Morgunblaðið - 15.12.1956, Side 1
24 siður
43. árgangur
299. tW. — Laugardagur 15. desenaber 1956
PrentsmiSja MorgunbiaðsHM
Tillogur hinna „þriggja visu" birtar
IMánara stjómmáSaEegt samstarf NATO
rikjanna er nauðsynlegt
Ismay.
Spook verður
stjóri Nato í
París, 14. des. — Frá Reuter.
Ismay lávarður, sem verið hef-
ur framkvæmdastjórl Atlants-
hafsbandalagsins síðan 1952 hef-
ur ákveðið að láta af því starfi i
maí n.k. Hefur þegar verið tekin
ákvörðun um það, að Paul Henri
Spaak hinn heimskunni belgiski
stjórnmálamaður taki við enr-
bætti hans.
hað var Martino utanríkisráð-
herra ftaliu, núverandi formaður
ráðherranefndar NATO, sem til-
kynntl á fiundi í dag, að Ismay lá-
varður hefði óskað þess að láta
af störfum. Hefði hann ekki feng-
izt til að breyta þeirri ákvörðun
sinni, enda þótt lagt hefði verið
að honum.
Þá stóð upp Lester Pearson, ut-
ianrííkisráðherra Kanada. Hann
kvað mikla eftirsjá í að missa Is-
may lávarð, sem gegnt hefði
starfinu með svo mikilli stjórn-
semi og óeigingirni, að óvíst væri
hvar bandalagið væri á vegi statt,
ef hans hefði ekki notið við.
Bar Pearson síðan fram tillögu
um að Spaak yrði kjörinn fram-
kvæmdastjórl og var hún sam-
þykkt einrónra. Spaak er 57 ára.
Spaak.
iramkvæmda-
stuð Ismays
jlann hefur verið einn af foringj-
um belgíska Jafnaðarmanna-
flokksins. Hann var einn af stofn-
endum Evrópuráðsins og mun
vera meðai hinna áhugasömustu
um aukið samstarf Evrópuþjóða.
Samsfarf NATO-ríkjanna hefur
verið örðugf því að nokkurn
frúnað skorfi
París, 14. des. Einkaskeyti frá Reuter/NTB.
IDAG VORU BIRTAR í höfuðstöðvum. Atlantshafsbanda-
lagsins tillögur „hinna þriggja vísu“ um aðferðir til að
auka samstarf þátttökuríkja NATO.
Kjarni tillagna þeirra er sú meginregla, að ekkert
þátttökuríki NATO skuli fastákvarða utanríkisstefnu
sína, né birta þýðingarmiklar yfirlýsingar í utanríkis-
málum, án þess að hafa ráðgazt fyrst við hin
bandalagsríkin.
Þrímenningarnir leggja til að völd framkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins verði aukin nokkuð, en telja að
öðru leyti ekki nauðsynlegt að gera neinar skipulagsbreyt-
ingar á stjórn samtakanna.
Ekki eru gerðar tillögur um neitt sérstakt sam-
starf um efnahagsmál á vegum NATO, þar sem þrí-
menningarnir telja að samstarf um efnahagsmál fari
betur fram í efnahagsstofnunum þeim sem þegar eru
fyrir hendi.
Þurfa íslendingar ekki
að leita álits IMATO?
IFORYSTUGREIN bandaríska stórblaðsins New York Times þann
8. desember s. 1. er sagt að íslendingum hafi tekizt að knýja
fram breytingar á hervarnarsamningnum frá 1951 og sé aðalbreyt-
ingin sú, að íslendingar þurfa ekki að leita álits NATO við upp-
sögn samninga.
Blaðið skýrir einnig frá því, að
samningarnir hafi í för með sér,
að ísland fái verulega efnahags-
aðstoð frá Bandaríkjunum til
lausnar vandamálum sjávarút-
vegsins.
Að lokum fagnar New York
Times hinu nýja samkomulagi,
þar sem með því hafi verið gætt
' hagsmuna vestrænna varnarsam-
taka að viðhalda varnarstöð á
þessu þýðingarmikla svæði.
Er allathyglisvert að lesa um-
mæli New York Times, þar sem
m. a. eru skýrð samningsákvæði,
sem íslenzka rikisstjórnin gaf
enga fullnægjandi skýringu á í
umræðum á Alþingi um samning-
ana.
Forystugreinin úr New York
Times birtist í heild á bls. 2.
Utanríkisráðherra í gœrkvöldi:
Nauðsynlegt að lýðræðis|)jóðiraar
standi saman í órjúfandi heild
Áherzla lögð á, að Atlanbhafsbandalagið
sé ekki veikt með varnarleysi íslands
UÐMUNDUR í. GUÐMUNDSSON utanríkisráðherra, sem setið
J hefir ráðherrafund Atlantshafsbandalagsins í París og enn er
ytra, flutti í gærkvöldi ræðu, sem útvarpað var hér. Fjallaði hún
ltm ráðherrafundinn, verkefni hans og þýðingu.
I ræðu sinni tók ráðherrann fram, að allir ráðherrarnir hefðu
orðið sammála um að nú værl nauðsynlegt að lýðræðisþjóðirnar
Btæðu saman í órjúfanlegri heild.
Fórust honum svo orð um þetta atriði:
„Ástandið í Ungverjalandi var I aði svo ekki yrði um villzt, að
mikíð rætt, og voru menn á einu I Sovétríkin hefðu að minnsta kosti
máli um, að þróun mála þar sann- * í bili snúið aftur frá utanríkis-
stefnu þeirri, sem þau hefðu
fylgt á undanförnum tveimur ár-
um. Hins vegar væri ekki hægt
að slá neinu föstu um framhaldið.
Reynslan ein mundi skera þar úr.
Menn voru og á einu máli um, að
vegna hinnar óheillavænlegu þró
unar í alþjóðamálum út af árás
Sovétríkjanna á Ungverjaland,
væri nauðsynlegt að lýðræðis-
þjóðirnar stæðu fast saman í ó-
rjúfanlegri heild. Væri það hlut-
verk NATO-þjóðanna að sjá svo
um að slík samstaða yrði fram-
kvæmd á raunhæfan hátt, þar
sem tekið yrði tiliit til ástands-
ins í alþjóðamálum eins og það
er á hverjum tíma.
Framh. á bls. 2
’ Eins og kunnugt er var utan-
ríkisráðherrum þriggja NATO
ríkjanna, þeim Lange frá Noregi,
Martino frá ftalíu og Pearson frá
Kanada falið það verk s. 1. vor
að gera tillögur um hvernig bezt
mætti auka og efla samstarf
NATO-ríkjanna á öðrum sviðum
en hermálum. Hafa þeir unnið
að athugunum á þessu og voru
tillögur þeirra birtar í dag.
STJÓRNMÁLALEGT
SAMSTARF
Halvard Lange utanríkisráð-
herra Noregs flutti ræðu um
tillögurnar og lagði hann sér-
staka áherzlu á að aukið yrði
stjórnmálalegt samstarf Atl-
antshafsríkjanna. Lange sagði,
að þátttökuríkin yrðu að sýna
góðan vilja sinn og venja sig á
að ráðfæra sig stöðugt sín á
milli um þau vandamál, er
snertu utanríkismáL
SAMFÉLAG
NATO-LANDANNA
Segir í áliti þremenninganna
að ef ríkisstjórnir landanna og
sérstaklega hinna stærri ríkja
væru fúsar að vinna saman á
vegum NATO í ríkari mæli en
verið hefur, muni smám sam-
an skapast stjórnmálalegt sam
félag Atlantshafsþjóðanna,
sem verði jafnvel rótgrónara
en þörfin fyrir sameiginlegar
hervarnir.
f álitsgerð þremenninganna
er þess vandlega gætt, að saka
Fralnh. á bls. 2.
Erfið fæðing „úrræðanna":
Kommimistar óttast
nýtt „oianmí“
Þungt undir fæti í Dagsbrún
TILLÖGUR ríkisstjórnarinnar um „úrræði“ hennar í efna-
hagsmálunum litu ekki dagsins ljós í gær. Sennilega
verða þær heldur ekki lagðar fram í dag. Er nú helzt
rætt um að þær muni lagðar fyrir Alþingi á mánudag. Er
þó ekki víst að það takist.
DAGSBRÚN ANDVÍG
>að er nú fullvíst orðið, að mikil andstaða gegfi til-
lögum stjórnarinnar, sem fyrst og fremst fela í sér stór-
felldar nýjar álögur á almenning, ríkir meðal þeirra fulltrúa
verkaiýðsfélaganna, sem kvaddir hafa verið ráða um undir-
búning þeirra. í trúnaðarmannaráði verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, mun t.d. hafa komið fram mjög hörð andstaða
við tillögurnar.
Hefur við þetta sett mikinn geig að forysíumönnum
kommúnista vegna þcss að þeir hafa áður fordæmt harð-
lega hiiðstæðar tillögur. Horfa þeir nú fram á nýtt „ofaníát",
sem gæti orðið þeim örlagaríkt eftir kolisteypuna í varnar-
málunum og landhelgismálinu,
>að hefur vakið sérstaka andúð á tillögunum í verkalýðs-
félögunum, að fjármálaráðherra hefur krafizt þess að stór
hluti hinna nýju skatta renni beint í rikissjóð tii að standa
undir ýmsum þörfum hans.
KOMMÚNISTAR KVÍÐANDI
Kommúnistar kvíða nú ákaflega fyrir opinberun „vinstri
úrræðanna“. Vildu þeir nú gefa mikið til að hafa látið margt
orðið ósagt á undanförnum árum um ráðstafanir þær, er
gerðar hafa verið í efnahagsmálum landsmanna. Er auð-
sætt að þeir hlakka lítið til þess að berja á dyr hjá hverri
fimm maiuta fjöiskyldu i iandinu með reikning upp á
5—7000 kr. nýja skatta og álögur.
f