Morgunblaðið - 24.11.1955, Page 3

Morgunblaðið - 24.11.1955, Page 3
Fimmtudagur 24. nóv. 1955 MORGU N BLAÐIB 19 — Nútímabærinn Þórshöfn í Færeyjum Lögþingshúsið í Þórshöfn. Á bak við er nýja símstöðin, sem er mjög nýtízkuleg með glæsilegum og björtum afgreiðslusal. fyrir hinum nýbökuðu stúdent- um. Stórt sjúkrahús er í bænum. Heitir það „Dronning Alexandr- ines Hospital". Eru læknar þar af ýmsum þjóðernum, færeyskir, danskir og þýzkir, og til skamms tima hefir íslenzkur læknir verið þar. í nánd við sjúkrahúsið er staður, sem nefnist Sandagerði. Þar baða bæjarbúar sig, einkum börn og unglingar, í sjó á sumrin. VERZLUN OG VERKSMIÐJUR Fjöldinn allur af verzlunum er í Þórshöfn. Einhver stærsta verzl- unin er kjöt- og matvöruverzlun- in Smæran (Smárinn). Er hún var opnuð í sinni núverandi mynd var hún fyrsta daginn opin á sunnudegi, en hins vegar fékk fólk ekkert að kaupa þann dag- inn, aðeins að skoða. Þótti fólki mikil nýbreytni að þessu, enca var búðin troðfull daginn eftir. Kaupfélag er til í Þórshöfn. Nefnist það Keyparsamtþkan. Er það frekar með pöntunarfélags- sniði og hefir ekki opna sölubúð, en sendir allar vörur heiro.. Sápuverksmiðja er í bænum og málingarverksmiðja. Er íslend- ingur, sem búsettur er í Þórshöfn, eigandi að hinni síðarnefndu. Ekkert íslenzkt konsúlat er í Færeyjum sem stendur, og hefir ekki verið síðan Páll Ólafsson fór þaðan. Fáir íslendingar búa i Þórshöfn, eins og er. Þó eru þar nokkrir, sem orðnir eru dansk- færeyskir ríkisborgarar. Eru það til dæmis tveir stórkaupmenn, einn verksmiðjueigandi, einn bíl- stjóri, einn verkstjóri o. fl. Margir skólar eru í Þórshöfn. Þar er menntaskóli, sjómanna- skóli, verzlunarskóli, gagnfræða- skóli og barnaskólar. Nýtt barna- skólahús hefir verið í byggingu í bænum undanfarin ár. Er það heilmikið steinbákn. Athygiis- vert er, hvernig það er bvggt. Gólfin eru ekki steypt um ieið og veggirnir, heldur sett trégólf í á eftir. Sömuleiðis eru glugga- karmarnir ekki steyptir í vegg- ina, heldur settir í á eftir. ENSKUR DANSUR Skemmtanalíf er fremur fá- breytt í bænum. Dansleikir eru t. d. sjaldan haldnir á laugardags kvöldum, heldur á sunnudags- og miðvikudagskvöldum. Fara þeir fram í Þórshöll, Sjónleikahúsinu eða Klúbbnum. Almennan dans- leik kalla Færeyingar, enskur dansur, til aðgreiningar frá sínum eigin dansi, sem þeir nefna, fðr- oyskur dansur. Ein danshljóm- sveit er til í Þórshöfn og heitir hún Goggan, í íslenzkri þýðingu Kuðungurinn. Er það sex manna hljómsveit og spilar hún all sæmilega. Tvö kvikmyndahús eru í bæn- um. Er annað þeirra í Sjónleika- húsinu og hitt í Klúbbhúsinu og heitir Havnarbíó. Fara sýningar fram á hverju kvöldi, oftast fyrir fullu húsi. SÉRTRÚARFLOKKAR ÖFI.UGIR Trúarlíf er mjög fjölskrúðugt í Þórshöfn. Eru trúarflokkar margir. Sá sértrúarflokkur. sem mestu fylgi hefir náð í bænum og annars staðar í Færeyjum, eru baptistar. Hafa þeir stórt sam- komuhús, sem Ebenezer heitir, á bezta stað í miðjum bænum, og eru samkomur hjá þeim fjölsótt- ar. Um helgar eru fjöldasamkom- ur þeirra á götum úti mikill þátt- ur í bæjarlífinu. Stöðvast þá stundum bílaumferðin í miðbæn- um. Hljómsveit Hjálpræðishersins í Þórshöfn er mjög vinsæl. Safn- ast ávallt fjöldi fólks utan um hljómsveitina, þegar hún lætur í sér heyra á Vaglinu. Af öðrum trúarflokkum, sem í Þórshöfn eru, er helzt að nefna adventista, votta Jehova, babbista og mormóna, en hinir tveir síðast- nefndu eiga samt litlu fylgi að fagna. Er talið, að álíka margt fólk sé í hinum ýmsu trúarflokkum og í sjálfri þjóðkirkjunni í Þórshöfn. Kaþólska kirkjan á sér töluvert fylgi í bænum. Starfrækir hún barnaskóla og hefir ýmis líknar- störf á hendi eins og annars stað- ar. Er hin árlega hlutavelta, sem kaþólsku nunnurnar þar halda í bænum um Ólafsvökuna einkar vinsæl, enda nú orðið fast atriði í hinni fjölþættu og skemmtilegu hátíð Færeyinga. FJÖRUGT FÉLAGSLÍF Enda þótt skemmtanalífið í Þórshöfn sé ekki sem blómlegast er félagslíf í bænum talsvert. Þar halda ýmis félög uppi starfsemi sinni með miklum glæsibrag. Bridgefélag starfar í bænum, og cr ekki langt síðan allstór hópur færeyskra bridgespilara kom í heimsókn til íslands og spilaði hér. Skákfélag er einnig starf- andi. Starfsemi Góðtemplara í bænum stendur með blóma. K. F. U. M. starfar í nýjum og rúm- góðum húsakynnum. Bæði félög- in K.F.U.M. og K. hýsa skólafólk, sem dvelur í bænum yfir skóla- tímann. Talsverður áhugi er fyrir leik- list í bænum, og er þar starfandi leikfélag, sem nefnist Sjónleik- arafélagið. Einn fremsti leikari Sjónleikarafélagsins er Knútur Wang, ritstjóri. Mikil aðsókn varð að leikritinu „Mýs og menn“ sem félagið sýndi fyrr á þessu ári, undir stjórn Ernu Sigurleifs- dóttur, leikkonu. Mikill áhugi fyrir íþiróttum ríkir meðal unga fólksins í Þórs- höfn og starfa þar nokkur íþrótta félög. Mestur áhugi virðist vera fyrir knattspyrnu og handknatt- leik. Sumarið 1954 kom knatt- spyrnulið frá Þórshöfn í heim- sókn til íslands og lék nokkra leiki m. a. i Reykjavík, á ísafirði og á Akureyri. BLÖÐIN ERU PÓLITÍSK Nokkur pólitísk blöð koma út í Þórshöfn. Stærst þeirra er Dimmalætting, málgagn Sam- bandsflokksins, og mesta auglýs- ingablaðið. Er það eina færeyska blaðið, sem bæði er skrifað á færeysku og dönsku. Næst stærsta blaðið er Dagblaðið, blað Fólkaflokksins. Önnur blöð eru, 14. september, málgagn Þjóðveld- isflokksins, Fþroya Socialdemo- kratur, Tingakrossur og fleiri minni blöð. Ekkert þessara blaða er þó dagblað, heldur koma þau út tvisvar til þrisvar í viku. G. S. 550 mílna hraði a klst.! LUNDÚNUM, 9. nóv.: — Ameri- can Airlines — eitt stærsta flug- félagið í Bandaríkjunum — hefir pantað 30 þrýstiloftsflugvélar i Bretlandi, og munu þær kosta sem nemur 50 millj. sterlings- punda. Verða þessar flugvélar til farþegaflugs milli Lundúna og Los Angeles, og verða þetta fyrstu þrýstiloftsflugvélarnar, sem notaðar eru til farþegaflutn- inga á þessari leið. Gert er ráð fyrir, að þær verði teknar í notk- un sumarið 1959. Þrýstiloftsflugvél af þessari gerð fór nýlega reynsluflug frá Lundúnum til Los Angeles — með 550 mílna hraða á klukku- stund. Undanfarnar vikur hafa fimm stærstu flugfélög Banda- ríkjanna pantað mikið af þrýsti- loftsflugvélum frá Bretlandi, og er gert ráð fyrir, að mikill hluti þeirra verði tekinn í notkun á lengstu flugleiðunum snemma á árinu 1960. Ritsímahúsið og veðurathugunarstöðin. Eftir götunni ekur annar „bússurinn“. Hægri handar akstur er í Færeyjum sem í Danmörku. allt tfjúka----- Olafur Davíðsson helzti þjóðfræðiritari fslendinga skrif- ar á skólaárum sínum í Reykjavík og stúdentsárum sínum í Höfn sendibréf til föður síns — og dagbók handa sjálfum sér. Finnur Sigmundsson landsbókavörð- ur hefur séð um útgáfu þessara bréfa og dagbókarblaða og gert skýringar á efni þeirra. Lýsa þau í senn Ólafi sjálfum, áhugamálum hans og líferni, — hispursleysi, hreinskilni, fjör og gáski æskumannsins cinkenna bók- ina og gefa persónulega mynd af höfundi, samtíðar- mönnum hans og aldarfari. Fyrri bréfasöfn í útgáfu Finns Sigmundssonar hafa orðið mjög vinsæl, enda gerðar af smekkvísi og nærfærni. ÉG LÆT ALLT FJÚKA ber sama svipmótið og er óskabók bókamanna í ár. Jólabœkur ísafoldar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.