Morgunblaðið - 17.08.1956, Síða 3
Fostuðaffnr 17 áeúst 195P
M OV CTINP* tfílÐ
miðri hringi3unrii
Forseli Súez-félagsins (haries Roax.
M1
flKIL ÓLGA óg órói hefur
verið á Vesturlöndum eftir
tilkynningu Nassers herforingja
um að hann ætlaði að þjóðnýta
Súez-skurðinn. Ríkisstjórnir hafa
verið kallaðar saman til auka-
funda, umræður hafa verið á
þingum rxkjanna, utanríkisráð-
herrar nokkurra landa hafa kom-
ið saman til viðræðna, herlið er
kallað út.
É BÆKISTÖÐVUM
SÚEZ-FÉLAGSINS
Hvergi hefur ólgan þó verið
meiri en í höfuðstöðvum Súez-
félagsins, hinr.i voldugu bygg-
ingu í hjarta Parísar og það er
eðlilegt, að athyglin beinist nú
mjög að æðsta manni þess fé-
lags.
Hann er hinn 76 ára gamli
Francois Charles-Roux. Flestir
kynnu að ímynda sér að forseti
Súez-félagsins væri Englending-
ur, en svo er ekki. Að vísu eiga
Englendingar 7/16 hlutabréfanna
í Súez-félaginu, en allt frá byrj-
un hefur Frökkum þó tekizt að
halda forustunni. Og þegar nýr
forseti var kjörinn í félaginu eftir
styrjöldina var þessi Frakki enn-
þá íýrir vaiinu.
ÍMYND „DIPLOMATANS“
Ef menn vilja sjá hinn full-
komna „diplomat“. þá er Charles-
Roux ímynd þeirrar mannteg-
undar. Hann hefur fullkomna
framkomu, íullkominn klæðnað
og hann segir hinar fullkomnu
setningar og' orð með fullkomn-
um rómi. Allur hávaði og létt-
lyndi þagnar í hverjum sal jafn- ’ kallaður fram
skjótt og Charles-Roux gengur
inn í hann og eiginlega fer hon-
um ekki vel að vera nú orðinn
aðalsöguhetjan í jafn fyrirlitlegri
einræðisdeilu, eins og þeirri sem
farið er nú að leika í sölxrm Súez-
félagsins í deilunni við Nasser.
KUNNÁTTUMAÐUR
í EGYPZKUM FRÆÐUM
Francois Charles-Roux lióf
ungur starfsferil sinn í frönsku
utanríkisþjónustunni og starfaði
í henni með glæsibrag. En mesta
þýðingu fyrir líf hans hafði þó
dvöl hans í Kairo 1907. Þá fékk
hann svo sterkan áhuga á Egypta
landi, að það hefur enzt alla tíð
síðan. Varð hann síðan mesti
kunnáttumaður í egypzkum fræð-
um, bæði í sögu landsins, menn-
ingu og nútímamálefnum lands-
ins. Hann ritaði fjölda sagnfræði-
legra rita um Egyptaland og öðl-
aðist fyrir þau setu í frönsku
akademíunni. Kunnasta bók hans
er „Les origines de l’expedition
de l’Egypt", sem út kom 1910.
KYNNTIST
VICHY-STJÓRNINNI
Charles-Roux náði hátindi
virðinganna, er hann var skamma
stund skipaour skrifstöfustjóri
franska utanríkisráðuneytisins
við fall Frakklands 1940. En hann
sagði af sér því starfi þegar í
nóvember sama ár. Hann þekkti
því niður í kjölinn atburði í sam-
bandi við vopnahléssamningana
1940 og vissi hvað gerðist á bak
við tjöldin hjá Vichy-stjórninni.
Mannorð hans var þó með öllu
óflekkað og í réttarhöldunum
gegn Petain marskálki var hann
í marz 1955, þegar umferðin nam
um 10,2 milljónum smálesta.
GÓÐUR ARSUR
Ef litið er yfir síðustu endan-
legu reikningana, sem gefnir hafa
verið út fyrir 1953, kemur í ljós,
aS tekjur félagsins voru þá rúm-
lega einn milljarður kr. og var
þriðjungi teknanna úthlutað sem
arði til hluthafanna. Svo ekki er
nema eðlilegt að þessi fengur
hafi freistað einræðisherra, sem
var í fjárhagsklípu.
Charles Roux
FEITASTA STAÐAN
Þagar styi-jöldinni lauk var
Charles-Roux á eftirlaunum sem
fyrrverandi sendiherra. Þá kom
stjóim Súez-félagsins til hans og
bauð honum stöðu sem forseti
félagsins, en það er talin einliver
feitasta staða í heimi.
Fáir hafa hugmynd um, hvílíkt
risafyrirtæki Súez-félagið hefur
verið. Það er eiginlega ekki hægt
að lýsa því með orðum, heldur
einvörðungu með tölum. Á það
má benda að höfnin við mynni
skurðarins Port Said er ein fjöl-
farnasta höfn í heimi. Árleg um-
ferð um skurðinn nemur 100
milljónum smálesta. Fyrir einn
mánuð mun hafa verið sett met
sem vitni.
Þorlinnsgestur
Jakobína Krisfjánsdóftir heimsækir Isiand
efffir 54 ára fjarvisf
AiÐ þessu sinni hefur komið hing-
að í heimsókn á vegum Þorfinns
Kristjánssonar, ungfrú Jakobína
Kristjánsdóttir, eftir 34 ára dvöl
í Danmörku.
Fröken Jakobína er Seyðfirð-
ingur, Kristjánsdóttir frá Skafta-
bæ, ein af tíu systkinum, sem
misstu föður sinn ung að árum.
Fjörutíu ára fluttist Jakobína til
systur sinnar sem gift var í Dan-
mörku. Og hjá þessari systur og
Cornelius heildsala, manni henn-
ar, hefur Jakobína dvalizt, eins
og dóttir. En iðngreinar, sem hún
hefur unnið að, hafa verið ljós-
myndasmíöi og saumaskapur.
Hér hefur Jakobína verið bor-
in á höndum af vinefólki. --
ferðazt hefur verið með hana til
merkra staða í nágranna
um.
Þá átti hún kost á að fljúga
austur á land til æskustöðva og
eiixnig ferðaðist hún þaðan víða
um Fljótsdalshérað, m. a. í Hall-
ormsstaðaskóg.
Fröken Jakobína snýr heim
með Gullfossi á morgun, undur
glöð og þakklát guði og mönn-
um fyrir „að hafa átt kost á
þessum kynnum við mitt yndis-
lega föðurland“, eins og hún tók
til orða.
Triilubáiarnir
á Slokkseyri hafa
aflað vel í sumar
STOKKSEYRI, 11. ágúst: —
Trillubátarnir hafa róið héðan frá
[Stokkseyri í allt sumar og hefur
afli verið mjög sæmilegur, en
fiskur ekki mjög ör. Gæftir hafa
yíirleitt verið góðar. Vestmanna
eyjabáturinn Björgvin 2., sem
landað hefur hér afla í sumar,
hefur ekki lagt upp hér síðustu
viku. Humarveiðar hafa verið
ágætar og munu bátarnir sem
þær veiðar stunda, en þeir eru
tveir, vera búnir að veiða fyrir
yfir 100 þús. kr. — Magnús.
Stormmáfur, nýr
varpfugl á íslandi
í nýútkomnum Náttúrufræð-
ingi ritar Arnþór Garðarsson um
Stormmáfinn, nýjan varpfugl á
íslandi. Þar segir svo m.a.:
„Stormmáfurinn er ein af íjór-
um máfategundum, sem setzt
hafa að hér á landi á þessari öld.
Landnám hans virðist þó hafa
vorið allfrábrugðið landnámi
hinna máíanna — silfurmáfs, síla-
máfs og hettumáfs, sem allir sá-
ust fyrst á árunum 1906—1913, og
byrjuðu allir að verpa hér á landi
1920—1930. Aftur á móti náðist
stormmáfur fyrst árið 1858. Eftir
það sáust stormmáfar öðru
hverju og urðu smám saman al-
gengari, og síðan 1920 hafa þeir
verið allaalgengir vetrargestir
og virðist fara sífjölgandi. Fyrstu
árin, %em þeir sáust, vorvt ung-
fuglar í miklum meirihluta, en
nú á síðustu árum virðast full-
orðnir fuglar miklu algengari.
Menn hafa löngum grunað storm
máfinn um að verpa hér á laiidi,
en hið eina, sem það hefur stutt
hingað til, eru athuganir Kristj-
áns Geirmundssonar. Hinn 2.
sept. 1936 sá hann ein stormmáfs-
hjón með nýflcyga unga á leir-
unum við Akureyri. Foreldrarnir
kölluðu sífellt á ungana og var
mjög annt um þá, og gerðu sig
líklega til að verja þá. (Náttúru-
fr., VII, 1937, bls. 91). Hinn 7.
sept 1937 sá Kristján aftur storm
máfshjón á sama stað með alveg
nýfleyga unga. Þau mötuðu þá
og voru sífellt að verja þá fyrir
hröfnum og stærri máfunum, sem
þeim þótti vera of nærgöngulir
við ungana. Segir Kristján að
þessi fjölskylda hafi dvalizt þar
alllengi á leirunum (Náttúrufr.
IX, 1939, bls. 172).
Á vetux-na eru stormmáfar al-
gengir alls staðar meðfram
ströndinni kringum Reykjavík,
sérstaklega þó í Hafnarfirði og
út með vesturströnd Álftaness.
Þar sjást oft allstórir stormmáfa-
hópar (50 eða jafnvel allt að 100
fuglar í hóp).
Stormmáfurinn er tiltölulega
auðþekktur fugl. Hann er líkast-
ur ritu, en þekkist frá henni á
því, að vængirnir eru breiðari og
hvítir í oddinn. Vængjatök storm
máfsins eru einnig hægari en rit-
unnar, og íæturnir eru grænleitir
en ekki svartir eins og á ritu.
Fullorðnir hettumáfar hafa rautt
r.ef og fætur og á öllum tímum
árs eru vængirnir hvítir á efra
borði ulan til. Silfurmáfur er
mjög líkur stormmáfi á litinn, en
hann er mun stærri fugl, næstum
eins og stór svartbakur. Auk þess
hefur silfurmáfur bleikleita fæt-
ur, og nefið er mun stærra en á
stormmáfi, með rauðan díl fram-
arlega á neðar skolti. Ungir storm
máfar minna allmikið á unga
svartbaka, en eru auðvitað miklu
minni.
Sú deilitegund stormmáfs, sem
hér er um að ræða (Larus canus
canus L.) á heima víða um norð-
anverða Evrópu. Aðrar deiliteg-
undir eiga heima í Asíu og vest-
, anverðri Norður-Ameríku."
:• •:• •:• •:• •:-:• -:-:••:• •:• •:• •:• •:••:• •:• ❖
% 'a jíucjátö&in d
uireyraruefli
Þessi mynd er af nýju flugstöðinni á Akurevrarflugvelli, svo sem
fyrirhugað er að hún verði. Vinna við bygginguna hófst í síðasta
mánuði og er nú lokið við að grafa grunninn og steypa undirstöður.
Þetta verö'ur fyrsta flugstööin sem Islendingar byggja, fjögurra
hæða stjórnturn og vegleg afgreiðslubygging. Unnið verður fyrir
hálfa milljón króna í sumar, en stöðin fullgerð mun varla kosta
minna en tvær milljónir króna.
* <■ ///
: _» mmmwm —■"xT,,i,T»7.Tr'dr.i--
I' ^
Í,'
^ \
' ** •- >. Á- —»4».. —•* i»'-./•'’vX^Á.V,. - « X- •••• - > 4» » --V. .. '
K.R.R.
K.5.I.
í sSandsmótið
Heldur áfram í kvöld kl 8 á íþróttavellinum Þá keppa KR — AKUREYRI
Tekst Akureyringum að sigra?- Komið og sjáið spennandi leik.
Verð: Stúka kr. 15.00 — Stæði: kr. 10.00,—- Barnamiðar kr. 3.00.
Mótanefndin.