Morgunblaðið - 27.05.1955, Side 16
32
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 27. maí 1955
7
6 miHg. kr. tjón at
Klakksvákur-deiluhni
Allt sprettur það cf því oð Halvorsen
neifaði cB greiða 600 kr.
HALVOPiSEN-MÁLIÐ í Klakksvík hefur orðið all-kostnaðar-
samur leikur. Eins og allir vita nú, varð málið af því, að
Hálvorsen læknir hefur neitað að greiða 600,00 króna sekt fyrir i
samstöðu sína með nazistum í hernáminu. En fyrir þessar sex i
hundruð krónur hafa Danir og Færeyingar orðið að láta úti Hér á landi fer nú hinum þýzku Vo!kswagen-b l um allört fjölgantli cg sem tlæmi má nefna, að ný-
inilljónir króna.
1 >in,LJ. KRÓNA
AUKAFJÁRVEITING
Talið er að fjárveitinganefnd
danska þingsins muni verða að
sækja um aukafjárveitingu að
upphæð 400 þús. d, kr. eða um
milljón ísl. kr., til þess eins að
hera kostnað af sendingu lög-
regluskipsi'ns Parkeston og vegna
tferða Kampmanns ráðherra og
starfa annarra opinberra starfs-
jnanna.
70 ÞUS. KR
AUKAGREIÐSLUF,
í þessari upphæð eru ekki inni-
falin föst laun lögregluþjónanna,
en hver þeirra fékk hinsvegar
greidd aukalaun, sem námu 25
kr. á mann á dag og verður sú
upphæð samtals um 70 þús. kr.
Sigling skipsins Parkeston og
lciga á því kostaði rúmlega 10
þús. kr. á dag, eða samtals í 22
daga, nærri fjórðungur úr millj.
d. kr.
Enn mun verða verulegur
kostnaður af málinu, vegna þess
að 15 danskir lögregluþjónar
verða hafðir á verði í Klakks-
vík og það er mikið verk að
rannsaka ýmis afbrot í sambandi
við uppþotin í Klakksvík.
MIKIÐ TJÓN FYRIR
ATVINNULÍF FÆREYINGA
Þó er kostnaður danska ríkis-
ins smávægilegur móti því tapi,
sem Færeyingar sjálfir og þá
einkum bæjarbúar í Klakksvík
•hafa orðið fyrir. Er talið að tjón
færeysks atvinnulífs af verkföll-
um og stöðvun fiskveiða frá
Klakksvík lengri tíma hafi kost-
að um 5 milljónir ísl. kr. Er það
mjög tilfinnanlegt tjón fyrir ekki
stærra samfélag en Færeyinga.
j lega komu 20 bílar með sama skipi frá Ramborg. c u. iíc i.ir úyiija sem kuauugt er um margt hinir
Þannig skýra dönsk blöð frá merki,e£ustu °S munu þess fá dæmi, að ein b:Ia 1 haíi náð sl'kum vinsældum á tiltölulega
hinni fjárhagslegu hlið þessa skömmum tíma, sem þessi gerð smáb'ia. Framieið I; b^irra rálgast nú óðum 1.000.000. — Mynd þessl
máls.
er tekin af Voikswagen-bílum fyrir utan h ís aðal umboðsins hér, Iíeklu h.f.
Ljósm. P. Thomsen.
Fréffabréf frá
mm
Gæiið ykkar i umferðinni
Góður afli á vetrarvertíð, nœg atvinna.
PATREKSFIRÐI, 24. maí.
VORIÐ hér vestra byrjaði með kuldum og norðanátt og nætur-
frost voru tíð. Hefur þetta tíðarfar staðið fram til þessa, en
nú hefur brugðið til sunnanáttar og rigningar. Hefur gróður tekið
skjótum framförum þessa hlýindadaga.
Vorverk standa nú sem hæst
i sveitum. Túnaávinnsla langt
komin og víða búin. Sauð-
burðurinn er hafinn, og hefur
gengið vel. Bændur hafa hýst
lambær að nóttinni fram til þessa
og burðurinn mest farið fram í
húsum. Hafa bændur verið vel
heybirgir.
Fyrir nokkru var farið að lag-
færa vegi í sýslunni og má nú
heita að vel sé orðið greiðfært
fjarða á milli. Undanfarið hefur
verið unnið við snjóihokstur með
ýtum á Hálfdáni, og er vegurinn
til Bíldudals opnaður fyrir
nokkru. Voru vegir yfirleitt litt
skemmdir eftir veturinn.
VERTÍÐARLOK
Vetrarvertíðinni er lokið fyrir
nokkru og stundaði hana einn
bátur héðan frá Patreksfirði Var
það Sigurfari, 24 lestir. Skip-
stjóri var Jón Magnússon. Afli
Sigurfara að vertíðinni lokinni
var 550 lestir af óslægðum fiski í
70 róðrum. Er það mjög góður
afli, eftir því sem hér gerist. Há-
setahlutur var um það bil 25 þús.
kr. Steinbítsafli var mjög lélegur
Fyrsfy andaruagarnir — bardagi móðurinnar
NÝLEGA hringdu starfsmenn olíustöðvar Esso í Skerjafirði á
lögregluna og báðu hana að koma önd með 9 unga til hjálpar. Var
öndin með hina nýfæduu unga sína í skurði rétt við olíustöðina,
en í skurðinum var vatnið talsvert blandað olíu.
Tveir lögregluþjónar brugðu skjótt við og fóru á staðinn. Náðu
þeir öndinni og ungunum níu. Ungana settu þeir í pappakassa, en
héldu á öndinni. Síðan fóru þeir með móður og unga niður að
syðri Tjörninni. Þar slepptu þeir þeim og synti öndin með unga
sína frá landi. En þegar hún var skammt undan réðust nokkrir
steggir að henni af mikilli heift. Flæmdist öndin þá frá ungum
sínum. Varð þarna allharður bardagi, sem endaði með því að
öndin flæmdist alla leiðina inn á litlu Tjörnina, þar sem Þorfinnur
karlsefni er, en við fótstall styttunnar fann hún skjól fyrir árásar-
steggjunum. Þar hvíldi hún sig og reyndi að þrífa olíuna af fiðrinu.
Um ungana er það að segja að þeir voru ekki lengi yfirgefnir, því
fljótlega synti að þeim önnur önd, sem tók þá undir sinn verndar-
væng og eltu þeir hana fúslega langt út á Tjörn. Eru þetta fyrstu
vngarnir, sem á Tjörninni hafa sést enn.
framan af, en glæddist verulega |
í marz. Komst allt upp í 16 lestir
í róðri.
GÓÐ HANDFÆRAVEIÐI
Trillubátaeigendur eru nú sem
óðast að útbúa sig á handfæra-
veiðar. Er veiði góð í firðinum,
en fiskurinn liggur þó talsvert á
botni ennþá. Eru nokkrir menn
þegar byrjaðir róðra. Einn trillu-
bátseigandinn, Andrés Karlsson,
fékk fyrir nokkrum dögum 800
kíló af fiski, í róðri og var einn
á báti. Fyrir skömmu var nokkr-
um trillubátum 2—3 lesta hleypt
af stokkum hér í höfninni, en þær
voru smíðaðar á trésmíðaverk-
stæðinu Ösp á Patreksfirði.
FÓLKSEKLA
Báðir Patreksfjarðartogararnir
komu af Grænlandsmiðum fyrir
skömmu og lönduðu karfa til
vinnslu í frystihúsunum. Var
Gylfi með 343 lestir og Ólafur Jó-
hannesson með 330 lestir. Báðir
togararnir héldu aftur á Græn-
landsmið að löndun aflokinni.
Talsverð mannekla er hér, og
varð að leita til nærliggjandi
sveita um mannskap og allt til
Bíldudals, til að vinna afla tog-
aranna. Á togurunum eru nú 25
Færeyingar. Mikil vinna er hér
nú hvern dag.
SKIPAKOMUR
Óvenjumikið hefur verið um
skipakomur hingað undanfarið.
[ Fyrir eigi all-löngu voru hér 30
[ færeyskir og norskir kútterar,
sem tóku vistir. Er venjulega
mikið af þeim hér um þetta leyti
árs og fram til júníloka. Stunda
kútterar þessir handfæraveiðar
og var afli þeirra misjafn. Voru
flestir þeirra á leið norður með
landi.
Þá voru fjórir af Eimskipafé-
j lags-Fossunum hér fyrir nokkru
; og nokkur Sambandsskipanna.
Lestuðu skip þessi í síðastliðinni
j viku hér 6000 kassa af freðfiski,
j 160 lestir af karfamjöli úr fiski-
mjölsverksmiðjunni, losuðu hér
sement og er nú von á timbur-
skipi hingað einhvern næstu
daga.
Skreiðarframleiðslunni hefur
verið hætt í bili, og mun láta
nærri, að upp hafi verið hengdar
um 600 lestir af fiski til skreiðar.
Verður fiskurinn tekinn niður
nú næstu daga til goymslu.
SUNDNÁMSKEIÐ
Nýlega var sundlaugin hér í
kaupstaðnum opnuð og stendur
nú yfir sundnámskeið fyrir börn.
Sundkennari er Sigurður Jóns-
son Þingeyingur, og hefur hann
undáhfarin ár annazt sund-
kennslu hér og haft eftirlit með
lauginni. Einnig er búið að opna
laugina almenningi á kvöldin.
— Karl.
Þetta gerir fullorðna fólkið oft — að stiga út á akbrautina, án
þess að gæta að umferðinni.
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS
Leiksýning á Suðureyri
íbróttafélagið Stefnir og Kven-
félagið Ársól á Suðureyri gengusí
nú í vor fyrir sýningum á skop-
leiknum „Eruð þér frímúrari?“
eftir Arnold & Bach. Þóttu sýn-
ingarnar takast með ágætum. —
Efri myndin er af Teitsfjölskyld-
unni. Talið frá vihstri: Gína
(Elín Gissurardóttir), Amor
(Hermann Guðmundsson), Eva
(Sigrún Sturludóttir), Rósa-
munda (Ingibjörg Jónasdóttir)
og Anna (Valgerður B. Guð-
mundsdóttir). — Hin myndin er
af „Jennýunum" (Baldur Hólm-
geirsson og Halldóra Gissurar-
dóttir). — Leikstjóri var Baldur
Ilólmgeirsson.
•ðð«9«Ð®9ðe
Morguni
©
BLAÐIЩ
© ©
• MEÐ ©
• Morgunkaffinu ©