Morgunblaðið - 27.10.1956, Síða 2
3
M ÖKCWnT.AÐlB
Laugardagur 27. ott. 1956
Sýning Magnúsar A. Arna-
sonar í Búkaresf
SÝNING Magnúsar Á. Árnasonar
í Búkarest var haldin dagana
8.—18 okt. Á sýningunni voru 8
tréristur eftir Barböru Árnason,
30 málverk og 14 teikningar eftir
Magnús. Sýningin var opnuð með
viðhöfn að viðstöddum forstöðu-
mönnum stofnunar þeirrar, er
annast menningartengsl við út-
lönd, en hún stóð að sýningunni.
Auk þeirra voru fulltrúar frá
utanríkisráðuneytinu, mennta-
málaráðuneytinu og menningar-
málaráðuneytinu, auk fjölda
frægra listamanna í öllum grein-
um, þ. á. m. framkvæmdastjóra
Listamannabandalagsins. Við opn
un sýningarinnar flutti Jónel
Jíanú, prófessor við Lista-aka-
demíuna, ávarp og fór lofsamleg-
um og hlýjum orðum um list
ar á vegum verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, flutti skemmtilegt og
fróðlegt erindi um dvöl þeirra
hér á landi og það sem hér bar
fyrir augu. Síðan voru flutt tón-
verk af plötum eftir Magnús Á.
Árnason, 3 prelúdíur, .5 sönglög
og sónatína no. 2. Þessi verk voru
flutt í Ríkisútvarpinu fyrir 2 ár-
um. Aðsókn var slík, að færri
komust að en vildu, og margir
urðu að standa. Auk blaðaviðtala
og erindis þess, sem að ofan get-
ur, flutti Magnús 5 mínútna erindi
á íslenzku í útvarpið í Búkarest,
sem síðan var flutt í rúmenskri
þýðingu. Þá skrifaði hann grein
fyrir „La Roumaine Nouvelle“,
blað sem gefið er út á frönsku og
sent til annarra landa. Og loks
átti hann viðtal á ensku, sem
þeirra hjóna. Hann skrifaði einnigl flutt var í enskri dagskrá útvarps
formála að sýningarskránni, sem! ins í Búkarest.
var mjög myndarlega úr garði
gerð, með 7 eftirmyndum af verk-
um listamannanna. Sýningin var
haldin í sérlega fallegum sýning-
arsölum við aðalgötu borgarinn-
ar. Aðsókn var góð, og meiri en
ráð var fyrir gert, því eftir 4
daga þurfti að endurprenta sýn-
ingarskrána.
12. okt. var haldið íslenzkt
kveld í húsi Blaðamannabanda-
lagsins. Magnús flutti erindi um
íslenzka myndlist og tónlist, þ. e.
mælti fram fyrstu og síðustu
málsgreinar á íslenzku, en túlkur
hans flutti svo allt erindið á
rúmensku. Nicolae Vasilescu, for-
maður rúmensku sendinefndar-
innar, sem heimsótti ísland í sum-
Handknattleiksmót
HANDKNATTLEIKSMEISTARA
MÓT Reykjavíkur heldur áfram
í kvöki og fara þá fram 6 leikir,
3 í mfl. kvenna og 3 leikir í 2.
fL karla. Mótið fer ’fram að Há-
logalandi og hefst kl. 8.
Annað kvöld kl. 8 fara svo
fram næstu leikir, sem eru í 3. fl.
karla ög mfl. karla.
(Frétt frá Vináttutengslum
íslands og Rúmeníu).
Truman i kosningaleibangri
Harry S. Truman, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, styður Adlai Stevenson mjög eindregið í for-
1 setakosningunum í næsta mánuði. Hér sézt Truman í kosningaleiðangri í Detroit.
Listamannaklúbbyr stofnaður
Þar eiga listamenn og gestir ab geta
hitzt i menningarlegu umhverfi
Á
MÁNUDAGINN kemur kl. 5 e. h. verður Listamannaklúbbur
Verður klúbburinn þar framvegis til húsa og verður opinn alla
mánudaga fiá kl. 4 e. h. til miðnættis eða lengur.
★ Á HVERJUM MÁNUDEGI
Framkvæmdastjórn klúbbsins,
dagskrámefnd hans og fram-
kvæmdastjóri áttu í gær tal við
fréttamenn og sögðu m. a. svo
frá:
Listamannaklúbbur Bandalags
ísL listamanna var stofnaður á
fuUtrúafundi Bandalagsins 21.
nóv. s.L eftir að hinar 7 deildir
bandalagsins höfðu haft samráð
með sér um málið. Voru þá regl-
ur samþykktar fyrir klúbbinn.
Upphaflega var gert ráð fyrir
Frakkar beita brögðum - hand
taka 5 uppreiinarforingla
TUNIS, 25. okt. — frá Reuter:
NORÐUR-AFRIkA hefur verið í uppnámi, síðan frönsk yfir-
völd gripu til þess örþrifaráðs að nota svikabrögð til að ná á
sitt vald fimm æðstu foringjum uppreisnarmanna í Alsír.
Þessir fimm menn voru á leið frá Marokkó til Túnis með
franskri farþegaflugvél, þegar franskar þotur fóru á stúf-
ana og neyddu fiugvélina til að lenda í Túnis. Þeir eru nú
á bak við lás og slá, en handíaka þeirra hefur skapað miklar
viðsjár milli Frakka og tveggja fyrrverandi nýlenda þeirra,
Marokkó og Túnis, sem nú eru sjálfstæð ríki og liggja sitt
hvorum megin við Alsír.
— UMBtpvergaland
Samkvæmt fregnum frá París1
neyttu Frakkar svikabragða til
að komasthöndum yfir foringjana
fimm. Flugstjórinn í farþegaflug-
vélinni fékk símskeyti um fyrir-
ætlanir yfirvaldanna, og meðan
hann sveimaði hægt yfir svæðinu,
þar sem hann skyldi lenda, sá
flugþernan svo um, að gestun-
um var veitt ríkulega af vín-
föngum flugvélarinnar. Þegar
hún lenti um síðir í Alsír, héldu
fimm-menningarnir, að þeir
væru komnir til Túnis.
Bæði í Túnis og Marokkó
brutust út óeirðir, og farnar voru
fjölmargar mótmælagöngur gegn
Frökkum. Víða kom til verk-
falla og skemmdarverka á eign-
urn Evrópumanna.
i Kaíro kom stjórn Araba-
bandalagsins saman til skyndi
fundar og ákvað að senda
Hammarskjöld, framkvæmda-
stjóra S.Þ., ýtarlegar upplýs-
ingar um hið franska „mann-
rán“ með tllraælum um, að' stjórnarinnar.
hann legði þær fyrir öryggis-
ráðið. Hins vegar var ekki
farið fram á, að ráðið yrði
kvatt saman fyrst um sinn.
Ástandið var rætt í Túnis, þeg-
ar Ben Jússef, soldán í Marokkó,
kom þangað til að ræða við yfir-
völdin þar um lausn á Alsír-
vandanum. Soldáninn hafði tekið
á móti fimm-menningunum í
Rabat og rætt við þá um ástandið
í Alsír. Sagt er, að handtaka
þeirra hafi fengið svo mjög á
hann, að hann hafi ákveðið að
fljúga ekki heim með franskri
flugvél, þegar viðræðunum er
lokið. Sá orðrómur gengur, að
hann hafi snúið sér til ítalskra
stjórnarvalda með tilmæli um,
að honum yrði útvegað herskip
eða herflugvél til að tryggja
heimför hans.
Ben Jússef kom til heimalands
síns fyrir einu ári, en þá hafði
hann verið í tveggja ára útlegð
á Madagaskar að boði frönsku
að klúbburinn yrði opinn daglega
en húsnæði fékkst ekki og varð
lausnin sú á málinu að samið var
við Þorvald Guðmundsson for-
stjóra Leikhússkjallarans á þeim
grundvelli að klúbbdagar yrðu
mánudagar.
Klúbbur þessi er ekki sam-
kvæmisklúbbur, þó gert sé ráð
fyrir að hann geti gengizt fyrir
samsætum við og við til heiðurs
listamönnum, erlendum sem inn-
lendum. Öllum listamönnum inn-
an bandalagsins som utan er
heimil þátttaka. Þá er og ýmsum
listvinum boðin þátttaka í
klúbbnum.
* TILGANGURINN
Það sem vakir fyrir Banda-
laginu með stofnun klúbbsins er
að skapa mótstað, þar sem lista-
menn og gestir þeirra geti hitzt
í menningarlegu umhverfi, átt
kost veitinga, ræðzt við, lesið
menningarrit erlend og innlend,
séð góða myndlist, hlustað á
valda tónlist og kynnzt ýmsu
nýstárlegu úr heimi listanna.
Stutt dagskrá verður á hverju
mánudagskvöldi og þar reynt að
seilast eftir listnýjungum.
OPNUNARDAGURINN
Tilhögun á opnunardaginn
verður svo, að kl. 17.30 flytur
Jón Leifs form. Bandalagsins
ávarp og lýsir opnun klúbbsins.
Þá verður opnuð sýning á mál-
verkum sem stjórn Fél. ísl. mynd-
listarmanna hefur valið og verða
þau til sýnis um mánaðarskeið.
Verður slík málverkasýning
áfram og skipt um verk mánað-
arlega.
Þorvaldur Skúlason verður
heiðursgestur Listamannaklúbbs-
ins um kvöldið. Dagskrá opnun-
arkvöldið er að Egill Jónsson
leikur sonatíu eftir Honegger. —
Thor Vilhálmsson les frumsamda
sögu. Þorsteinn Ö. Stephensen
kynnir.
Einar Bragi Sigurðsson er
framkvæmdastj. klúbbsins, en í
dagskrámefnd eru Jórunn Viðar,
Thor Vilhjálmsson og Þorsteinn
Ö. Stephensen. í framkvæmda-
stjóm eru Jón Leifs, Rögnvaldur
Sigurjónsson og Sigvaldi Thord-
arson.
Framh. af bls 1
í átökunum í Budapest einni
— og að dæma eftir þvi
hvað orrustur eru víða háðar
mun hér vera áætiað sizt of
mikið.
^ Eins og fyrr segir hefur ung-
verski herinn tekiú sér stöðu við
hlið óbreyttra landa í baráttunni
gegn rússneska hernum. í dag
birti ungverski herinn í blaði
sínu, sem dreift hefur verið um
allt landið, kröfu þess efnis, að
Ungvprjaland segi sig úr Varsjár-
bandalaginu, og rússneski herinn
verði þegar fluttur brott úr landi.
Var þess einnig krafizt, að nú-
verandi valdhafar létu af störf-
um — og mynduð yrði lýðræðis-
leg stjórn í landinu. Þá var þess
eindregið krafizt, að ekki yrði
höfðað mál gegn þeim Ungverj-
um, er handteknir yrðu fyrir
andstöðu við Rauða herinn. Hins
vegar yrðu þeir menn, sem bæru
ábyrgð á bardögunum, þeir menn,
er mótað hefðu stefnu stjómar-
itinar, dregnir fyrir dóm. Öryggis
sveitir stjórnarinnaar yrðu einnig
afvopnaðar.
Samkvæmt síðustu fregnum
hafa Ungverjar nú mikinn
hluta landsins á sinu valdi —
allt frá höfuðborginni til aust-
urrisku landamæranna. Um
200 særðir Ungverjar komu í
kvöld yfir landamærin tii
Austurríkis og báðust læknis-
hjálpar og kváðu mörg husidr-
uð manns liggja ósjálfbjarga
vegna sára í þorpunum næst
landamærunum. Nokkrir lækn
ar komu cinnig yfir til Aust-
urríkis og báðu erlendrar
aðstoðar, því að mikill
skortur er á lyfjum í Ung-
verjalandi. Sagði einn Iækn-
anna m. a., að 70 vinir sínir
hefðu verið drepnir — og ekki
færri en 200 særðir. Kváðu
ASgöngumiðasala
á Sinfóníubljóm-
leika
í SAMBANDI við grein í blaðinu
í gær hefir stjóm Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar gefið biaðinu þær
upplýsingar, að alþingismönnum
öllum svo og bæjarfulltrúum
Reykjavikur og nokkrum öðrum
gestura hafi verið boðið á síðustu
hljómleika sveitarinnar. Aðrir
miöar hafi verið seldir með sama
hætti og venja hefir verið á tón-
leika hljómsveitarinnar. Engir
hafi þar verið „útvaldir".
þeir tilfinnanlegan skort á öll-
um útbúnaði til þess að hjúkra
þeim særðu.
^ Útvarpið og blöðin í Varsjá
taka mjög málstað ungversku
þjóðarinnar — og lýsa yfir samúð
sinni vegna atburðanna. Fordæma
Pólverjar almennt Rússa og ung-
versku kommúnistastjórnma —
og segja að uppreisnin sé yfir-
völdunu xnsjálfum að kenna. Þau
hafi daufheyrzt við réttlátum
kröfum fólksins.
Moskvuútvarpið og blöðin þar
er langt frá því að vera tíðrætt
um atburðina í Ungverjalandi.
Kveða þau nokkrar sveitir gagn-
byltingarmanna vera þar að
verki, en her hafi gripið í taum-
ana — en ekki hafi þó tekizt að
brjóta óróaseggina á bak aftur.
Ekki hefur það verið nefnt einu
orði í rússneskum fréítum, að
ungverska kommúnistastjórnin
hafi lofað því að Rauði herinn
yrði á brott úr landinu fyrir ára-
mót. Shepilov sagði á blaðamanna
fundi í dag, að óróinn í Ungverja-
landi væri mestmegnis að kenna
óþarfa skriffinnsku hjá stjúm
landsins.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Tass-fréttastofan gat þess laus-
lega í kvöld, að gerð hefði ver-
ið bylting í Ungverjalandi, en
gerði lítið úr atburðunum.
Haraldur Kröyer
HINN 15. þ. m. var Haraldur
Kröyer, sendiráðunautur við
sendiráð íslands í París, skipaður
ritari forseta íslands. Jafnframt
mun hann starfa að nokkrum
hluta í utanríkisráðuneytinu.
(Frá skrifstofu forseta íslands).
★
HARALDUR KRÖYER, fæddur
9. jan. 1921 að Svínárnesi, S. Þ.
Stúdent Akureyri 1940; B. A. í
ensku við University of Californ-
ia 1943; M. A. í stjórnvísindum
við sama háskóla 1945; settur
aðstm. í utanríkisrn. 15. júní
1945; skip. ftr. þar 1. jan. 1946;
ftr. I. flokks 1. okt. 1946; skip-
aður sendiráðsritari í Stokkhólmi
20. maí 1947, í Osló 1. febr. 1949
og í París 1. nóv. 1952; form. f
samninganefndum við Pólverja f
marz og sept.—nóv. 1949 og f
nóv. 1950; skip. sendiráðunautur
í París 1. apríl 1954. Skip. fasta-
ftr. í Evrópuráði 1953.
Hefur verið sæmdur riddara-
krossi Norðstjömunnar og ridd-
arakrossi I. st. St. Ólafsorðunnar.
K. h. er Ragnheiður Hallgríms-
dóttir síldarkaupmanns á Akur-
eyri Hallgrímssonar.