Morgunblaðið - 06.11.1956, Síða 20
90
MORCVNBLAÐ1Ð
I^riðjudagur 6. nðv. 195*
LOUIS COCHRAN:
SONUR HAMANS
Framhaldssagan 69
„Hvað nú?“ spurði hann óþýð-
ur og nærri hranalega.
„Þarna er pabbi.“ — Hún benti
með æstum tilburðum fram fyrir
sig. — „Þarna er pabbi. Sjáðu —
þarna við hliðið."
Við þessi orð stúlkunnar leit
Lije heim að húsinu og kom þeg-
ar auga á vinnuveitenda sinn,
sem var einmitt á þeirri stundu
að binda litla, stríðhærða reið-
skjótann sinn við hestastaurinn
fyrir framan hliðið og hafði sýni-
lega enn ekki orðið var við ferðir
þeirra.
„Þér þarna", kallaði hann. •—
„Halló, höfuðsmaður. Bíðið eitt
andartak".
Elizabeth kippti pilsinu upp á
legginna og hljóp í áttina til föð-
urs síns, eins og hún vildi flýta
sér að fjarlægjast Lije sem mest
og hann hægði ganginn að sama
skapi.
Kannske var gamla frúin að
deyja. Hvað sem það nú var, þá
gat hann a.m.k. ekkert aðhafzt,
sem að gagni mátti koma. Það
var augljóst mál að hún hataði
hann. Bæði móðirin og dóttirin
hötuðu hann.
Fyrstu fljótfærnislegu sam-
ræðurnar milli föður og dóttur,
voru yfirstaðnar, þegar hann kom
til þeirra, nokkrum mínútum síð-
ar og honum til mikillar furðu
stóð Martin gamli hinn róleg-
asti við hliðið, eins og ekkert
hefði komið fyrir. Hann lagði
handlegginn ástúðlega yfir herð-
ar dóttur sinnar og klappaði
henni létt og sefandi á herðarnar.
Stúlkan var enn í mjög æstu
skapi, andlit hennar var hulið
við brjóst föðurins og blettóttur
jaðar pilsins dróst við jörðina.
„Þetta er allt í lagi, Lije“.
Rödd Fortenberrys höfuðs-
manns var róleg og stillileg: —
„Ég veit hvað það er, sem er
ÚTVARPIÐ
Þriðjudagur 6. nóvember:
Fastir liðir eins og venjulega.
18,30 íþróttir (Sigurður Sigurðs-
son). 18,50 Þjóðlög frá ýmsum
löndum. 19,10 Þingfréttir. — 20,30
Erindi: Rafkraftur og rafmagn
(Eðvarð Árnason verkfræðingur).
21,00 Frá sjónarhóli tónlistar-
manna: Dr. Páll ísólfsson talar
um Compeniusar-orgelið í Fidðriks
borgarhöll, og leikið verður á þetta
merkiiega hljóðfæri. 21,45 Islenzkt
mál (Jakob Benediktsson magist-
er). 22,00 Fréttir og veðurfregnir.
Kvæði kvöldsins. 22,10 „Þriðju-
dagsþátturinn". — Jónas Jónasson
og Haukur Morthens hafa með
höndum umsjón hans. — 23,10
Dagskrárlok.
að. Það er ég alveg sannfærð-
ur um. Martha hefur aðeins feng-
ið eitt þetta kast sitt. Það er
fyrsta kastið sem hún heíur feng-
ið síðan Elizabeth kom heim úr
skólanum og þess vegna hefur
hún orðið svona yfir sig hrædd,
alveg að ástæðulausu. Verið þið
alveg róleg, þetta er ekkert hættu
legt“.
„Ó, en pappi", Elizabeth leit
á föður sinn, bæði hrædd og undr
andi. — „Mamma er mjög veik.
Ég veit að hún er það. Hún er
öll ísköld og svo grætur hún svo
voðalega".
Það var engu líkara en stúlkan
myndi bresta í grát á hverri
stundu og Martin Fortenberry
strauk blíðlega yfir vanga dótt-
ur sinnar í hughreystingarskyni.
„Eitt glas af góðu, sterku toddí
mun hressa upp á heilsu hennar",
sagði hann. — „Svona, nú skul-
um við bara koma inn. Ég mætti
Joe hérna niðri á veginum og
hann sagði mér frá öllu saman.
Ég er viss um að þú hefur æst
móður þína upp á einn eða ann-
an hátt“.
Hann snéri sér við, til þess
að ganga inn í garðinn og Lije
stóð hreyfingarlaus og á báðum
áttum með það, hvort hann ætti
að fylgja þeim eftir eða elcki.
„Ég var bara að tala um það
að fara aftur til New Orleans,
það var allt og sumt“, sagði stúlk-
an brostinni röddu. — „Mér datt
ekki í hug að það myndi særa
hana — svona voðalega".
„Þarna kemur það“. — Martin
gamli ýtti dóttur sinni blíðlega
á undan sér. — „Segðu Bessie
að hita sterkt og sætt toddí. Iiún
ætti hvað sem öðru líður, að vita
hvað henni ber að gera, þegar
svona stendur á. Hún hefur nógu
oft gert það. Og svo kem ég inn
rétt strax“.
Hann snéri sér stillilegur á svip
og hinn rólegasti að Lije: „Þakka
þér fyrir, Lije“, sagði hann vin-
gjarnlega. — „En það þarf ekki
að sækja lækni í þetta skiptið.
Frú Fortenberry fær þessi —
þessi köst stundum þegar hún
kemst í æst skap. Hún vill ekki
að Elizabeth fari aftur í skólann
til New Orleans. Það er orsök
þessa lasleika hennar í þetta
skipti“.
Hann snéri sér aftur frá Lije,
sem stóð kyrr og starði undrandi
á eftir gamla manninum, er hann
hraðaði sér inn.
14. KAFLI
Daginn eftir fékk Lije að vita
það hjá vinnuveitenda sínum, að
þegar faðirinn og dóttirin komu
inn, hafði frú Fortenberry
að mestu verið búin að jafna sig
aftur og setið í hjólastólnum sín-
um, enda hafði Bessie þá þegar
verið búin að gefa henni hress-
ingarlyfið, sem jafnan var nauð-
synlegt, þegar svo stóð á.
Ekki fékk hann neina ná-
kvæma vitneskju um það, hvað
gerzt hefði á ráðstefnu fjölskyld-
unnar, þar á eftir, enda þótt hann
gæti getið sér þess til, eftir hinni
önugu og órólegu framkomu
vinnuveitenda síns, að það hefði
ekki verið allt sem skemmtileg-
ast.
Hann spurði engra spurninga
og sýndi ekki neina forvitni og
um það leyti sem búið var að
þekja bygginguna með þunnum
járnplötum var þessi atburður að
mestu leyti gleymdur, nema í
huga Lijes og Elizabeths.
í augum Lijes var skemmu-
byggingin orðin einria líkust stór-
um fíl, sem hann hafði séð í
hringleikhúsi í Greenvilli einu
sinni mörgum árum áður. Sog-
pípan, rani hennar, sem stóð út
úr miðjum búknum í stað höfuðs
ins. Og oft, þegar hann sá járn-
slegið þakið á hinni stóru bygg-
ingu, bera yfir mjóa kveginn,
dreymdi hann urn það, þegar
hann sjálfur hefði eignazt heila
tvlft slíkra bygginga, sem þess-
arar.
En það var enginn tími til
slíkra dagdrauma. Búizt var við
vélunum frá Mempis með hverju
vöruflutningaskipi, sem þaðan
kom.
Einn miðvikudag, þegar Martin
gamli hafði farið til borgarinn-
ar, til þess að taka á móti vöru-
sendingu sem þegar var orðin
einum degi á eftir áætlun, birtist
Elizabeth öllum að óvörum hjá
skemmubyggingunni, full af
leyndum óhuga á hinu nýja
mannvirki og jafnvel einhverju
öðru, sem ekki var jafnaugljóst
í augum renglulega unga manns-
ins, sem einmitt þá var að hrópa
skipanir sínar til svertingjanna
fjögurra, er voru önnum kafnir
við að reisa viðarbrettið, sem
IVIatss^n Aðalskætí 12
Tökum veizlur og fundi (höfum sal og minni herbergi).
Lausar máltíðir, fast fæði. Sanngjarnt verð, fljót af-
greiðsla. — Sími 82240.
'I
Fyrsta flokks vara af hinni heimsþekktu
Saxon sokkaframleiðslu
STRETCK kvensokkar
Þeir falla frábærlega vel að fæti.
Kvensokkar vorir eru gerðir úr fínasta þræði.
51 gg, 54gg, 57 gg, 99 gg, 60 gg og 75 gg
og njóta vinsælda og álits um allan h<?im.
Framleiddlr af
VEB Feinstrumpfwerke,
Oberlungwitz/Sa.
Vinsamlegast hafið samband við umboðsmenn
vora
Edda hf.
Pósthólf 906 — Reykjavík, ísland.
DEUTSCHER INNEN- UND AUSSENHANDEL
Su. TFXTI!
lýðveldið H
BERLÍN W 8 - BEHRENSTRASSE 46 Símnefni: DIATEX
Glærir pokar stærð 16x23 cm
glær límbönd — 5/8“ — 3Á“
FYRIRLIGGJANDI
\
^ri&ril Certelói
íóen
Hafnarhvoli —-
& Co. /,/
Sími 6620
*>«K**1 ❖♦K* ,♦•>•>•>♦>
* •> ♦>♦> '• ♦> ♦!♦ *f
ikudagur 7. nóvemljer:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00. Viðvinnuna: Tónleik
ar af plötum. 15,00 Miðdegisút-
varp. — 16,30 Veðurfregnir. —
18,30 Bridgeþáttur (Eiríkur Bald-
vinsson). 18,45 Fiskimál: Hjálmar
R. Bárðarson skipaskoðunarstjóri
talar um fiskiskip úr stáli eða tré.
19,00 Óperulög. — 19,10 Þingfrétt
ir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt mál
(Grímur Helgason kand. mag.).
20,35 Veðrið í október o. fl. (Páll
Bcrgþórsson veðurfræðingur). —
21,00 „Brúðkaupsferðin". Sveinn
Ásg^irsson hagfræðingur stjómar
þættinum. 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10
Danslagakeppni S.K.T. — Svavar
Gests kynnir, og efnt verður til
atlcvæðagreiðslu. 23,10 Dagskrár-
lok. —
M ARKÚS Eftir Ed Dodd
NÖW, MR. TRAIL, WHAT
OH, MOTHER, VOU’RE
^ WONDERFUL/ j-
WE’LL DOCK TOMORROW.
FONViLLE, MOTHER
HA5 DECIDED TO
LET VOU GO TO
CANADA WITH ^
MR. TRAILj
PREPARATIONS DO I MAKE ) GET HIM OUTFITTED ANDÍ
FOR FONVILLE'5 TRIPR ^' HAVE HIM MEET U5 AT
i \ á \gffi forest citv on friday
: r OF NEXT r
REALLV?
1) Móðir Finns: Ég befi ákveð-
ið að lofa þér að fara með Mark-
úsi til Kanada.
2) Finnur: Er það satt? Þú 3) Móðir Finns: Jæja, Markús,
ert dásamleg, mamma. hvernig á ég að búa Finn undir
ferðina?
Markús: Við komum í höfn á
morgun. Þér útbúið hann og
svo kemur hann til móts við
okkur í Skógarborg, föstudagina
í næstu viku.
i *