Morgunblaðið - 27.05.1955, Page 13
Föstudagur 27. maí 1955
MORGUNBLAÐIÐ
29
Stórfeldar framfarir i Jiyggingar
'isii Þjóiferp
BARÐI FRIÐRIKSSON lögfr.
fór fyrir nokkru skyndiferð
til Þýzkalands til þess að skoða
vörusýningar þar og þá fyrst og
fremst vörusýninguna í Hannóv-
er, sem mikið og vaxandi orð fer
af og eykst með hverju árinu
sem líður. Er hann nýkominn
heim úr þessari ferð og lýsti hann
vörusýningunni fyrir mér með
nokkrum orðum.
YFIRSÝN YFIF.
ÞÝZKA KRAFTAVERKIÐ
Það er ekki ofsögum sagt af
hinni hröðu og stórkostlegu end
urreisn V-Þýzkalands. Glögg
dæmi um það blasa við ferða-
manninum í næstum hverri borg,
þar sem heil hverfi hafa verið
reist úr rústum og nýir borgar-
hlutar byggðir glæsilegri en þeir
hafa nokkru sinni verið áður. Um
sömu nýsköpun ber vott hinn
mikli fjöldi nýrra glæsilegra
verksmiðjubygginga, sem starf-
andi eru nætur jafnt sem daga.
Iðandi fjör og kraftur virðist
ríkja í öllum framkvæmdum.
Hvergi hygg ég þó að jafn gott
yfirlit fáist yfir hið þýzka krafta
verk, eins og á vörusýningunni
miklu, sem haldin er árlega í
Hannóver í N-Þýzkalandi.
— Voru margir íslendingar
þarna?
— Já, við vorum þarna víst
einir 8 íslendingar, og get ég
nefnt þá Kristján Þorsteinsson,
Þorstein Bergmann, Grím Thor-
arensen, Grím Gíslason og Geir
Björnsson.
FLUTTIST VESTUR FYRIR
JÁRNTJALD
— Hvers konar vörusýning er
þetta?
— Þetta er sýning á alls konar
iðnaðarvarningi með sérstöku
tilliti til erlendra viðskiptavina.
Þú manst e. t. v. eftir vörusýn-
ingunum, sem haldnar voru fyrir
stríð í Leiþzig?
Nú hefur svo viljað til,
að Leipzig hefur lent austan
járntjalds. Fór því svo, þegar at-
vinnulíf V-Þýzkalands tók að
lifna úr dái, að framleiðenduf
tóku sig saman og komu á lagg-
irnar sýningarsvæði, og völdu
Hannóver, sem er á hentugum
stað í N-Þýzkalandi, mitt á milli
helztu iðnaðarhéraðanna og í
þjóðbraut. Hin mikla þýzka sýn-
ing hefur þannig eins og svo
margt fleira neyðst til að flytja
vestur fyrir tjald. Sama hafa
fjölda mörg iðnaðarfyrirtæki, að-
allega úr Saxlandi og Slesíu orð-
ið að gera.
Þegar fyrsta Hannóver sýning-
in var haldin voru sýningarskál-
ar aðeins um 40 þús. fermetrar,
en hún hefur reynzt vísir að
miklum stofni, því að sýningar-
skálar eru nú hvorki meira né
minna en 360 þús. ferm. og þar
að auki sýningarsvæði undir ber-
um himni, sem er um 80 þús.
ferm. Þarna sýna 3700 iðnaðar-
fyritæki. Yfirgnæfandi meirihluti
sýnenda eru þýzkir framleiðend-
ur. Þó hefur farið í vöxt að erlend
fyrirtæki, sem vilja vinna mark-
aði á framleiðsluvörum í Þýzka-
landi komi þeim á framfæri í
Hannóver, þar sem segja má að
sé stærsti „sýningargluggi" í
Þýzkalandi. Munu um 335 er-
lend fyrirtæki hafa sýnt þar að
þessu sinni, m. a. amerísk.
MEST BAR Á
MÁLMIÐN AÐI
— Og hvað var helzt 'til sýnis
Á vönisýningunni i Hannover mátti
sjá fjölda gagnlegra nýjunga
Samtal v/ð 8arða Friðriksson hdl.
Barði Friðriksson
þarna?
— Það er hægt að spyrja svo
í stuttu máli að erfitt sé að svara
jafnvel í löngu máli. Þó er rétt
að segja að þarna eru einkum til
sýnis iðnaðafvörur ýmis konar
og ber mest á alls konar málm-
vörum. Ég hafði mestan áhuga á
að skoða handverkfæri ýmiss
konar. svo og nýjúngar í sam-
bandi við byggingariðnaðinn. —
Varð ég ekki fyrir vonbrigðum,
því að einmitt á þessu sviði hafa
orðið miklaf framfarir hjá Þjóð-
verjum á síðustu áruin, sém án
efa hafa skapazt af knýjandi
þörfum í sambandi við hinar
gífurlegu íbúðarhúsabyggingar
og verksfniðjubyggingar, sem
séhnilega hafa hvergi og aldrei
verið meiri en í Þýzkalandi éftiT
að það tók að rétta við.
Um handvérkfæri er það að
segja, að Þjóðverjar virðast kapp-
kosta að hafa þau sterk, en þó-
stöðugt að ryðja sér til rúms.
Þarna voru plastplötur af mörg-
um gerðum, litum og þykktum
fyrir gólf og veggi, svo og plast
handrið, sem lítið hafa rutt sér til
rúms hérlendis ennþá.
MERKILEG NÝJUNG
Þá vildi ég geta um nýtt tæki,
pússningarvél, til þess að pússa
veggi. Hlýtur að vera mikill
vinnusparnaður að henni og svo
er hún auðveld í notkun, að ung
stúlka gat meðhöndlað hana og
sýnt okkur hvernig hún væri
notuð. — Pússaði stúlkan á ör-
skömmum tíma talsverðan vegg-
flöt og virtist hann líta vel út
að lokinni sprautingu. Tæki þetta
töldu ,,Sýningartíðindin“ til
merkilegrar nýjungar fyrir bygg-
ingafiðnaðinn. Þannig voru mörg
tæki á sýningunni, sem gætu
orðið til mikils vinnusparnaðar
og lækkunar á byggingarkostnað-
inutn.
— Hvað virðist þér um verzl-
unarárferðið í Þýzkalandi?
— Þjóðverjar eru hvergi
smeykir. Ég komst að raun um,
að svo mikii eftirspurn var eftir
framleiðslu ýmissa verksmiðja,
að þær eru búnar að selja fram-
leiðslu sína fyrir eitt eða tvö ár
fram í tímann. Virðist Séfstakur
gróandi á öllum sviðum og bjart
sýni ríkjandi með tilliti til mark
aða og annarra afkomumögu-
leika. Virðist, að sérfræðiþekk-
ing Þjóðverja muni slík á flest
um sviðum iðnaðarins, einkum
þó málm og vélaiðnaðar, að þeir
þurfi fáa keppinauta að óttast.
Þar líðst ekki annað en algjör
vöruvöndun.
— Hún var frá 24. apríl til
3. maí.
Ég var til 1. maí — hélt
síðan til Bretlands og skoðaði
Á BREZKU
IÐNSÝNINGUNNI
létt og þægileg í notkun. Munu — Hvenær stóð sýningin?
engir standa þeim á sporði í hug-
kvæmni og framkvæmdum á því
sviði. Tók ég sérstaklega eftir
fyrirtækjunum Stahlwille, Belz-
erwerk, Dowidat, Gedore og
Hermann Bremer, þótt erfitt sé
þar að gera upp á milli. Það var
unun að horfa á árangur hinnar
þý2ku vandvirkni, sem hvarvetná
blasti við. Erfitt er þó að skýra
í stuttu máli frá því, sem sérstaka
athygli vakti, því það gerði raun-
ar allt.
Þó get ég í þvi sambandi t. d,
nefnt sýningar bílaframleiðendar
sem voru hinar glæsilegustu. Bar
mest á Mercedes Bentz, Volks-
wagen, Borgward og Opel. Þá má
og nefna tæki frá fyrirtækinu
Demag, sem ekki var hægt að
komast hjá að skoða sérstaklega,
s.s., lyftur af öllum stærðum,
kranar stórir og smáir o. fl. o, fl.
Einnig tók maður sérstaklega
vel eftir fyrirtækinu Buderus’-
sche Eisenwerke, sem hefur á
boðstólum miðstöðvarofna, katla,
vatns- og skólprör, hreinlætis-
tæki og margt fleira. Eru vörur
frá fyrirtæki þessu með sérstök-
um glæsibrag. Þá tók ég eftir
ýmsum plastvörum, sem nú eru
lögnvaldur Lárusson
skipasmiður — minning
Sýningarhöllin í Hannover
HINN 25. apríl síðastliðinn and-
aðist í Stykkishólmi Rögnvaldur
Lárusson, skipasmiður. Reyndar
er það nú rangt að kenna hann
við eina iðn, þar eð maðurinn
var þjóðhagi, jafnt á járn sem
tré. Fór þar og saman vandvirkni
og hraðvirkni; slíkt er aðeins
snillinganna.
Marga hafði Rögnvaldur eðlis-
kosti. Hann var fastlyndur,
trygglyndur, hæglátur, enginn
hávaðamaður, en gat brugðið
fyrir sig græskulausrúkýmni. —
Alvara lífsins, afköst og önn dags
ins tóku þó mest huga hans, því
hugsa þurfti af ráðdeild fyrir
allstóru heimili. Jafnan var gest-
kvæmt hjá honum, einkum af
gömlum sveitungum af Skógar-
strönd. í fjörutíu ár hef ég þekkt
þennan heiðursmann. Margt hand
tak hafði hann unnið fyrir mig.
Hann var sá smiður, er flestir
vildu sér kjósa.
í ætt hans er mikil hagleiks-
gáfa; og gott er það, að hann
skuli vera niðjamargur á þessari
tækninnar öld. Nóg er af klauf-
um, sem aldrei ættu bíla nc bú-
vélar að snerta.
Frágangur á bátum þeim, er
hann smíðaði, bera honum eink-
ar fagurt vitni, bæði hvað snert-
ir bátalag og vandaða vinnu.
Fæddur var Rögnvaldur Lár-
usson á stórbýlinu Narfeyri (áð-
ur Geirröðareyri) á Skógarströnd
26. nóvember 1867. — Foreldrar
hans voru Lárus, bóndi, Jónsson,
bróðir hins kunna hagleiksmanns
Kristjáns frá Geitareyjum, er
beinin bar í Vesturheimi og Ing-
veldur Björnsdóttir gullsmiðs á
Straumi. Systkini hans voru: Jón,
skipstjóri og bóndi í Gröf í Eyr-
arsveit; Lárus, gjaldkeri Rafveitu
Reykjavíkur; Katrín Hjaltested
á Sunnuhvoli, Reykjavík og Jó-
hannes, trésmiður, sem látinn er
í Ameríku fyrir nokkrum árum
og gerði þá ráðstöfun, að aska
hans yrði flutt til Islands, og var
hún nú látin í gröf með bróð-
urnum, að Narfeyri, fæðingarstað
þeirra bræðra.
Þrettán ára gamall missti Rögn-
valdur föður sinn, og bjó með
móður sinni til tuttugu og níu
ára aldurs, en þá kvæntist hann
heitkonu sinni, Jósefínu Guð-
rúnu Kristjánsdóttur frá Straumi
á Skógarströnd. Voru þau hjón
systkinabörn að frændsemi. —
Reisti hann bú að Straumi og bjó
þar til 1907, er hann fluttist til
Stykkishólms. Hans ágæta kona
lézt 1905 frá fimm kornungum
börnum. Hin frábæra mágkona
hans, Ragnheiður Kristjánsdóttir,
tók þá við búsforráðum og gekk
hinum ungu börnum hans í móð-
urstað.
Rögnvaldur Lárusson
Öll eru börn Rögnvaldar á Iífi,
en þau eru: Kristján, vélsmiður
í Stykkishólmi, kvæntur Rann-
veigu Guðmundsdóttur frá Þing-
eyri; Vilborg, gift Bergsveini
Jónssyni hafnsögumanni frá Fag-
urey; Lárus, rafstöðvarstjóri í
Stykkishólmi, kvæntur Ástu
Gestsdóttur; Ingveldur, er starf-
ar við síma og póst í Stykkis-
hólmi, Jósefína Guðrún, sem gift
er Gísla Skúlasyni frá Skáleyj-
um, er rekur húsgagnagerð að
Þóroddsstöðum, Reykjavík.
Allt frá 1907 hefur þessi mæti
maður dvalizt í Stykkishólmi.
Rögnvaldur naut mikilla vin-
sælda í þessu kauptúni. Og það
sýnir hið almenna mat á honum,
að hann var, síðustu árin, er
hann lifði, eini heiðursborgari
Stykkishólmshrepps.
Rögnvaldur var hár maður
vexti, grannholda og karlmann-
legur. Eins og áður er getið var
hann eljumaður mikill og starfs-
maður, enda féll honum varla
verk úr hendi, þar til fyrir rúmu
ári, er orka hans þraut að fullu.
Ólafur Jónsson
frá Elliðaey.
KALUNDBORG — Hinn 1. des.
1954 lézt pylsusali einn í Kalund-
borg og á borgarsjúkrahúsinu
gátu menn ekki þegar í stað
ákveðið dánarorsökina. En við
nánari rannsókn kom í ljós að
um opiumseitrun var að ræða.
Lögreglurannsókn hefur nú
leitt í ljós, að hinn látni maður
fékk vegna mistaka afhent í
apóteki Kalundborgar allmiklu
sterkari opiumdropa en læknir-
inn hafði fyrirskipað. Hefur hú
verið höíðað mál gegn lyfjafræð-
ingnum.
Notið
KIWl
skóáburð
Pússningarvélin í notkun. Hún
var mikil nýjung, enda talin
spara mjög byggingarkostnað.
Með henni er baeði gróf- og fín-
pússað.
hina árlegu brezku iðnsýningu
B.I.F., en hún er í tveimur deild-
um. Er allur þungaiðnaður sýnd-
ur í Birmingham, en annar iðn-
aður í Olympia-sýningarhöllinni
í London. Bar þar einna mest á
allskonar vefnaðarvöru.
— Hvað þótti mönnum þar um
viðskipti við ísland?
— Jú, ég var spurður hvort
ekki væri erfitt að eiga viðskipti
við íslands eíns og nú stæðu sak-
ir og sagði eins og var og mörg-
um sýnendum var kunnugt, að
vegna löndunarbannsins á íslenzk
um fiski í Bretlandi, sem staðið
Frh. á bls. 31.
KIWI
og gljáinn
á skónum verður
bjartari, og dýpri
Kiwiáburðurinn er
framleiddur úr úrvals
vaxefnum og ósvikn-
um Sútaralitum. Þetta
er megin orsök þess,
hversu djúpur og lang-
varandi Kiwigljáinn er
og enn fremur skýrir
þetta hin óvenjulegu
gæði Kiwi, þegar um
er að ræða að verja
skóna og viðhalda
þeim. Reynið eina
Kiwi dós í dag. Skórn-
ir munu verða snyrti-
legri og þeir munu
endast betur.
Gæðin eru á heimsmæli-
kvarða — Fæst í 10 litum.
Aðaiumboðsmcnn á íslandi: O. JOHNSON & KAABER h.f.