Morgunblaðið - 27.10.1956, Blaðsíða 3
Laugardagur 27. ofct. 1966
MORGTjyBLAÐlP
3
Fjárhagsáællun
Landssantbands
iðnaðarmanna rædd
FUNDIR Iðnþings héldu áfram í
fyrradag og voru þá ræddar og
samþykktar tillögur í skatta- og
tollamálum.
Þá var fjárhagsáætlun Lands-
sambands iðnaðarmanna fyrir
árið 1957 tekin til fyrri umræðu,
og var henni vísað til annarrar
umræðu.
Þá var rædd og samþykkt til-
laga um innfluíning vélbáta og
endurnýjun bátavéla.
Þá var og samþykkt tillaga
#m húsnæðisþörf iðnaðarins.
Iðnþinginu barst heillaskeyti
frá Forseta íslands.
Sveinbjörn Jónsson flutti er-
indi um utanfarir iðnaðarmanna.
Kl. 5—7 voru þingfulltrúar í
síðdegisboði borgarstjórans í
Reykjavík.
Yrði Rauða hernum beitt átti
pólski herina að verjast
Cémúika hrakfi Krúsjeff og
félaga heim með hófunum
Komar hershöfðingi er líklegur
eftirnjaður Rókossovskís
fjöigar oð mun
í Holtum
Víða orð/ð helmmgi Heira en
fyrir fiárskipti
MYKJUNESI, 22. okt. — f dag er
snjókoma öðru hverju og jörð orð
in alhvít. Má segja, að það sé
nokkuð fljótt, ef ekki tekur upp
bráðlega. Annars hefur tíðin ver-
ið heldur stirð síðustu vikurnar,
stórrigningar og stormar, en frost
hafa verið lítil til þessa. Er nú
margt, sem bendir til þess að
vetur karl sitji ú næsta leiti.
Ennþá er unnið að ræktunar-
framkvæmdum með jarðýtum og
skurðgröfu og mun svo verða
gert nokkuð lengur ef tíð leyfir.
Þá er einnig unnið við vegagerð
og ráðgert að ljúka vegarlagn-
ingu í utanverðum Holtum, en
sá vegur kemur nokkrum bæj-
um í Holta- og Árneshreppum í
vegasamband. Auk þess vinna
menn svo að ýmsum framkvæmd
um og endurbótum á mannvirkj-
um til undirbúnings komándi
vetri.
Alllangt er síðan sauðfjárslátr-
ksmenn
EFTIR 4 daga verður dregið
í bifreiðarhappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins. Vinsamlegast
gerið skil á hcimsendum happ-
drættismiðum sem fyrst. —
Skrifstofa Sjálfstæðisflokks-
ins er opin í dag frá kl. 9 f. h.
til kl. 7 e. h.
un lauk hér í sýslu. Reyndust
lömbin yfirleitt væn og á mörg-
um bæjum tveimur til þremur
kg. þyngri að meðalvigt en á s.l.
ári. Eklti er mér kunnugt um,
hvað meðalvigt var hér í sýslu,
en í sláturhúsinu á Hellu var
slátrað rúmlega 8000 lömbum og
hjá sumum var meðalvigtin þar
17—18 kg. og þyngstu skrokkar
voru um og yfir 25 kg.
Víða er nú sett mikið á af
lömbum og fjölgar fé verulega
og er víða hér í Hclíum oröið
helmingi fleira en fyrir fjár-
skiptin. — M. G.
LONDON, 26, okt. — Margt er
nú tekið að skýrast viðvíkj-
andi atburðum þeim, er áttu
sér stað í Póllandi fyrir og um
síðustu helgi er miðstjórn
pólska kommúnistaflokksins
kom saman til fundar til þess
að kjósa nýtt æðstaráð — og
öllu því, er þar af leiddi.
Fullvíst er talið, að Krúsjeff
og félagar hans hafi farið heim
leiðis miklu fyrr en þeir hafi
ætlað sér, en Gómúlka hafi
með hótunum neytt þá til þess
að yfirgefa Varsjá. Hafi Góm-
úlka m. a. hótað, að slíta fundi
miðstjórnarinnar án þess að
gengið yrði til dagskrár, ef
Moskvu-foringjarnir hyrfu
ekki þegar af fundinum.
1 Einnig munu verkamenn í
Varsjá og nágrannahéruðunum
hafa staðið vörð um verk-
smiðjur og orkuver alla helg-
ina til þess að hindra sveitir
Rókossovskís í að taka völdin
í sínar hendur og ná öllum
mikilvægustu byggingunum í
borginni á sitt vald. Haft er
eftir áreiðanlegum heimildum,
að það hafi verið Waclaw
Komar hershöfðingi, yfirmað-
ur pólsku öryggissveitanna,
sem staðið hafi að baki verka-
mönnum í aðgerðum þessum.
Víst þykir, að pólska stjórnin
hafi búizt við því, að Krúsjeff
og Rókossovskí myndu láta
rússneska herinn handtaka
pólsku stjórnarforystuna og
taka algerlega völdin í sínar
hendur. Það, sem aftraði Rúss-
um að grípa til þessara ráða
var hin harða andstaða Góm-
úlka og hótun hans um alls-
herjar uppreisn pólsku þjóðar-
innar, ef Rússar létu ekki und-
an kröfum Pólverja.
Vegna óttans um valdatöku
rússneska hersins skipaði Kom
ar pólsku öryggissveitunum að
vera á verði í úthverfum
Varsjár — og hindra för
rússneska hersins inn í borg-
ina, ef hann hygðist láta til
skarar skríða. Voru pólekar
öryggissveitir einnig sendar út
fyrir borgina — mót rússneska
hernum, sem sló hring um
borgina. Sagt er, að Pólverj-
arnir hafi mætt fjölmennum
rússneskum her skammt fyrir
utan borgina — á aðalsam-
gönguleiðinni milli Varsjár og
Poznan. Hafi Pólverjarnir lagt
hindrun í veg Rússanna og
skipað þeim að halda til baka.
Stóð þar í þófi lengi milli
herjanna. Ekki mun þar hafa
komið til vopnaviðskipta, en
Rússarnir hurfu ekki á brott
fyrr en skipun þess efnis barst
frá Rókossovskí, sem sá, að
vonlaust yrði að ná stjórnar-
taumunum nema með blóðug-
um bardaga milli rússnesku
herfylkjanna og pólsku þjóð-
arinnar.
Komar hershöfðingi, er stjórn-
aði öllum aðgerðum pólsku
öryggissvei.tanna, er tal'nm
mjög handgenginn Gómúlka,
og ef til vill verður þess ekfci
langt að bíða, að Gómúlka og
hans melm fái tækifæri til þess
að minnka völd Rókossovskís
enn meira. Er Komar þá tal-
inn líklegastur til þess að taka
við embætti landvarnamálaráð
herra, en því gegnir Rókos-
sovskí enn.
Skégaskóli
HÉAÐSSKÓLINN að Skógum
var settur sunnudaginn 21. okt.
með hátíðlegri athöfn. Athöfnia
hófst með guðsþjónustu og pré-
dikaði sóknarpresturinn, sr. Sig-
urður Sinarsson, skáld í Holti.
Skólastjórinn, Jón R. Hjálmars-
son, flutti skólasetningarræðu og
lýsti skólastarfinu. Kennsla’hófát
fyrir nokkru og komu nemendur
3. bekkjar í skólann 2. okt., en
nemendur 1. og 2. bekkjar 16. okt.
Nýr kennari í ensku hefur ver-
ið ráðinn Jón Einarsson, en frá
því starfi hvarf Guðmundur Jón
asson. í skólanum eru alls 96 nem
endur og er hann fullskipaður að
vanda. Aðsókn að skólanum er
mjög mikil og varð að synja
nálega eins mörgum og að kom-
ust. Úr skólahéruðum skólans er
rúmlega helmingur nemenda.
Miklar byggingaframkvæmdir
eru yfirstandandi og mun hagur
skólans batna mjög að því leyti.
Formaður skólanefndar, Björn
Björnsson, sýslumaður, flutti
ræðu og árnaði skólanum heilla.
Á milli ræðuhalda voru sungnir
sálmar og að siðustu voru sung-
in ættjarðarljóð. Að athöfninni
lokinni var safnazt saman í borð-
sal skólans að kaffidrykkju.
Jesse Cweef, unglingasmióníu-
bljémsveii Kulifornín o. 51.
ú kvikmyndusýningn í Gomiu Bíói
ÍSLEN ZK-AMERÍ SK A félagið
hefur undanfarna vetur efnt til
kvikmyndasýninga í Reykjavík
við vaxandi vinsældir. S. 1. vetur
var jafnan húsfyllir á sýniugum
félagsins, og varð t. d. að end-
urtaka sumar þeirra.
Nú hyggst Íslenzk-ameríska
félagið hefja kvikmyndasýningar
að nýju, og verður sú fyrsta á
þessum vetri í Gamla Bíói í dag,
laugardag, og hefst hún kl. 2 e. h.
Verða þar sýndar þrjár kvik-
myndir. Fyrst verður sýnd frétta-
mynd, og sést þar m. a. hinn frægi
íþróttagarpur Jesse Owens, sem
varð þrefaldur meistari á Olym-
píuleikunum 1936. Sýnir myndin
ferðalag hans um Asíu og Afríku
þeirra erinda að glæðr íþrótta-
Ungfinj
vantar til hlaðburðar
Sími 1600
áhuga æskulýðsins og leiðbeina
honum.
Þá er kvikmynd um California
Junior Symphony, eða unglinga-
sinfóníuhljómsveit Kaliforníu.
Hljómsveitarstjórinn Peter Mer-
emblum stofnaði fyrir nokkrum
árum hljómsveit, eingöngu skip-
aða unglingum á aldrinum 5—18
ára. Hljómsveitin hefur þegar
getið sér hið mes^a frsegðarorð
og í þessari mynd leikur hún
m. a. eftirtalin verk: Lokaþatt úr
sinfóníu nr. 5 eftir Tschaikowsky,
Raddir vorsins eftir Strauss, til-
brigði um ameríska þjóðlagið
Pop Goes the Weasel, forleik úr
Meisíarasöngvurunum eftir Wagn
er og sónatínu fyrir hljómsveit og
píanó eftir Clement Stone. Þar
fer 6 ára gömul stúlka með píanó-
hlutverkið.
Að lokum verður sýnd litkvik-
mynd, sem nefnist: „Hvað ungur
nemur, gamall temur“, og er hún
með íslenzku tali. Er þetta ný-
stárleg mynd, er sýnir hvernig
sumir barnaskólar í Bandaríkj-
unum leitast við að auka vits-
munaþroska og andlegt sjálfstæði
nemendanna með aukinni kennslu
og kynningu ýmissa listgreina.
Meðal annars sést, hvernig þeir
eru látnir mála myndir eftir
hljóðfalli fagurrar tónlistar, far-
ið með þá í dýragarðinn, þar sem
þeir teikna dýrin — allt til þess
að þeir fái nánari skynjun á
tengslum lífs og lista.
Kvikmyndir þessar eru jafnt
fyrir unga sem aldna, og er al-
menningi heimill aðgangur
ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Þær vilja vesfrænt nef
Fjöldi ungra stúlkna í Japan er óánægður með nef sitt, finnst það
of flatt. Þetta hefir orðið til þess að skurðlæknar í Tokyo hafa
tekið sér fyrir hendur að setja plast-nef með vestrænu sniði á þær
blómarósir, sem þess óska. Þetta er alls ekki dýrt, því venjulegt
„Evrópu-nef“ kostar um 160 kr., en „Hollywood-nef" er um 230
krónur. Myndin hér að ofan er af einni slíkri aðgerð.