Morgunblaðið - 15.12.1956, Side 24
Veðrið
NA-kaldi — léttskýjað.
299. tbl. — Laugardagur 15. desember 1956
dagar
til JÓLA
Nýjor ólögur ó nlmenning
m. u. til nð borgn S.Í.S. og
Olíufélnginu h.f. lugi milljönu
Stjórnarblöbin gera enga tilraun
til oð neita farmgjaldaokrinu
HJÓLIÐ SNÝST, þp.ö snýst' og snýst“, eins og þar
stendur.
Þjóðviljinn lýsti þann 12. þ.m. ánægju sinni yfir okur-
samningnum við eigendur Hamrafellsins. Daginn eftir, þann
13., birti blaðið aftur á móti harða ádeilugrein á Lúðvík
Jósefsson og Hannibal, vegna þeirra okurkjara, sem samið
hafði verið um. En svo tók blaðið eina veltuna til, því
þann 14., eða í gær, fór blaðið að verja þessa samnings-
gerð en þó sýnilega með hálfum huga.
Þessi hringsnúningur ber vott um, að „stefna" blaðs-
ins fer eftir því, hver kemur með greinar til þess þann
og þann daginn og tekur auðvitað engiim mark á slíku.
Það er staðreynd í þessu máli, að ríkisstjórnin þurfti ekki
að „semja" við S.Í.S. um farmgjöldin, heldur bar henni
að ákveða þau með hliðsjón af kostnaðarverði eins og gert
er gagnvart öðrum. Um þetta er skýrt lagafyrirmæli. Það
hefði enginn nema S.f.S. eða Olíufélagið fengið að okra
í farmgjöldunum og minnir þessi fjárplógsstarfsomi á
bra.sk erlendra fjárplógsmanna sem frægrir eru að endemum.
Þetta nýja hneyksli er mörgum sinnum stærra en olíu-
málið gamla, þegar Olíufélagið h.f. tók þó ekki nema tæpar
2 milljónir að ófrjálsu, en það var vitanlega mörgum sinn-
um meira en áður hafði þekkzt hér. Það hæfir, að þeir,
sem að þessu standa, telji sig heiðarlega og lausa við alla
braskviðleitni samanber ummæli margra forystumanna
Framsóknar fyrr og síðar.
„Tíminn" gerir enga tilraun til að breiða yfir okrið, það
er játuð staðreynd, en blaðið reynir hins vegar að læða
því inn, að Olíuverzlun fslands h.f. og Skeljungur h.f.
séu erlend félög en Olíufélagið h.f. sé íslenzkt. Öll eru
félögin alíslenzk en vörumerki þeirra allra erlend, því
ekki er merkið „ESSO“ íslenzkara en „BP“ eða „Shell".
Það er rétt, sem Morgunblaðið hefur skýrt frá, að form-
leg umsókn um leyfi til kaupa á olíuskipi barst fyrst frá
S.Í.S. og Olíufélaginu hinn 25. október 1955 og var af-
greidd með Ieyfi þann 6. desember 1955. Hitt er rétt, að
Olíufélagið var stöðugt að tala um, að það vildi kaupa
olíuskip og skrifaði stundum til ríkisstjórnarinnar af því
tilefni en þegar á átti að herða, þá vantaði Olíufélagið
og S.Í.S. það, sem til þurfti að kaupa skip. Þess vegna
gekk Olíufélagið og S.Í.S. aldrei eftir afgreiðslu á þessum
skrifum og enginn gat tekið þau alvarlega, fyrr en vitn-
eskja um að grundvöllur fyrir kaupum á slíku skipi væri
fyrir hendi. Hvers vegna bar Eysteinn Jónsson frumvarp
um heimild til ríkisábyrgðar vegna kaupa á tveim olíu-
skipum fram á Alþingi 1954? Það var vegna þess, að S.Í.S.
og Olíufélagið höfðu ekki möguleika til að eignast skip
nema fá ríkisábyrgð. Hvers vegna var ríkisábyrgðin ekki
samþykkt? Vegna þess, að Framsóknarmenn voru ekki til-
búnir til að taka afstöðu til málsins eftir að meirihluti
fjárhagsnefndar neðri deildar, samkvæmt fundargerð
nefnd.arinnar frá 23. marz 1954, hafði tjáð sig fylgjandi,
að inn í frumvarpið yrði sett ákvæði um að flutningsgjald
á olíu yrði aldrei hærra en á heimsmarkaði. Þá misstu
S.l.S. og Olíufélagið og þar með Framsóknarmenn áhug-
ann á málinu!
Þegar þetta mál er skoðað í réttu ljósi, þá er fjarstæða
að halda því fram, að Sjálfstæðismenn hafi tafið fyrir
skipskaupunum. Eins og áður er sagt frá í blaðinu,
greiddu Sjálfstæðismenn fyrir kaupum á olíuskipi þegar
raunhæf umsókn lá fyrir sem bar með sér, að möguleikar
væru fyrir hendi til útvegunar á fjármagni, sem til þess
þyrfti að kaupa olíuskip. Framsóknarmenn skrökva vísvit-
andi að lesendum Tímans, þegar blaðið er látið halda því
fram að Sjálfstæðismenn hafi skaðað þjóðina vegna tregðu
á því að veita leyfi fyrir skipinu.
í stað þess að ræða málið raunhæft er komið með
blekkingar í því skyni, að leiða athyglina frá kjarna máls-
ins, sem er sá, að ríkisstjóm íslands er að vernda mesta
viðskiptaokur, sem nokkurn tímann hefur þekkzt á þessu
landi. Almenningur á að borga brúsann með nýjum skött-
um, sem leiða af því, að ríkisstjórnin gerir annaðhvort
að greiða oUuverðið niður eða hækka framlög til útgerðar-
innar vegna verðhækkunar á olíu, en svo sem vitanlegt
er, ber ríkisstjórnin ábj'rgð á þessari miklu verðhækkun
farmgjaldanna eins og lesendum blaðsins er kunnugt. Það
er því ekki að undra þó ríkisstjómin hugsi sér að leggja
6—7000 króna nýjan skatt á hverja fimm manna fjölskyldu í
landinu en það er táknrænt fyrir stjórnarstefnu „um-
bótaflokkanna“ að fara þannig að.
Forseti Finnlands
heimsækir Island
KAUPMANNAHÖFN, 14. des. —
Berlingske Aftenavis birtir frétt
um það í kvöld, að Kekkonen,
Finnlandsforseti, muni fara í op-
inbera heimsókn til íslands næsta
sumar, til þess að endurgjalda
Finnlandsför forseta íslands.
Skáiar safna 48 þús.
SÖFNUN skáta í Austurbænum
í fyrrakvöld tókst með afbrigðum
vel. Alls söfnuðust 48.151,00 kr.
og má til samanburðar geta þess,
að í fyrra söfnuðust á sama svæði
31.817.00 kr. og var það þá hæsta
söfnun er þar hafði verið.
í gærkvöldi fóru skátarnir í
úthverfin, Kleppsholt, Bústaða-
hverfi, Smáíbúðahverfi, Túnin og
Teigana. Ekki var vitað um ár-
angurinn í gærkvöldi.
Forráðamenn Vetrarhjálparinn
ar hafa beðið blaðið að flytja öll-
um þeim er styrkt hafa Vetrar-
hjálpina nú og fyrr, og þó sér-
staklega skátunum, þakkir fyrir
framlög og hvers konar aðstoð.
Einn stærsti liður söfnunarinnar
er sá er skátarnir framkvæma, að
fara í hverfi bæjarins og safna.
Hefur þátttaka skátanna aldrei
verið jafnmikil og nú, enda
meira fjármagn komið inn en
áður.
Þannig lítur Laugavegur, Bankastræti og Austurstræti út eins
og eitt Ijósfljót eftir að myndavél ljósm. Mbl. er búin að horfa á
þau í nokkrar mínútur.
Samúðarskeyfí
FORSETI íslands hefur í dag
sent forseta Finnlands, herra Ur-
ho Kekkonen, samúðarskeyti í til
efni af andláti J.K. Paasikivis,
fyrrverandi forseta Finnlands.
Þá hafa og forsetahjónin sent
frú Paasikivi persónulegar sam-
úðarkveðjur.
Reykjavík, 14. des. 1946.
Skrifstofa Forseta íslands.
Anægjuleg Luciu-hátíð
íslenzk-sænska félagsins
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag, 13. desember, sem er Luclu-dagur-
inn, hélt íslenzk-sænska-félagið Luciu-hátíð í Leikhúskjall-
aranum. Húsfyllir var og samkoman öll hin ánægjulegasta. Fóxti
þar fram mörg skemmtiatriði.
Kynning á Ijóðum
Gríms Thomsen
STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands
efnir til bókmenntakynningar í
hátíðasal Hóskólans á morgun kl.
5. Kynnt verða Ijóð Gríms Thom-
sens. Andrés Björnsson kand.
mag. annast kynningu þessa og
mun flytja erindi um skáldið. Þá
munu stúdentar lesa úr ljóðum
Gríms og Þorsteinn Hannesson
óperusöngvari syngja. öllum er
heimill aðgangur.
Samkoman hófst með því, að
formaður félagsins, Guðlaugur
Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri,
bauð gesti velkomna. Minntist
hann síðan dagsins í stuttri ræðu.
Þá flutti Bo Alquist, lektor, erindi
um jólin í sænskum kveðskap,
fyrr og nú.
Að erindinu loknu, birtist Luci-
an, ljósum skreytt, og með henni
sex þernur. Lucian var að þessu
sinni, ungfrú Sigríður Geirsdótt-
ir, nemandi í Menntaskólanum.
Lucian og þernurnar sungu Lucíu
sönginn og síðan aðra söngva er
tengdir eru við þessa hátíð.
Lítil bifreið kramin í
sundur í hörðum árekstri
UM KL. 4 í gærdag, varð mjög harður bifreiðaárekstur a veg-
inum við Stóra Knarrarnes á Vatnsleysuströnd. — Stór vöru-
bifreið ók þar aftan á fólksbifreið, með þeim afleiðingum að
fólksbifreiðir. gjöreyðilagðist. Enginn meiðsli urðu á mönnum, þótt
merkilegt megi virðast.
Áreksturinn varð með þeim
hætti, að áætlunarbifreið er var
á leið til Keflavíkur, stanzaði
á veginum við Stóra Knarrarnes,
til þess að hieypa út farþegum.
Rétt aftan við áætlunarbifreiðina
var fólksbiíreiðin G-971 sem er
ný Chevrolet-bifreið. Henni ók
íigandi hennar, Sigurður Hilmars
son frá Ytri-Njarðvík. Stöðvaði
Sigurður bifreiðina um það bil
fiórum metrum fyrir aftan áætl-
unarbifreiðina og hugðist bíða
meðan hún skilaði af sér farþeg-
um, unz hún héldi áfram.
En rétt í því að Sigurður hafði
stöðvað bifreið sína ók stór-
eflis vöruflutningabifreið, G-1531
sem einnig var á leið til Kefla-
víkur, aftan á fólksbifreiðina og
kastaði henni af nuklu afli aftan
á áæílunarbifreiðina. Var höggið
svo mikið, að áætlunarbifreiðin
kastaðist þó nokkurn spöl á-
fram. Var litla bifreiðin þarna
eins og höggpúði milli hinna
tveggja stóru bifreiða. Við þetta
gekk farangursgeymsla hennar og
aftursæti fram í bifreiðina en vél
og framhlið aftur . miðjan bíl
hins vegar. — Bifreiðastjórinn
komst ómeiddur úr þessari
klemmu, og verður það að telj-
ast kraftaverk.
Eins og áður hefur verið sagt,
gjörónýttist fólksbifreiðin, sem
var ný. — Hinar bifreiðirnar.
skemmdust aftur á móti ekkert.
ta að lokum, að vegur-
inn þar sem áreksturinn átti sér
stao, er bæði beinn og breiður.
— Ingvar.
Því næst söng Hanna Bjarna-
dóttir einsöng með undirleik
Fritz Weisshappels. Söng hún ís-
lenzk, sænsk og ítölsk þjóðlög.
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
6. 0—0
2. BORÐ
Syart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.- Sv. Kristinss.)
ABCDEFG H
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónse-)
5....0—0