Morgunblaðið - 09.03.1957, Blaðsíða 2
2
MOR'GUNnL AÐ1Ð
Laugardagur 9 marr 1957
Gjaldskrárhækkun póst oy síma
genyur í gildi 17. apríl n.k.
Áfnðtagjaid yenjuiegs sínta hækkar um 25 kr. á mán
FRÉTTAMENN áttu í gær viðtal við forystumenn Póst- og síma-
málastjórnar. Var þeim skýrt frá því, að ákveðið nafi verið
að gefa út nýja gjaldskrá fyrir póst og síma, er gildi frá 1. apríl
næstkomandi.
BURÐARGJALD INNANLANDS®*
HÆKKAR UM 35 AURA
Sem dæmi um gjaldskrárhækk-
unina má nefna, að burðargjald
undir 20 gramma bréf innanlands
og til Norðurlanda hækkar um
25 aura og verður kr. 1.75 í stað
kr. 1.50 áður. >ar við bætist svo
sama fluggjald til Norðurlanda
og áður. Burðargjald flugbréfa
til * Danmerkur, Noregs og Sví-
þjóðar verður því kr. 2.55 í stað
kr. 2.30 áður. Viðbótarburðar-
gjald undir þyngri bréf en 20 gr.
verður óbreytt og sömul. burðar
gjald fyrir blöð og tímarit svo
og póstávísanir og póstkröfur upp
að kr. 100.00 og böggla upp að
1 kg. Hins vegar kemur hækkun
á gjaldið fyrir póstávísanir og
póstkröfur með hærri upphæðum,
enda hefur viðbótargjaldið af
hærri upphæðum staðið óbreytt í
áratug. Ennfremur hækkar burð-
argjald fyrir böggla yfir 1 kg.
að þyngd, en lækkar hins vegar
mikið fyrir böggla með land-
póstum, og verður sama og með
skipum og bílum, en með land-
póstum var áður miklu hærra.
Er því hér um jöfnun að ræða
á gjaldi, þótt kostnaður póstsins
sé ólíkur.
Áætlað er, að tekjur póstsins
í heild aukist á þessu ári um 9%
við þessa gjaldskrárhækkun..
35 KR. HÆKKUN Á MÁNUÐI
Stofngjöld venjulegs síma við
sjálfvirku stöðvarnar í Reykja-
vík, Hafnarfirði og Akureyri
hækka um 2814% og verða kr.
1800,00 í stað kr. 1400,00 áður, en
stofngjöld í öðrum kaupstöðum
og kauptúnum um 33% og verða
kr. 1200,00 í stað kr. 900,00 áður.
Afnotagjöld venjulegra sima á
fyrrnefndum 3 sjálfvirkum stöðv-
um hækka um 33% eða sem svar-
ar kr. 25,00 á mánuði og verða
kr. 300,00 á ársfjórðungi, en af-
notagjöld á öðrum stöðvum
hækka yfirleitt um 25%, en verða
þó hin sömu og í Reykjavík, ef
stöðin er opin allan sólarhring-
inn. Símtalagjöld á langlínum
hækka um 16—25% og fyrir
venjuleg símskeyti verður gjald-
ið 80 aurar fyrir orðið í stað 60
aura áður. Símskeyta- og tal-
aímagjöld við útlönd breytast
ekki og heldur ekki talstöðva-
leigur.
Gegn
hugsanlegrá
skyndiárás
CAMBERRA, 8. marz. — Hernað-
arsérfræðingar Suð-austur-Asíu-
bandalagsins sitja nú hér á rök-
stólunum og ræða hernaðaráætl-
anir og skipulagningu gegn hugs-
anlegri skyndiárás kommúnista.
Munu niðurstöður viðræðnanna
síðan verða lagðar fyrir ráðherra
fund bandalagsins. — Þjóðirnar
átta, er að bandalaginu standa,
eru: Ástralía, Frakkland, Nýja
Sjáland, Pakistan, Filipseyjar,
Síam, Bretland og Bandaríkin.
— Reuter.
Sfyrkveiting úr Minn
ingarsj. Jóns Þorláks
sonar verkfræðings
SUNNUDAGINN 3. marz sl. var
tveimur verkfræðinemum veittur
styrkur úr Minningarsjóði Jóns
Þorlákssonar, verkfræðings. —
Helgi Sigvaldason, sem er verk-
fræðinemi við Háskóla íslands,
hlaut kr. 3000,00, og Björn Ól-
afsson, sem hefur lokið fyrra
hluta prófi í verkfræði, hlaut kr.
2500,00. Styrkur úr þessum sjóði
e rveittur á afmælisdegi Jóns
Þorlákssonar til verkfræðistúd-
enta, sem skara fram úr að dugn-
aði og reglusemi.
(Frá Háskóla íslands)
Stutt réttarhöld
BÚDAPEST, 6. marz — Ung-
verskur blaðamaður, Tamas
Nagy, var í dag dæmdur í
tveggja ára fangelsi fyrir að
hafa skrifað áróðursgreinar
gegn kommúnistum í blaðið
Szabad Somogy. Hann var
leiddur fyrir rétt í dag og
dæmdur samstundis. — Taka
réttarhöld í Ungverjalandi nú
stuttan tíma.
Kínverjar heimila með lögum
vönun og fóstureyðingu
Hong Kong, 8. marz. — Einkaskeyti frá Reuter.
TILKYNNT var í Peking í gær, að kínverska kommúnista-
stjórnin hefði ákveðið að lögleiða vönun og fóstureyð-
ingu í landinu. Tilgangurinn væri að slemma stigu fyrir
offjölgun þjóðarimiar, sem telur nú rúmlega 600 milljónir.
★ ★ ★
Kínverski heilbrigðismálaráð-
herrann, ungfrú Chouan, boðaði
þetta, segir í frétt frá kínversku
fréttastofunni, í ræðu, er hún
flutti á stjórnmálafundi í Peking.
Réðist hún þar harkalega á nú-
gildandi heilbrigðislöggjöf. —
Kvað hún vönun og fóstureyð-
ingar mundu verða fyrsta sporið,
sem stigið yrði til róttækra um-
bóta á heilbrigðisvandamálinu.
Kvað hún lögin mundu ganga
i gildi frá og með deginum í gær,
en fólk yrði ekki neytt til þess
að láta vana sig — og kvenfólk
yrði heldur ekki neytt til þess að
gangast undir fóstureyðingu.
Hins vegar sagði hún, að
Kínverjar mundu ekki geta
losnað við fátæktina, ef fæð-
ingar yrðu ekki skipulagðar —
og fólksfjölguninni halðið í
skefjum.
★ ★ ★
í ræðunni benti hún á það, að
— ef reiknað væri með því, að
landsbúum fjölgaði árlega um
2,5%, þýddí það 15 milljóna
aukningu á ári. Og er seinni fimm
ára áætluninni lyki, árið 1962,
yrði fólksfjöldinn orðinn meiri
en 700 milljónir.
Hún kvað landið ekki vera
fært um að ala önn fyrir öll-
um þessum skara, enða þótt
framleiðslu- og búnaðarhætt-
ir yrðu endurbættir eins og
kostur væri á.
Heilbrigðismálaráðherrann
sagði fæðingar umfram dauðs-
föll nú vera eina xnilljón á
mánuði. Eina ráðið til þcss að
forða þjóðinni fr.-á bráðum
voða væri að takmarka fæð-
ingar. Stjórnin mundi hefja
víðtækan áróður um a.It land-
ið til þess að vinna þjóðina
til fylgis við sig í máli þessu.
Fólk yrði að skilja, að þetta
væri ekki ósiðlegt — heldur
bæri vott um umhyggju stjórn
arinnar fyrir þjóðinni.
M að SaUa matka&sötlun aS þeim
er unnu gott starS, en Sela Saana
opinheru skriSstoSubákni ?
Sigurður Ágústsson bendir á að framleiðend-
ur úr öllum flokkum séu andvígir frumvarpi
ríkisst j órnarinnar
SIGURÐUR ÁGÚSTSSON þingmaður Snæfellinga beindi þeirri
fyrirspum til sjávarútvegsmálaráðherra á þingfundi í gær,
hvort ætlun hans væri að opinber útflutningsnefnd taki að sér
,tlla markaðsleit fiskafurða.
Taldi Sigurður, að slíkt væri mjög varhugavert. Sölnsamtök fisk-
framleiðenda hafa á undaniömum árum annazt markaðsleit með
mjög góðum árangri. Það kynni ekki góðri lukku að stýra ef i
stað þess væri nú stofnað til mikils opinbers skrifstofubákns sem
ætti að framkvæma þetta.
AFSTAÐA RÍKISSTJÓRNAR-
INNAR
Sigurður kvað það ekki ástæðu
laust, þótt spurt væri hver sé til-
gangurinn með frumvarpinu um
sölu sjávarafurða. Að vísu er
ekkert nýtt í frumvarpinu, sem
ríkisstjórnin sjálf gæti ekki á-
kveðið án lagasetningar, en ým-
islegt í frumvarpinu benti til
þess að afstaða sjávarútvegsmála
Brosið dularfulla frum-
sýnt í þjóðleikhúsinu
Leikrit um afbrofamál eftir Aldous Huxley
AÞRIÐJUDAGINN fmmsýnir Þjóðleikhúsið leikrit eftir brezka
rithöfundinn Aldous Huxley og hefur það hlotið nafnið Brosið
dularfulla, í íslenzkri þýðingu. Ævar Kvaran þýðir leikritið og
setur það á svið, en leikrit þetta er alvarlegs eðlis og fjallar um
afbrotamál og sálkönnun. Það gerist á Englandi á vorum dögum.
Á frummálinu nefnist Brosið
dularfulla „Gioconda Smi’e“ —
Hefur það verið víða sýnt, m. a.
á Norðurlöndum og í Þýzkalandi
og kvikmynd hefur verið gerð
eftir leikritinu. Leikiitið er í 3
þáttum. Hlutverkin eru 9 og
fara þessir leikarar með þau: Ró-
bert Arnfinrisson. Inga Þórðar-
dóttir, Guðbjörg Þorbjarnardótt-
ir, Haraldur Björnsson, Bryndís
Pétursdóttir, Jón Aðils, Baldvin
Halldórsson. Með þrjú aukahlut-
verk fara þær Ása Jónsdóttir,
Dóra Reyndal og Rósa Sigurðar-
dóttir.
Leiktjöld gerir Lothar Grund.
Aldous Huxley er einn kunn-
asti rithöfundur Englendinga,
kominn af kunnri náttúruvísinda
mannaætt. Hann fæddist 1894 og
hugðist verða læknir. í skóla
fékk hann slæman augnsjúkdóm
svo að hann varð að hætta því
námi, en las bókmenntir í þess
stað. Hefur hann skrifað fjölda
skáldsagna, gefið út fjórar ljóða-
bækur og leikrit. Brosið dular-
fulla yar upphaflega skrifað sem
smásaga sem hann breytti síðan
í leikrit.
Huxley fluttist árið 1927 til
Bandaríkjanna og hefur búið þar
síðan.
ráðherra til sölusamtaka útvegs-
manna væri ekki eins vinsamleg
og hann vildi vera láta.
FYRIRSPURN SIGURÐAR
f 2. gr. frumvarpsins, þar sem
rætt er um störf útflutnings-
nefndar segir, að nefndin eigi að
hafa forgöngu um markaðsleit og
tilraunir til að selja sjávarafurð-
ir á nýja markaði og auka sölu
þeirra á eldri mörkuðum og ann-
að' það, er lýtur að útflutningi
sjávarafurða.
— Ég leyfi mér, sagði Sigurður
Ágústsson, að beina þeirri spurn
ingu til ráðherrans, hvort það er
áform hans, að fela útflutnings-
nefnd sjávarafurða og öðru starfs
liði hennar að annast að mestu
eða e.t.v. að öllu leyti markaðs-
leit og sölu sjávarafurða á er-
lendum markaði?
Kvað ræðumaður þessa fyr-
irspurn ekki að ástæðulausu,
því að væri þetta rétt, væri í
uppsiglingu stórt opinbert
skrifstofubákn. Með því væri
líka stefnt að því að taka um-
ráðaréttinn yfir sölu sjávar-
aifurða úr höndum samtaka
fiskframleiðenda, sem á nnd-
anförmum árum hafa annazt
markaðsleitina með mjög góð-
um árangri.
ENGIN MISJÖFNUN
Þá mótmælti Sigurður um-
mælum sem sjávarútvegsmála-
ráðherra hafði látið falla um
„sérhagsmuni einstakra hópa inn
an samtakanna“ og ýmislegt ann-
að, er hann taldi að orsakaði tor-
tryggni og óvild til samtakanna.
I Kvaðst Sigurður harma slík um-
urða og verið hefur og gefist
vel.
Þessir ágætu menn ,sagði Sig-
urður, að væru stuðningsmenn
ríkisstjórnarinnar, en þeir hefðu
unnið að framleiðslustörfum,
sumir mikinn hluta ævi sinnar,
kunna glögg skil á þeim. og því
væru þeir ekki á sama máli og
mæli ráðherrans, því að hann ríkisstjórnin í þessu máli.
hlyti að vita það, að meðlimum
innan samtaka framleiðenda er
ekki misjafnað, — þeir fá allir
sama verð fyrir afurðir sömu teg-
undar og sömu gæða.
MENN UR OÐRUM FLOKKUM
Einnig leiðrétti Sigurður
Ágústsson ummæli ráðherraas
um að það væru aðeins Sjálf-
stæðismenn sem væru mót-
fallnir þessu frumvarpi. Það
eru engu síður menn innan
samtakanna, sem fylgja öðr-
um stjórnmálaflokkum, senr
eru ákveðnir í þeirri skoðun,
af fenginni reynslu undanfar-
inna ára, að bezt sé og affara-
sælast fyrir þjóðarheildina, að
sami háttur sé hafður á um
sölu og útflutning sjávaraf-
Húsatryggingasjóð-
ur - sjálfsiæður
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
fyrradag kom Þórður Björnsson
(F) fram með hina árlegu athuga
semd sína út af húsatryggingar-
sjóði. Sagði hann að sjóður þessi
væri orðinn eyðslueyrir bæjar-
sjóðs, en til slíks væri ekki ætl-
azt.
Borgarstjóri tók fram, að það
sem Þórður hefði sagt um með-
ferð á húsatryggingasjóði væri
gersamlega rangt og villandi.
Eins og bæjarreikningarnir bæru
með sér, þá væri húsatrygginga-
sjóði haldið algerlegr. sér-
stæðum, hann hefði aðskilið reikn
ingshald og væri að öllu sjálf-
stæður sjóður. Hins vegar hefði
bæjarsjóður tekið sjóð þennan
að láni til ýmissa framkvæmda
og borgaði af því fé 8% vexti,
enda væri engin skynsemi í því
að bærinn færi að Ieggja það fé,
sem þarna væri um að ræða, inn
á sparisjóðsbók í Landsbankanum
með 5% vöxtum, en tæki svo aft-
ur rekstrarlán hjá sama banka
með 8% vöxtum.
Urðu svo ekki frekari umræð-
ur um það mál, en þessi athuga-
semd Þórðar Björnssonar er ár-
legt fyrirbrigði á fundum bæjar-
stjórnar.
Að lokinni ræðu Sigurðar Ág-
ústssonar var atkvæðagreiðsla
um frumvarpið. Var frávísunar-
tillaga Sjálfstæðismanna felld
með 18:5 atkv. og frumvarpinu
óbreyttu vísað til þriðju umræðu.
Skrúfa þyrilvæitgju
banar manni
ÞAÐ óhugnanlega slys varð á
Keflavíkurflugvelli í fyrradag,
að maður varð fyrir skrúfu á
þyrilvængju. Kom hún í höfuð
hans og beið“hann þegar bana.
Maður þessi var flugmaður 1
bandaríska flughernum á Kefla-
víkurflugvelli. Var hann ásamt
fleiri mönnum að vinna við að
setja af stað þyrilvængjur og hita
þær upp.
Þyrilvængjur eru þannig smíð-
aðar, að stór skrúfa er ofan á
þeim til að hefja þær á loft, en
smærri skrúfa er á stéli þeirra
til að stjórna þeim með. Er þessi
smærri skrúfa einkar hættuleg
og var það hún, sem hitti mann-
inn. Nafn hins látna hefur ekki
verið birt.
Skók-keppBin
2. BORÐ
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.-Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
40....... a4—a3
41. Dg4xDg5 fóxDg5
42. Ilaó—c4