Morgunblaðið - 09.03.1957, Qupperneq 24
Tveir litlir drengir
urðu undir bíl í gær
UM klukkan 8,30 í gærmorgun varð slys á Sogavegi við gatnamól
Akurgerðis. Kona var þar með tvö börn sín og varð hið eldra,
4 ára drengur fyrir strætisvagni og stórslasaðist. Heitir hann Guð-
mundur Ingi Kristinsson og á heima í Akurgerði 52. — Síðdegis varð
annað barn undir bíl hér í bænum, en það slasaðist minna.
Listkynning Morgunblabsins
Þessi mynd er af einu málverka Jóns Þorleifssonar listmálara, sem verið hafa til sýnis í sýningar*
glugga Morgunblaðsins þessa viku. Málverkið heitir „Fjallið Þorbjörn" og er málað árið 1952.
Pósthúsið flytur nokkuð af
starfs. sinni í Hafnarhvol
IVIÐTALI við fréttamenn í gser skýrði Magþús Jochumsson svo
frá, að í vor fengi Pósthúsið neðstu hæðina í Hafnarhvoli og
mun öll afgreiðsla bögglapóstsins verða flutt þangað.
Fundur í Verði
á Akureyri
á mánudaginn
FUNDUH verður haldinn í F.U.S.
Verði á Akureyri n.k. mánudags-
kvöld 11. þ. m. kl. 8,30 e. h, í
Landsbankasalnum.
Fundarefni er, að Jónas G.
Rafnar talar um stjórnmálavið-
horfið og Magnús Björnsson ræð-
ir félagsmál. Nýlega var haldinn
aðalfundur Varðar á Akureyri og
bættust þá margir nýir félagar
í hópinn. Er nú mikill hugur í
ungum Sjálfstæðismönnum á Ak-
ureyri að efla flokksstarfið.
Sjálfstæðisfélögin hafa gengizt
fyrir spilakvöldum í vetur, sem
hafa verið afburða vel sótt, og
tekizt hið bezta.
^ Eins og vitað er, hefur Póst-
húsið átt við mjög þröngan húsa-
kost að búa, en það var byggt
1916 og hefur ekki verið bætt
við það síðan. Eftir að þessi
rýmkun hefur átt sér stað, verð-
ur aðeins um afgreiðslu bréfa
og blaða að ræða í gamla húsinu.
BRÉFBERARNIR RAGA
f HVERFUNUM
Þá verður einnig sú breyting
á, að í staðinn fyrir að raga
allan póst í Pósthúsinu, verða
bréfberarnir aðeins látnir gróf-
raga póstinn þar, en síðan
fín-raga í hverfum sínum í
herbergjum, sem til þess verða
ætluð.
HVERFIN MF.RKT
MEÐ BÓKSTÖFUM
Þá er í ráði, að tekinn verði
upp sá háttur, að skipta bænum
niður í hverfi sem merkt verði
með bókstöfum fyrir aftan heim-
ilisfangið. Verður bænum til að
byrja með skipt niður í sex slík
hverfi.
Háskólolyrirlestur um bein
úr Skálholtskirkjugurði
■ Strætisvagninn var á leið inn
Scgaveginn. Veður var bjart og
skein morgunsólin giatt í andljt
bílstjórans, sem þó telur sig hafa
séð fram á veginn fyrir framan
vagninn, er hann ók af stað frá
biðstöðinni. Hann hafði aðeins
eltið spölkorn er hann heyrði
angistaróp, að því hann hefur
sjálfur sagt. Hann stöðvaði vagn-
inn í snatri og hljóp út. Sá hann
þá konu draga barn undan vagn-
inum fyrir aftan afturhjólið. Var
það móðir litla drengsins. Ekki
hafði hann misst meðvitund að
því er virtist. Honum var þegar
ekið í sjúkrahús í sjúkrabíl. Við
rannsókn kom í ljós að drengur-
inn var stórslasaður. Mun hinn
þungi vagn að einhverju leyti
hafa farið yfir drenginn, því hann
var mjaðmargrindarbrotinn og
handleggsbrotinn. Var líðan hans
sögð vera slæm síðari hluta dag
í gær. — Drengurinn er í Lands-
spítalanum.
Það mun hafa komið í ljós í
gær, en rannsókn málsins er
skammt á veg komin, að konan,
sem var með 2 börn er slysið
varð, kom frá hægri hlið. Hún
mun hafa leitt bæði börnin.
Síðdegis í gær milli kl. 3 og 4
varð annað bílslys hér í bænum,
á Rauðalæk, sem er í nýja íbúð-
arhverfinu milli Kleppsvegar og
Laugarnesvegar. Þar varð slysið
með þeim hætti að verið var að
„bakka“ bíl, sem lagt hafði verið
allnærri ljósastaur. — Varð
þá fyrir honum sjö ára
drengur, Gunnlaugur Óskars-
son, skála við Bjarmaland við
Laugarnesveg. Drengurinn féll í
götuna á klakahnúsk og lenti
annar fótur Óskars litla undir
afturhjóli bílsins og brotnaði. Var
hann fluttur í sjúkrahús.
Kindurnar fundust
uppi á Es$u
VALDASTÖÐUM. 1. marz. —
Kindurnar, sem töpuðust frá
Hjarðarnesi á Kjalarnesi, fyrir
viku síðan, fundust í fyrradag.
Voru þær uppi í há-Esju.
— St. G.
Brennur ofan
af fjölskyldu
UM hádegisbilið í gær kom upp
eldur í bragga á Skólavörðuholt-
inu þar sem Ásta Árnadóttir býr
með börnum sínum þrem, tveim
uppkomnum. Kveiknaði eldur-
inn út frá ofnröri og var allmikill
eldur í skálanum er slökkviliðs-
menn komu á vettvang. Skálinn
var klæddur með trétexi sem er
mjög eldfimt. Brunaverðir urðu
að rifa gat á skálann til þess að
komast að eldinum og þá er lauk
var hann ónýtur orðinn. —
Brunaskemmdir urðu á innan-
stokksmunum.
A-þýzfca við-
skiptamálaráðu-
ueytið opnar
skrifstofu hér
AUSTUR-ÞÝZKA ríkisstjórn-
in hefur fengið leyfi íslenzkra
stjórnarvalda til þess að opna
hér í Reykjavík deild úr hinu
austur-þýzka viðskiptamála-
ráðuneyti.
Þetta gerðist fyrir um það
bil mánuði. Skrifstofan er til
húsa á 1. hæð í svonefndu
Blöndaishúsi í Austurstræti
10 og eru þar nokkrir austur-
þýzkir starfsmenn. í anddyri
hússins stendur á spjaldi inn-
an um önnur fyrirtæki sem
þar eru til húsa, á ensku:
Trade Agency Chamber of
Foreign Trade D.D.R., sem
myndi þýða verzlunarumboð
ufanríkisviðskipta þýzka al-
þýðulýðveldisins.
Kviknaði í for-
tjaldinu undir
rokkdanssýningu
AKRANESI, 8. marz. — Á dög-
unum bar það við á skemmtun
Gagnfræðaskólans hér, er haldin
var í Bíóhöllinni, að kviknaði i
fortjaldinu ofan til. Hafði logað
á peru sem lá utan í tjaldinu,
sem er olíuborið. Starfsmaður
hússins kom þegar á vettvang,
reif tjaldið niður og bar það út.
Brunnu göt á skyrtu hans. Verið
var að endurtaka síðasta skemmti
atriðið og voru tvær námsmeyj
ar úr skólanum að sína rokkdans-
inn með undirleik hljómsveitar.
Hélt hljómsveitin áfram að íeika
og róaði það fólkið. Eigi að síður
þustu 50—100 manns út um aðal-
dyrnar, því svo vel vildi til að
vængjahurðir í aðaldyrum voru
opnar. Reyndin varð sú að eld-
urinn var úr sögunni þegar búið
var að bera logandi tjaldið út
úr salnum.
Á MORGUN (sunnudag) kl. 2
e. h. mun prófessor Jón Steffen-
sen flytja fyrirlestur fyrir al-
menning í hátíðasal Háskólans,
er hann nefnir Nokkrar athugan-
ir á beinum nafngreindra manna
úr grunni Skálholtskirkju.
Fyrirlesturinn mun fjalla um
grafir í grunni síðustu dómkirkj-
unnar í Skálholti, þeirrar er
Brynjólfur biskup Sveinsson lét
reisa. Tímans vegna verður þó
eigi unnt að geta ýtarlega nema
fárra þeirra, og verða það grafir
Vídalínshjónanna, Finns biskups
Jónssonar og Hannesar biskups
Finnssoanr.
Útliti þessara manna verður
lýst eftir því sem bein þeirra
láta í té efnivið til þess og sú
lýsing borin saman við skráðar
heimildir af útliti mannanna og
myndir af þeim, hafi þær varð-
veitzt. — (Frétt frá Háskóla ís-
lands).
ÞÚFUM, 8. marz. — Sífelld norð-
anátt er hér með nokkru frosti.
Djúpbáturinn hefur þó haldið
uppi reglulegum ferðum. Snjór
er ekki mikill vestan Djúps, og
oftast beitt sauðfé þrátt fyrir
storminn.
Fiskafli í verstöðvum Djúps-
ins er sæmilegur, einkum þegar
gefur á djúpmið, en stormar
hamla því oft.
Vöruflutningar á sleSa úr
Stykkishólmi aS Vega-
mótum
STYKKISHÓLMI, 8. marz —
Miklir flutingaerfiðleikar eru hér
enn um Snæfellsnesið, en und-
anfarið hefur allmikið af mat-
vælum og fóðurbæti verið flutt
héðan til verzlunarstaðarins að
Vegamótum í Miklaholtshreppi,
en þar voru allar birgðír á þrot-
um.
Fulltrúaráðs«
fundur
FUNDUR verður haldinn í full-
trúaráði Heimdallar F.U.S. í Val-
höll við Suðurgötu klukkan 1.15
e. h. í dag.
Kosning uppstiilingamefndar.
Áráðandi að sem flestir mæti.
Fjoltefli
f DAG kl. 3 e. h. mun Ingi R.
Jóhannsson, skákmeistari, tefla
fjöltefli við Heimdellinga í Val-
höll við Suðurgötu 39.
Væntanlegir þátttakendur eru
heðnir að tilkynna þátttöku sína
í sima 7103.
f fyrradag kom vélskipið Njörð
ur hingað til Stykkishólms með
vörur. Héðan voru þær fluttar
að Vegamótum á þann hátt að
bílar fluttu þær upp í Kerling-
arskarð, en þar voru þær látnar
á stóran yfirbyggðan sleða sem
jarðýta dregur og hefur verið í
vöruflutningum í ófærðinni hér.
Lítið hefur snjóað hér um slóðir
síðustu daga, en í gærkvöldi var
lítils háttar úrkoma.
Aðalsamgöngurnar við höfuð-
borgina héðan úr Stykkishólmi
eru með flóabátnum Baldri, sem
farið hefur 1—2 ferðir í viku til
Reykjavíkur til að sækja vörur
og póst. —Á.
Aðalf. Verzlunar-
sparisjóðsins í dag
AÐALFUNDUR Verzlunarspari-
sjóðsins verður haldinn í dag í
Þjóðleikhúskjallaranum og hefst
hann kl. 2. Mun formaður stjórn-
ar sparisjóðsins, Egill Guttorms-
son, stórkaupmaður, flytja þar
skýrslu um starf sparisjóðsins á
árinu, sem leið, sem er fyrsta
starfsár sjóðsins. Sparisjóðurinn
var stofnaður 4. febrúar 1956 og
voru það 310 verzlunar- og kaup-
sýslumenn víðs vegar af landinu,
sem stóðu að stofnun hans. Hinn
28. september s.l. hófst starf-
ræksla sparisjóðsins og er hann
til húsa í Hafnarstræti 1.
Stjóm sparisjóðsins skipa nú,
ásamt Agli Guttormssyni, þeir
Þorvaldur Guðmundsson, for-
stjóri, og Pétur Sæmundsen, við-