Morgunblaðið - 27.10.1956, Qupperneq 1
Ungverski
herinn
með alþýðunni
Rússneskir skriðdre kar brytja
stöðugt niður sukluu su borgura
London og Vín 26. okt.
ENN linnir ekki bardögum í Ungverjalandi. Fullvíst er, að ungverski herinn hefur snúizt
gegn kommúnistastjórninni og Rússum og berst nú með alþýðunni. Hafa Ungverjar
nú mikinn hluta landsins á valdi sínu, en rússneski herinn beitir óspart ógrynni herliðs og
vígvélum gegn Ungverjum — og reynir að brjóta alla andstöðu á bak aftur. í allflestum
borgum og bæjum, sem eru á valdi rússneska hersins, hefur komið til átaka — og má heita,
að stöðugt sé barizt. Rússneskar skriðdreka sveitir hafa fellt þúsundir — bæði vopnaðra
og vopnlausra Ungverja — og áætlað er, að tala fallinna og særðra í Budapest-borg einni
sé í kringum 10 þúsund. — Verkfallsalda er að skella yfir landið, og herma fregnir, að
járnbrautasamgöngur hafi þar af leiðandi stöðvazt víðast hvar í landinu. Breiðist verk-
fallið óðum út til annarra atvinnugreina.
Athygli alheims hefur nú beinzt að frelsis baráttu þessarar fámennu þjóðar — barátt-
unni gegn fámennum hópi kommúnista, er sitja í valdastólum — og rússneska hernum.
Ungverski herinn hefur sameinazt alþýðunni í baráttunni — og verður alls ekki séð hve
lengi sú barátta getur staðið, því að við mikið ofurefli liðs er að etja þar sem eru mörg
herfylki Rauða hersins, enda þótt ungverski herinn sé nokkuð vel vopnum búinn.
SíðJegls í dag birti Budnpest-
útvarpið tiikynnmgu frá mið-
Stjórn kommúnistaflokksins þess
efnis, að allir, sem ekki hefðu
lagt niður vopn fyrir kl. 10 í
kvöld, teldust réttdræpir. Voru
ungversku frelsissveitirnar nú
nefndar föðurlandsvinir í stað
gagnbyltingarsinna áður. Voru
þeir eindregið hvattir til þess að
úthclla ekki blóði Ungverjalands
— og var því jafnframt Iofað, að
nýrri stjórn yrði komið á — og
rússneski herinn yrði í brott úr
landinu á áramótum. Farið yrði
að „réttlátum kröfum þjóðarinn-
ar“.
T Tilkynnti útvarpsstörðin jafn
framt, að allir þeir, er sæjust
með vopn, yrðu umsvifalaust
skotnir — án allra málalenginga.
Fólk var hvatt til þess að vera
ekki á ferli meira en þörf gerðist
— og fara aðeins út ef brýn nauð-
syn krefði. Útgöngubann var sett
á í borginni seinnahlutann í dag,
en áfram var barizt.
í gærkvöldi sást gamli ung-
verski fáninn, rauð-hvíti- og
grænliti, blakta á allmörgum
stjómarbyggingum — og er
því sýnt, að freisissveitirnar
hafa enn margar byggingar á
valdi sínu — og eru Iangt frá
því að gefast upp fyrir Hauða
hcrnum.
T Um tvö þúsund manna hópur
Ungverja safnaðist í gær saman
fyrir framan enska ræðismanns-
bústaðinn í Budapest, veifuðu
ungverska fánanum og sungu
ættjarðarsöngva. — Þustu um
50 manns inni. Höfðu menn þessir
tal af sendiherranum — og báðu
hann að sjá til þess, að barátta
ungversku alþýðunnar fyrir frelsi
og mannréttindum spyrðist til
alheims — og að mál þetta yrði
tekið fyrir á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna. Má skjóta því hér
Fyrirlesari brezka útvarpsins komst m. a. svo að orði;
Ungverska þjóðin hefir sýnl heimin-
um, að hún vill leggja alll í sölurnar lil
þess að losna undan hinu rússneska
oki, losna undan égnarstjórn og ein-
ræði kommúnismans. Hún hefir úthellf
blóði, bún hefir fómað mlklu, því að
hún - eins og aðrar þjcðir - melur
freslið framar öllu - og vill fóma ðllu
fyrir frelsið. Þeir einir, sem þolað hafa
áþján og kúgun, vita hvers virði frelsi
og lýðræði er.
inn í, að talsmenn brezku, banda-
rísku og frönsku stjórnanna
skýrðu frá því í dag, að í afhug-
un væri — hvað Vesturveldin
gæíu gert í máli þessu.
í dag hefur heyrzt til leyni-
legrar ungverskrar útvarps-
stöðvar, sem útvarpar áskor-
unum til frelsissveitanna um
að láta ekki bugast. Einnig
hefur útvarp þetta hvatt verka
menn til þess að hefja alls-
herjar vinnustöðvun — og
fregnir bárust í kvöld þess
efnis, að þegar hefði komið til
verkfalla mcðal járnbrautar-
starfsmanna. I mestu iðnaðar-
og námuhéruðum landsins hef-
ur verið barizt mikið í dag —
og þar eru einnig skollin á svo
að segja allsherjarverkföll.
Sjónarvottar, er komu til aust-
urrísku landamæranna í dag,
segja, að mörg hundruð óvopn
aðra manna hefðu í gærkvöldi
Fyrir skömmu nauðlenti banda \
rísk farþegaflugvél af Strato- s
cruiser-gerð á Kyrrahafi. — J
Höfðu tveir hreyflanna bilað. \
Enda þótt flugvélin færi mjög S
illa í lendingunni og brotnaði j
í tvennt — þá sakaði engan ^
farþeganna, sem voru 31. Var s
þeim bjargað um borð í veður- í
athugunarskip. — Hér birtast \
myndir, er skipsmenn tóku af \
flugvélinni — og sýnir sú efri i
flugvélina, er hún var að ■
lenda, en sú neðri er af flak- \
inu, tekin skömmu áður en það i
sökk. i
safnast saman á torginu fram-
an við þinghúsið í Búdapest.
Hefði rússnesk skriðdrekasveit
skyndilega ekið inn á torgið
Stjórmnálasérfræðingar í
London eru þeirrar skoðunar,
að ungverskum kommúnist-
úm takist vart að endurreisa
stjórn sína eftir allar þessar
ófarir, enda þótt Rauði herinn
beri sigur úr bitum. Telja þeir
líklegt, að Rússar fái hernum
stjórn landsins í hendur — og
ef til vill verði teknir upp
svipaðir stjórnarhættir í Ung-
verjalandi og voru í tíð Stalins.
Telja þeir líkindi til þess
að rússneski herinn hverfi ekki
úr landi nema að hann verði
hrakinn brott með vopnum, en
flestir eru þeirrar skoðunar,
að það takizt Ungverjum ekki
að sinni.
og hafið látlausa skothríð á
mannfjöldann. Komu nokkru
síðar frelsissveitir — og
reyndu að ráðast til inngöngu
í skriðdrekana. Börðust Ung-
verjar í návígi við rússnesku
skrifdrekaáhafnirnar — og
fór svo, að skriðdrekarnir yfir-
gáfu torgið. Mörg hundruð
manna lágu þá í valnum.
Hjúkrunarlið hefur vart und-
an að koma særðum til hjálp-
ar í Budapest, en litlar fregnir
hafa borizt af mahnfalli í öðr-
um hlutum landsins. Þær
fregnir berast þó frá Belgrad,
að ekki færri en 10 þúsund
manns hafi látið lífið eða særzt
í'ramh. á bls. 2-