Morgunblaðið - 08.12.1955, Side 8
8
mORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 8. des. 1955
Útg.: H.Í. Árvakur, Reykjavík.
yramkv.stj.: Sigíús Jónsson.
Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá VifW.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstrseti 8. — Sími 1600.
Askriftargjald kr. 20.00 6 mánuði innanlanda.
í lausasölu 1 króna eintakið.
Öngþveitið
í frönskum stjornmólum
ENN einu sinni beinir öngþveit-
ið í frönskum stjómmálum
athygli heimsins að Frakklandi,
hinu gamla móðurlandí lýðræðis-
ins í Evrópu. Ríkisstjóm Edgar
Faure var felld með hreinum
meirihluta í fulltrúadeild franska
þingsins 29. nóv. s.l. Hafði hún
orðið að ganga í gegnum margar
eldraunir undanfamar vikur.
Það var fyrst og fremst sú
fyrirætlan forsætisráðherrans að
flýta þingkosningum í landinu um
hálft ár, sem varð honum og
stjóm hans að fallL Meirihluti
þingmanna taldi rétt að ljúka
kjörtímabilinu áður en til kosn-
inga yrði gengíð. Það þing, sem
nú situr, hefir setið í 4% ár. Kosn-
ingar áttu því að fara fram á
miðju næsta ári.
Flestir mtutu sammála um
það, að þetta þing hafi veriff
mjög reikult í ráði Á þessu
kjörtímabili hefir þaS skipt
niu sinnum um rikisst jóm. Það
hefir spiltt áliti Frakklands í
alþjóðamálum og tafiff mjög
framkvæmd hugmyndarinnar
um sameiningu Evrópu, enda
þótt það fullgilti að lokum
Partsarsamningana og kæmi
mátinu þar með á sæmilega
fastan grunðvöiL
Þeir, sem fylgzt hafa með
frönskum stjómmálum undan-
farin ár munu því fæstir telja að
nokkur skaði sé skeður, enda þótt
Edgar Faure hafi nú tekið þá
djörfu ákvörðun að rjúfa þetta
þing og efna til nýrra þingkosn-
inga 2. janúar næstkomandi En
þá ákvörðun gat hann tekið sam-
kvæmt ákvæðum stjómarskrár-
innar, vegna þess að tvær rikLs-
stjórnir höfðu verið felldar á
sþastliðnum 18 mánuðum, og
hreinn meirihluti þingmanna
greiddi vantraustinu á hans eigin
stjóm atkvæðL Fulltrúadeildin,
sem hafði lýst sig mjög mótfallna
því að hraða kosningum, hefir
því sjálf leitt yfir sig það sem
helzt hún varast vann, þ. e. a. s.
þingrof og kosníngar nú þegar.
Óliklegt að aukin festa
skapist
ólíklegt er, að þessar kosning-
ar hafi í för með sér mjög breytta
skipun franska þingsins og þar
með aukna festu í frönsk stjórn-
mál. Kosningamar fara fram
samkvæmt hinum gömlu kosn-
ingalögum, sem byggjast fyrst og
fremst á hlutfallskosningum í
stómm kjördæmum. Aðalstjóm-
málaflokkar Tandsins eru 6. Eng-
inn þeirra getnr gert sér von um
að fá hreinan þingmeirihluta, eða
verða áberandi sterkastur. Flolík-
ur Edgars Faures forsætisráð-
herra, Róttækíflokkurinn, geng-
ur klofinn til kosninganna.
Mendez France fyrrverandi for-
sætisráðherra virðist hafa náð
meirihluta í flokknum, og hefir
hann notað hann til þess að
klekkja á Faure og niðurlægja
hann á ýmsa lund.
En nú hefir hann gert til-
raun til þess að skapa fiokka-
samsteypu án þátttöku flokk
anna lengst til hægri og komr >
únista. Má vel vera, að vin-
sældir og álit Mendez Franee
skaoi þeim samtökum aukið
fylgL
Lærdómsrík reynsla
Reynslan af flokkaglundroð-
anum í Frakklandi er mjög lær-
dómsrik fyrir lýðræðissinnað
fólk um allan heim. Flokkafjöld-
inn í þessu gamla landi lýðræðis-
ins er á leiðinni að eyðileggja
þingræði þess og lýðræðisskipu-
lag. 21 ríkisstjóm hefir set.ið í
landinu s.L 10 ár. Þingið hefir
hvað eftir annað reynzt svo að
segja óstarfhæft. Það hefir fellt
hverja ríkisstjómina á fætur ann-
arri og ekki reynzt fært um að
marka ákveðna stefnu í hinum
þýðíngarmestu málum.
Reynslan hefir sýnt, að því
fleiri sem flokkarnir em, þeim
mun erfiðara verður að mynda
ríkisstjóm, og þvi loskenndara
og spilltara verður stjómarfarið.
Framsýnustu stjómmálamenn
Frakka tala nú um það, að brýna
nauðsyn beri til þess að skapa
þar tveggja flokka kerfi, eins og
í Bretlandi, ef lýðræðisskipulag
hins franska lýðveldis eigi ékki
að líða undir lok.
En litlar likur benða til þess
að þeim takLst það með núver-
andi kosningafyrirkomulagl.
Edgar Faure mun því sennl-
lega ekki græða mikið á þing-
rofinu. Vel má svo fara, að
hann sjálfur einangrist og
velti út úr frönsku stjómmála-
lífi. En hann hefir þó stytt líf-
daga þess þings, sem reynzt
hefir einna úrræðalausast og
sundurþykkast allra franskra
þinga undanfarna áratugi.
Délgsleg framkoma.
í HINNI opinberu heimsókn rúss
nesku valdhafanna Bulganins og
Kruschevs til Indlands og Burma,
hafa gerzt óvenjulegir atburðir.
í stað þess að gestimir tveir hafi
kunnað að hegða sér kurteislega
og gæta þess velsæmis sem sjálf-
sagt er í slíkum heimsóknum
æðstu manna ríkja, hafa þeir not-
að tækifærið til að koma fram
hinum svæsnustu og ófyrirleitn-
ustu áróðursræðum gegn öðrum
-ríkjum. Samkomurnar þar sem
þeir hafa haldið ræður hafa líkzt
því að þeir væru á kosningafund-
um. Ræðurnar hafa verið ómeng-
aðar áróðursræður og vekur það
m. a. eftirtekt að hinir rússnesku
valdhafar hafa unað því vel, að
enginn var til andsvara áróðurs-
ræðunum.
Þetta hefur Rússunum tekizt í
skjóli gistivináttu Indverja og
Burmabúa. En sannleíkurinn er
sá að þeirri gistivináttu hafa þeir
nú misþyrmt með dólgslegri
framkomu. Það er grófasta móðg
un við Vesturlönd að stiórn Ind-
lands skuli líða það að slíkum
herrum haldist það uppi t. d. að
úthrópa Vesturlandamenn sem
nýlendukúgara, þegar staðreynd-
in er sú að Vesturlönd hafa gefið
hverju nýlenduríkinu á fætur
öðru sjálfstæði, meðan Rússar
hafa hins vegar hert tokiu um
undirokaðar nýlenduþjóðir í
Asíu. Og sjálfur Nehru. sem hefur
t-ótzt vera postuli hlutlevsisstefn
unnar hefur rofið það hlutlevsi
með því að hafa ekki einurð í
sér til að rísa upp og mótmæla
þeim svívirðirigum, sem ræður
gesta hans hafa geymt.
Þorskurinn
1 . ,
gengmn 1
Garðssjóinn
NETAVEIÐAR í Garðsjó hér í
Foxaflóa hafa legið niðri í allan
vetur þar til nú, að fyrsti þorsk-
urinn er tekinn að veiðast þar.
Var vélbáturinn Geir Goði þar
með net sín í fyrradag og var með
allgóðan afla og er fregnin spurð-
ist fór Reykjavíkurbáturinn Arn-
firðingur þangað, en hann var
væntanlegur seint í gærkvöldi úr
róðrinum. Netaveiði var hafin i
Garðsjó í október í fyrra.
Útgerðarmenn og sjómenn hér
við Faxaflóa hafa eiginlega beðið
eftir því að fiskur gengi í Garð-
sjóinn, sagði einn útgerðarmann-
anna hér í bænum í gær. Senni-
legt er að fleiri bátar muni hefja
netaveiðar á næstunni. Reykja-
víkurbátar liggja nú nær allir í
höfninni.
Fimmta einvigisskák
Friðriks og Pilniks
Friðrik vonn eftir 78 leiki
Fé tekið í hús
í Skagafirði
SAUÐÁRKRÓKI, 7. des.: — Frem
ur hefir verið kalt og hríðarveð-
ur af og til síðustu daga. Um helg
ina var fé tekið almennt i hús í
Skagafirði. Snjór er fremur íítill.
ógæftir hafa verið en dágóður
afli þegar hefir gefið á sjó. M.b.
Stígandi frá Skagaströnd, sem
gerður er út frá Sauðárkróki er
eini stóri báturinn sem rær héð-
an. Hefir hann verlð með 3—4
lestir í róðri. — Guðjón.
FTMMTA einvígisskákin var
tefid að Þórskaffi i fyrrakvöld.
Pilnik lék kóngspeði og Frið-
rik svaraði með c5. Einn Sikil-
eyjarleikurinn enn, drekaaf-
brigðið. Staðan varð þó snemma
næsta ólík þeim Sikileyjarleikj-
um, sem áður höfðu verið tefld-
ir. Eftir að báðir höfðu hrókað
kóngsmegin, hóf Pilnik kóngs-
sókn, en Friðrik lék eins og ekk-
ert væri, sótti á drottningarroeg-
in. Af furðulegu óttaleysi hélt
hann þessum seinlegu aðgerðum
áfram þangað tii hann hal'ði
unnið peð. .
Mörgum þótti hóg um Pilnik
hafði 3 peð og 2 hróka, drottn-
ingu og tvo biskupa tiltæka í
sóknina, en vörnin bilaði ekki.
Drekinn er torsóttur. Pilnik
hafði átt tvo hróka á opinni
f-línu, sem var aðalógnun hans,
en í 35. leik tókst Friðrik að
koma hrók á f-Iínuna og eftir
það var einsýnt að hann mvndi
vinna ef hann yrði ekki fyrir
slysi í síðustu leikunum, sém
alltaf ér nokkur hætta- þégar um-
hugsunartíminn er mjög naum-
ur, sbr. t. d. fjórðu fekákina. Og
í síðustu leikunum tapaði hann
peði, að því er virtist að þarf-
lausu. Þetta var mikilsvert peð,
meira að segja svo mikilsvert að
1 ef skákin yrði að éndatafli með
riddara á móti biskup, sem vel
var hugsanlegt, gat Friðrik kom-
izt á taphættu, þó hann ætti
peði mei^a.
Ég náði allra snöggvast tali
af ifríðrik, eftir að skákinni var
frestað og spurði hvort hann
hefði misst af vihning, og hélt
hann það ekki vera, en spurn-
ingin var þó þannig oröuð að
hugsanlegt var að hann hafi
misskilið hana.
í gær klukkan tvö hófst svo
skákin að nýju: Ekkert óvænt.
skeði eftir þvi sem Friðrik sagði
mér. Skákinni lauk svo eftrr 78.
leik svarts með því að Pilnik
gafst upp, tveim tímum áður en
síðasta skákin hófst. Skákin í
heild birtist í blaðinu í dag.
/>
XJelvahandi áhripar:
Hvar eiga börnin
að leika sér?
FYRSTI snjórinn í vetur féll
fyrir skemmstu, og bömin
glöddust. En foreldrárnir eru
áhyggjufullir og leyfa börnum
sínum með hálfum huga að fara
út með sleðana og skiðin, þar
sem bau eiga engan samastað til
vetrarléikjanna néma götuna.
„Kona í Austurbænum" gerir
þetta að umræðuefni í bréfi til
j Vélvakanda. Börnin eiga ekki að
I leika sér á götunni, segir húri. Það
er stórhættulegt, þegar þau koma
brunandi eftir götunum á skiða-
sleðum, sem þau hafá oft á tíðrim
ekkert lag á að stöðva. Flestir for-
eldrar leggja bömum sínum það
á hjarta að fara ekki út á götuna,
en það bann er oft brotið, og með
því stofna börnin sinu eigin lífi
og límum — og annarra — í voða,
En hvar eiga börnin að leika sér?
„Á víð og dreif um bæinn eru
reyndar óbyggð svæði þar, sern
börnin leita hælis, t. d. er óbyggt
svæði sunnan og austan við Sund-
höllina, og þar er fjöldi barna
löngum að leik. Þó að þetta svæði
sé engan veginn ætlað til aksturs,
eru börnin samt sem áður ekki
óhult þarna fyriv bílunum.
Sleðabrautir.
BÍLSTJÓRUNUM liggur að
vanda mikið á, og verður því
miður allt of oft á að stytta sér
leið gegnum barnaþvöguna án
þess að íhuga, að þessi smávægi-
legi tímasparnaður kann að verða
til þess, að þeir valdi slysi.
Það er full ástæða til þess, að
viðkomandi bæjaryfirvöld reyni
að gangast fyrir því, að sérstakar
götur verði afgirtar sem sleða-
brautir fyrir börn. Bílamergðin er
orðin svo mikil, að það er óverj-
andi að gera ekki einhverjar já-
kvæðar ráðstafanir til að forða
börnunum frá þessari hættu.
Eg man ekki betur en að fyrir
20 árum — og jafnvel fyrr — hafi
nokkrar götur jafnan verið af-
girtar, meðan snjór var á, svo að
börnin gætu leikið sér þar í snjón
um — og mun bíiaumferðin ekki
hafa verið sambæriieg við það,
sem nú er.“
Er hér ekki öðru við að hæta
en að þetta er mjög þörf hug-
vek-ja, og Vonaridi verða gerðar
róttækar ráðstafanir í þessu efni.
HjálpsemL
EG hitti unga blaðakonu að máli
í gærmorgun, og sagði hún
farir sinar ekki sléttar — sem
varla er von í annarri eiris færð
og nú er á götum bæjarins. Var
hún á leiðinni yfir Lækjargötuna
hjá umferðaljósunum, er henni
skrikaði fótur, og féll hún eridi-
löng á götuna. í fallinu missti
hún bögglatöskuna sína, og dreifð
ust pakkarnir sinn í hverja átt-
ina.
Sem stúlkan sat þama, bjarg-
arlaus í krapableytunni, gengu
j tveir hnarreistir, rösklegir piltar
' fram hjá henni án þéss, að svo
mikið sem ómaka sig til að spyrja,
hvort hún hefði meitt sig, — hvað
þá heldur að það hvarflaði að
þeím að rétta henni hjálparhönd!
Unglingum finnst revndar
mikil skömm að því að detta á
götum úti, en ekki þurfa þeir að
skammast sín fyrir að hjálpa
fólki að standa á fætur.
— og kurteisi
ÆSKULÝÐURINN er ekki einn
um að vera klaufalegur og
lítt prúðmannlegur í framkomu.
Mér kemur í hug atvik, sem vin-
stúlka mín skýrði mér frá á dög-
unum. Hún var á leiðinni heim til
sín úr vinnunni í strætisvapni. Að
vanda var ekkert sæti laust, og
hún ríghélt sér í slána, meðan
vagninn brunaði áfram í skrykkj
um. Hún átti sér einskis ills von,
þegar maðurinn, sem stóð fvrir
framan hana, steig skyndilega
eitt skref aftur á bak og hlassaði
hælunum ofan á ristina á henni
— hann var á járnuðum skóm!
Maðurinn sneri sér við hinn ró-
legasti og brosti blíðlega til stúlk-
unnar — en ekkert afsökunarorð
kom út fyrir varír hans. Ekki veit
ég, hvort hún brosti við honum
á móti — en varla hefir brosið
verið blítt.
MerklS,
klseðSr
1. e4 c5
2. Rf3 d6
3. d4 pxp
4. Rxp Rf6
5. Rc3 Rc6
6. g3 g6
7. Bg2 RxR
8. DxR Bg7
9. f3 0—0
10. Df2 Be6
11. 0—0 Rd<
12. Be3 Da5
13. f4 Rb6
14. f5 Bc4
15. Hfl - - dl Rd7
16. g4 b5
17. Dh4 b4
18. Rd5 BxR
19. HxB Dd8
20. gS Hc8
21. Hfl Hxc2
22. HÍ3 He8
23. hxg fxg
24. Hdl RÍ8
25. e5
Bxe5
26. Hdl — fl e€
27. DxM Hxb2
28. Da4 De7
29. Bbl Hb8
30. Kbl Hb8—e8
31. Be3 Hc7
32. Bf4 BxB
33. HxB Rd7
34. Bh3 Hf8
35. HxH RxH
36. Hf6 Hclf
37. Kg2 Db7t
38. Kg3 Hc3t
39. Kh4 Dc8
40. Dxa7 Hc4t
41. Kg 3
í þessari stöðu lék Friðrik bið-
leik. Kl. 2 í dag mættust þeir
til að ljúka biðskákinni. Hið lok-
aða umslag með biðleiknum var
opnað og reyndist hann ve
41. Hc3t
42. Kh4 Hc7
43. Df2 Hc4t
44. Kg3 He4
45. Df3 He5
46. Kh4 De8
47. Bg4 Rd7
48. Hf4 De7
49. Kg3 Hxg5
50. h4 He5
51. Da8t Kg7
52. Db7 Kb6
53. a4 De8
54. Dc7 De7
55. a5 Hc5
56. Da7 Dg7
57. Bf3 Re5
58. Dxg7 Kxg7
59. a6 Ha5
60. Bb7 d5
61. Hf2 Rd3
62. He2 Rb4
63. Hc7t Kf6
64. Hxh7 Rxa6
65. Bc6 Rc5
66. h5 Re4t
67. Kg2 Ha2t
68. Kgl gxh
69. Hxh5 R«5
70. Hh8 Ke5
71. Kfl Kf4
72. He8 d4
73. Hf8t Ke3
74. Hb8 Rf3
75. Hb3t d3
76. Bxf3 Hf2t
77. Kel Hxf3
78. Gefia.