Morgunblaðið - 03.06.1955, Síða 9

Morgunblaðið - 03.06.1955, Síða 9
Föstudagur 3. júní 1955 MGRGUNBLABIB 9 íslendingar œttu a& koma upp sjálfs- afgreiðslubúðum 2. MAÍ s. 1. kom hingað á veg- um Iðnaðarmálastofnunar ís- lands frá Framleiðniráði Evrópu (E. P. A.) bandarískur maður, hr. August W. Swentor, sérfræð- ingur í dreifingu matvæla og Bkipulagningu sjálfsafgreiðslu- verzlana. Hann hefur starfað hátt á þriðja áratug við mat- vöruverzlanir vestan hafs, eink- um í Kanada. Er hann mikill kunnáttumaður að því er lýtur að skipulagningu sjálfsafgreiðslu- verzlana, svo og auglýsingastarf- semi, kynningu nýrra afurða, markaðsrannsókn og fleiri þátt- um, er snerta sölu matvæla. í tvö og hálft ár starfaði hann sem stjórnandi sérfræðingahóps Framleiðniráðs Evrópu í smá- söluverzlun og dreifingu mat- væla. Starfaði hópurinn í 11 Ev- rópulöndum og hafði mikil áhrif til betra skipulags á dreifingu matvæla í þessum löndum. Til þess að undirbúa og skipu- leggja starf hr. Swentors hér á landi, hefur Iðnaðarmálastofnun Islands haft nána samvinnu við Félag íslenzkra iðnrekenda, Samband ísl. samvinnufélaga, Samband smásöluverzlana og Verzlunarráð íslands. Þessir að- ilar hafa haft alla forgöngu um að hagnýta reynslu og þekkingu hr. Swentors, svo að hún kæmi sem flestum kaupsýslumönnum og iðnrekendum að gagni. , Hr. Swentor er búinn að dvelj- ast hér á landi í tæpar fjórar' vikur. Starf hans hefur verið fólgið í að kynna sér íslenzka verzlunarhætti og tilhögun mat- væladreifingar og gera síðan til- lögur til breytinga um hagkvæm- ara skipulag. Hefur hann lagt sérstaka áherzlu á að hvetja ís- lenzku verzlunarstéttina til að koma upp sjálfsafgreiðsluverzl- unum og hefur hann í því sam- bandi gert tillöguuppdrætti fyrir! þá kaupmenn og kaupfélög, sem 1 þess hafa óskað. Þá hefur hann j haldið fundi með verzlunarfólki og flutt fyrirlestra um nútíma verzlunarhætti og þróun sjálfs- j afgreiðsluverzlana erlendis, sýnt skuggamyndir og kvikmyndir. Hr. Swentor hefur aðallega starfað með verzlunarmönnum í Reykjavík og á Akureyrí, en þar dvaldist hann um vikutima. Einn- ig hefur hann heimsótt verzl- j unarstaði í nánd við Reykjavík. i í för með hr. Swentor til ís- j lands var eiginkona hans, frú Edna M. Swentor. B—O—O—EJ Er blaðamenn áttu viðtal við Mr. Swentor fyrir skömniu var hann m. a. spurður að því, hvern- ig honum hefði litizt á íslenzkar verzlanir. — Svaraði hann því til, að þær stæðu í flestu hvergi að baki samskonar verzlunum í nágrannalöndunum. Hann kvað verzlunarmenn hérlenda áhuga- sama um starf sitt og hreinlæti væri hér í verzlunum. * Hinsvegar væri hér nokkur hængur á, að íslenzkir verzl- unarmenn virtust seinir til að tileinka sér nýjar aðferðir í starfi sínu og heldur fáar vöru tegundir væru hér á boðstól- um í matvöruverzlunum. — Taldi hann þetta hvort tveggja geta stafað af því að sam- keppnin á þessu sviði væri minni en góðu hófu gegndi. — Geta litlar verzlanir komið íyrir sjálfsafgreiðsluskipulagi í húsnæði sínu jafnt sem hinar stærri? — Já, segja má að ekkert sé því til fyrirstöðu. Kostir við sjálfsafgreiðslu í matvörubúðum eru ótvíræðir. Því skipulagi fylgir aukinn sparnaður í rekstri verzlunarinnar, þar sem miklu færra afgreiðslufólk þarf en áð- ur fyrr, betri þjónusta verður þar sem viðskiptavinirnir velja sér vörurnar sjálfir og unnt er að hagnýta húsnæði verzlunar- innar betur. Þróunin í flestum löndum Evrópu og í Bandaríkj- unum stefnir nú sem óðast í sjálfsafgreiðsluátt, um 82% af matvöruverzlunum Bandaríkj- anna eru sjálfsafgreiðsluverzl- anir, og 400 slíkar verzlanir hafa verið byggðar í Noregi á s. 1. tveimur árum, 400 í Danmörku og 200 í Holandi. Myndi ég vilja segja, að þetta skipulag ætti sér mikla framtíð fyrir höndum hér á landi, einkum þar sem koma má upp einnig hálfgerðum sjálfsafgreiðslubúðum. Mr. August W. Swentor. Komið hefir í 1 jós í Banda- ríkjunum, að óður fyrr þurftu verzlunareigendur almennt að leggja 20% á vöruna, en eftir breytinguna græða þeir jafnmik- ið þótt þeir leggi nú aðeins 15% á vöruna. -— Hvaða leiðbeiningar hafið þér íslenzkum matvöruverzlun- areigendum til handa? — Ég hefi tekið eftir því, að umbúðir eru hér mjög gamal- dags utan um margar vöruteg- undir, jafnvel eins og þær tíðk- uðust fyrir 30 árum í öðrum löndum. Jafnframt er ávallt mik- ill aukakostnaður af sendingum til heimilanna. Þegar sjálfsaf- greiðslukerfi hefir verið komið á fót, hætta sendingarnar af sjálfu sér því þá kemur húsmóð- irin sjálf í búðirnar, velur vör- una og tekur með sér heim. Á vegum Iðnaðarmálastofnun- arinnar eru allmargir fleiri sér- fræðingar væntanlegir á næst- unni frá Framleiðniráði Evrópu. í október koma fimm sérfræð- ingar er fjalla um sölu og dreif- ingu annarra vörutegunda en matvöru. Ferðast þeir víða út um land og verða hér í hálfan mánuð. Síðar koma sérfræðingar í heildsölu og rekstri vöru- geymsluhúsa. Þá fara 7 íslendingar til Banda ríkjanna í sumar á vegum þess- ara stofnana til þess að kynna sér rekstur og skipulagningu sjálfsafgreiðsluverzlana þar. Sérfræðingaheimsóknir þessar eru íslenzkum iðnaðar- og verzl- unarmönnum mjög hagstæðar, sagði Bragi Ölafsson framkv,- stjóri á blaðamannafundinum og okkur íslendingum nær að kostn- aðarlausu. Við greiðum aðeins hverjum sérfræðing lítilfjörlega dagpeninga en Framleiðniráðið greiðir allan annan kostnað. Spilia söiiriumar fyr- ir, að verflanir rísi í úfhverfum* LAGT var fram á bæjarstjórn- arfundi í gær bréf frá Sambandi smásöluverzlana, þar sem það telur, að ekki eigi að leyfa byggingu nýrra söluturna, nema leitað sé samráðs við sambandið. Guðríður Gísladóttir (Þ) taldi að bygging söluturna kæmi kaupmönnum ekkert við, því þar væri aðeins verzlað með ýmsar smávörur og blöð, sem væri til þæginda fyrir almenning, og þá sérlega í úthverfunum, en heim- ilin keyptu þar ekki matvöru. Þorbjörn Jóhannesson (S.) taldi, að söluturnar verzluðu með vörur, sem væru með hárri álagningu, svo sem sælgæti og ýms drykkjarföng. Þessar vörur bæru mjög uppi kostnað smásala af dreyfingu nauðsynjavara, sem eru með mjög lágri álagningu. Ef slíkir söluturnar kæmu víða upp, í út- hverfum, yrði það til að tefja fyrir því, að þar risu upp venju- legar verzlanir til hagsmuna fyr- ir heimilin. Þ. J. taldi líka, að hollusta væri vafasöm af rekstri sölu- turna og sala þeirra á glæpa- blöðum væri ekki til andlegrar uppbyggingar. Kvað Þ. J. ekki til mikils mælzt, þó haft væri samráð við smásala um stað- setningu slíkra turna. /y «x*,s Pýzka úrvalsliðið ieikur gegn Vai í kvöld Þlóðverjcrnir brifnir af íslandi við fyrstu sýn IKVÖLD er fyrsti leikur ísl. knattspyrnumannanna við erlent líð á þessu ári. En hingað er komið, sem kunnugt er i boði Vals, úrvalslið þýzkra knattspyrnumanna frá Neðra-Saxlandi. —• Leikurinn er milli þýzku gestanna og Vals og leikur nú með Val Albert Guðmundsson. Börn fala !i! feðra sinna á sjénum SJÓMANNABÖRN, sem vilja ávarpa feður sína á sjónum, í barnatíma Sjómannadagsins næst komandi sunnudag, eru beðin að mæta í úi varpssalnum kl. 4 á morgun. — Öllum börnum yngri en 16 ára, sem eiga feður sína á sjó jænnan dag, er heimilt að flytja ávörpin. Æfingar verða hafðar með börnunum á áðurnefndum stað og stund. Sýning Sovélrftj- anna og Tékka í Miöbæjarskélanum Skólahúsið verður málað að utan og innan ÞORBJÖRN J ÓH ANNESSON (S) gerði fyrir spurn á bæjar- stjórnarfundi í gær um það, hverju sættu þau mannvirki, sem nú væru að rísa við Mið- bæjarskólann, og hver kostaði þau. Borgarstjóri skýrði frá því, að skv. samþykkt fvrir all- löngu, hefði skólahúsið vcrið látið félaginu „Kaupstefna“ í té, til að halda þar sýningu, sem Sovét-Rússland og Tékkó slóvakía standa að. Þessi vörusvning ætti að vera í húsinu og portinu, og voru mannvirkin í sambandi við hana. SvninHn stæði í fvrri hluta júh'mánaðar. og væri hað skilvrði, að öllu væri komið í samt lag fyrir 1. ágúst n.k. ,.Kaunstpfna“ kostar allar f-ornlrvaerndir oo' til endnr- gialds verður skólahúsið mál- að °ð utan ng innan. Þorgarstjó»-i gat h»ss að t i^io>vianriacVá1inn vrði einn- i<r ti' n-nráða við svnine-nna nv að 1rínrrerrlr svnÍHg >rrðÍ í iiiír-i CóðtrTvinlpra. Ragnav T.á-’ncsen c+alri- ijnn á. að vrrðj iáfið i-„r„ n —ción iroíi li + nrrqli p -lrnl'lctrlnr! pn njnc r*cr Irijnnimt •""'i •■’-i-+5 —ív’ij rnáli. hverniv bær v!»hi litar. ^jn nOTrj li'p/wTApíVcAn (Q j ht»«íc pUV vWnalf von~ti ri»i ívwný n*n h,,o-,Tí(i Vrttr'no-U grrflíno,'l ölj í eóníniro p jmtl onrTn »r\ p rr pnlonr’tms vernm p«r P?*jní <v í s|^vtií á annnn há*t.. ★ FAGNAÐ Þýzku gestirnir komu með Gullfossi í gærmorgun. Létu þeir vel yfir ferðinni og dáðust mjög að veðurblíðunni hér, hit- I anum og sóða veðrinu, enda mun | vorið hafa verið heldur kalt ytra. i Stjórn Yals bauð Þjóðverjun- um til árdegisverðar í Tjarnar-1 kaffi og töiuðu þar Gísii Sigur- björnsson forstjóri, sem hefur haft milligöngu um þessa heim- sókn, Björgvin Schram form. KSÍ og Gvnnar Vagnsson form. Vals svo og þýzki íararstjórinn Karl Lauc sem er víðkunnur knattspyrr.uleiðtogi í Þýzka- landi. í gær skoðuðu Þjóðverjarnir völlinn — og síðar bæinn. Á laugardaginn fara þeir til Akra- ness í boði íþróttabandalagsins þar og á sunnudag að Gullfossi og Geysi. ★ LIÐ VALS Lið Vals vérður þannig skipað í leiknum i kvöld, talið frá markvrrði: Helgi Daníelsson, Magnús Snæbjörnsson, Árni Njálsson, Sigurhans Hjartarson, Einar Halldórsson, Halldór Halldórsson, S’gurður Sigurðs- son, Hörður Felixson, Hilmar Magnússon, Albert Guðmunds- son og Gunnar Gunnarsson. Þýzka liðið er þar.nig skipað:- Bolchert (1), Thielemann (2), Schröeter (3), Henne (4), Hoff- mann (51, Grundmann (6), Fesser (7), Ziebs (8), Scheumann (9), Gorges (10), Kahermann (11). — Varamenn: Schulz og Wertmuller. Alþjóðadómararnir nýskipuðu Hannes og Frímann. Tveir ungir Islendingor alþjóðodómarar í handknattleik TVEIR ungir Reykvíkingar hafa fengið réttindi sem alþjóða- dómarar í handknattleik. Eru það Hannes Sigurðsson og Frímann Gunnlaugsson, en þeir hafa árum saman verið ötulir leiðtogar á sviði handknattleiksins hér. NEW YORK — Yfirstjórn ka- þólsku kirkjunnar í Bandaríkj- unum hefir tilkynnt, að tæpl. 1 millj. míinna hafi bætzt við félagatölu kaþólskra í Banda- ríkjunum, Havai og Alaska á s. 1. ári. Nú eru tæpar 33 milljónir kaþólskra manna í löndum þess- um. —NTB. ★ STAÐFESTINGIN Það var ÍSÍ sem hafði milli- göngu um staðfestingu á hinum auknu dómararéttindum Hann- esar og Frímanns, en ÍSÍ annast um málefni handknattleiksins, þar sem sérsamband hanknatt- leikshreyfingarinnar hefur enn ekki verið stofnað. Bækistöðvar alþjóðasambandsins í hand- knattleik eru í Sviss og hefur þaðan nýlega borizt bréf um að þeir félagar, Hannes og Frimanu, hafi verið skráðir sem alþjóða- dómarar — en það þýðir að þeir hafa réttindi til að dæma hvaða leik sem er, millirikjaleiki sem aðra. ★ IÆNGI STARFAÐ Eins og áður segir hafa þeir lengi starfað hér að málefnum handknattleiksins. Hannes, sem er 25 ára gamah, hóf þátttöku í handknattleiknum 1945, varð dómari 1948 og hefur síðan að meira eða minna leyti séð um þjálfun handknattleiksflokka Fram. Hefur Hannes, sem og Frímann, áunnið sér óskipt traust fyrir starf sitt sem dóm- ari. Frímann er þremur árum yngri, aðeins' 22 ára, og hóf þátt- töku í handknattleik 1947. — Tveimur árum síðar tók hann dómarapróf og frá 1949 hefur hann haft með höndum þjálfun handknattleiksflokka KR. ★ DÓMARAFÉLAGIÐ Þeir Hannes og Frímann voru ásamt Valgeir Ársælssyni einu íslendingarnir sem höfðu réttindi sem landsdómarar, en slik réttindi þarf til þess að dæma leiki. t.d. í íslandsmóti. Hefur þetta „dómaraleysi“ valdið margs konar erfiðleikum. Því var það að þeir félagar, Hannes og Frimann, meðal ann- Framh. af bls. 9

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.