Morgunblaðið - 18.11.1956, Blaðsíða 9
MORGUNRL ,4 ÐIÐ
9
Sunnudagur 18. nóv.1956
SETBERG
SENDIR FRÁ SÉR
SEX NÝJAR BÆKUR
H. C. ANDERSEN: ÆVINTÝRI:
í fyrrahaust gaf Sestberg út tvær myndskreyttar ævintýra-
bækur eftir H. C. Andersen, í tilefni 150 ára ártíðar skáldsins.
Nú lýkur þessari myndskreyttu afmælisútgáfu með tveimur
nýjum bókum: „Nýju fötin keisarans“, „Hans klaufi“ — og
„Pápi veit, hvað hann syngur", „Prinsessan á bauninni", „Það
er alveg áreiðanlegt".
V/ð leggjum sérstaka áherzlu
ÍSEENZKIR PENNAR sýnisbók íslenzkra smásagna á 20. öld.
Bókin gefur skýra mynd af íslenzkri smásagnagerð á 20. öld. Sögurnar
eru 25 að tölu, eftir jafnmarga rithöfunda, — allt frá Einari H. Kvaran,
Jóni Trausta og Guðmundi Friðjónssyni til hinna yngri höfunda: Indriða
G. Þorsteinssonar, Ástu Sigurðardóttur, Thor Vilhjálmssonar og Jó-
hannesar Helga.
Sigrld Undset: KRISTÍN UAFRANZDÓTTIR, — HÚSFRÚIN
Hér liggur fyrir 2. bindi þessa stórbrotna skáldverks í þýðingu Helga
Hjörvar og Arnheiðar Sigurðardóttur. „Kristín Lafransdóttir“ sameinar
það tvennt, að vera eitt af öndvegisritum heimsbókmenntanna, en jafn-
framt stórbrotin, spemiandi ástar- og ættarsaga.
VTLHJ. S. VILHJÁI.MSSON: VIÐ SEM BYGGÐUM ÞESSA BORG
Þetta eru endurminningar níu Reykvíkinga: Séra Bjarni Jónsson, Eiríkur
Hjartarson, raffræðingur, Þórarinn Jónsson á Melnum, Steinunn Þór-
arinsdóttir, Pétur Pétursson verkamaður, Jónas Eyvindsson símaverk-
stjóri, Jón Bjarnason trésmiður, Runólfur Stefánsson í Holti og Pétur
Björnsson skipstjóri. — Hér segir frá gömlu Reykjavík, uppvexti borg-
arinnar á ýmsum sviðum: húsbyggingar, fjárrækt, hjúkrunarstörf, raf-
magnsmálum, skógrækt, trúmálum, stjórnmálum, sjómennsku, hafnar-
gerð, upphaf símans o. fl. o. fl. — Vilhj. S. Vilhjálmsson hefur gætt frá-
sögnina lífi hins snjalia ævisagnaritara.
KVENLEG FEGURÐ
Bókin fjallar um fegrun, snyrtinguoglíkamsrækt kvenna, óæskilega fitu-
myndun og hvernig á að megra sig, vandamál konunnar á breytingaár-
unum, lækning á hörundsgöllum, hárið, fæturna, hendurnar, ilmvötn,
skartgripi og margt fleira. Hér má finna töflur um þyngd og mál og
hitaeiningaþörf kvenna. Til skýringar efninu eru um 300 teikningar og
litmyndir. Ennfremur eru myndir af fegurðardrottningum fslands. Rit-
stjórn bókarinnar hefur annazt frú Ásta Johnsen fegrunarsérfræðingur.
á vana aban frágang bóka okkar
SETBERO