Morgunblaðið - 17.08.1956, Blaðsíða 16
Veðrið
Hægviðri, léttskýjað
?iTi0imí)lílí)itíl
186. tbl. — Föstudagur 17. ágúst 1956
Grænlandsför
Sjá grein á bls. 9
Framsókn er þegar byrjuð
að misnota varðskipin
,.Þór" hafður í snaftferð við Ausfurland
FRAMSÓKNARMENN láta ekki
lengi eftir því bíða að taka upp
hina gömlu hætti sína, sem
þckktir eru frá fyrri tíð, um mis-
notkun varðskipanna.
S.l. sunnudag var vígð brú
austur í Lóni og var Vilhjálmur
Hjálmarsson fyrrv. alþm. þang-
að kvaddur sem sérlcgur sendi-
maður Hermanns Jónassonar. —
Bifreiðarslys
UM hádegisbilið í gær varð 12
áar gamall drengur fyrir bifreið
á Suðurlandsbrautinni inn við
Laugarbrekku. Féll hann í göt-
una og var sjúkrabifreið þegar
í stað kvödd á slysstaðinn. Dreng-
urinn var fluttur á slysastofuna
og kom þar í ijós að hann hafði
meiðzt lítiisháttar á mjöðm. Var
hann fluttur heim til sín.
Þá var sjukrabifreið og kvödd
inn að gatnamótum Snekkjuvog-
ar og Nökkvavogar. Kona hafði
þar fengið aðsvif og fallið í göt-
una. Hruflaðist hún nokkuð, en
hlaut ekki önnur meiðsl.
Báli siglt á land
vegna leka
í GÆRDAG kl. 2, var vélbátnum1
Nonna frá Reykjavík siglt á land
fyrir neðan bæinn Fitjar í Mið-
neshreppi. Hafði komið leki að
bátnum mjög skyndilega og töldu
skipverjar ekki tíma til þess að
sigla til hafnar. Var bátnum því
siglt að landi þar sem skemmst
var. Veður var gott og sakaði
engan af áhöfninni. Nánari fréttir
um orsök lekans höfðu ekki bor-
izt í gærkvöldi.
Valur vann Akranes
í GÆR kepptu Vaiur og Akranes
í knattspyrnu á íþróttavellir.uin.
Úrslit urðu áð Valur vann með
3 mörkum gegn 2.
Vilhjálmur á heima í Mjóafirði
og var varðskipið Þór, sem þá
var statt norðan við Langanes,
kallað til þess að sækja Vilhjálm
til Mjóafjarðar og fara með hann
til Djúpavogs.
Á meðan Vilhjálmur var við
brúarvígsluna beið „Þór“ eftir
honum og flutti hann síðan heim
til sín tii Mjóafjarðar aftur.
Þarna tafðist varðskipið um
liðlega sólarhring í þessu
snatti fyrir Framsókn, cn
„Þór“ var á þessum tíma eina
gæzluskipið á stóru svæði og
mátti því ekki missast.
Vilhjálmur er fallinn Fram-
sóknarmaður og þótti nú gefast
gott tækiíæri til að láta ljós hans
skína við brúarvígsluna. Var þá
ekki í það horft þó nokkru þyrfti
til að kosta.
Vakti þessi heimsókn Vil-
hjáims og bið „Þórs“ á Djúpa-
vogi hina mestu undrun og
hneyksli þar um slóðir eins og
vonlegt er.
Fimm skip enn fyrir
SaltsíBdinBii skipað ut
NÚ eru aðeins fimm bátar að ufsaveiðum fyrir Norður-
landi. Allri síldveiði er lokio og önnur skip haldin heim
c-öa til reknetjaveiða. Á Siglufirði og Raufarhöfn er unnið
við að pakka saltsíldina og skipa henni út.
Hópferð
í Ölver
HEIMDALLUR F.U.S. í
Reykjavík efnir til hópferðar
á héraðsmót Sjáifstæðismanna
í Borgarf jarðarsýslu, sem hald
ið verður í Ölver í Ilafnar-
skógi um næstu hclgi.
Nú er íyrirhugað að leggja
af stað frá Reykjavík kl. 2 e.h.
á laugardag og verður ekið
til Akraness, en þaðan aftur
í öiver og þá tekið þátt í
fjölbreyttum hátíðaliöldum
Sjálfstæðismanna þar.
Allar upplýsingar varðandi
ferðina verða gcfnar á skrif-
stofu félagsins í Valliöll við
Suðurgötu. Þar fer og fram
skráning þátttakenda kl. 9—5
í dag, sírni 7103.
HELGA AFLAHÆST
í dag losaði Helga frá Reykja-
vík 1050 mál ufsa, sem hún fékk
við Grímsey, og er hún nú hætt
veiðum og heldur til Reykja-
víkur í kvöld. Hún er aflahæzta
skipið á ufsaveiðunum. Hefir alls
fengið 2100 mál.
Ufsinn hcldur sig nú mest við
Grímsey. Er hann mjög stygg-
ur og veður illa og cr mest
kastað á fugl.
í gær símaði fréttaritari blaðs-
ins á Siglufirði, að vitað væri um
nokkrá báta við eyna með sæmi-
legan afla.
FIMM SKIP' EFTIR
Það eru aðeins norðlenzk skip
sem enn halda áfram veiðunum,
fyrir utan Fák frá Hafnarfirði.
Stúlka meiðist
f GÆRDAG var sjúkrabifreið
kölluð inn að kexverksmiðjunni
„Frón“. Ein stúlknanna, sem þar
vinna, hafði meiðzt á fæti og var
óttazt að um alvarlegt slys hefði
verið að ræða. Stúlkan var flutt
á slysavarðstofuna og kom í ljós
að ekki var um beinbrot að ræða.
Var hún flutt heim til sín.
í gær hættu veiðum, auk Helgu,
þeir Helgi Helgasön og Sigurður
Pétur. Þoka og dumbungur var á
miðunum og heíir verið, en logn
var á.
REKNETIN
Reknetaveiðin ó Húnaflóa var
tregari í fyrrinótt en áður. Að
eins fékkst rúm tunna í netið. Ms.
Hringur er nú að útbúa sig á
reknet.
Á Siglufirði er unnið af kappi
við að pakka saltsíldir.a og tek-
ur Arnarfell þar síldarfarm í dag
til Finnlands. Flest aðkomuíólk í
síldarverltsmiðjunum á Raufar-
höfn og Siglufirði, er nú haldið
helmleiöis og dauft yfir öllu.
Sólskinið helzt fram
um helgi!
Birtii til fyrir norðan
MORGUNBLABIÐ átti í gær tal viS Jón Eyþórsson veðurfræöing
og spurði hann hverjar líkur væru á því að góða veðrið sent
verið hefur undanfarna Uaga hée sunnanlands héldist. Svarið var:
Líklcga fram um helgi.
ÞOKUSÚLD FYRIR NORÐAN
Undanfarna daga heíur verið
staðbundið háþrýstisvseði yfir
Grænlaadi og íslandi, sagði Jón,
en mikil lægð yfir Nýfundna-
landi, Bretlandi og sur.nanverö-
um Noregi og Svíþjóð. Af því
hefur leitt góðviðrið hérlendis, en
sífelldar hellirigningar hafa ver-
ið á Bretlandseyjum. Yfir norð-
Júlíus Havsfeen og Ari
Kristinsson kvaddir
á Raufarhöfn
Raufarhöfn, 16. ágúst.
IGÆRKVÖLDI hélt hreppsnefnd Raufarhafnarhrepps boð inni
fyrir Júlíus Havsíeen sýslumann og Ara Kristinsson sýslufull-
trúa. Sýslumsöur og íulltrúi hans voru í síðustu embættisför sinni
á Raufarhöfn, þar eð Júlíus Havsteen lætur af embætti fyrir aldurs
sakir í næsta mánuði, en Ar'i Krjstinsson hefur verið skipaður
sýslumaður í Baröastrandasýslu.
Framkvæmdir hafnar við
byggingu Hallveigarstaða
Ár liðið síðan grunnurinn var grafinn
VEGFARENDUR Garðastrætis og' Túngötu munu sennilega hafa
íekið eftir stórum vinnukrar.a, sem tekinn er til starfa í all-
miklum húsgrunni á horni þessara gatna. Allir Reykvikingar vita
hvaða húsgrunnur þetta er, þarna eiga Iíallveigarstaðir að risa.
Fólki er þctta yfivleitt rnikið glcðiefni, þar sem allmikið hló var
gert á framkvæmdum á lóðinni, en þar hefur ekkert verið unnið
í eitt ár.
anverðu Atlantshafinu hefur ver-
ið norðaustanátt, sem leitt hefur
af sér hægviðii hér sunnanlands
cg bjartviðri sunnan- og vestan-
lands og í innsveitum austan-
lands. Um mitt Norðurland hef-
ur aftur á móíi undanfarna daga
verið skýjað, þurrt inni í döi-
um, en aftur á móti þokusúld
til annesja.
BIRTIR TIL
Horíur voru taldar á því í gær-
kvöidi, að birti til norðaniands
og þar gerði góða tíð í dag —
án þess þó að veðrið spilltist
nokkuð hér sunnanlands. í gær
mældist mestur hiti í Reykjavík
13 stig, en heitast á landinu var
á Kix-kjubæ 15 stig. Kaldast var
í Grímsey og Hrauni á Skaga,
eða 5 stig. — í fyrrinótt var eins
stigs frost á Möðrudal á Fjöllum.
en 0 stig niðri við jörð hér -
Reykjavík.
Auk hreppsnefndarinnar sátu
hóf þetta nokkiir boðsgestir. j
Aoalræðuna flutti Hólmsteinn
Helgason. Þá taiaði og Leiíur j
Eiriksson oddviti, ásamt mörg- ,
um öðrum, er rifjuðu upp gamlar !
minningar og þökkuou .sýslu-j
manni og fulltrúa hans vel unnin
störf. Júlíus Havstcen hélt og
ræðu og lék á als oddi að venju.
Þá talaöi og Ari Kristinsson.
ANNAD KVEÐJUHOF
Fór samsætið hið bezta' fram
með ræðuhöldum og kaffi-
drykkju. Norður-Þingeyingar
munu halda sýslumanni sínum
kveðjuhóf að Kópaskeri hinn 28.
þ.m. Verða þar staddir ailir
embættismenn sýslunnar.
— Einar.
Kéraðsmót í Ölver
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Borgarf jarðarsýslu verður
haidið í Ölver í Hafnarskógi n.k. sunnudag og hefst kl. 4 síð-
degis. Ræöu flytur Magnús Jónsson, alþingismaður. Kristinn Halls-
son, óperusöngvari syngur einsöng og leikararnir Klemenz Jónsson
og Valur Gíslason flytja gamanþætti. Dansað verður bæði á Laug-
ardags- og sunnudagskvöld. Góð hljómsveit leikur fyrir dansinum.
ferðir á mótið verða frá Akranesi á sunnudaginn — allan daginn.
KÆRUM HOTAÐ
Þessi töf hefur stafað af því,
að eftir að byrjað var að grafa
fyrir húsinu, kom í Ijós, að ef
byggt yrði eftir þeirri teikningu,
sem þá hafði verið gerð af hús-
inu, yrði það of stórt, þannig,
að það myndi byrgja útsýni og
sól næstu húsa. Mun kærum hafa
verið hótað út af þessu af ná-
býlisfólki.
TEIKNINGUNNI BREYTT
Var þá gripið til þess ráðs að
fresta framkvæmdum og breyta
teikningu hússins. Var henni
breytt þannig, að aðalbygging
hússins verður á norðurhluta lóð-
arinnar, en ekki á suðurhlutan-
um, eins og fyrr hafði verið
ákveðið.
4
nnm ^
K
Wmm
'ir ‘ &
E : ^
Frá frainkvæinduiu vl® ilallveigarst»'ði.