarnefnd Alþ. hefur mælt
með því. Hinsvegar hafa mistök
orðið með eitt nafn, þar sem ald-
ursskilyrði er ekki fullnægt. Ekki
tekið eftir réttum aldri í einu
tilfelli af 760. Þannig eru allar
staðhæfingar kommúnista um
ófullkomna undirskriftasöfnun
rangar, að undanskildu einu nafni
sem þeir hengja allt sitt við.
FLEIRI UNDIRSKRIFTIR
BERAST
Kópavogsbúar voru ekki lengi
að svara fyrir þau rangindi sem
hreppsnefndarmeirihlutinn hefur
í frammi gegn rökstuddum og
réttmætum vilja íbúanna. í gær
söfnuðust 25 nýjar undirskriftir
undir áskorun til Alþingis og
heldur undirskriftasöfnunin enn
áfram.
Þeir sem vilja fá undirskrifta-
lista geta fengið hann með því
að hringja í síma 2834, 5636,
6092, 80146 eða 80248.
Einar Lúðvígsson
látinn í Kaupm.höfn
EINAR LÚÐVÍGSSON rafvirki,
lézt á sunnudagskvöld í sjúkra-
húsi í Kaupmannahöfn.
Sem kunnugt er, slasaðist Ein-
ar mikið á höfði er nagli gekk
inn í höfuð hans við vinnu í
radarstöðvarbyggingunni austur
við Hornafjörð. Var hann fluttur
með sérstakri flugvél til Kaup-
mannahafnar, þar sem hann gekk
undir höfuðuppskurð og var
naglinn þá fjarlægður. — Frá því
Einar varð fyrir slysinu unz hann
dó mun hann hafa verið svo til
meðvitundarlaus.
Einar Lúðvigsson var 21 árs og
lætur hann eftir sig konu, Ingu
Þóru Herbertsdóttur og foreldra,
Lúðvíg Gestsson og Björg Ein-
arsdóttir.
Skáli brennur ofan
af stórri fjölskyldu
Enginn sátta-
fundm* í dag
ENGINN sáttafundur hefur ver-
ið boðaður í dag með sáttanefnd-
inni og fulltrúum deiluaðila. Síð-
asti sáttafundur var haldinn s.i.
laugardag og stóð hann aðcins
stutta stund.
Nýr bíll veltur
og stórskemmist
NÝR fólksbíll, R-1066, sem Gísli
Guðmundsson, leigubílstjóri,
Miklubraut 16, á, stórskemmdist,
er honum hvolfdi á sunnudaginn
suður í Fossvogi. Var Gísli sjálf-
ur með bílinn og einn maður með
honum, en þeir sluppu báðir ó-
meiddir.
Jóhann Hafstein frum-
mælandi um húsnæðis
mólin d Varðar-fundi
Frumvarp nkisstjórnarinnar um ibúða-
íánastarfsemi lagt fram á Alþingi i dag
LANDSMALAFELAGIÐ Vörður
heldur almennan félagsfund í
kvöld klukkan 8,30 < Sjálfstæð-
ishúsinu, og verða húsnæðismál-
in þar til umræðu. Jóhann Haf-
stein aiþm., verður þar írummæl-
andi. Hann hefur átt sæti í milli
þinganefnd þeirri, sem undirbú-
ið hefur tillögur ríkisstjórnar-
innar um aukna lánastarfsemi i
þágu íbúðabygginga. Mun hann
því allra manna kunnugastur
þessum þýðingarmiklu málum,
GERIR GREIN FYRIR EFNI
FRUMVARPSINS
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um aukna lánastarfsemi til íbúða
bygginga mun verða lagt fram
á Alþingi i dag. Mun Jóhanrn
Hafstein gera grein fyrir efná
þess, og þeim nýju íeiðum, sem
lltæríng með 11 mönn-
Ð
nm hvolfir í brimlendingu
við Þykkvabæjarsand
ÞYKKVABÆ, 28. marz.
HÉR LÁ við mannskaða á sunnudaginn, er opnu skipi, sem á
voru 11 menn, hvolfdi í lendingu. Urðu sex mannanna undii
bátnum. Tókst ekki að koma þeim til hjálpar fyrr en eftir all-
langa stund. En félagar þeirra fimm bárust með öldunum upp
í sandinn. Aðeins einn bátverja sakaði.
Jóhann Hafstein alþm.
þar eru farnar. Jafnframt mun
hann ræða afstöðu og aðgerðir
Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn
Reykjavíkur í húsnæðismálun-
um. — AUt Sjálfstæðisfólk er
velkomið á fundinn.
LAUST fyrir klukkan 5 í gær-
morgun vaknaði fólkið í skála 65
í Þóroddsstaðabúðum við, að
eldur var kominn upp. — Þar bjó
ásamt konu sinni og fimm börn-
um Sigurður Karlsson. Skálinn j
ing var í olíukynditæki skálans.
Gaus þá npp eldur í olíunni á
sömu stundu. Hugðist Sigurður
reyna að kæfa eldinn, en sá brátt
að það var með öllu vonlaust.
Heimilisfólkið varð að yfirgefa
eyðilagðist enda var eldurinn svo skálann í skyndi, en auk barna
bráður að fólkið komst nauðu- 1—-10 ára og konu, var þar í
lega út. heimili Sigurðar, öldruð kona.
Talsverðu af innanstokksmun-
um tókst að bjarga. Voru þeir
VAKNAÐI VIÐ SPRENGINGU
Sigurður vaknaði við að spreng óvátryggðir svo og skálinn.
FÓRU í GÓÐU VEÐRI
Bátur þessi er áttæringur með
hjálparvél og eiga hann menn hér
í Þykkvabænum. Er farið á sjó
þegar vel viðrar, en róðrar meira
stundaðir til ánægju heldur en
til framfæris. Fór báturinn í
róðurinn um hádegisbilið á
sunnudaginn, en þá var hið bezta
veður hér.
BRIMLENDING
Þegar komið var upp undir
Þykkvabæjarsand, að róðri lokn-
um um klukkan 3,30, var því
strax veitt eftirtekt úr bátnum,
sem Ólafur Guðjónsson var for-
maður á, að meðan á róðrinum
stóð hefði tekið að brima við
ströndina og fyrirsjáanlegt að
brimlendingin myndi verða erfið.
STEFNISSTAKKST
Bátverjar voru undir árum,
svo sem venja er til þegar land-
taka fer fram við sandinn. Átti
báturinn ófarna um 20 metra að
landi, er bára reið undir aftur-
stefni hans, hóf hann á Ioft svo
hann stakkst á framstefnið og
koma á hvolfi niður í brimlöðrið
rétt aftan við báruna.
Fimm bátverjar losnuðu við
bátinn, en sex urðu undir honum.
Mennirnir í sjónum komust brátt
upp að ströndinni, þar sem fólk
stóð og hafði horft á er bátnum
hvolfdi.
KOMUST EKKI UNDAN
Mennirnir sem urðu undir
bátnum, komust ekki undan hon-
um. Bátinn bar mjög hægt að
landi, en strax og hann var kom-
inn svo nærri að fært var út að
honum, þustu menn úr fjörunni
út að honum, mönnunum til
hjálpar. Þeir voru þar allir enn
með tölu. — Gat hafði komið á
botn bátsins og varð það mönn-
unum beinlínis til lífs. Þeir höfðu
haldið sér í þóftur bátsins. Þá
var um hálftími liðinn frá því
að bátnum hvolfdi. Mennirnir
sex, að einum undanskyldum,
voru ósárir. En elzti maðurinn á
bátnum, Ársæll Stefánsson að
Borg, 65 ára, hafði slasast. Öngl-
ar höfðu krækzt í hendi hans og
handlegg og það tók um stundar-
fjórðung að losa krókana úr
manninum og voru djúp sár eft-
ir krókana.
Báturinn var síðan dreginn
upp í fjöru og síðan voru skip-
brotsmenn fluttir heim, en Ársæll
var fluttur til læknisins að Hvols
velli, sem gerði að sárum hans.
—★—
Þeir sem þekkja hve hættu-
legar brimlendingar geta verið
hér við sandana, telja það ganga
kraftaverki næst, að ekki skyldi
hljótast mannskaði, er svo stóru
áraskipi hvolfdi, með svo mörg-
um mönnum. Það er því ekki að
undra þótt Þykkbæingum þyki
sem þeir hafi úr helju heimt þá
sem í þessu sjóslysi lentu.
—★—
Þess má geta að hægt verður
að gera við bátinn, en hjálpar-
vél hans mun ónýt vera.
MENNIRNIR Á BÁTNUM
Þessir menn voru á bátnum auk
þeirra Ólafs Gujónssonar, Vest-
urholtum, formanns og Ársæls
Stefánssonar að Borg, Sigurður
Sigurðsson, Miðkoti, Óskar Sig-
urðsson, Hábæ, Magnús Sigur-
lásson, Eyrarlandi, Hilmar Frið-
riksson, Eyrarlandi, Felix Gests-
son, Mel, Jón Sveinsson, Vatns-
koti, Haraldur Gunnarsson,
Tobbakoti, Kristjón Pálmason,
Unhól og Jón Árnason, Bala.
— Magnús.
Óánægja á
Dagsbrúnarfundi
FUNDUR var haldinn í gær i
Verkamannafélaginu Dagsbrún,
Á fundinum var rætt um verk-
fallsmálin og hafði Eðvarð Sig-
urðsson framsögu. Kom hann
fram með villandi og alrangar
upplýsingar varðandi samninga-
umræður þær, er fram hafa farið
milli verkalýðsfélaganna og at-
vinnurekenda í yfirstandandí
jkjaradeilu. Virtist svo að til-
gangur hans með þessu væri sá
að reyna að auka sem mesti
ágreininginn og torvelda allt sam
komulag.
Nokkrir Dagsbrúnarmenn tóku
til máls og gagnrýndu mjög þá
ákvörðun Hlifar í Hafnarfirði og
Iðju í Reykjavík að leyfa einstök-
um félögum sínum að hefja vinnu
á ný, þó að ekkert heildarsam-
komulag hefði náðst við atvinnu-
rekendur og brjóta þar með þann
grundvöll, er lagður hafði verið
í upphafi vinnudeilunnar að öll
félögin héldu verkfallinu áfram
unz heildarsamningar hefðu
náðst.
Hafnfírðingar unnu
HAFNARFIRÐI — Á sunnudag-
inn kepptu Selfyssingar og Hafn-
firðingar í bridge og unnu síð-
arnefndu, hlutu 6 stig, en fyrr-
nefndu 4. Á fyrsta borði vann
Selfoss, jafntefli á öðru, 3. og
4. borð unnu Hafnfirðingar og
jafntefli varð á 5. — Keppt var
um bikar. sem keppt var í fyrsta
skipti um í fyrra, en þá unnu
Hafnfirðingar. Keppnin var mjög
jöfn og skemmtileg. Hún hófst
kl. 2 og var lokið um hálf átta.
Nafn Eysteins Einarssonar féll
niður í blaðinu fyrir nokkru, þeg-
ar sagt var frá sveit Jóns Guð-
mundssonar, sem vann sveita-
keppni bridgefélagsins, sem er
nýlokið. Eysteinn hefur ávallt
verið í þessari sveit og er hinn
traustasti spilamaður. —G.E.