Morgunblaðið - 19.12.1956, Síða 23

Morgunblaðið - 19.12.1956, Síða 23
Miðvifcudaffur 19. ctes. 1956 MORCTJNPr AfttÐ 23 Beinteinn Einnrsson frn Grofnrdnl, minning í DAG fer fram í Saurbæ á Hval- fjarðarströnd útför gagnmerks borgfirzks bónda, Beinteins Ein- arssonar er lengi bjó í Grafardal. Beinteinn lézt 10. þ. m. á heimili sonar síns Sveinbjarnar skálds og bónda á Draghálsi. Var hann þá á fjórða ári hins níunda tug- ar. Beinteinn var fæddur að Litla botni og voru foreldrar hans Ein. ar Ólafsson frá Svartagili, Jóns- sonar Vernharðssonar á Búrfelli í Grímnesi, en hann var þriðji maður frá Magnúsi í Bræðra- tungu. Langafi Beinteins, faðir Ragn- hildar konu Ólafs í Svartagili, var Beinteinn lögréttumaður á Breiðabólstað Ingimundarsonar Bergssonar í Brattholti, sem hin fjölmenna Bergsætt er frá komin. Móðir Beinteins var Sigríður Helgadóttir Erlingssonar frá Stórabotni. Beinteinn ólst upp í Litlabotni hjá foreldrum sínum. Bjó hann þar um skeið með móður sinni ásamt Helga bróður sínum, er síðar varð bóndi á Hlíðarfæti og nú er látinn fyrir allmörgum ár- um. Eftir lát móður sinnar og brottför Helga bróður síns, er hann hóf búskap á Hlíðarfæti, bjó Beinteinn enn um hríð í Litla- botni eða þangað til hann keypti Grafardal og fluttist þangað bú- ferlum. í Grafardal bjó hann um tveggja áratuga skeið. Grafardalur er afskekkt jörð, uppi á hálendi Botnsheiðar. Er þangað um 5 km. vegalengd frá Draghálsi, sem er fremsti bær í Svínadal. Er Beinteinn fluttist á þetta afskekkta heiðarbýli, var hann gagntekinn af þeim umbótahug og ræktunaráhuga, sem þá var að ryðja sér til rúms og síðan hefur farið sigurför um allar byggðir þessa lands. Hóf hann þar þegar umbótastarf sitt og jók síðan drjúgum við á hverju ári, enda tók jörðin miklum stakkaskipt- um í búskapartíð hans þar. Fædd ust þeim hjónum átta börn í Graf ardal, sem öll komust til full- orðins ára. Ber það dugnaði og fyrirhyggju þeirra hjóna, Bein- teini og Helgu konu hans Pét- ursdóttur, gott vitni hversu vel þeim farnaðist búskapurinn í Grafardal. Þá er hitt eigi síður lofsvert og sýnir foreldraum- hyggju þeirra og skilning á eðli barnssálarinnar, hversu þau vönduðu til um uppeldi barna sinna. Eftir því, sem börnin uxu meir að aldri og þroska og fleiri og fjölbreyttari sjónarmið og hugðarefni komu til sögunnar, beindist hugur fjölskyldunnar að því að fá rýmra starfsvið og betri skilyrði til fræðslu og menntunar börnunum til handa. Þetta mun hafa valdið þvi, að Beinteinn fluttist frá Grafardal, fyrst að Geitabergi, en síðar að Draghálsi, á æskustöðvar Helgu konu hans. Bjó Beinteinn á Drag- hálsi þangað til heilsa hans þraut og við búinu tók Sveinbjörn son- ur hans. Beinteinn var sem fyrr segir ötull og farsæll bóndi. Hann var gæddur ríkum framfarahug, en var í hvívetna maður forsjáll og fyrirhyggjusamur. Hann var greindur maður, skýr í hugsun, bókhneigður og fróðleiksfús. — Beindist hugur hans jafnan að þjóðlegum fræðum,. fornsögum vorum og skáldskap. Kunni vel að meta gildi rímna vorra til vernd ar tungunni og þá ánægju sem kveðskapur þeirra veitti þjóð vorri á löngum vetrarkvöldum. Sýndi Beinteinn þessari fornu íþrótt fulla ræktarsemi með þvi að halda uppi rímnakveðskap á heimilinu. Beinteinn og kona hans tóku sér mjög fram um það, að glæða fróðleikshneigð barna sinna og vekja hjá þeim á æskuskeiði áhuga fyrir bókmenntum vorum, bæði í bundnu og óbundnu máli. Féll það sæði, sem hér var sáð, ekki í ófrjóan akur. Reynslan hefur sýnt að rímnalcveðskapur- inn í Grafardal hefur ekki farið fram hjá næmu brageyra systkin. anna. Það orkar ekki tvímælis, að uppeldisáhrif þeirra hjóna á börn sín hafa glætt og örvað þá skáldhneigð, sem þeim var í blóð borin og nú er orðin landskunn af ljóðum sumra þeirra. Þess eru ekki allfá dæmi með þjóð vorri, að listelskum unglingum hafi fallið í skaut styrkur og uppörf- un á afskekktum heimilum í landi voru. Beinteinn var eins og fyrr grein ir kvæntur ágætri og mikilhæfri konu, Helgu Pétursdóttur frá Draghálsi. En móðir hennar, kona Péturs, var Halldóra Jónsdóttir frá Efstabæ Símonarsonar. Börn þeirra hjóna: Georg Pét- ur, Halldóra, ekkja Karls’ Björn- sonar sýsluskrifara. Sigríður, gift Jóni Magnússyni, oddvita, Hávarðsstöðum, Björg og Guðný, báðar ógiftar, Ingibjörg gift í Bandaríkjunum, Sveinbjörn ó- kvæntur og Einar. Eru þau syst- kini öll á lífi nema Georg Pétur, en hann lézt 1842. Fjögur systkinanna, Georg Pét- ur, Halldóra, Einar og Sveinbjörn hafa öll gefið út ljóðabækur. Auk þess hefir Sveinbjörn ritað brag- fræði, merkilegt rit um skálda- málið og bragarhætti að fornu og nýju. Með Beinteini Einarssyni er I valinn fallinn einn þeirra manna í bændastétt, sem sameinað hefur góða búmannskosti og glöggan skilning á bókmenntaarfleifð þjóðar vorrar. Pétur Ottesen. Félagslél Taflféíag Reykjavíkur æfing í kvöld kl. 8 í Grófinni 1. — Stjórnin. Vinna Hreingerningar Vanir menn. Fljót og góð vinna. Sími 9883. — Alli. Vanir menn. Fljót og góð vinna. Sími 7892 — Alli. I.O.G.T. St. Einingin nr. 14 Fundur í kvöld kl. 8,30. — Jóla- saga og söngur. — Æðsti templar. Jólaplötumar NÝJAR ÍSLENZKAR: ALFREÐ CLAUSEN: Á bernskuslóð Við siglum (Nýr sjóm.vals) B j arkarlundur Viltu koma (Verðlaunalag úr síðustu SKT-keppni) eru komnar KLASSÍK 33 — 45 — 78 snún. ADDA ÖRNÓLFSDÓTTIR: Vorkvöld (Verðlaunalag SKT) Nótt í Atlavík Innilegar hjartans þakkir til allra skyldra og vanda- lausra, sem glöddu okkur á gullbrúðkaupsdegi okkar 20. nóvember sl. — Lifið heil. Guð blessi ykkur öll. Guðrúri Þórðardóttir, Halldór Sveinsson, Aðalstræti 71, Patreksfirði. Hugheilar þakkir færi ég vinum og ættingjum, sem glöddu mig með heimsóknum og skeytasendingum á fimmtugsafmæli mínu 19. nóv. sl. — Lifið heil. Guðmundur Friðriksson, Aðalstræti 73, Patreksfirði. Hjartanlega þökkum við börnum okkar, tengdabörn- um, skyldfólki öllu og góðum vinum, fyrir gjafir, blóm og skeyti á 50 ára hjúskaparafmælisdegi okkar 7. þ.m. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðileg jól og far- sælt komandi ár. — Kær kveðja til allra. Bergsteinunn og Vilhjálmur Guðmundsson, Álfaskeiði 3, Hafnarfirði. KONNI og CLAUSEN: Allir krakkar I og II Syrpa af barnalögum JÓLALÖG m. a. sungin af. GUÐMUNDI JÓNSSYNI ANNÝ ÓLAFSDÓTTUR STEFÁNI ÍSLANDI Ennfremur: Kom þú til mín SMÁRAKVARTETTINN í REYKJAVÍK: Þegar hljótt í húmi nætur Ég veit að þú kemur (SKT) Kötukvæði Eyjan hvíta DÆGURLÖG: Ný sending 33 — 45 og 78 snún. m. a. Doris Day: Que Sera Sera, Secret Love, Love Me Or Leave Me JAZZ: Ellington — Armstrong Brubeck — Benny Goodman o. fl. VICTOR BORGE: Comedy In Music BOSEMARY CLOONEY EDDIE FISHER JIMMY BOYD o. fl. ROCK^ ROLL Ný sending Hljóðfæraverzlanir SIGRÍÐAR h'£LGADÓTT(JR Lækjargötu 2 og Vesturveri — Sími 1815 Þökkum hjartanlega hjálp og samúð við andlát og jarðarför okkar elskulega föður, tengdaföður og afa JÓNS ÓLAFSSONAR frá Einarslóni. Sérstaklega þökkum við íbúum Hellissands alla hjálp og góðvild, er þau sýndu í veikindum hans. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Vandamenn. Útför MATTHÍASAR ARNÓRSSONAR fer fram frá Fossvogskapellu fimmtud. 20. des. kl. 1,30. Afþökkum blóm. Fyrir hönd aðstandenda. Rúnar Matthíasson, Ingibjartur Amórsson. Systir mín SIGRÍÐUR HILDIBRANDSDÓTTIR verður jörðuð frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 19. þ.m. kl. 2 e.h. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. Fyrir hönd ættingja. Einar Hildibrandsson. Maðurinn minn og faðir okkar GUÐMUNDUR JÓNMUNDSSON verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 21. þ.m. kl. 1,30 e.h. Afbiðjum blóm og kransa, en þeim, sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Mary Jónmundsson og synir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.