Morgunblaðið - 27.10.1956, Blaðsíða 16
Veðrið
V eða NV stormur. Skúrir og
síðan él.
ttwMííM
Grein Þorsf. Thorarensen
frá Ameríku. Bls. 9.
267. tbl. — Laugardagur 27. október 1956
Ríkissjóðsframlag til Fiskveiða-
sjóðs hækki um 10 millj. ó éú
Frumvarp Sjálfstetaanna á Alþingi.
LAGT hefir verið fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu
á lögum um Fiskveiðasjóð íslands. Flutningsmenn éru þing-
menn Sjálfstæðisflokksins þeir Jóhann Hafstein, Sigurður Ágústsson,
Björn Ólafsson, Kjartan J. Jóhannsson og Magnús Jónsson. Breyt-
ingin sem frumvarpið felur í sér er að framlag rikissjóðs til Fisk-
veiðasjóðs verði hækkað úr kr. 2 millj. á ári í kr. 12 millj. á ári.
GREINARGERÐ
Bvohljóðandi greinargerð fylg-
ir frumvarpinu:
Eins og kunnugt er, var báta-
floti landsmanna endurnýjaður
með mjög stóru átaki á fyrstu ár-
unum eftir síðustu styrjöld. Síð-
an dró aftur mjög úr nýbygging-
um fiskiskipa. Síðustu árin hafa
svo á ný átt sér stað risaátök við
endurnýjun bátaflotans. Lánveit-
ingar til þeirra framkvæmda
hafa að langmestu leyti verið úr
fiskveiðasjóði. Hins vegar er svo
komið, að aíla verður sjóðnum
meira fjár, ef ekki á að draga
stórlega úr framkvæmdum á
þessu sviði og öðrum, sem hlut-
verk sjóðsins er að styðja.
t>egar lögin um fiskveiðasjóð
voru endurskoðuð að tilhlutun
fyrrv. atvinnumálaráðherra fyrir
tveimur árum, var rt ráð fyrir
því 1 greinargerð frumvarpsins,
að greiðsluhalli sjóðsins mundi
nema 53.1 millj. kr. á fimm ára
tímabilinu frá 1955—1959. í lög-
unum var ríkissjóði heimilað að
ábyrgjast lán fyrir sjóðinn allt að
50 millj. kr. Þessi lánsheimild
hefur ekki verið notuð, en hins
vegar hafa bátabyggingar og við-
hald véla og báta orðið bæði
meiri og kostnaðarsamari en ráð-
Maðoriim gaf sig
sjalfur fram
FYRRI HLUTA dags í gær var
óttazt um 18 ára pilt héðan úr
bænum. Aðstandendur leituðu til
rannsóknarlögreglunnar. Hafði
pilturinn farið að heiman frá sér
um hádgisbilið á þriðjudaginn
og var fóiki hans ekki kunnugt
um, hvað að honum hefði orðið.
Var lýst eftir manninum í út-
varpinu. Skömmu síðar hringdi
hann sjálfur. — Hann var heill
á húfi suður í Keflavík og búinn
að ráða sig þar í skiprúm. Sagði
hann að skilaboð, sem hann hefði
ætlað að koma heim til sín,
myndu eitthvað hafa misfaiizt og
sýnilega aldrei komið til skila.
gert var. Það, sem forðað hefur
frá vandræðum, er, að bæði ár-
in, 1955 og 1956, hefur fiskveiða-
sjóði verið lagt til fé af greiðslu-
afgangi ríkissjóðs, fyrra árið 8
millj. kr. og síðara árið 10 millj.
kr. Nokkuð hefur það bætt úr í
bili, að 2—3 ára greiðslufrestur
hefur fengizt á nokkrum hluta
andvirðis báta, sem erlendis hafa
verið smíðaðir.
ÁRLEGT FRAMLAG RÍKIS-
SJÓBS HÆKKI UM 10 MILLJ.
Með hliðsjón af öllum aðstæð-
um virðist eðlilegt að lögfesta nú
aukið framlag ríkissjóðs til fisk-
veiðasjóðs, og er það tilgangur
þessa-frumvarps, en lagt er til, að
árlegt ríkissjóðsframlag hækki
unr 10 millj. kr. Mun það þó ekki
nægja, nema jafnframt sé notuð
lánsheimild laganna, ef fram-
Gjöf til BessastaSa
LUDWIG BRAATEN, skipa- og
flugvélaútgerðarmaðurinn -íorski
og kona hans hafa afhent for-
setahjónunum stól, sem verður
eign forsetabústaðarins.
Stóllinn er frá því um 1700;
gerður úr beykitré, útskorinn í
barokkstíl, hinn bezti gripur.
(Frá skrifstofu forseta fslands).
Iðnþinginu lýfcur
FUNDIR 18. Iðnþings íslendinga
hófust í gær kl. 11 f. h. Mörg má!
lágu fyrir til afgreiðslu og um-
ræður fjörugar og almennar.
M. a. voru tekin fyrir skipu-
lagsmál sambandsins og Tímarit
iðnaðarmanna.
Meistarafélag húsasmiða í
Reykjavík bauð þingheimi í eftir-
miðdagskaffi í Tjarnarcafé, og
Bílaiðjan bauð fulltrúum að
skoða vinnustofur sínar og fram-
leiðslu kl. 5 e. h.
Þingfundir munu hefjast aftur
eftir kvöldmat. Ætlast var til að
þinginu lyki í gærkvöldi.
Aljechin-mófid:
Almenn skoðun að Friðrik
og Bent ætlu að vera þar
r'. þessar mundir stendur yfir
austur í Moskvu alþjóðlegt
skákmót, sem haldið er til minn-
ingar um fyrrverandi heims-
meistara í skák, Alexander
Aljechin, sem lézt fyrir 10 ár-
um. Eftir 8 umferðir stóðu leikar
þannig, að Rússarnir Taimanov
og Smyslov voru efstir með sex
vinninga hvor. Þriðji var heims-
meistarinn Botvinnik með fimm
vinninga og biðskák og mun
hann hafa vinningslíkur gegn
Najdorf. Fjórði er Gligoric frá
Júgóslavíu með 5 vinninga.
Eimmti og sjötti eru svo Rússinn
Bronstein og Najdorf frá Argen-
tínu með 4% vinnig og biðskák.
Svíinn Stáhlberg hefur staðið sig
allvel á móti þessu og er með ZV2
vinning og biðskák, sem horfur
eru á að hann vinni. Er Stáhl-
berg eini Norðurlandamaðurinn,
sem keppir á móti þessu.
Mun almennt talið í skák-
heiminum, að þeir Bent Larsen
og Friðrik Ólafsson hefðu átt að
vera meðal keppenda á móti
þessu. Hefði það þá orðið mun
athyglisverðara og minningu
dr. Aljechins enn betur samboðið.
kvæmdir eiga að halda áfram
svipað og verið heíur, en á því er
vissulega fyllsta þörf. í skýrslu
fiskveiðasjóðs, sem gefin var út
á hálfrar aldar afmæli sjóðsins,
þann 10. nóv. í fyrra, sést, að af
rúmlega 100 millj. kr. tekjum
sjóðsins frá upphafi höfðu þá að-
eins rúmar 11 milij. kr. runnið
frá ríkissjóði. Meginið af tekjun-
um hefur verið frá útveginum
sjálfum, útflutnihgsgjöld af sjáv-
arafurðum, og svo vaxtatekjur
sjóðsins.
Mikilvægi fiskveiðasjóðs er
augljóst, þegar á það er bent, að
á síðustu tveimur og hálfu ári
hefur sjóðurinn veitt lán til bygg
inga og kaupa á 193 stærri og
minni fiskibátum, eða samtals
4276 rúmlestir. Heildarlánveit-
ingar sjóðsins á þessum tíma hafa
numið um 80 millj. kr.
LÁNVEITINGAR SJÓÐSINS
AÐ UNDANFÖRNU
Ennfremur eru lögð fram sem
fylgiskjöl lánveitingar sjóðsins
1954, sem námu nál. 21 millj. kr.,
lánveitingar 1955, sem námu nál.
26 millj. kr., og lánveitingar
sjóðsins 1956, sem námu 34,36
millj. kr. Ennfremur var lögð
fram áætlun um stofnlánaþörf
til aukningar og viðhalds á vél-
bátaflotanum, sem nemur 44
millj kr. á ári miðað við hlut-
fallslega svipaða aukningu og sl.
2% ár og verðlag 1955—1956.
Gert er ráð fyrir að vanta muni
jm 36 millj. kr. hvort árið 1957
)g 1958, til þess að unnt verði að
-’ullnægja lánsfjárþörf þeirri sem
iætluð er.
í dag verður opnuð ný lyfjabúð hér í Reykjavík, að Hólmgarði 34 i
Bústaðahverfi og nefnist Garðsapótek. Eigandi hennar er Mogens A.
Mogensen, sonur P. Mogensens lyfsala, sem rak Ingólfsapótek.
Lyfjabúðin, sem er 110 ferm., er hin vistlegasta.
HljóSfæri verði gerð tollfrjóls
Efling ténmenntar í landinu
IGÆR fór fram í Efri deild Alþingis 1. umræða um frumvarp tll
laga um breytingar á lögum um tollskrá og fleira. — Flutnings-
menn þessa frumvarps eru tveir þingmenn Sjáifstæðisflokksins þeir
Sigurður Bjarnason og Gunnar Thoroddsen.
TONMENNT ÞJOÐARINNAR
VAXANDI
Sigurður Bjarnason talaði fyrir
frumvarpinu. Frumvarpið fjallar
um að gera alls konar hljóðfæri
tollfrjáls. Sagði þingmaður að
frumvarp þetta hefði verið flutt
á tveimur síðustu þingum, en
ekki hlotið afgreiðslu. Hins veg-
ar kvað hann frumvarp þetta
mikið menningarmál, þar sem
tónmennt þjóðarinnar færi stöð-
ugt vaxandi, en ætti örðugt upp-
dráttar sökum hljóðfæraskorts.
Stórrigning í gær:
Hvalljörður teppíst
vegna skriðnfalla
| TRHELLISRIGNING og slag-
vJ viðri var um sunnanvert
landið í gær, og hér í Reykjavík.
Var það sízt betra en annars stað-
ar. Veðurhæðin var 9 vindstig, og
varð fólk holdvott á því að
hlaupa á milli húsa. Hér í bæn-
um var í gærkvöldi ekki kunnugt
um neitt tjón. En í þessu mikla
vatnsveðri féllu skriður uppi í
Hvalfirði, og strönduðu þar áætl-
unarbílar.
í gærkvöldi skýrði Veðurstofan
Mbl. svo frá, að í gærdag, hafi
úrkoman, þrátt fyrir storminn,
mælzt 14 mm í roki, sem úrkoma
fylgir, mælist hún alltaf mun
minni en hún er í rauninni.
SKRIÐUR FALLA
Um klukkan sex í gærkvöldi
voru starfsmenn Vegagerðarinn-
ar önnum kafnir við að koma
16 tonna ýtu upp á tengivagn, í
vinnuvélaporti Vegagerðarinnar.
Var ferðinni heitið upp að Hvíta-
nesi í Hvalfirði, en þar höfðu
skriður hlaupið á veginn, og var
hann ófær. Var ekki vitað hvort
þar hefðu orðið mikil skriðu-
hlaup eða ekki, en tveir áætlunar
bílar höfðu „strandað“ þar, með
alls um 40 farþega. Ætlaði fólkið
að halda kyrru fyrir í bílunum,
unz ýtan hefði opnað veginn aft-
ur. Stóðu vonir til þess að bíl-
arnir, sem voru á leið til bæj-
arins, kæmust af stað aftur kring
um miðnætti í nótt er leið.
Um aðrar vegarskemmdir var
ekki kunnugt, en i slíkri úrhellis
rigningu stórspillast vegir, enda
þurfti ekki að fara nema um út-
hverfi bæjarins í gærkvöldi til
þess að sjá, hvernig vatnselgur-
inn hafði víða stórspillt þeim.
Hér í bænum fauk bárujárns-
grindverk við stóran húsgrunn,
sem stendur opinn við Lauga-
veginn, á móts við Vitastíginn.
Hér í höfninni lá Akraborg og
hélt kyrru fyrir, því ófært var
til lendingar í Akraneshöfn í
gær.
í dag er von á vestlægri átt,
kaldara veðri og snjóélum, sagði
Veðurstofan í gærkvöldi.
Hljóðfæri, þau sem mest eru
notuð, svo sem píanó og orgel,
væru mjög dýr og tollurinn á
þeim næmi nú allt að 144%. Hins
vegar munaði ríkissjóði ekki
teljandi um þetta þar sem inn-
flutningur hljóðfæra væri mjög
lítill.
EKKI AÐEINS FYRIR
EFNAMENN
Sökum hins háa verðs á
hljóðfærum og hinna miklu
tolla er aðeins efnamönnum
kleyft að kaupa þau. Það er
hins vegar ekkert réttlætis-
mál, að öll alþýða manna eigi
þess ekki kost að verða eig-
endur hljóðfæra, sagði ræðu-
maður.
Ræðumaður sagði framtak
manna víðs vegar um landið á
sviði tónmenntunar vera aðdá-
unarvert, enda væru nú allvíða
starfandi tónlistarfélög. — Sagði
hann að tónmenntun þjóðarinnar
hlyti að vera snar þáttur í menn-
ingarlegu uppeldi hennar. Iðkun
fagurra lista væri göfgandi fyrir
þjóðina, og þá ekki hvað sízt
iðkun tónlistarinnar, sem hefur
verið nefnd drottning listanna.
VÆNTIR STUÐNINGS
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
Ræðumaður kvaðst að lokum
vænta þess að hæstvirtur núver-
andi menntamálaráðherra hefði
holl og góð áhrif á hæstvirtan
fjármálaráðherra til eflingar
framgangi þessa máls, þar sem
hæstvirtur menntamálaráðherra
hefði áður verið meðflutnings-
maður að efnislega svipuðu frum
varpi þessu.
Bílhappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Atsins 4 söludagar eftir
ÞANN 1. nóvember verður dregið í hinu glæsilega happ-
drætti Sjálfstæðisflokksins um ameríska fólksbifreið af
gerðinni Hudsoh Rambler. (Gerð 1956).
Eru því síðustu forvöð að tryggja sér miða.
Umboðsmenn og aðrir, sem tekið hafa á móti miðum eru
vinsamlegast beðnir um að gera skil hið fyrsta, og eigi sífL
ar en n.k. laugardag.
Skrifstofa Happdrættisins í Sjálfstæðishúsinu er opin f
dag frá kL 9—7. — Sími 7100.