Morgunblaðið - 06.11.1956, Side 16

Morgunblaðið - 06.11.1956, Side 16
36 MORCUNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 6. nóv. 1956 Hjá MARTEINI GARDÍNUEFNI og STORESEFNI Mikið úrval nýkomið • • • PLUSSEFNI Margir litir • r • PLASTEFNI og PLASTDÚKAR Ný sending Mátteinn ' Einarsson^Co Kristmann Gubmundsson skriíar um BÓKMENNTIR BEZT 40 AUCLfSA I MORGUNBLAÐUSU „GISSUR JARL“ Leikrit í fimm þáttum Eftir P. V. G. Kolka Gefið út af Föðurtúnasjóði. ÞAÐ er á allra vitorði að Páll læknir Kolka er dugnaðarforkur hinn mesti og gáfnagarpur. Á Blönduósi hefur hann haft for- göngu um byggingu hins ágæta sjúkrahúss, sem þar var reist. í blöð og tímarit hefur hann ritað viturlegar greinar, sem vakið hafa eftirtekt alþjóðar, og loks hefur hann skrifað „Föðurtún“, mikið rit um Húnvetninga, ætt- ir þeirra og óðul. Þá er kunnugt að hann er ljóðskáld gott og síðastliðið haust gaf hann út leik rit um Gissur jarl, sem þó hef- ur enn ekki vakið verðskuldaða athygli. Leikritið gerist á Sturlunga- öldinni og hefst árið 1241, í vinnu stofu Snorra Sturlusonar í Reyk- holti. Annar þáttur gerist á Flugu mýri, þegar sá staður er brennd- ur. Þriðji þáttur fer fram í Þránd arholti, ein hinir tveir síðustu á Stað í Reynisnesi. Aðalpersónan er Gissur Þorvaldsson, en margir nafnkunnir menn Sturlungaaldar koma fram á sviðið. Verkið er allt gert af dramatískum þrótti og myndi vafalaust verða vinsælt af almenningi, ef vel væri sett á svið, en ef til vill þyrfti að gera nokkrar breytingar í byggingunni á stöku stað, þó hvergi stór- vægilegar. Persónulýsing Gissur- ar er skýrt mótuð, en ekki finnst mér höf. skilja nógu vel við hann. Má og lengi deila um slíkt, ekki sízt þegar sagnfræðileg persóna á í hlut. Margar af auka- persónunum eru snoturlega gerð- ar. En það sem kannske er mest um vert, er hin heilbrigða og jákvæða boðun verksins, og margt er í því vel sagt og vitur- lega. Þess er að vænta, að því verði bráðlega sýndur sá sómi, er það á skilið, sem sé að það verði sett á svið með góðum leik- endum. „NOCTURNE" Leikrit í sex atriðum Eftir Steingerði Guðmunds- ðóttur. Helgafell. STEINGERÐUR Guðmundsdóttir vakti athygli bókmenntaunnenda með leikriti sínu „Rondo“, sem var frumlegt og fíngert skáld- verk. Hið sama má segja um nýja leikriíið hennar, „Nocturne". Það er vel byggt, og myndi sóma sér ágætlega í góðri sviðsetningu. Atburðarásin er hröð, án flaust- urs, og minnir „Nocturne“ á „Rondo“ að því leyti, að tækni þess líkist í ýmsu tækni kvik- myndagerðar. Með efnið er vel og fimlega farið, það er ekki stórfenglegt, en höf. hefur gætt það dramatískri spennu, sem er þó að nokkru dulin undir hóg- AF AVOXTUNUM SKULUÐ ÞÉR ÞEKKJA ÞÁ Sumarauki í skammdeginul Skipið með jólaeplin kom til landsins í gær beinustu leið frá Ítalíu. — ítalía er bezta eplaland í Evrópu, við getum því hrósað happi að fá þennan holla og ljúf- fenga ávöxt þaðan. Þrátt fyrir, að ítalia er Gósenland til allra ávaxtaræktunnar, eru héruðin þar sem eplin eru ræktuð misjafnlega til þess fallin. Beztu eplahéruðin eru í nyrzta hluta landsins. Loftslagið þar á bezt við epla- ræktun. Mikið sólskin, stillur svo vikum skiptir, en þó ekki of heitt. Tugi kílómetra liggja eplaekrurnar eftir sléttunum inn í dalina upp hlíðarnar. Þar eru beztu eplin að fá. Þaðan koma jólaeplin okkar. Við erum því að flytja yður sólskinið yfir hafið. Sumarauka í skammdeginu. 1 Eplasalan hefst á morgun, miðvikudag UiUfíimidj látu yfirborði. Aðalpersónan, Bergljót, stúlka sem er blind frá bernsku, en fær sjónina aftur, er frumlega en sannfærandi séð og skýrð. Þetta er afar vandmeðfarin persóna og ástæða til að óska höf. til hamingju með gerð henn- ar. Steingerður hefur unnið þar afrek, sem vekur aðdáun. Aðrar persónur flestar eru og gerðar af listrænum skilningi, svo sem Harald, Reiðar og gamli læknir- inn. Efnismeðferðin er yfirleitt með ágætum og frá verkinu öllu andar þeim tæra hreinleika, sem auðkennir verk þessarar skáld- konu. Það vekur furðu að Þjóðleik-. húsið skuli ekki hafa fengið „Nocturne“ til sýningar. En sennilega hefur þjóðleikhússtjóra aðeins sézt yfir þetta ágæta verk hingað til, og er honum hér með vinsamlega bent á tilveru þess. „NÓTT FYRIR NOR»AN“ Eftir Pál H. Jónsson Norðri. ÞAÐ eru áreiðanlega margir menn á íslandi sem hefðu getað orðið mikil skáld ef þeir hefðu viljað fórna kölluninni lífsstarfi sínu öilu. Páll H. Jónsson er svo augljóslega einn þessarra manna, að það er óumdeilanlegt. Sönnun þess er nálega á hverri blaðsíðu í bók hans. Tökum sem dæmi þetta unaðsfagra erindi: „Úðablátt regn; hver lína lands er falin, hvert leiti horfið, fell og heiðarbrúnir; hvergi neitt skýjaskip á íörnum leiðum né skipti birtu og húms á loftsins tjaldi. Blátt — aðeins blátt og djúpt er himin-hafið, hyldjúpt og sumarblátt — og regnið streymir.“ Náttúrulýsingar hans eiga þá ljóðrænu fegurð, sem lyftir þeirn í æðra veldi skáldskapar, þegar honum tekst bezt. Og einstaka- sinnum nær hann svo perlutærri snilld einfaldleikans, að það minnir mann á Tómas Guðmunds son, án þess að um nokkra lík- ingu sé að ræða. Páll á sjálfur KVENSKÓR Mikil verblækkun Péturs Andréssonar Laugavegi 17 Framnesvegi 2 DEN SUHRSKE HUSMODERSKOLE með ríkisviðurkenningu Pustervig 8 - Köbenhavn K. í marz hyrjar 4 mán. námskeiS í matreiðsluskúlanum Þar verður farið nákvæm- lega í alia verklega og bók- lega fræðslu sem viðkemur heimilinu. Verð kr. 275,00 á mán. — Skólaskrá send. sínar hendingar, af hverjum sem hann annars kann að hafa lært. Sjá t.d. fyrsta erindið í kvæðinu; „Hvítt lín“; „Um dalinn þjótandi þeyrinn fer, til þerris er línið breitt, svo drifhvítt og hreint — bæði voðir og ver — og vandlega þanið og greitt. Hjá snúrunni standa maður og mær og maðurinn brosir en stúlkan hlær, um vangana strýkur hinn blíði blær og brjóstið er ungt og heitt.“ — / Hann kann vel að kveða, þótt hann geri ekki allt jafn vel, sem raunar engum tekst. Og sumstað- ar vantar bersýnilega kunnáttu, nógu harða sjálfsgagnrýni eða kannske tómstundir til að hefla og fága? Höfundurinn er kennari við héraðsskólann á Laugum og hefur ef til. vill valið sér hið góða hlutskipti, — leiðin skáld- anna er grýtt og þyrnum stráð braut, þrotlaus glíma við illsigr- anlega örðugleika og ekkert í aðra hönd, — nema gleðin yfir nokkrum setningum eða ljóðlín- um, sem ná endurskini þeirrar dýrðar, er stundum birtist huga skáldsins. En getur annars nokk- uð komið í staðinn fyrir það, að hlýða slíkri köllun, sem þetta skáld hefur bersýnilega haft? Er hægt að flýja hana? Ég veit ekki svarið, en síðustu hendingarnar í þessari eftirtektarverðu bók gefa ef til vill grun um það; „Hjarta mitt væntir þess unöurs er aldrei skeður í einmana, sjúkri þrá. Helmingur lifshis er hungur sem ekkert seður, hitt er eftirsjá". — „HLÍÐIN MÍN“ Eftir Jósep Húnfjörð Á kostnað höfundar. ÞAÐ er sagt að góðum alþýðu- skáldum fari fækkandi, en hann Jósep minn Húnfjörð lifir þó enn og er engan veginn hættur að kveða. Það var hann er eitt sinn orti þessa stöku: „Eru skáldin oftast svöng alla sína daga. Ævi þeirra er ekki löng, — öllu lengri saga“. — Hans ævi er orðin löng, en lengri verður þó saga hans. Fjöl- marga vini sína og kunningja hefur hann glatt með góðum vísum og kvæðum, oft skraut- rituðum af mikilli list og fegurð. Hann er hið sanna alþýðuskáld, hrifnæmur, einlægur, hreinskil- inn. Það er ilmur og ylur í vís- unum hans: „Hlíðin mín á feðrafold, fönn þótt hylji sporið, geymir þú með guði í mold gróðurmagnað vorið“. — Og í kvæðunum er mannvit, hlýleiki og karlmannsró. Eitt af þeim beztu nefnist: „Við glugg- ann minn“. í því eru margar fallegar vísur, en þessi þykir mér bezt: „Nú er stöðvuð næturkæla, nemur dagur himininn. Ljóssins englar mildir mæla morgunbæn á gluggan minn“. — Þá eru „Aldarfarsvísur" hans og „Vorið kallar“, „Horft til baka“, „Söknuður" og margt fleira, sem geyma mun nafn gamla mannsins, þegar ýmsir þeir, sem nú ber hærra, verða skrambi mikið teknir að fyrnast. Þær leyna á sér sumar vísurnar hans, maður les þær aftur og þær taka að raula í huga manns, — og hver vildi ekki hafa kveðið hana þessa: „Kalt þó andi um mannleg mein margt, og vandinn saki, ilmi blandast gróin gréin Guðs frá handartaki“. — A BEZT AO AUGLfSA M W l MORGUNBLAÐINU T

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.