Morgunblaðið - 26.02.1957, Side 11
Þriðjudagur 26. febr. 1957
MORGUNBLATnn
11
Stlfni Breta gerir friverzlunar
svædid óaðgengilegt
Kaupmannahafnarbréf: Eftir Pál
Eru Dcmir lilneyddir að gerasl
aðilar að lollabaradalctgi Evrópn ?
Kaupmhöfn í febr. 1957.
í DANMÖRKU er mikið um það
rætt, hvaða afstöðu Danir skuli
taka til áformanna um sameig-
inlegan markað í Vestur-Evrópu.
Allir lýðræðisflokkarnir eru
hlynntir sjálfri hugmyndinni um
sameiginlegan Vestur-Evrópu-
markað. Þegar málið var rætt
fyrir skömmu í Þjóðþinginu
voru aðeins „fulltrúar rússneska
flokksins“, eins og „Information"
komst að orði, á öðru máli. Aksel
Larsen vildi heldur auká við-
skiptin við Rússland. Ef Danir
hefðu keypt 300.000 smálestir af
olíu í Rússlandi eins og gert er
ráð fyrir í dansk-rússneska við-
skiptasamningnum, þá hefði ekki
verið nauðsynlegt að skammta
olíu í Danmörku eftir lokun Súez
skurðarins, sagði formaöur komm
únistaflokksins.
H. C. Hansen forsætis- og ut-
anríkisráðherra svaraði: „Rússar
gátu ekki selt okkur olíuna, þeg-
ar við þurftum á henni að
halda“.
Umræðurnar um þátttöku
Dana í aukinni viðskiptasam-
vinnu í Vestur-Evrópu snúast
fyrst og fremst um það, hvort
þeir eigi að ganga í tollabanda-
lag „Litlu Evrópu“-landanna,
nefnilega Frakklands, Ítalíu,
Vestur-Þýzkalands og Benelúx-
landanna þriggja, eða gerast að-
ilar að fríverzlunarsvæðinu, sem
Bretar reyna að skapa.
Hugmynd Breta er sem
kunnugt er sú, að „Litlu
Evrópu“-löndin 6 og hin 11
löndin, sem standa aS OEEC
(Efnahagssamvinnustofnun
Evrópu) gerist aðilar að frí-
verzlunarsvæðinu. Búizt er
við, að 5 af þessum löndum,
nefnilega íslandi, Grikklandi,
írlandi, Portúgal og Tyrk-
landi, veitist erfitt vegna
efnahagslegra örðugleika að
standast samkeppni af hálfu
hinna landanna á fríverzlun-
arsvæðinu. Á því sérstök
nefnd að athuga möguleikana
fyrir þátttpku þess:ira 5 landa.
Tollabandalag „Litlu Evrópu“
er lengst á veg komið. Gert er
ráð fyrir, að samningurinn um
það verði undirskrifaður um
miðjan næsta mánuð og að hann
gangi í gildi á næsta ári.
TOLLAR LANDBÚNAÐAR-
AFURÐA
„Litlu Evrópu"-ríkin sex ætla
sem kunnugt er að afnema smám
saman á 15 árum alla tolla og
önnur viðskiptahöft sín á milli.
Hugmyndin er sú, að toll- og
haftafrelsið innan tollabandalags
ins nái einnig til landbúnaðar-
afurða, þó með vissum takmörk-
unum. Út á við ætla þessi lönd
að hafa sameiginlega tolla. Er
ekki að ná til landbúnaðar- og
sjávarafurða. Og aðilar fríverzl-
unarsvæðisins eiga ekki að hafa
sameiginlega tolla út á við.
Hin fyrirhuguðu ákvæði um
landbúnaðarvörur gera að verk-
um, að margir talsmenn danskra
bænda þ. á. m. formaður Land-
búnaðarráðsins telja nauðsynlegt.
að Danir gerist aðilar að tolla-
bandalagi „Liltu Evrópu". Thor-
kil Kristensen, fyrv. fjármálaráð-
herra lét nýlega sömu skoðun í
ljós.
„Litlu Evrópu“-löndin keyptu
í fyrra danskar landbúnaðarvör-
ur fyrir 1.400 milljónir kr. eða
þriðjung allra útfluttra danskra
landbúnaðarafurða miðað við
verðmæti.
DYRNAR OPNAR FYRIR
DANl
Gangi Danir ekki í tollabanda
lagið, má búast við, að þeir missi
hinn þýðingarmikla markað, sem
þeir hafa fyrir landbúnaðaraf-
urðir í „Litlu Evrópu“-löndunum.
Þær rekast þá á háa tillmúra. Við
það bætist, að Holland, hætíuleg-
asti keppinautur Dana á þessum
markaði, er aðili bandalagsins og
nýtur því þar langtum betri kjara
en Danir.
Dönum hefur ekki verið
ljóst, hvort þeim stæði aðild
að tollabandalaginu til boða.
En þegar Jens Otto Krag, efna
hagsmálaráðherra Dana, hitti
Spaak, forsætisráðherra Belg-
íu, á nýafstöðnum ráðherra-
fundi OEEC-landanna í París,
sagði Spaak, að dyrnar stæðu
Dönum opnar.
Þegar Krag kom heim og
sagði frá þcssu, bar vinstri-
flokkurinn fram kröfu þess
efnis, að Danir tilkynni þegar
í stað þátttöku sína í undir-
búningi undir tollabandalagið,
tii þess að geta haft áhrif á
stofnákvæði þess.
íhaldsmenn vilja kynnast öll-
um málavöxtum nánar áður en
þeir taka afstöðu til málsins.Ýmis
atriði í tollabandalagssamningn-
um eru ennþá ókunn. Og að svo
stöddu veit enginn, hvernig frí-
verzlunarsvæðið verður úr garði
gert, ef það kemst á laggirnar.
AFSTAÐA H. C. HANSENS
Skömmu fyrir ráðherrafund
OEEC-landanna í París fóru um-
ræður fram í Þjóðþinginu um af
stöðu Dana til sameiginlegs
Vestur-Evrópumarkaðar. H. C
Hansen tók þar til máls og lét
Bækistöð efnahags-samvinnustofnunarinnar OEEC er í þessari
gömul höll í Parísarborg. Þar hafa staðið yfir miklar ráðstefn-
ur að undanförnu um tollabandalag Evrópu.
á sér skilja, að honum þyki
mjög varhugavert, að Danir ger-
ist aðilar að collabandalagi
Litlu Evrópu“. Danmörk gæti
þá ekki verið áfram lágtollaland,
sagði forsætisráðherrann, og gæti
ekki tekið þátt í hinu fyrirhugaða
tollabandalagi Norðurlanda.
H. C. Hansen benti á, að tolla-
bandalag „Litlu Evrópu“ miði að
því að skapa meira en sameigin-
legan vörumarkað. Þarna sé líka
um sameiginlegan vinnumarkað
að ræða. Það eigi einnig að sam-
ræma félagsmálalöggjöf aðildar-
landanna og skapa nána sam-
vinnu þeirra á milli á fjármála-
sviðinu.
Thorkil Kristensen sagði
seinna, að H. C. Hansen sé auð-
sjáanlega hræddur við sameigin-
legan vinnumarkað. Hann óttist,
að t.d. láglaunaðir suður-ítalskir
verkamenn kynnu að leita at-
vinnu í Danmörku, og að það
mundi hafa óheppileg áhrif á
kaupgjald danskra verkamanna.
H. C. Hansen virtist frekar
hallast að því, að Danir gerist
aðilar að fríverzlunarsvæðinu, ef
það verði hægt með viðunandi
kjörum.
Stjómarblaðið „Socialdemo-
kraten" bendir á, að OEEC-lönd-
in kaupa nálega 80% af útflutn-
ingsvörum Dana og að 75% af
vöruinnflutningi Dana kemur frá
þessum löndum. Það er því mjög
varhugavert fyrir Dani . segir
blaðið, að standa utan við frí-
verzlunarsvæði, sem OEEC-lönd-
in kunna að stofna sín á milli.
En það er sá hængur á áform-
unum um fríverzlunarsvæðið, að
toll- og haftafrelsið innan svæð-
isins nær ekki til landbúnaðar-
og sjávarafurða, ef tillögur
Breta verða samþykktar. Þetta
getur önnur eins landbúnaðar-
þjóð og Danir ekki sætt sig við.
Ef við gerðumst aðilar að
þessum samtökum með þeirn
skilyrðum, sem Bretar vilja
Framh á bls. 19
Anker Kirkehy ritstjóri
Jens Otto Krag efnahagsmála-
ráðherra Dana hefur rætt um
aðild Dana að tollabandalaginu.
búizt við, að þau leggi 15—20%
toll á landbúnaðarvörur.
Innan hins fyrirhugaða friverzl
unarsvæðis OEEC-landanna á
líka að afnema tolla og önnur
viðskiptahöft, en toll- og hafta-
frelsið á samlcvæmt tillögu Breta
Þá er fallinn í valinn einhver
sérstæðasti og glæsilegasti per-
sónuleiki aldarinnar í norænni
blaðamannastétt, Anker Kirke-
by, ritstjóri. Hann lézt á 73. ald-
ursári í Fredriksenspítala, úr
heilablæðingu, 27. f.m.
Útför hans var gerð frá Fred-
riksborgarkirkju 1. þ.m., — ó-
venju fjölmenn og virðuleg at-
höfn, framkvæmd án aðstoðar
prestvígðra manna. Var þó Kirke
by manna bezt kristinn, en það
var bjargföst sannfæring hans, að
enginn gæti, með skólagöngu og
prófum, öðlast einkarétt á með-
algöngu guðs og manna, — þann
möguleika yrðu menn að ávinna
sér með breytni sinni, annað
væri móðgun við hlið eilífa.
Hann vildi að hver og einn sýndi
trú sína í verki, og að þeir væru
guði þóknanlegastir, sem væru
Ijúfir og fórnfúsir í samskiptum
sínum við munaðarleysingja, dýr
og utangarðsfólk þjóðfélagsins.
Og þessum grundvallarsjónar-
miðum trúar sinnar brást hann
aldrei.
Auk samstarfsfólks, ættingja,
vina og fulltrúa ýmissa menn-
ingarstofnana og stéttarfélaga í
Skandinavíu fylgdu honum líka
hinzta spölinn sjúkir, lamaðir og
hælislausir samborgarar hans,
sem hann hafði á margan hátt
verið málsvari fyrir í hálfa öld.
Ankar Kirkeby var jótskur
kaupmannssonur, alinn upp við
mikið ástríki og ungur settur til
mennta. Hann var hamingjubarn
borgaralegra lífskjara, og fram-
tíðin brosti við honum með birtu
og yl til allra átta. Að loknu
stúdentsprófi í Árósum 1902 inn-
ritaðist hann í læknadeild Hafn-
arháskóla með þeim ásetningi að
verða trúboðslæknir, — en hon-
um féllu ekki þau vísindi, og það
var margt, sem glapti. Vorið 1904
fær hann inngöngu í leiklistar-
skóla Konungl. leikhússins og
gat sér þar skjótt fremdarorð
kennara sinna, sem efnilegur
nemandi, verðandi mikálhæfur
leikari. En það átti þó ekki fyrir
honum að liggja. í honum voru
sífeld umbrot og vonadraumar
um það, að geta lagt hönd á plóg-
inn við að „ryðja menningunni
braut inn í hjarta mannsins",
eins og hann komst síðar að orði.
Og leikhúsið var ekki rétti vett-
vangurinn. Loftið þar fannst hon-
um lævi blandið og viðfangsefn-
in úrelt og utangátta við hlið lit-
ríka, blæbrigðaríka og róstu-
sama mannslíf, sem leiksviðinu
var ætlað að túlka. Um viðhorf
sín til þessara mála ritaði hann
nokkrar hressilegar blaðagrein-
ar, er ýttu ögn við aldarhættin-
um. — Síðan hvarf hann úr landi
og settist um tíma að í Noregi.
Kynntist hann þar Björnstjerne
Björnsson og Friðþjóf Nansen og
varðveitti áhrif þeirra viðkynna
til æviloka.
Hér hóf hann og sinn langa
blaðamennskuferil sem starfsmað
ur við „Orebladet", og taldi, að
Norðmönnum væri ekki vandara
að notast við danskan blaða-
mann en danskan prins fyrir
kóng! Frá Noregi hélt hann svo
til Parísar, varð lífið og sálin í
norrænu listamannanýlendunni
þar, heimsótti oft Björnsson og
hafði ofanaf fyrir sér með því
að skrifa greinar um óskildustu
efni fyrir ýms blöð á Norður-
löndum.
Henrik Cavling var þá orðinn
aðalritstjóri Politiken. Hann var
um marga hluti á undan sinni
samtíð, og er af ýmsum talinn
upphafsmaður og leiðarljós
skandinavískrar nútímapressu. Á
gamals aldri taldi hann gæfu sína
því að þakka, að hann hefði allt-
af verið heppinn í vali ungra
samstarfsmanna. (Það var sagt,
að hann þefaði af mönnum og
finndi það á lyktinni, hvort um
blaðamannaefni væri að ræða).
En hann þurfti ekki að þefa af
Anker Kirkeby, — greinar hans
báru hæfileikum hans svo aug-
Ijóst vitni, að Cavling skrifaði
honum línu og bauð honum stöðu
við blað sitt. Tók hann boðinu
fegins hendi og upp frá því naut
Politiken óskiptra krafta hans
meðan dagar entust, — að þrem
vikum undanskildum, — og nafn
hans var ævinlega trygging fyrir
skilmerkilegri frétt,eða læsilegri
grein, því að hann kunni manna
bezt að tala samtímis til tilfinn-
inga og skynsemi lesenda sinna.
Fyrstu tvo áratugina í þjón-
ustu Cavling dvaldi hann oft
langdvölum erlendis við frétta-
öflun. Hann var hinn „fljúgandi
sendifulltrúi" blaðsins, áður en
raunhæfar flugsamgöngur hóf-
ust, alltaf fyrstur þangað, sem
eitthvað gerðist, og innstur við
eldana, er skírastir brunnu. Hann
var m.a. fréttaritari í Balkan-
styrjöldinni 1912, inni á vígvöll-
um heimsstyrjaldarinnar fyrri,
fylgdist með aðgerðum í rússn-
esku byltingunni 1917, viðstadd-
ur friðarsamningana í Versölum,
stofnun Þjóðabandalagsins og
skaut svo upp á meðal kúreka
vestur við Klettafjöll, hjá Negr-
um á bómullarekrum Suðurríkj-
anna, viðlátinn þjóðdansasýn-
ingu í Færeyjum, gisti samyrkju-
bændur í Kákasus, las blóm í
Getsemanegarðinum og tók. virk-
an þátt í mannúðarmálastarf-
semi Friðþjófs Nansens á árun-
um eftir gamla stríðið — og við
hvaða málefni, sem hann hreyfði
var hann alltaf „þinn sami ein-
lægur" Anker Kirkeby með vona
bjarmann skæra, og lífstregans
þunga undirtón í hverjum penna-
drætti.
Er á æivina leið skrifaði Ank-
er Kirkeby mikið um dönsk
menningarmál, fór þar ótroðnar
slóðir. Gerðist hann frumkvöðull
margra nýmæla, gekkst t.d. fyr-
ir stofnun danska Talplötusafns-
ins, og átti hugmyndina að því,
ruddi Farfuglahreýfingunni
braut í Danmörku, friðaði staði,
er geymdu sögulegar minjar,
safnaði heimildarritum og skrif-
aði um líf og starf rithöfunda,
stofnaði til útgáfu á mannbætandi
lestrarefni fyrir börn, — og allt-
af jafn hugkvæmur og laginn að
vinna hugmyndum sínum fylgi,
Sem dæmi um það, hvað hana
gat færst í fang, þá taldi hann
sig hafa fundið legstað Hamlets
og lét reisa þar mikinn bauta-
stein, sem þúsundir útlendinga
komu árlega til að sjá, og sann-
færast um tilveru og leiðarlok
þessa sögufræga prins!
Réttlátari heimur, samábyrgS
hinna sterku og hamingjuheppnu
til hjápar veikum og lánlitlum,
voru honum hugstæðast allra
mála, og þess vegna fjölmenntu
fulltrúar þeirrar stéttar við jarð-
arför hans. Einn þáttur í líknar-
málabaráttu Ankers Kirkeby
var „jólafögnuður hinna jóla-
snauðu", sem Politiken hefur
gengist fyrir um áratugi, — en
þá er öllum einstæðingum Kaup-
mannahafnar smalað til dýrð-
legrar veizlu, gefnar gjafir og
þeiílktasta listafólk þjóðarinnar
skemmtir gestum. Hefur það
lengi þótt hin mesta viðurkenn-
ing á hæfileikum listafólks að fá
að koma ókeypis fram við þessi
árlegu hátíðarhöld.
Síðasta stórmálið, sem Kirke-
by fylgdi fram til sigurs var stofn
un blaðaminjasafns — Dansk
Pressemuseum. Óx það að virð-
ing og góðum gripum undir hans
forsjá, meðan kraftar hans ent-
ust. Hliðstæð söfn hafa nú verið
stofnuð í Svíþjóð og Noregi, og
nutu bæði aðstoðar hans á marga
lund. (Ættum við ekki að koma
okkur líka upp svona safni?) Og
sannarlega er það skemmtileg til-
viljun — ef það er tilviljun —
að nú hefur verið stofnuð
kennsludeild í blaðamennsku við
Árósaháskóla — í fæðingarbæ
Ankers Kirkeby.-------
Með honum er genginn góður
maður og athafnasamur, maður,
sem ávallt var reiðubúinn að
vinna góðum málstað brautar-
gengi, maður, sem trúði því, að
riki friðar og réttlætis væri í
nánd, og senn mundi upprísa einn
farsæll og hamingjuríkur mann-
heimur. — S. B.