Morgunblaðið - 19.12.1956, Side 24
dagar
til JÓLA
Jólahoðskapur ríkisstjórnarsnnar:
A 4. HLNDRAÐ MILLJ.
KR. NÝIR SKATTAR
SETNT f GÆRKVÖL.DI barst Mbl. greinargerð ríkisstjórnarinn-
ar með frv. hennar um „úrræðin“ í efnahagsmálunum, sem
getið er á öðrum stað hér í blaðinu í dag. f henni er frá því skýrt
að tekjuþörf hennar vegna „úrræðanna" nemi samtals 232 rnillj. kr.
Hyggst stjórnin afla sér þessa fjár þannig:
1. Hækkun innflutningsgjalda kr. 154,5 millj.
2. Gjaid af ýmsum duldum greiðslum kr. 30,7 millj.
3. Gjald af innlendri framleiðslu og þjónustu kr. 19,9 millj.
4. Gjöld af bifreiðum og ferðakostnaði erlendis kr. 11,7 millj.
5. Gjald af innlendum tollvörutegundum kr. 5,5 millj.
6. Greiðsla frá gjaldeyrisbönkum kr. 10,0 millj.
STÓREIGNASKATTUR
Þá kveðst stjórnin ætla að
leggja á stóreignaskatt, er á að
gefa henni 80 millj. kr. tekjur.
Samtals hefur hin nýja stjórn
þá ákveðið að leggja á skatta
er nema 312 millj. kr.
I greinagerð stjórnarfrv. er
einnig frá því skýrt að stjórnin
hyggist gera ráðstafanir til „veru
legrar lækkunar álagningar hjá
milliliðum“. Mun hið einstæða
olíuokur Olíufélagsins eiga að
vera fyrsta skref „vinstri stjórn-
arinnar" til þess að lækka milli-
liðagróðann!
NÝ STJÓRNARFRUMVÖRP
VÆNTANLEG
Loks skýrir stjórnin frá því í
greinargerð frv. síns, að hún
hyggist leggja fyrir þingið síðar
ýmis frv. svo sem um lækkun
tekjuskatts á lágtekjum, aukinn
skattafrádrátt fyrir fiskimenn,
endurskipulagningu fisksölu til
útlanda, endurskipulagningu
bankamálanna, húsaleigu, bygg-
ingarsjóð verkamanna o.fl.
Eldborg seld til Noregs
Þaðan var skipið keypt fyrir 24 árum
MOTORSKIPXÐ ELDBORGIN, sem ýmist hefur verið síldveiði-
skip eða flóabátur í förum milli Reykjavíkur — Akraness
og Borgarness, er nú að kveðja ísland. Búið er að selja skipið til
Noregs.
Kona slasast á Kefla-
víkurvelli
Varnarliðsbifreið ók
a
hana
i
FYRRADAG kl. 18.30 varð bílslys á Keflavíkurflugvelli
varð fyrir bíl sem varnarliðsmaður einn ók. Féll hún í
una og slasaðist allmikið, fótbrotnaði og fékk heilahristing.
Kona
göt-
ÓK UPP A GANGSTÉTT
Nánari málsatvik eru þau að
frú Sigríður Guðmundsdóttir kona
Þórðar Halldórssonar póstmeist-
ara var á gangi á gangstéttinni
á aðalbrautinni skammt frá flug-
stöðvarbyggingunni. V ar fólks-
bifreiðinni VLE-341 ekið upp á
gangstéttina og lenti hún á kon-
unni með þeim afleiðingum sem
áður segir. Lögreglan kom á
vettvang og flutti hún frú Sig-
ríðl í sjúkrahúsið í Keflavík. Við
Þrír ungir úraþjóior
stdlu fyrir 20 þús. kr.
ÞRÍR ungir menn voru handteknir hér í Reykjavík í gærdag,
grunaðir um að hafa í fyrrinótt rænt úra- og skartgiipaverzlun
hér í bænum, en þýfið var um 20.000 lcróna virði. Eftir nokkra
stund játuðu mennirnir að hafa verið þarna að verki.
Menn þessir sem áður hafa
komizt í kast við lögregluna eru
16 ára og tveir 17 ára. Það var
úra- og skartgripaverzlun Carls
Bartels sem þeir brutust inn í,
en hún er beint á móti Gamla
Bíói. Þeir stálu 14 karlmanns-
armbandsúrum og tveim úln-
liðskeðjum fyrir karlmenn. Kom-
ust þeir inn í verzlunina með
því að fara inn um illa lokaðan
glugga. Einn þeirra, annar hinna
17 ára, fór ekki inn í verzlunina,
en þegar félagar hans komu út
aftur, fékk hann í sinn hlut þrjú
úranna.
Eftir handtökuna kom þýfið
allt til skila. Þeir höfðu brotizt
inn um klukkan 4 um nóttina,
en rannsóknarlögreglan fékk til-
kynninguna um þjófnaðinn í
gærmorgun.
rannsókn kom í ljós að bifreiðin
sem á konuna ók mun hafa verið
keðjulaus og með bilaða hemla.
—Fréttaritari.
Eldborg, sem var smíðuð í
Noregi var keypt hingað til lands
1932. Var þá skipið meðal hinna
beztu fiskiskipa flotans, 280 tonna
skip.
SÍLDAR- OG FLÓABÁTUR
Ólafur Magnússon, skipstjóri í
Borgarnesi, en þangað var skipið
keypt, var lengst af með það og
„síldarkóngur" varð Ólafur á
því a. m. k. einu sinni og var
þá með um 30,000 mála afla eftir
síldarvertíðin a.
Eldborg var notuð sem flóabát-
ur milli þess sem Laxfoss strand-
aði og þar til hið nýja skip Akra-
borg kom í staðinn.
Vann 200.000 í
gærkvöldi!
IGÆRKVÖLDI um kl. 10.30
var dregið í símahapp-
drætti Fél. fatlaðra og lamaðra
og kom 200.000 kr. vinningur
inn á nr. 7961, en það er síma-
nr. Vilbergs Hermannssonar
múrarameistara, Blönduhlíð
6. Er blaðið átti tal við Vil-
berg í gærkvöldi, kvaðst hann
vera mjög ánægður með sína
einstöku heppni, aldrei hefði
gæfan fylgt sér áður í ’iapp-
drættum þótt hann hefði spii-
að í Happdrætti Háskólans frá
upphafi. Ekki hafði hann nein-
ar ráðagerðir um það hvernig
hann myndi eyða hinni vævu
fjárfúlgu en væntanlega verð-
ur honum ekki þar um ráða
fátt. Vilberg er einhleypur.
Númerin 7960 og 7962 fengu
hvort um sig 10.000 kr. jóla-
glaðning.
Kaupendur Eldborgar eru
norskir bræður, Gunnar og Thor
Ferkingsstad frá Skudenes, sem
er skammt fyrir sunnan Hauga-
sund. Þeir ætla sér að nota skipið
til fiskveiða.
Áhöfnin, sem siglir skipinu út,
en það eru Norðmenn, alls 8 menn,
er komin og verður annar eigend-
anna, Gunnar Ferkingstad stýri-
maður. Skipið flytur brotajárns-
farm til Noregs.
Skipa- og vélaeftirlit Gísla
Jónssonar hefur haft alla milli-
göngu um sölu skipsins fyrir hönd
eiganda, Gríms h.f. í Borgarnesi.
Tillögur ríkisstjórnarinnar til umrœðu
á Varðarfundi s kvöld
Bjarni Benedikluon og Björn Ólafsson veröa
frummælendur
TANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR heldur fund í
Tí Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30. Þar verða tillögur ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálunum til umræðu. Tillögur þessar,
sem svo lengi hafa verið boðaðar, verða loks lagðar fram á Alþingi
í dag.
Að nokkru leyti með
álögism á vörur'
" 1
ÞJÓÐVILJINN“, segir frá því í gær, að ritari Dagsbrún-
ar hafi skýrt frá því á fundi félagsins í fyrrakvöld,
að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fara svokallaða „milli-
færzluleið“ í dýrtíöarmálunum. Komst ritari Dagsbrúnar
að orði um þetta á þessa leið:
„Þriðja leiðin, millifærzluleiðin, var valin. Sú leið að
afla fjársins að nokkru leyti með álögum á þá riku og að
nokkru leyti með álögum á vörur“.
„Að nokkru leyti með álögum á vörur“! Hvað skyldi
það nú eiga að þýða? Hverjir ætli verði að borga þær
álögur?
Það er auðséð, að kommúnistarnir hafa verið feimnir
við að segja Dagsbrúnar-verkamönnunum sannleikann um
hina stórhækkuðu skatta og tolla, sem „vinstri stjórnin“
hefir lagt á almenning í landinu.
Þegar ríkisstjórnln var sett á
laggirnar á miðju sumri lofaði
hún að leysa vandamál efnahags
lífsins. Var ekki nema gott eitt
um slíkt að segja, enda fannst
mönnum það standa þeim næst
að leysa vandann, er til hans
höfðu stofnað.
Menn misvirtu það heldur ekki
við ríkisstjórnina að hafa engin
úrræði á takteinum strax í sum-
ar. Að vísu hefði mátt ætla að
ekki hefði þurft langt að seilast
til bjargráðanna hjá þeim herr-
um, svo mjög sem þeir gumuðu
við Alþingiskosningarnar. En
flestir tóku lítt mark á skruminu
BJÖRN ÓLAFSSON
og urðu því ekki fyrir sárum von-
brigðum í sumar, þegar bráða-
birgðaúrræðin litu dagsins Ijós.
LÖNG BIÐ
Síðan eru nú liðnir nokkrir
mánuðir. Hefur lengi verið beðið
eftir tillögum ríkisstjórnarinnar
setið aðgerðalaust án þess að
þeim hafi bólað. Alþingi hefur
setið aðgerðarlaust án þess að
ríkisstjórnin hafi séð því fyrir
öðru verkefni en að bíða eftir
hinum væntanlegu úrræðum. —
Þessum tillögum er svo loks kast
að inn í þingið í það mund, sem
jólahátíðin er að halda innreið
sína. Það er sannarlega ekki
miklu fyrir að fara um vinnu-
brögð stjórnarliðsins.
En sannleikurinn er sá, að
stjórnarliðið hefur lagt meiri
áherzlu á annað síðustu mánuð-
ina en að búa þessar tillögur sín-
ar úr garði. Hefur því verið mest
í mun að telja fólki trú um, að
hinar stórstígu framfarir síðustu
ára undir forustu Sjálfstæðis-
flokksins hafi leitt til nokkurs
konar neyðarástands, sem enginn
sé fær um að leiða þjóðina út
úr nema núverandi ríkisstjórn.
Þessa speki hefur almenningur
átt erfitt með að meðtaka, svo
sem vonlegt er. Hendir fólk gam-
an að slíkum tiltektum, sem eru
lítt til þess fallnar að auka traust
manna á ríkisstjórninni. Raunar
er það svo að þakka mætti fyrir,
ef núverandi ríkisstjórn gæti
haldið í horfinu, þar sem komið
var framfaramálunum, þegar
Sjálfstæðisflokkurinn lét af
stjórnarforustunni. En fæstir eru
þeir, sem treysta á slíkt, hvað þá
heldur meira.
HVER ERU ÚRRÆÐIN?
Aftur á móti eru vandkvæði
þau, sem ríkisstjórnin hyggst nú
leysa með tillögum sínum þess
eðlis, að stjórnarflokkunum ætti
að renna blóðið til skyldunnar.
Þeirra er fyrst og fremst ábyrgð-
in á því jafnvægisleysi í efnahags
málunum, sem stefnt hefur tíl að
undanförnu. En fela tillögur þær,
sem lagðar verða fram á Alþingi
í dag í sér varanleg úrræði? Um
þetta verður rætt á Varðarfund-
inum í kvöld.
Frummælendur á fundinum
verða Bjarni Benediktsson og
Björn Ólafsson. Er enginn vafi
á, að fróðlegt verður að hlýða
á mál þeirra í kvöld, er þeir ræða
tillögur ríkisstjórnarinnar.
Má því vænta að bæði Varðar-
félagar og annað Sjálfstæðisfólk
fjölmenni á fundinn.
BJARNI BENEDIKTSSON