Morgunblaðið - 26.02.1957, Síða 3
Þriðjudagur 26. febr. 1957
MORGVWBIAÐIÐ
3
Þriðja umræða fjárlaga:
Fjórlög munu nemu uð minnstu
kosti 811,6 millj. krónu
Sjálfstœðismenn leggja til 7 millj. kr.
hœkkun tekjuáœtlunar en 3 millj. kr.
hœkkun útgjalda
ÞRIÐJA umræða um fjárlög fór fram í gær. Var þar upplýst að
fjárlög yrðu að þessu sinni að minnsta kosti 811.602.000 kr.
Við þessa umræðu stóð fjárveitinganefnd öll að 92 breytingatiilög-
um, en þar að auki fiytur minni hluti fjárveitingan. 19 brtill. til
viðbótar.
Form. fjárveitinganefndar,
Karl Guðjónsson, skýrði tillögur
þær, sem nefndin stendur sam-
eiginlega að. Sagði hann að ef
þær næðu fram að ganga myndi
niðurstöðutala fjárlaga nema
811.602.000 kr. og 'hagstæður
greiðslujöfnuður nema 1.463.177
kr. —
TEKJUÁÆTLUN
HÆKKI
Magnús Jónsson talaði fyrir sér
tillögum minnihlutans sem legg-
ur til að tekjuáætlun fjárlaganna
verði hækkuð um 7 millj. kr.,
þ. e. áætlun um tekju- og eigna-
skatt verði hækkuð úr 111.000.
000 í 113.000.000 kr. og áætlun
um söluskatt úr 110.000.000 í
115.000.000 kr. Hins vegar nema
útgj.till. minnihl. tæpum 3 millj.
kr. Ef þær till. verða samþykkt-
ar verður greiðsluafgangur 5V2
millj. í stað 1% millj. eftir till.
meirihlutans, en hann skilar sér-
till. um tekjuáætlun.
Magnús Jónsson hóf mál sitt
á því að harma að ekki skyldu
hafa Iegið fyrir fjárveitinga-
nefnd meiri upplýsingar um
tekjuhlið rikissjóðs fyrir síð-
asta ár en raun ber vitni þrátt
fyrir ítrekaðar eftirgrennslan-
ir. Lét hann i ljós undrun sína
yfir því að nú skyldi ekki
liggja fyrir sams konar tekju-
áætlun fyrir desembermánuð
og lá fyrir um miðjan janúar
í fyrra. Hefði nefndinni með
þessu verið gert erfiðara fyr-
ir um samningu tekjuáætlun-
ar en venja væri til.
KOMNIR LANGT FRAM
ÚR VAGNINUM
Útgjaldaáætlun fyrir árið
1956 var 662 millj. og er hækk-
unin nú því um 150 millj. kr.
í fyrra nam hækkunin frá árinu
áður aftur á móti 157 millj. kr.,
en þá varð að taka tillit til 15
stiga hækkunar á kaupgjaldsvísi-
tölu, en nú er aftur á móti mið-
að við sömu vísitölu og var 1956.
Miðað við þessar aðstæður er
hækkunin nú því raunverulega
mun meiri en þá, þannig að það
er ekki aðeins að meiri hluti fjár-
veitinganefndar „hlaupi í sömu
átt og vagninn stefndi, til þess
að forða sér frá að missa fót-
anna“, eins og komizt er að orði
í nefndaráliti meirihlutans, held-
ur hefir hann nú farið langt fram
úr vagninum, sagði Magnús í lok
ræðu sinnar.
HÆKKUN TIL SJÚKRA- OG
HEILBRIGÐISSTOFNANA
Magnús Jónsson lýsti tillögum
minnihlutans til hækkunar all
ýtarlega. Gat hann fyrst hækk-
ana til sjúkrahúsa. Rekstrar-
styrkur St. Jósefsspítalans 375
þús. verði 750 þús., læknisbústað-
ir, sjúkrahús o. fl., 3 miilj. verði
3,5 millj., Fjórðungssjúkrahús á
Akureyri, 575 þús. verði 675 þús.
kr., heilbrigðisstofnanir í Reykja
vik, 1,5 millj. verði 2 millj., Skála
tún, 60 þús. verði 200 þús. kr.
SÉRLEYFISSJÓÐUR VERÐI
LÁTINN ÓSKERTUR
í sambandi við greiðslu á rekstr
arhalla Ferðaskrifstofu ríkisins
verði fellt niður að hann verði
greiddur úr sérleyfissjóði, en
verði hins vegar greiddur beint
úr ríkissjóði. Sjóður þessi á nú
1,2 millj. kr., en verði halli skrif-
stofunnar greiddur úr honum
verður hann að mestu leyti
tæmdur. — Er önnur til-
laga um að fella niður kröfu
á sérleyfissjóð um greiðslu á
halla á Ferðaskrifstofu ríkisins
árin 1952—1956, enda verði fé
þvi, sem sjóðnum þannig spar-
ast, varið til byggingar af-
greiðslustöðvar í Reykjavík fyrir
sérleyfisbifreiðir.
HÆKKANIR TIL
ELLIHEIMILA
Lagt er til að Elliheimilið
Grund hljóti 50 þús. kr. í stað
40 þús. og gamalmennahæli ut-
an Reykjavíkur 40 þús. hvert og
Elliheimilið í Skjaldarvík 30 þús.
í stað 20 þús. kr. og að til kven-
félagsins á Akranesi verði varið
30 þús. til byggingar dagheimilis,
gegn að minnsta kosti jafnháu
framlagi annars staðar frá.
TIL FÉLAGSHEIMILASJÓÐS
Þá er lagt til að inn verði tek-
inn nýr liður, þar sem veitt sé
til Félagsheimilasjóðs 1 millj. kr.
Sjóðurinn hefir að undanförnu
verið í mjög mikilli fjárþröng og
staðið í miklum vanskilum. Er
þetta einn liður í eflingu jafn-
vægis í byggð landsins. Er ekki
mikið þótt þetta fé sé veitt til
Félagsheimilasjóðs, þar sem þeg-
ar hefir verið samþykkt að veita
jafnháa upphæð til aðeins eins
félagsheimilis, sem ekki hefir
einu sinni verið gerð kostnaðar-
áætlun um.
HÆKKUÐ RÍKISÁBYRGÐ
LÁNA TIL FRYSTIHÚSA O. FL.
Minnihlutinn leggur til að rík-
isábyrgð á lánum til frystihúsa,
mjólkurbúa og fiskimjölsverk-
smiðja verði hækkuð úr 60% í
80%. Hefir komið í ljós, að aðilj-
um þeim, sem hafa staðið í bygg-
ingum slíkra fyrirtækja, hefir
reynzt algerlega um megn að
áfla sér 40% þeirra, er þeim hef-
ir sjálfum verið gert að útvega
óg er því hækkun þessi nauð-
synleg.
Þá er lagt til að selja Fiskiðju-
ver ríkisins með þeim skilyrðum
og gegn þeim trygingum, sem
ríkisstjórnin ákveður, enda verði
útvegsmönnum veittur forkaups-
réttur að fyrirtækinu.
FRAMLAG TIL VEÐDEILDAR
BÚNAÐARBANKANS
Þá er lagt til að leggja fram
MJÖG STYGG
Var hryssan stygg að vanda og
fór á harðahlaupum norður með
Víðidalsá, að heiðargirðingunni.
Fór hún yfir Víðidalsá í djúpu
gili og lenti í aðhaldi við girð-
inguna og kletta.
STÖKK YFIR GIRÐINGUNA
Ætluðu þeir félagar að spekja
hana með því aö láta lausan hest
fara til hennar. Við þessa tilraun
trylltist hryssan alveg og stökk
úr ríkissjóði allt að 5 miUj.
kr. til veðdeildar Búnaðar-
bankans, og heimilast rikis-
stjórninni lántaka í þessu
skyni, ef ríkissjóður getur
ekki lagt fé fram með öðru
móti. Tillaga þessi er að sjálf-
sögðu miðuð við það að ríkis-
stjórnin gefi ekki upplýsing-
ar, að úr fjárskorti veðdeild-
arinnar verði bætt á annan
hátt. Nefnd var á sínum tima
skipuð til þess að semja frum-
varp um úrbætur á lánsfjár-
skorti landbúnaðarins. í dag
var lagt fram annað þessara
frumvarpa, en frumvarpið um
veðdeildina hefur ekki enn séð
dagsins Ijós, þótt nefndin skil-
aði báðum frumvörpunum til
ríkisstjórnarinnar í byrjun
þingsins. Samkv. þessum
frumvörpum hefur verið gert
ráð fyrir að verja þyrfti til
aukinna stofnlána landbúnað-
arins 17 millj. kr. á þessu ári.
t sameiginlegum tillögum
nefndarinnar er gert ráð fyrir
að hækka framlög til nýbýla-
stofnunar og framkvæmda á
jörðum, sem dregizt hafa aft-
ur úr, alls 8 millj. kr. Hins
vegar er ekki gert ráð fyrir
neinu fé til veðdeildarinnar.
Minnihlutinn telur þetta al-
veg óviðunandi vegna hinna
miklu þarfa, sem veðdeildin
hefur fyrir starfsfé og leggur
því til að 5 millj. kr. verði
veitt til hennar.
FÉ TIL HAFNARGERÐA
Þá er lagt til að taka lán til
hafnargerða sem hér segir: Allt
að 10 millj. kr. til greiðslu á
framlögum ríkissjóðs samkv.'
hafnarlögum, sem vangoldin
voru 31. des. 1956. Og í öðru lagi
allt að 15 millj. kr. til að endur-
lána sveitafélögum til hafnar-
gerða á þeim stöðum, þar sem
þörfin er brýnust.
EFTIRGJÖF BJARGRÁBA-
LÁNA LÁTIN GANGA JAFNT
YFIR ALLA
Minnihlutinn leggur til að eng-
inn greinarmunur verði geiður á
því hvort í hlut eiga bændur á
Suður- og Vesturlandi eða á
Norður- og Austurlandi með eft-
irgjöf lána vegna óþurrka og svo-
kölluð hallærislán. Meirihlutinn
hefur hins vegar lagt til að sum
lánin yrðu afhent Bjargráðasjóði
íslands til innheimtu, en önnur
gefin eftir.
Tillaga minnihluta nefndarinn-
ar hljóðar svo:
a. Að afhenda Bjargráðasjóði
íslands til eignar 10% millj. kr.
skuldabréf, dags. 31. ágúst 1956,
vegna óþurrkalána á Suður- og
' Suðvesturlandi árið 1955 og enn-
fremur skuldabréf í vörzlu Bún-
aðarbanka íslands, upphaflega 3
millj. kr., útgefin 1950 og 1951,
vegna harðinda og óþurrka 1949
norður yfir girðinguna. Komu
þeir henni síðan til stóðhrossa úr
Víðidal.
í GÓÐUM HOLDUM
Var hryssan í góðum holdum,
en snjóþungt er og haglítið orð-
ið á heiðum og fjöllum, en sæmi-
legir hrosshagar eru í byggð.
Hryssa þessi er litförótt, á þriðja
vetri. Eigandi hennar er Gestur
bóndi í Sunnuhlíð. — Ágúst.
Tryllta hryssam fundin
Hofi, Vatnsdal, 25. febr.
NÚ er loks búið að finna styggu hryssuna, sem tapaðist í leitum
á Grímstunguheiði í haust og leitað var eftir í vetur án ár-
angurs. Þeir Lárus í Grímstungu og Þorsteinn á Ásbrekku fundu
hana í gær norðarlega á Víðidalstunguheiði.
og 1950 á Austur- og Norðaustur-
landi, enda verði bændum geíin
eftir umrædd lán.
b. Að gefa eftir svokölluð hall-
ærislán, veitt úr ríkissjóði til
bænda 1952, að upphæð 5 millj.
320 þús. kr.
c. Að taka að sér eftir því sem
rannsókn leiðir í ljós að þurfa
þyki, greiðslu á allt að 3% millj.
kr. lánum, sem ríkissjóður er í
ábyrgð fyrir vegna þurrafúa í
fiskiskipunum.
KVÖLDFUNDUR í GÆR
Að lokinni ræðu Magnúsar
Jónssonar var umræðu frestað
til kl. 8,30 í gærkvöldi og var
gert ráð fyrir að 3. umræðu
mundi ljúka í gærkvöldi, en at-
kvæðagreiðslu yrði frestað þar
til í dag.
Ný Ijóðabók eftir
Vilhjálm frá Skáholti
BLÓÐ OG VÍN — með 35 kvæðum
NÝ LJÓÐABÓK eftir Vilhjálm frá Skáholti er komin út. Bókin
nefnist BlóS og vín. Hún er 78 blaðsíður að stærð, gefin út
af Bókaverzlun Kr. Kristjánssonar og prentuð í Hólum h.f. Kápu-
teikningu gerði Gylfi Snær. — Þetta er fjórða bók skáldsins, en
hinar eru: Næturljóð 1931, Vort daglega brauð 1935 (2. útg. 1936
og þriðja útgáfa, aukin og myndskreytt 1950), Sól og menn 1948.
í hinni nýju bók eru 35 ljóð og
kennir þar ýmissa grasa. Heiti
ljóðanna geta gefið nokkra hug-
mynd um yrkisefnin. Svo að
dæmi séu tekin af handahófi:
Ótti, Næturórar, Þorsti, Már Rík-
harðsson, Hugleiðingar um lífið,
Ást og draumur, Grímulaus, Hús-
ið mitt, Bros, Vín og myndlist,
í leit að drottni, Sorg o. fl.
Vilhjálmur frá Skáholti er
löngu kunnur fyrir ljóð sín og
hafa þau hlotið góðar vinsældir.
Hefir bóka hans verið lofsamlega
getið af ritdómurum, eins og sjá
má af nokkrum blaðaumsögnum
á kápu. Um tvö kvæða Vilhjálms
sagði gagnrýnandi Mbl. Krist-
mann Guðmundsson, skáld, 1951:
„Herbergið mitt“ og „Jesús
Kristur og ég“ munu sjá um að
framtíðin geymi nafn hans . . .“
— Sigfús Halldórsson hefir sam-
ið lög við mörg kvæði Vilhjálms
og Skúli Halldórsson einnig.
Vilhjálmur Guðmundsson
frá Skáholti.
Annar fundur Búnaðarþings;
Framtíðarvandamál Búnaðarfélagsíns
AN N A R fundur Búnaðarþings var haldinn í Tjarnarkaffl f g»r.
Búnaðarmálastjóri Steingrímur Steinþórsson, flutti á fundi
þessum langa ræðu, er fjallaði aðallega um framtíðarverkefni Bún-
rðarfélags íslands.
Ræðumaður rakti í fáum drátt-
um sögu þessara elztu at-
vinnusamtaka landsmanna, sem
stofnuð hefðu verið fyrir
120 árum af 11 mönnum
hér í Reykjavík þar af einum
bónda utan af landi. Steingrímur
sagði að þessi frjálsu samtök
bændanna sjálfra ynnu með
hinu eina rétta starfsformi. Um
þetta vitnaði hann til ummæía
Þórðar Þórðarsonar vesturís-
lenzka hagfræðingsins er var á
ferð hér í sumar, en hann hafði
ekki talið neinna úrbóta þörf á
sviði stjórnar Búnaðarfél. Hins
vegar hafði hann talið stjóm til-
raunamála landbúnaðarins gall-
aða.
NÝTT LANDNÁM
>á ræddi búnaðarmálastjóri
hið mjög svo auma húsnæði Bún-
aðarfélagsins og framtiðarskipun
þeirra mála. Hann ræddi og nýtt
landnám er hefja þyrfti með
stuðningi við ungt fólk er hefja
vildi búskap í sveit. Taldi hann
okkur ekki eiga að vera að ræða
um það með klökkva þótt ein-
hverjir vildu flytja úr sveitunum,
það væri ekki hægt að binda
fólkið þar, sem það vildi ekki
vera. Hins vegar yrði að hefja
nýtt landnám meðal kaupstaðar-
fólksins. Þar væru margir sem
hefja vildu búskap ef þeim væri
veitt aðstaða til.
Þá taldi búnaðarmálastjóri bú-
fræðinga hafa orðið fyrir ómak-
legu aðkasti, en þeir væru
mikillar viðurkenningar verðir
og búnaðarskólana taldi hann
hafa unnið ómetanlegt gagn und-
anfarna þrjá aldarfjórðunga. —
Hann ræddi ýtarlega um ráðu-
nauta og gildi þeirra. Taldi hann
þá hafa verið til mikillar far-
sældar fyrir landbúnaðinn.
Steingrímur sagði að nú hefðu
íslenzkir bændur sigrazt á gras-
leysissumrum. Vélvæðingin væri
nú orðin svo víðtæk að t. d.
Ameríkumenn sem hér væru á
ferð hefðu sagt, að á því sviði
væru íslenzkir bændur komnir
eins langt og ameriskir bændur
a. m. k. mjög víða. Þá væru ís-
lenzkir bændur einnig langt
komnir á sviði bú^járræktar.
FLEIRI RÁÐUNAUTAR
Búnaðarmálastjóri r.aldi þurfa
að ráða fleiri ráðunauta til starfa.
Nefndi hann í því sambandi einn
jarðræktarráðunaut, einn til tvo
búfjárræktarráðunauta, einn hey
verkunarráðunaut, einn garð-
yrkjuráðuanut og einn bygginga-
ráðunaut. Skýrði hann þörfina
fyrir þessa ráðunauta í alllöngu
máli. Að síðustu ræddi búnaðar-
málastjóri fjárhagsvandræði fé-
lagsins og þær leiðir er færar
kynnu að vera til þess að afla
aukins fjár.
Næsti fundur Búnaðarþings
hefst kl. 9.30 f.h. í dag i Tjarn-
arkaffi. Er þá ráðgert að Sæ-
mundur Friðriksson segi frá
hinni nýju landbúnaðarhöll.,
Gísli Kristjánsson tali um bún-
aðarfræðslu, og tvær kvikmynd-
ir verði sýndar.
STYKKISHÓLMUR, 22. febr. —
Ekkert hefur verið róið héðan
þar til á miðvikudaginn. Réru
bátarnir þá um kvöldið. Þangað
til hafði verið stöðug ótíð.
í gær komu bátamir að landi
og var aflinn frekar rýr frá 4—
5,5 lest á bát. í dag eru allir bát-
ar á sjó, en enginn er kominn að
landi ennþá. Veður er nú stillt og
gott. — Árni.