Morgunblaðið - 31.12.1955, Blaðsíða 13
Laugardagui 31. des. 105»
MORGVNBLAÐIÐ
29
IÐNAÐIRI
tegund holsteinaframleiðslu eftir
sænskri fyrirmynd.
Glerslípun og speglagerð í
Reykjavík tilkynnti nýja tegund
á framleiðslu tvöfalds glers sam-
kvæmt þýzku einkaleyfi, þar sem
notuð er sérstök tegund af
strimlum milli rúðanna í stað-
inn fyrir málmlista, sem 'mest
hata tíðkast til þessa.
. Gluggar h.f. nefnist nýtt fyrir-
tseki í Reykjavík. Hóf starfsemi
í júnímánuði. Framleiðir rimla-
gluggatjöld og rúllugardínur en
hyggst síðar að setja upp glugga-
verksmiðju.
Þakpappaverksmiðjan h.f. tók
fil starfa í sumar í Silfurtúm,
íhilli Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur, og framleiðir þakpappa.
Hráefnið er flutt inn frá Þýzka-
landi. Vélarnar eru allar smíðað-
ar hérlendis. Dagleg afköst eru
um 2—3 tonn af pappa.
Skýrt var frá því, að bygg-
ingarmeistari hafi aflað sér frá
Bandaríkjunum nýrrar tegundar
af gólfpússningarvél, sem pússi
gólf um leið og þau eru steypt,
í stað þess að láta það bíða þess
að gólfið harðni og jafnvel þang-
að til að húsin verði fokheld.
Steinull h.f. í Hafnarfirði til-
kynnti þá nýjung í framleiðslu
sinni, að nú framleiðir verk-
smiðjan einangrunarplötur úr
steinull, en áður var steinullin
framleidd í lausu formi.
HRE1M.ÆXIS-
\ ÖRUIÐNADUR
Mikil samkeppni virðist ríkja
í þessum iðnaði, vegna frjáls-
ræðis í innflutningi.
Meðal nýjunga sem frá var
skýrt hjá innlendum verksmiðj-
um, var ný tegund þvottadufts
frá verksmiðjunni Sjöfn á Akur-
eyri.
Skaðabótamál var höfðað gegn
Neytendasamtökunum vegna
birtingar á niðurstöðum gæða-
mats á danska þvottaefninu
Hvile-Vask og krafizt 236 þús.
kr. bóta vegna tapaðs ávinnings,
er íslenzka umboðsfirmað taldi
Bjórgunarskútan í smiðnm hjá Stálsmiðjunni.
síg verða fyrir. Dómur er ekki'
falíinn í n.álinu,
Efnagerðin Stjarnan skýrði
dagblöðum svo frá í nóvember,
að verksmiðjan gæti nú fram-
leitt allar bóntegundir, sem fyr-
irfinnast á erlendum markaði.
JÁRNIDNAÐUR
í fréttum marzmánaðar var
getið um nýja vél til þess að
fella þorskanet, en vél þessi var
fundin upp og smíðuð af Ásgeiri
Long í Hafnarfirði.
Þá er þess einnig getið í frétt-
um ársins, að annar hagleiks-
maður, Hannes Ágústsson, han
fundið upp vél til þess að hnýta
spyrðubönd, í samvinnu við
Valdimar Egilsson, járnsmið, er
smíðaði vélina síðan, og hafi tvær
slíkar vélar verið seldar til Nor-
egs.
Verkstæði Konráðs Þorsteins-
sonar, Sauðárkróki, tilkynnti
framleiðslu á nýrri gerð hand-
knúinna þvottatækja fynr
heimili.
Jens Árnason, vélsmiður í
Reykjavík, fann upp nýja gerð
af skreiðarpressu, sem talin er
fullkomnari en eldri gerðir.
XJm frys+Þ'éiaiðnað var mikið
rætt og ritað í sambandi við
byggingu nýrra frvstihúsa á Ak- j
ureyri og í Hafnarfirði. f ráði var
að flytja inn vélar frá Þýzka-
landi og taka lán þar til fram-
kvæmdanna. Sætti sú ráðagerð
opinberum mótmælum fráLands-
sambandi iðnaðarmanna og Fé-
lagi íslenzkra iðnrekenda og
verða vélarnar að líkum smíðað-
ar innanlands.
Um smíði stálskipa er rætt í
kaflanum um skipasmíði.
(Vegna rúmlevsis á þessum stað
í blaðinu. er næsti kafli greinar-
innar birtur á öðrum stað í blað-
inu — á bls. 6.)
Undirstöður að stærsta húsi Sementsverksmiðjunnar. 16 m. er*
á milli undirstöðustóipa.
Lokaorð
Um iðnaðinn almennt, afkomu
hans á árinu og um framtíðar-
horfurnar mætti margt segja,
umfram það, sem framanskráðar
framleiðslutölur gefa til kynna.
Fyrra atriðið liggur þannig fyrir
í fáum orðum, að afkoma iðnað-
arins fer verulega eftir fjárhags-
legri afkomu og greiðslugetu al-
mennings á hverjum tima. Verð-
ur ekki annað sagt, en árið hafi
að þessu leyti verið iðnaðinum
hagstætt.
Hinsvegar varð sex vikna verk
fall á's. 1. vori ekki að sama
skapi hagstætt fyrir iðnaðinn,
sem á nú í harðri samkeppni við
innfluttan varning. Stöðvun
framleiðslunnar hafði í för með
sér aukna sölu hins erlenda
varnings í sölubúðum og tekur
langan tíma að vinna það tjónj
upp að fullu.
Þá hafði kaupskrúfan innan-
lands á árinu óheppileg áhrll
á samkeppnisaðstöðu innlenda
iðnaðarins við erlenda samkeppa
isframleiðendur, því að á árinu
1955 hækkaði almennt kaupgjald
um 21%, án þess að fréttir liggl
fyrir um samskonar kauphækk-
anir í nágrannalöndunum. Láns-
fjárskorður háir starfsemi margra
fyrirtækja og samkeppni er mik-
il við innfluttan varning. End-
urnýjun véla og aukið húsrýnai
myndi bæta aðstöðu iðnaðarins,
en auk lánsfjárskortsins strand-
ar þar á erlenda gjaldmiðlinum
og ganga flest fyrirtækjann*
bónleið til búðar Innflutninga-
skrifstofunnar um innflutning
véla og leyfi til nýbygginga
verksmiðjuhúsa.
Rætt hefur verið um vaxandl
Framh. á bls. 31»
Þessi heimsfrægu gæða verkfæri selj-
um v/ð af heildsölubirgðum og beint
frá verksmiðjunni gegn nauðsynlegum
leyfum.
Einkaumboðsmenn fyrir
Millers Falls Company
Creenfield. Mass., IJ.S.4.
Hafnarstræti 5, Reykjavík
Simar 2207, 6786, 5206
MILLER5 FALL5
kTQOL5 j
''■wPp