Morgunblaðið - 24.11.1955, Side 9

Morgunblaðið - 24.11.1955, Side 9
Fiinmtudagur 24. nóv. 1955 MORGLNBL-AÐIÐ 25 1 Mynri þessi tekin til austurs af brúninni ofan við Kirkju jæjarklaustur gefur nokkra hugmynd um þá miklu flöt, sem nefnist Stjórnarsandur. Skaftá rennur fyrir surman gandinn hægra megin á myndinni. En vinstra megin sést hinn nýi áveituskurður um norðanverðan sandinn. Stj órnarsandur er um 1000 hektarar; er nú komijiri gfóður i L að helming hans. Svæði það er Stjórnarsandur nær yfir er afmarkað með svörtum deplum. Hvernig HIÐ forna höfuðból, Kirkjubæj- arklaustur stendur undir brattri hlíð Kirkjubæjarheiðar. Og rétt við túnfótinn rennur Skaftá austui' með hlíðinni. Þarna er því fremur takmarkað land- rými. Á þessu mjóa undirlendis- belti, milli hlíðar og árinnar hef- ir að vísu verið ræktað allgott tún. En að jafnaði hafa Klaustur- búendur orðið að sækja heyskap að verulegu leyti upp á Kirkju-> bæjarheiði og þar uppi, í 150— 200 metra hæð eru þeírra haga- lönd, enda er heiðin grasgefin. Við fyrstu sýn mætti þannig virðast að Kirkjubæjarklaustur sé fremur fátækt af góðu sléttu láglendi, sem vænlegt sé til rækt- unar. Það sé aðeins riminn við hlíðarfót. ÞAK SEM EIXGVÖIXER- INN ER En þegar betur er að gáð, sjá- iim við að tæplega kílómeter austan við Klaustur, vendir Skaftá kvæði sínu í kross. Sveig- ist hún suður á bóginn, niður með Landbroti og fjarlægist hlíðina. Og við þetta myndast fyrir norð- an hana víðáttumikil flatneskja. Mestallur þessi flötur frammi á nesinu milli Skaftár og Geirlands ár (sem framar nefnist Breiðbala- kvísl) tilheyrir Kirkjubæjar- klaustri og virðist sem þar sé nóg athafnasvæði til nýræktar fyrir hina framtakssömu Klaustur- bræður. Sá galli er aðeins á gjöf Njarð- ar, að allt þetta viðáttumikla svæði hefir verið foksandur einn. Þetta er hinn svonefndi Stjórnar- sandur. Á honum er nú flugvöll- urinn við Kirkjubæjarklaustur og hin síðustu 10 ár hafa Klaustur- bræður verið smám saman að rækta hann upp eða réttara sagt að láta hann gróa upp. eEifara sandur grær upp af áveitu xseeð Siffgjeirá á Mlœsssis'É mzm ffræssJkamÆ Sigérmassmxsd Vinstra megin sést áveítuskurðurinn, þar sem hann liggur austur eftir sandinum, fram hjá gömlum melhól. Myndin hægra megin er tekin þar sem skurðurinn endar og vatnið síast niður í sandinn. Þar rennur vatnið í lænum og gulstör tekur að jróa þai'. inn til að sýna mér, hvernig sést m. a. þar sem Stjórnarsand- gróðurinn væri nú sífellt að festa . urinn er farinn að gróa upp, þá rætur, þar sem hann fengi smám saman lífvænlegri skilyrði. Við ókum fyrst austur þjóðveginn, en er komið var framhjá Skaftárbrú, béygði hann út af og ókum við fvrst í stað fram með flugvell- inum, þar .sem fíngerður sandur- inn er enn gróðurlaus. — Ég held, sagði Siggeir, að Stjórnarsandur hafi ekki blásið upp af sjálfu sér. Hann liggur það lágt og að öðru leyti er land- inu þannig hagað, að þar hafa ekki verið upptök sandfoks En sandfokið hefir tvímælalaust komið austan að. Er líklegt að það hafi hafizt er Brunahraunið brevtti farvegi Hverfisfljóts Því mun og hafa fylgt aska og vikur. Þá mun Brunasandur hafa þornað upp og þar hefir sandfokið byrj- að. SANDFOKIÐ HEFIR KOMIÐ AUSTAN A» Er ég dvaldist nokkra daga aust ENN STENDUR SANDFOK ur á Klaustri hitti ég Siggeir ÞANGAÐ Lárusson bónda þar að máli og i Þessi skoðun mín styðst m. a. það varð úr að hann ók mér á við það, að þegar þurrviðri gerir nýjum jeppa sínum, prýðilegu I og hann er á norðaustan kemur farartæki, austur um sand- mikill foksandur austan að. Hann Hér stendur Siggeir Lárusson við áveituskurðinn úr Stjórn. Áin Stjórn kemur úr gilinu vinstra megin á myndinni. Þar er hluta af henni veitt í skurðinn, sem fyrst liggur meðfram þjóðveginum i suður. Myndin er tekin hjá skurðbeygjunni, þar sem honum er beint austur yfir sandinn. safnast hann saman í grasrótinni. Eg tel, heldur Siggeir áfram, að þetta syæði allt sé ræktanlegt, aðeins ef sköpuð eru skilyrði til þess að g'róðurinn nái aftur óð festa rætur. Nauðsynlegt til þess er fyrst og fremst að friða svæðið fyrir beit og að veita vatni á það. HROSSAPUNTUR OG GRÁVÍÐIR Við höfum nú ekið um sinn eftir sandinum, en nú fara svo- litlir gróðurtoppar að gera vart við sig og eftir því sem austar kemur, þéttist gróðurinn, unz hann myndar samfeildan úthaga- gróður. Mest ber þarna á hrossa- puntinum. Þarna eru einnig tals- verðar breiður af grávíði, sem Siggeir segir að komi furðu fljótt fram. Sums staðar er grasið svo þétt, grænt og safamikið, að þarna virðist vera góður hagi. — Hérna var alger og örfoka saridur fyrir 10 árum, segir Sig- geir. Þú sérð það bezt á melkoil- unum, sem standa þarna eins og eyjar upp úr graslendinu. Áður fyrr var reynt að hindra sand- fokið með meigrasi, en það virt- ist engin úrslitaáhrif geta iiaft. Nú þegar grasíð tekur að sprctta allt í kring um melkollana, deyr melurinn. Það er eins og hann geti ekki staðizt samkeppnina við grasið. SKAFTÁ DÆLT — Þú segist hafa veitt vatni á sandinn? — Já, það þarf ekki annað að gera en að veita vatni á hann. Þá kemur gróðurinn af sjálfu sér. Ég hef engu sáð í hann, en vind- urinn ber fræin og það líður ekki á löngu þar til hann grær upp. — Það mun hafa verið fvrir 11 árum, sem við tókum upp á þvi að dæla vatni úr Skaftá upp á sáhd- inn. Dælan er við endann á Skaftárbrú og þurfti að lýfta Vatninú um þrjá metra upp Hún var khúin afgángsrafmagni frá vatnsaflsstöðinni á Klaustri. Þetta gaf góða raun, enda er mikið áburðarefni í Skaftá, sem er jökulfljót. Mér gefst ekki tækifæri til að sjá dæluna í gangi. Hún bilaði fyrir nokkru, enda mun slit vera allmikið á hermi vegna leirsins í vatninu. Ég get því lítið sagt um, hvernig mér leizt á þá hlið áveitunnar. En Siggeir sýndi mér aðra nýjung, sem hann byrjaði á fyrir þremur árum. ÁNNI STJÓRN VEITT Á SANDINN Efst á Stjórnarsandi fellur áin Stjórn niður tilkomumikið gil. Hún hefir áður fallið fyrir norð- an sandinn í Geirlandsá, en nú hafa þeir Klausturbræður veitt hluta árinnar á sandinn. Þar þarf ekkert að dæla, því að halli er nægilegur. Aðeins var sett dalítil stífla í Stjórn og vatnsmagn áveit unnar takmarkað með flóðgátt- um, svo að ekki sé hætta á að hún brjótist öll suður yfir sand. Þeir gerðu skurð eftir norðan- verðum Stjórnarsandi. Var það fljótunnið verk með venjulegri jarðýtu. Þessi litli skurður gegnir nú 1 rauninni sama hlutverkinu og áin Nil hefir gert um árþús- undir suður í Egyptó. Hann færir hinum þyrsta jarðvegi raka og árangurinn er farinn að verða jýnilegur hvarvetna í kringum hann. Meðfram skurðinum, er sandurinn orðinn gljúpur, en er austar dregur, endar skurð- urinn og vatnið síazt niður í sandinn og breiðist út um hann. Þar sést árangurinn bezt, því að þar er sums staðar kafagras og jafnvel farið að gerast mýrlent. Ekki laust við það að bragðsæt störin geri sig þar heimakomna. Er þetta sannarlega skemmti.eg- ur árangur. FLUGVÖLLURINN ORDINN FYRIR Ég læt í ljós við Siggeir ánægju mína yfir þessu og þá svarar hann. — Þessi tilraun hefir gefizt svo vel, að nú viljum við gera flein áveituskurði um Stjórnarsand. Yrði það þá næst annar skurður samhliða þessum, en nokkru sunn ar. Aðeins eitt stendur í vegi fyrir honum, en það er flugvöll- urinn. Að vísu lægi skurðurinn ekki um flugvöllimi, en það er hætt við að sandurinn myndi blotna svo mjög og mýkjast af vatninu, að völlurinn yrði ónot- hæfur. Vegna þessa, er ég hrædd- ur um að komi að því að við verðum að fá flugvöllinn brott. Það er þægilegt að hafa flugvöll hér, en ræktarlandið verður okk - ur ómissandi. Kemur sennilega að því fyrr en seinna. Yrði flugvöll- ur þá gerður að líkindum á sandi austur við Foss á Síðu. GRÓÐUR BREIÐIST ÚT — OG ÞÚFURNAR — Hvað telurðu að allt þetta svæði sé stórt, sem nefnist Stjórn arsandur? — Ég held að það sé eitthvað í kringum 1000 hektarar. Þar var eins og ég sagði áðan enginn gróð ur fyrir 10 árum, en nú gæti ég trúað að gróðurlendi sé þriðji hluti eða allt að helmingi. Það er víst ekki fjarri lagi að svo sé. Að minnsta kosti er hægt Frh. á bls. 29 ! Þannig hefur sandurinn gróið upp við það að fá nægilegan raka. Hérna er komið kafgras. En gamall melkollur stendur eftir eins og eyja í gróðurlendinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.