Morgunblaðið - 15.12.1956, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. des. 1956
MORCVTSBLAÐIÐ
9
Málning og snyrtíntf
í BÍnni verziun
IDAG opnar ný verzlun í Bankastræti 7. Er það verzlunin Regn-
boginn, sem selur allar tegundir málningar — einnig snyrti-
vörur kvenna. Regnboginn hefur verið til húsa á horni Laugavegs
og Vitastígs, og þar verður áfram útibú verzlunarinnar, en aðal-
verzlunin flytur í Bankastræti 7, þar sem áður var Hljóðfærahúsið
og Parísarbúðin.
AÐSTOÐ VIÐ KAUPENDUR
Eigandi verzlunarinnar er sam-
vinnufélag, og er Einar Erlends-
son verzlunar- og framkvæmda-
stjóri. í viðtali við blaðamenn í
gær lýsti hann verzlunarhúsnæð-
inu, en það er mjög rúmgóður saí-
ur, kvensnyrtideildin til vinstri
en málningardeildin í öðrum
hlutum verzlunarinnar. f þessari
verzlun kvað verzlunarstjórinn,
áherzlu verða lagða á ráðlegging-
ar og aðstoð við kaupendur.
Að baki verzlunarinnar er
þægileg setustofa, þar sem við-
skiptavinir geta setzt til að at-
huga litaval. Þar geta þeir þegið
ráðleggingar frá sérfróðum lista-
manni um litaval á íbúðir og hús.
í þessum sal er listamönnum boð-
ið að hafa sýningu á verkum sín-
um og opnunardaginn og fyrstu
vikuna sýnir Karl Kvaran mynd-
ir sínar.
í viðtalinu var Svala Hannes-
dóttir er veitir forstöðu snyrti-
deild kvenna. Hún kvaðst álíta að
þetta fyrirkomulag verzlunarinn-
ar gæti mjög hæft konum. Snyrti-
vörudeild þeirra væri á bezta
stað í búðinni og þar væri hægt
að fá allar tegundir snyrtivara
og í sérstökum klefa færi fram
„húðkönnun“ er væri þýðingar-
mikið atriði í snyrtingu kvenna.
f kvennadeild verzlunarinnar sem
í hinni deildinni er lögð áherzla
á ráðleggingar við viðskiptavini.
VEE UNNIÐ
Guðmundur Kristinsson arki-
tekt hefur ráðið allri gerð verzl-
unarinnar og að dómi sjónar-
votta tekizt vel, sem í hinum fyrri
verzlunum er hann hefur ráðið.
Margir handverksmenn hafa lagt
gjörva hönd á innréttingu o. fl.
rr
Iþróttamenn og
andans garpar
SKÖMMU eftir, að Vilhjálmur
Einarsson vann sitt glæsilega af-
rek á Olympíuleikunum í Mel-
bourne, birtist í dálkum Velvak-
anda smáathugasemd þess efnis,
«40 V 4.0 t V CCX'Í afrek hans gott og
landi og þjóð til sóma, en við
mættum ekki gleyma því, að við
eettum annan afreksmanrl, sem
aflað hefði þjóðinni meiri frægð-
ar. Var þar átt við Nobelsverð-
laun Halldórs Kiljans Laxness og
----ega haldið fram, að af-
rek andans mættu ekki falla í
sku _j. íþróttaafrekanna.
Víst er það rétt, að íslendingar
munu hafa glaðst enn meira er
íslenzkum rithöfundi hlotnuðust
Nobelsverðlaunin í fyrra en við
afrek Vilhjálms nú, en óneitan-
lega finnst mér Laxness nú sjálf-
ur hafa varpað þeim skugga á
frægð sína, sem erfitt verði að
afmá.
Finnst íslendingum það bera
vott mikilli andans stórmennsku,
að þykjast í öðru orðinu fordæma
ofbeldi Rússa í Ungverjalandi en
lýsa því jafnframt yfir, að hann
sé eftir sem áður ákveðinn stuðn-
ingsmaður þess þjóðskipulags,
sem leiðir af sér slíkar hörmung-
ar? Síðan situr þessi frægasti rit-
höfundur íslands gleðiveizlu full-
trúa Rússa meðan blóðbaðið í
Ungverjalandi stendur sem hæst.
Er ekki ánægjan af að eiga slík-
an andans garp á meðal vor orð-
in dálítið blendin?
Engum dettur í hug að halda
því fram, að Rússar séu í eðli
sínu verri en aðrir menn. Því er
ekki hægt að kenna öðru en því
þjóðskipulagi, sem þeir búa við,
um þann hörmulega glæp, sem
nú er verið að fremja í Ungverja-
landi.
Hefur þú, lesandi góður, reynt
að gera þér grein fyrir hvernig
ástandið muni hafa verið orðið í
Ungverjalandi áður en lagt var
út í jafnvonlausa baráttu og þar
er háð? Eða hefur þú reynt að
setja þig í spor þeirra foreldra,
sem sent hafa börnin sín frá sér
eitthvað út í óvissuna í þeirri von
að þar muni þeim líða betur?
Það er erfitt að gera sér slíkt
f hugarlund, en hryllileg hlýtur
líðan fólksins að vera orðin áður
en gripið er til slíkra örþrifaráða.
Öll barátta ungversku þjóðarinn-
ar ber það með sé, að hún kýs
•fremur dauðann en að lifa áfram
Yotla ungversku
þjóðinni samúð
FUNDUR stúdenta í Stúdentafé-
lagi Norðvesturlands, haldinn á
Sauðárkróki 1. des. 1956, ályktar
að votta ungversku þjóðinni inni-
lega samúð sína í raunum henn-
ar og mótmælir harðlega ofbeldis
árás Ráðstjórnarríkjanna á þessa
sögufrægu þjóð.
Fundurinn harmar það, ef ör-
lög Ungverja verða slík sem hlut-
skipti Eystrasaltsríkjanna hefur
verið undanfarin ár.
undir oki kommúnismans. — Það
þarf mikinn garp til að mæla
siíku þjóðskipulagi bót.
Það er ömurleg staðreynd, að
við Islendingar skulum einir allra
lýðræðisþjóða hafa kommúnista
í ríkisstjórn, þótt vitanlegt sé, að
mikill meirihluti kjósenda er því
andvígur. Vonandi á íslenzka
þjóðin aldrei eftir að lifa það, að
kommúnistar nái þeirri aðstöðu
hér, að okkar bíði örlög Ung-
verja, en til þess að forða því
þurfa allir íslendingar að vera
vel á verði og almenningsálitið
verður að heyrast. Þess vegna hef
ég fundið mig knúinn til að taka
nú penna í hönd.
Ég geri varla ráð fyrir, að mín
veika rödd berist til eyrna for-
sætisráðherra gegnum hina
þykku múra valdafíknarinnar, en
fyrr en varir verður rödd almenn
ingsálifsins svo sterk, að jafnvel
Hermanni Jónassyni skiljist, að
íslenzka' þjóðin vill ekki sætta
sig við kommúnista í ráðherra-
embættum. Þátttaka kommúnista
í ríkisstjórn nú er smánarblettur,
sem allir þjóðhollir íslendingar
verða að sameinast um að hreinsa
af okkur sem fyrst.
Lindarbergi 11. des. H)§6
Þórður Reykdal.
Jeppaeigendur
Gírkassi í landbúnaðar-
jeppa og dynamór í her-
jeppa, til sölu. Hvoru-
tveggja ný uppgert. Selst
ódýrt. Uppl. á Brávallagötu
8. — Sími 7988.
BÍLL
Citroen 1947, til sölu. Tilb.
skilist á afgr. Mbl. merkt:
„7399“, Skipti á 6 m. bíl
koma einnig til greina.
TIL SÖLU
f&llegt Wilton-gólfteppi, 3%
x2%. — Upplýsingar í síma
7235. —
ÞAKJÁRN
til sölu, 50 plötur, 6 feta. —
Ennfremur sófasett og
Rafha-eldavél. Upplýsingar
á Kársnesbraut 25B, á laug
ardag og sunnudag frá kl.
1—6. —
Ungling
vantar til blaðburðar í
HáaSeitisveg
ittguiiltfaMfe
AREVISTRONG strauvélar
Cóð jólagjöf
Kostir ARMSTRONG strauvélanna
eru m. a. þessir:
1. Þær eru með hitastilli.
2. Þeim má stjórna með olnboganum, þannig að
hægt er að hafa báðar hendur á stykkinu, þegar
strauað er.
3. Þær hafa breiðan vals.
4. Þær eru yfirferðalitlar og má nota þær við
hvaða borð sem er.
5. Þær eru sterkar og endingargóðar eins og 18 ára
reynsla hér á landi sannar.
6. Varahlutir í vélarnar eru ætíð til hjá oss.
Þrátt fyrir alla þessa kosti er
ARMSTRONG strauvélin ódýrust.
Kosta aðeins kr. 1.790.00.
Einkaumboðsmenn:
Helgi Magnússon & Co,
Hafnarstræti 19 — Sími 3184.
Sfiúdentar
Dansleikur verður haldinn að Gamla Garði laugard. 15.
des. kl. 9 e. h. — Aðgöngumiðar verða seldir á Gamla Garði
kl. 5—7 — Karlar framvísi stúdentaskírteinum.
STJÓRNIN
BAÐVOGIR
Jólagjafir
fyrir karla og konur.
Verð kr. 220.00
Helgi Magnússön
& Co.
Hafnarstræti 19
Sími 3184.
Gleymið ekki yngstu les-
endunum, gefið þeim
bókina „EN HVAÐ ÞAÐ
VAR SKRÝT1Г
Gimbill.
Drengjajakkaföt
á 1—8 ára. Verð kr. 425.00.
Drengjamatrósaföt á 1—2ja ára á kr. 100.00
Drengjapcysur, stuttar, á 1—10 ára. Verð frá kr. 140.00.
Verzlun Halldórs Eyþórssonar
Laugavegi 126.
Vatnsfyllti
jólatrésfóturinn
með jólasveinunum
SMIÐJUSALAN
við Háteigsveg
(Ofnasmiðjan)