Morgunblaðið - 26.02.1957, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. febr. 1957
Böðvor Marteinsson,
Rntsstöðum - minning
BÖÐVAR Marteinsson, bóndi frá
Rútsstöðum, Laxárdal, andaðist
1. nóvember s.l. hér í Reykjavík
að heimili dóttur sinnar og tengda
sonar.
Það þykir venjulega ekki stór-
tíðindum sæta þótt maður á ní-
ræðisaldri, farinn að heilsu,
sem alla ævi varð að búa við erf-
iðan fjárhag og lítt hefur fengizt
við opinber mál, flytjist yfir um
lúka smíðinni og lán ekki falt til
nýjunga sem vafasamt var talið
að notagildi yrði að slíkt er smið-
urinn gjörði ráð fyrir. Virtist
samt nokkrum er athuguðu frum
smíði þetta að endurbæta mætti
það svo, að til nytja yrði. Enda-
lok vélarinnar urðu þau að ryðga
niður.
Næsta ár eftir giftinguna flutt-
ust þau hjón vestur í Saurbæ og
leiðir í búnaðarmálum en varð
stundum hált á því. Aldrei þvarr
kjarkur hans; ef eitt brást, var
venjulega byrjað á öðru. Gefinn
var hann fyrir kaupskap, einkum
hestaskipti, enda hestamaður
góður. Lítt sótti Böðvar eftir því
að komast í sveitanefndir og ekki
var hann ávallt samþykkur gjörð
um slikra nefnda og gagnrýndi
þær harðlega og lét í síðustu lög
sinn hlut. Enginn var hann veifi-
skati og hélt fast fram sinni skoð-,
un og ekki sízt í stjórnmálum. —
Hann var maður einarður og
höfðingjadjarfur, berorður og
hreinskilinn, vildi ógjarnan
vægja hver sem í hlut átti. Þrátt
fyrir það var hann vinsæll, enda
til feðra sinna. En Böðvar heit-
inn var sá maður sem ekki sæmir
annað en minnast með nokkrum
kveðjuorðum, þótt seint sé og fari
mér verr úr hendi en vilji er til.
Skal hér getið helztu æviatburða
hans.
Böðvar var fæddur að Hamra-
endum í Stafholtstungum 28. maí
1875. Foreldrar hans voru þau
hjónin Marteinn Magnússon frá
Smiðjuhólsveggjum, af bænda-
ættum þaðan af Mýrum vestan og
Hallfríður Þórðardóttir frá Ytra-
Hólmi, systir Bjarna bónda á
Reykhólum, þess nafnkunna
manns, og þeirra systkina. Fjöl-
menn borgfirzk ætt og víðkunn.
Margir þeir frændur voru hag-
leiksmenn og hamhleypur til allr-
ar vinnu. Foreldrar Böðvars
bjuggu jafnan við knöpp kjör.
Börnin voru átta. Fjögur þeirra
dóu í æsku. Böðvar var yngstur
barnanna. Hann fylgdi foreldrum
sínum, er bjuggu á ýmsum stöð-
um í Borgarfirði og síðast í
Hvassafellshúsum í Bjarnadal inn
frá Dalsmynni, en vestan árinnar.
Var kot það í eyði annað veifið.
Böðvar dvaldi þá á vetrum hjá
foreldrum sínum en á sumrum
var hann smali hjá Gísla, móður-
bróður sínum, er bjó stórbúi á
Hrafnabjörgum í Hörðudal. Þeg-
ar eftir fermingu réðst hann
vinnupiltur inn í Dalasýslu og var
nokkur ár þar í héraði vinnumað-
ur, lengst í Hvammssveit. Eitt
ár var hann á Óspakseyri í Bitru
hjá Guðmundi bónda Einarssyni.
Þá var þar bamakennari og naut
Böðvar hjá honum leiðbeiningar
í reikningi. Varð það honum að
drjúgum notum, þótt stopul væri
kennsla og tími skammur til
náms. Þá var hann kafla úr vetri
við járnsmíðar á Fögrubrekku í
Hrútafirði hjá Finnboga bónda
Jakobssyni. Stundaði hann síðan
iðn þessa meira eða minna. Sér-
staklega varð hann kunnur beizla
stangasmiður, og voru þær mjög
eftirspurðar og hlutu mikið lof
hestamanna.
Ófrjáls þótti Böðvari vinnu-
mennskustaðan og tekjurýr. —
Hann keypti sér því lausa-
mennskubréf undir eins og hann
hafði aldur til þess. Jókst hon-
um þá aflafé, því að mjög var
sótzt eftir honum til starfa. Var
hann bæði hugvitssamur, mikil-
virkur og kappsamur. Kom hann
sér upp sauðfjárstofni er hann
heyjaði fyrir um hásumarið og
hirti á vetrum en leitaði sér at-
vinnu í fjarlæg héruð þegar frá
páskum. Fimm vor var hann á
Laugarbóli við Djúp vestur hjá
Þórði bónda Jónssyni. Þar var orð
lagt gerðarheimili en hjúum
haldið mjög til starfa. Þótti Böðv-
ari þar bezt að vera. Vitnaði oft
til þeirra húsbænda sinna. Spar-
aði hann sig ekki til vinnu. Héldu
Laugbælingar við hann órofa
tryggð til æviloka.
Árið 1907 kvæntist Böðvar
Guðbjörgu Jónsdóttur frá Glerár-
skógum, hinni ágætustu konu.
Er hún enn á lífi, en hefur um
mörg ár átt að búa við vanheilsu
allmikla. Böðvar hafði þá um
nokkur ár átt heimili í Ásgarði og
heyjað þar fyrir fénaði sínum. —
Stundaði hann á vetrum járn-
smíðar með fjárhirðingu. Meðal
annarra smíða vann hann á þeim
árum að smíði sláttuvélar, en
hann sjálfur hafði fundið upp
gerð hennar. Aldrei varð hún
fullsmíðuð, og því ekki hægt að
dæma um gagnsemi hennar. Vant
aði Böðvar fjármagn til þess að
bjuggu þar á þriðja ár. Árið 1911
fóru þau til Búðardals. Smíðaði
Böðvar þar íbúðarhús handa fjöl-
skyldunni. Árið 1919 keypti Böðv
ar Rútsstaði, sem þá voru í eyði
og húsalausir. Reisti hann þar
íbúðarhús og nauðsynleg fénaðar-
hús, og fluttist þangað búferlum
á næsta ári og bjó þar á þriðja
tug ára, en seldi þá jörðina í
hendur syni sínum og tengdason-
um. Hafði hann þá gjört þar mikl.
ar jarðabætur. Þau hjónin dvöldu
þar áfram til vorsins 1954 en
fluttust þá með dóttur og tengda-
syni til Reykjavíkur. Lítt festi
Böðvar þar yndi og sótti á sumr-
um vestur til stöðva sinna og síð-
astl. sumar dvaldi hann lengst-
um á Rútsstöðum hjá Magnúsi
syni sínum, er þar hafði reist
stórt íbúðarhús af steini. Þau hjón
voru farin að heilsu. Þjáðist Böðv
ar heitinn mjög af brjóstveiki síð-
ari ár ævi sinnar. Það var hans
heit ósk að hvílast látinn í sveit-
inni sinni. Hann var fluttur og
jarðsettur að Hjarðarholti.
Þau hjónin eignuðust fjögur
börn, er þroska náðu. Árna, á-
gætt mannsefni, er drukknaði 21
árs í Sælingsdalslaug. Magnús,
bónda á Rútsstöðum. Sólveigu,
átti Stefán Hjartarson frá Hjarð
arholti og Hallfríði gifta Svavari
Jóhannessyni. Kristinn Sigurjóns
son, nú húsasmið í Reykjavík,
fóstruðu þau frá þvi hann var á
fyrsta ári.
Böðvar sál. var meðalmaður á
hæð og þrekvaxinn. Bjartur á hár
og skegg, hafði yfirskegg, röskur
á fæti og snar í snúningum. —
Ferðamaður ágætur, kappsamur
en ratvís, varð ekki ráðafátt í
ferðalögum, en oft bar honum þá
vanda að höndum, því að ekki
var hann færðar- eða veðurvand-
ur ef hraða skyldi ferðinni. —
komst hann oft í hann krappann
á vetrarferðum og lét sér ekki
allt fyrir brjósti brenna. Var
skemmtilegt að hlusta á frásagnir
hans af ýmsum svaðilförum. —
Sagði hann vel frá og frásagnar-
gleði hans allmikil. Hefði verið
gaman og gagn að eiga þær nú
með hans eigin orðum. Böðvar
var maður allvel greindur og
námgjam en naut lítt menntun-
ar í uppvextinum. Hann var hug-
kvæmur og vildi brjótast í ýmsu.
Fór hann sinar eigin götur þegar
honum þótti svo við horfa, en
ekki troðnar brautir alþjóðar. —
Var hann óragur að kanna nýjar
höfðingi heim að sækja og vildi
hverjum manni greiða gjöra þótt
oft hefði hann þröngt um hend-
ur. Mjög var Böðvar falaður til
húsasmíða í héraði og þóttu
betri, við þau störf, handtök
hans heldur en flestra tveggja.
Það var alltaf eitthvað hressi-
legt við Böðvar hvar sem hann
fór, röskur og hispurslaus í fasi
og máli, vissi ráð við mörgu, fór
aldrei í felur með skoðanir sín-
ar og jafnan tilbúinn í orðaskak
ef ekki var látið undan síga, en
þó allt í friðsemi. Böðvar var
drengur góður, hreinskiptinn og
reglumaður, notaði enga tegund
tóbaks og vín ekki svo heitið
gæti. Böðvar var ósvikinn íslend-
ingur, þjóðhollur og þjóðlegur,
tryggðatröll vinum sínum og
veitti þeim jafnan slíkt er hann
mátti, ef honum þótti á þá hall-
að. Talaði fátt óvinsamlegt um
andstæðinga sína á bak, en deildi
fast á þá þegar viðstaddir voru.
Hann var sveitamaður í húð og
hár, féll það þungt að þurfa að
flytjast úr sveit sinni, er hann
hafði lifað í marga glaða og góða
stund, þótt oft væri við and-
streymi og kröpp kjör að búa, en
hin jafnlynda og hógværa kona
hans eyddi amasemi hans.
Nú ert þú horfinn aftur heim í
sveit þína að hlið Árna, þíns kæra
sonar, en okkur gömlu nágrönn-
um þínum og kunningjum finnst
nú allt lognmollulegra síðan þú
ert allur; nú er enginn þér líkur
stundastyttir, er komst hreyfingu
á skýjafarið, því að oft fylgdi þar
gustur nokkur er þú fórst. Þökk-
um við þér góða kynningu og
gleðilegar stundir. Góða ferð yfir
á lönd lifenda, þar sem þú „starf-
ar meira guðs um geim.“
Þorst. Þorsteinsson.
Misslu allan
farangur sinn
NESKAUPSTAÐ, 22. febrúar. —
Norðfirðingar urðu fyrir miklu
tjóni er fiskhúsið og íbúðir ver-
tíðarfólks brann í Keflavík. —
Áhafnir þriggja báta frá Nes-
kaupstað bjuggu í húsinu og
missti fólkið allt sitt, sem þar
var, í brunanum. Voru þetta
áhafnir bátanna Bjargar, Langa-
ness og Þráins. — Fréttar.
Afgreiðslustúlku
vantar í vefnaðarvöruverzlun í miðbænum. Aðeins á-
byggileg stúlka kemur til greina. — Umsóknir sendist
fyrir 23. þ.m. til afgreiðslu Morgunblaðsins merktar;
„H H — 2113“.
Fullkomin varnarhúð
VERJIÐ BÍLINN GEGN VETRARVEORUN-
UM MEÐ JOHNSON’S BÍLABÓNI
Tvær einfaldar leiðir til að halda bílnum
gljáandi og nýjum í vetur:
IBónið bílinn með
Johnson’s Car-
plate. Það er auð-
velt — ekkert nudd.
Það er fljótvirkt —
gljáir á nokkrum
mínútum. Munið að
hreinsa öll óhrein-
indi ryk og olíu burt,
áður en bónað er
með Car-Plate
Cleaner.
2Fægið það, sem
krómað er neð
Johnsons’s Crome
Cleaner, sem er bú-
inn til sérstaklega til
til þess að halda
króminu spegilgljá-
andi.
J O H N S O N’S
er bezt fyrir bílinn.
Dreyfingu annast Hálfdán Helgason, Pósthólf 1414,
Reykjavík, simi 81493. — „Þýzka Alþýðulýðveldið”.