Morgunblaðið - 27.05.1955, Síða 8

Morgunblaðið - 27.05.1955, Síða 8
24 MORGUNBLAttlÐ Föstudagur 27. maí 1955 Finnland nútímans — — Á hörmungatímum verður Hakon Stangerup að endúrreisa vísindin Mannlýsino — Erik Lönnroth, fræðimaður, hermaður, skipulagsfrömuður, Finni, sem ekki viðurkennir ósigur eða hrakfarir Ríkisþinghús Finna Helsingfors í marz. SAGA Fimilands er mótsagna- kennd og þess gætir emnig í dag- legu lífi Firma. Ég kom til Hels- ingfors ásamt norskum prófessor, er aldrei hafði komið til Finn- lands. Hann hlakkaði mikið til að sjá höfuðborgina, og hann varð frá sér nurninn. Hvernig er þetta gerlegt? spurði hann. Hvert sem mér verður litið eru ný hús, heil borgarhverfi nýbyggð, reisuleg verzlunarhús og spánnýjar menn ingarstofnanir. Tveir nýir við- skiptaháskólar, finnskur og sænskur, cg ný stórhýsi um- hverfis gamla háskólann.Hvernig getur slíki gerzt með þjóð, sem háð hefur tvær styrjaldir, greitt miklar striðsskaðabætur og orðið hvað eftir -mnað að sjá farborða hundruðunt þúsunda landflótta fólks og endurbyggja héruð, á stærð við Jótland og Sjáland, þakin sprengjugígum og bruna- rústum? Ég vildi líka gjarna fá svar við þessari spurningu norska pró- fessorsins. Ég verð einnig forviða, er ég kem á skömmu árabili til Helsingfors og sé borgina stöð- ugt breytast og stækka. Ég get ekki gefið neina skynsamlega skýringu á þessu, en ef til vill óskynsamlega skýringu. Þetta á rætur sínar að rekja til þessa furðulega, í senn fjörmikia og gætna, hugarfars Finnanna, sem ekki viður- kenna ósigur og hrakfarir og hafa til að bera stórlyndi og síungan þrótt, er neitar að beygja sig undir ok kúgunar- innar, en þetta er mjög já- kvæð afstaða til lífsins. Alls- staðar verður þetta á vegi út- lendingsins, en ef velja ætti einn mann úr hópi margra, sem hefði þessa eigin- leika, hlýtur Erik I,önn- roth að verða fyrir valinu, — fræðimaður, hermaður, heims- maður og skipulagsfrömuður — driffjöðurin í endurreisn finnskra vísinda, maðurinn, er stendur að baki hinum stór- stigu byggingarframkvæmd- um við Helsingfors-háskólann, og örlög hans eru eins og ævin týri eða stórbrotið leikrit i augum okkar, en draga jafn framt upp mynd af ævi eins Finna, sem er stórbrotin — en þó ekki einsdæmi. ★ SJÖ ÁR í HERNAÐI Þess ber að geta, að þessi lærði grúskari og háskólafrömuður hef- ur frá ármu 1917 eytt sjö árum 1 einkennisbúningi. Hann var ungur aðstoðarkennari við Hels- ingfors-há'.kólann, þegar borg- arastyrjöldm braust út árið 1917 og rauðliðar, finnskir og rúss- neskir, hófu umsátui um borg- ina. Þarna sat Lönnroth inni- lokaður, á meðan Mannerheim safnaði sveitum hvítliða í Norður Finnlandi og hafði þörf fyrir hvern mann og öll þau skotfæri, sem hægt var að festa hendur á. Erik Lönn’ oth gat ekki umborið þetta. Hann átti tvo unga vini á sama aldursskeiði, þá Rudolf Valden og Torsten Aminoff, báð- ir voru liðsforí - gjar í varaliðinu, hinn fyrrnefndi varð síðan hers- höfðingi og hinn síðarnefndi ofursti. Þessir bHr ungu menn lögðu saman ráð sín, mútuðu réttum aðilum til að fá rússnesk vega- bréf og lögðu síðan af stað með rússneskri herflutningalest suður á bóginn Samkvæmt skjölum þeirra áttu beir að útvega Rúss- um eldivið. Lestin hélt til Petro- grad og tíu sinnum á leiðinni var leitað á ungu mönnunum þrem- ur. Varaliðsforingjarnir tveir töluðu rússnesku reiprennandi, en Lönnroth gætti tungu sinnar í þetta ei;ia skipti (sennilega í síðasta skipti). Loks rann upp sú langþráða stund, er þeir stukku af lestinni og eftir að hafa farið æfintýra- lega rkrókaieiðir norður á bóg- legar krókaleiðir norður á bóg- nokkra sólarhringa hjá föður Lönnroths, sem var prestur — komust þeir til hvítliða og gengu fyrir Mannerheim. — Hvað viljið þér? spurði hers höfðinginn Lönnroth magister. — Berjast, herra hershöfðingi, svaraði magisterinn. Magisterinn hafði litla nasa- sjón af hernaði, og var hann þvi gerður að aðstoðarformgja á víg- línu, sem varin var af 3000 manns. En aðstoðarforingjastað- an reyndist ekki endanlegur áfangi. Þegar herskóiagengnu liðsforingjarnir féllu — og þeir féllu marg:r — varð Lönnroth magister að taka ábyrgðina á sínar herðar. Hann réjð oft yfir 1000 manna hersveitum. Meist- araverk sitt vann hann ásamt með Mannerheim hershöfðingja, er þeir lögðu á ráðin um hernám Viborgar. ★ ÉG Eít HÁSKÓLAKENN- ARI, HERRA HERSHÖFÐ- INGI — Er sigurvar unninn, var Lönn- roth kallaður fyrir Mannerheim. — Ég heti í huga að gera yður að kaptein sagði hershöfðinginn. — Það skuluð þér ekki gera, roth, ég er ekki hermaður, ég er háskólakennari . . . Og hann sneri aftur til há- skólans í Helsingfors, varði doktorsritgerð sína, varð pró- fessor í skógmatsfræði og þekktur víða um lönd. Hann gerðist brátt atkvæðamikill um framgang og stjórn háskól ans. Hið mikla skógræktarhús, stærsta skógræktarvísinda- stofnun á Norðurlöndum, er hans vcrk. Hann átti hugmynd ina að því, útvegaði fjárveit- ingar og vakti yfir byggingu þess. Hann lét gera loftvarn- arbyrgi í húsinu. „Þetta er hreinasta brjálæði', sagði stjórnin. Árið 1939 var þess- ari reisulegu byggingu endan- lega iokið. Sama ár hófst finnsk-rússneska styrjöldin og byrgið kom í góðar þarfir. ★ FARDU TIL UNGVERJA- LANDS OG AFLAÐU SJÁLFBOÐALIÐA Um jólayetið hafði Lönnroth prófessor fullgert loftvarnarbyrg ið sitt. Að því loknu bauð hann sig fram sem sjálfboðaliði. — Valden hershöfðingi, vinurinn í Bjarmalandsförinni árið 1917, tók honum opnum örmum. — Það er gott, að þú komst, Erik, sagði hershöfðinginn. Þú verður að fara þegar í stað til Ungverjalands og afla sjálfboða- liða. Við þörfnumst hvers ein- asta manns, sem hægt er að út- vega. — Ég vil ekki fara til Ungverja lands. Ég vil fara til vígstöðv- anna, fáðu mér hersveit til um- ráða. — Það er ekki hægt. Marskálk urinn hefur í eigin persónu geng- ið frá fynrskipuninni. Þú ferð á morgun. Og þá hófst ævintýralegasti herleiðangur finnsk-rússneska vetrarstríðsins. Lönnroth pró- fessor fékk vandkvæðalaust vega bréfsáritun til að fara gegnum Þýzkaland og fagran vetrardag kom hann til Búdapest. Fyrsta verk hans var að fá leyfi ung- verska for«ætisráðherrans til að afla sjálfboðaliða Það vildi svo vel til, að forsætisráðherrann, Telleki greifi, hafði verið pró- fessor í landafræði, áður en hann tók að fást við stjórnmál, og tveir vísindamenn geta alltaf átt vin- samlegar viðræður með sér. ★ NÚ VERÐUR SAGAN RITUD . . . Erik Lönnroth gerði ungverska forsætisráðherranum grein fyrir ætlun sinni Telleki greifi fór í fyrstu undan í flæmmgi. Þetta var ógerlegt Þetta myndi skuld- binda Ungverjaland. Þar var heldur ekki hægt að vera án hermannanna. Ungverjar sjálfir kynnu líka að lenda brgðlega í styrjöld. ógerlegt, kæri starfs- bróðir, ógerlegt .... Þá reis Erik Lönnroth á fætur í allri sinni tign, og hann er ein- mitt tignarlegur, stoltur og göf- ugur á svip og augun brenna af áhuga. Herra greifi, sagði hann. Við erum skyldir Finnar og Ung- verjar. Finnland berst nú fyrir lífi sínu. Ég verð að fá her- deild. Nú verður sagan rituð. Þér, herra greifi, getið ekki neitað mér um leyfi yðar. Telleki greifi var á báðum átt- um — síðan lét hann undan og gaf Lönnroth leyfi til að afla einnar herdeildar sjálfboðaliða, ef hann gæti. Næsta dag tók hann til við starfið. Viku síðar höfðu 20 þús. ungverskir sjálfboðaliðar gefið sig fram . ★ ÆVINTÝRALEG HEIMFÖR Þá tók við það vandamál, að koma sjálíboðaliðunum til Iinn- lands. Leiðin yfir Þýzkaland var lokuð. Lönnroth sjálxur gat ekki einu sinni fengið vegabréísáritun fyrir heimterðina. Hann varð að undirbúa för sjálfboðaliða sinna um Júgóslavíu, Ítalíu, Frakk- land, Engiand og þaðan með skipi til Petsamo Og herdeildin, grá fyrir járnum og vígbúin, fylgdi honum. Er hún kom til Englands, fékk brezka stjórnin henni flutn- ingaskip til umráða og lét her- skip sín íylgja þeim yfir Norð- ursjóinn og Atlantshafið. Á Norð ursjó réðust þýzkir kafbátar á skipalestina, en ekkert tjón hlauzt af. Herdeildin komst til Petsamo og 3. marz 1940 gat Erik Lönnroth fengið ungversku herdeildina sína í hendur yfir- hershöfðinganum. Þann 15. marz voru friðarsamningarnir undir- ritaðir í Moskvu. Ungverjarnir’ börðust bví aldrei á finnskum vígvelli ... Erik Lönnroth sneri sér nú aft- ur að vísindastörfum. En þó að- eins skamma stund, þar sem ann- að finnsk-rússneska stríðið brauzt út, og í þriðja sinn gerðist hann sjálfboðaliði í her Mannerheims marskálks. Honum — sem ekki var hermaður — var falin æðsta st j órn sj álfboðaliðsskrif stofunn- ar. Þetta var staða, sem hers- höfðingjatitill fylgdi, og hann réð yfir nokkrum ofurstum. Á þessum árum kynntist hann mjög náið erlendum sjálfboðalið- um og gefur bæði Dönum og Norðmönnum fallegan vitnis- burð. — Af sérstökum ástæðum voru hinir síðarnefndu ekki mjög margir. En einn þeirra bauð sig fram með þessari hressilegu athugasemd: ★ — Herra prófessor, ég býð mig" fram sem sjálfboðaliðann er kem- ur lengst úr norðri, ég er frá Tromsö.... 1 þetta skipti neitaði Erik Lönn roth ekki hækkun í tigninni inn- an hersins. Hann kom heim úr styrjöldinni sem majór í finnska hernum. ★ NÚ BYGGJUM VIÐ---------- Þetta var á hörmungartím- um Finnlands, þegar allskon- ar vandamál og efnahagsörð- ugleikar steðjuðu alls staðar að. Hvað eigum við að gera? spurðu starfsbræður hans við háskólann. — Við verðum að endurreisa vísindin og stækka háskólann, svaraði Lönnroth. — Það er ógerlegt, svöruðu hinir. — Það er alls ekki ó- gerlegt, svaraði Lönnroth, majór og prófessor. Gefið mér frjálsar hendur og ljáið mér Vilkuna prófessor sem að- stoðarmann minn í vísindun- um og bíðið svo rólegir átekta. Prófessorarnir tveir tóku til óspilltra málanna. Þeir rannsök- uðu allar aðstæður nákvæmlega og létu fullgera teikningar af há- skólabyggingum, sem mjög mikil þörf var á. Eftir styrjöldina hófu 10 þús. stúdentar nám að nýju við Helsingfors-háskólann, sem nú var orðinn stærsti háskóli • Norðurlanda — en stóð hinsveg- ar öðrum Norðurlandaháskólum mjög að baki vegna húsnæðis- eklu og skorts á góðum kennur- um. Háskólakennararnir tveir hófu „stórskotahríð“ á stjórnina, sem daufheyrðist við fortölum þeirra. „Þessir herramenn hljóta að vera viti sínu fjær, að svo mikið sem minnast á byggingafram- kvæmdir nú....“ En Erik Lönnroth hélt áfram að elta ólar við þá, og árið 1949 rann úrslitastundin upp. Erik Lönnroth fékk allra náðarsam- legast leyfi til að halda klukku- stundar fyrirlestur um sínar „ó- hóflegu“ kröfur frammi fyrir ríkisstjórninni. Fyrir honum varð heill veggur andlita^ er voru fyrirfram ákveðin í að vísa kröf- um hans á bug — en hann bar sigur úr býtum einu sinni enn. ★ HAGURHÁSKÓLANSER IIAGUR RÍKISINS Það ganga sögur af þessari ræðu, sem Erik Lönnroth hélt frammi fyrir þessum óhaggan- legu andlitum. Margir háskóla- borgarar í Finnlandi kunna heila kafla úr henni utanbókar. Eftir- farandi tilvitnun verða allir að kannast við: — — Hæstvirtu ráðherrar, sagði Erik Lönnroth. Hvað gerðist, þegar Svíþjóð glímdi við eftirköst Þrjátíu ára stríðs ins? Hvað var gert á þessum hörmungatímum í þágu vís- indanna, jú: hornsteinarnir voru lagðir að háskólanum í Ilorpat og Aabo. Hvað gerðu Finnar, fátækir og vesalir, þegar háskólinn í Aabo brann? Þeir reistu nýjan, stærri há- skóla í Helsingfors. Lítið út á Sensts-torgið, hæstvirtir ráð- herrar, sjáið þessar reisulegu byggingar þarna, þær voru reistar af Finnum, sem voru enn fátækari en við erum nú. Þess vegna eigum við að byggja og endurreisa EIN- MITT NÚ. Því erfiðari sem efnahagsástæðurnar eru, því meiri ástæða til að endurreisa vísindin. Árið 1919 voru stúd- entarnir 2000, nú eru þeir 10 þús. Veitið þeim húsnæði og kennara, en: takmarkið ekki aðgang finnskrar æsku að menntun. Með aðstoð finnskr- ar æsku verðum við að endur- reisa landið og byggja upp framtíð þess. ★ NÝJAR BYGGINGAR™ RÍSA JAFNT OG ÞÉTT Erik Lönnroth hóf sína sögu- legu ræðu kl. 10 árdegis. Kl. 11 hafði hann unnið sigur, kl. 1 hringdi forsætisráðherrann til hans og tilkynnti honum, að stjórnin hefði veitt sex milljónir marka til samkeppni um teikn- ingar að viðbyggingu við há- skólann. Prófessorinn sagði: — Við höldum áfram að byggja, og við það hefir hann staðið til þessa. Stöðugt hefur verið haldið áfram að byggja við háskólann. Þó að hann hafi nú lagt niður kennslu- störf við háskólann, er hann for- maður bygginganefndarinnar og nýjar byggingar rísa jafnt og þétt undir handleiðslu hans. — Nýjasta bygging menntastofnun- arinnar stendur í miðju borgar- innar, 75 þús. ferm. að stærð. Þar rúmast fjórar stórar kennslu- stofur, nokkrar minni og vinnu- stofur nemenda, rannsóknarstof- ur, kennarastofur, húsnæði fyrir heimspekideildina, fyrir stærð- fræði- og náttúrufræðideildirn- ar, lagadeild og þjóðfélagsfræði. Raunverulega er hér um að ræða alveg nýjan háskóla til við- bótar við gamla háskólann — og alveg í samræmi við kröfur tím- ans. Einnig tekur háskólinn til sinna afpota byggingar, sem Hsa jafnframt umhverfis hann. Þeir, sem koma frá gömlum háskóla- Frh. á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.