Morgunblaðið - 09.03.1957, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.03.1957, Blaðsíða 8
8 MORCVNBLAÐIÐ Laugar'dagur 9. marz 1957 Frá einum af hinum ijolmeiuiu lélagsfundum Hvauir í Sjálfstæðishúsinu. En mundu að æðsta aðild gæfu þinnar er ást á frelsi og hagsæld þessa lands. Og félag vort rnun gæta sæmdar sinnar og sigra undir merki kærleikans. Og borgin ykkar bjarta út við sundið, þau blessar heit, sem vinnið þið í kvöld, í ást hins sanna verður frelsið fundið. Þess fagra nafn mun prýða ykkar skjöld. Þcir, sem þér unna, binda blóm í sveiginn og brautargengis fegnir óska þér. Er þriðja tugs þú víkur fram á veginn í vorsins fylgd þín gæfustjama er. Vor félagsbönd skal óöld aldrei slíta, þær óskir fylgja þér á nýja braut. Og „Eyjan“ vor með ægishjálminn hvíta mun ótal heillir leggja þér í skaut. GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR. Sijórn Hvatar. Fremri röð frá vinstri: Valgerður Jónsdóttir, Kristín L. Sigurðardóttir, Soffía Óiafs- dóttir, María Maack, Guðrún Pétursdóttir, Gróa Pétursdóttir og Helga Marteinsdóttir. — Aftari röð: Guðrún Ólafs, Soffía Jacobsen, Lára Sigurbjörnsdóttir, Ásta Björnsdóttir, Auður Auðuns, Ólöf Bcne- diktsdóttir, Jónina Guðmundsdóttir og Ásta Guðjónsdóttir. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. Konur höfuðborgarinnar að einhuga starfi fyrir Sjáifstœðisflokkinn „Að góðum málum er gott að vinna" Hvöv félag Sjálfsfæðiskvenna 20 ára Ólafur Thors: IjAÐ var fyrir réttum 20 ár- um að 315 konur hér í Reykjavík ákváðu að stofna með sér félag til þess að vinna að framgangi hugsjóna Sjálfstæðisstefnunnar. Stofn- fundurinn var haldinn í Odd- fellowhúsinu, því þá var ekk- ert Sjálfstæðishús risið af grunni. Á stofnfundinum var það ákveðið, að félaginu skyldi gefið nafnið Bvöt. Frú Guðrún Jónasson. Formaður fyrstu 18 árin. Stefna þess var mörkuð þeg- ar í upphafi og ákveðið að auk baráttunnar fyrir mál- efnum Sjálfstæðisflokksins skyldi félagið leggja lið heil- brigðis- og uppeldismálum og stuðla svo sem kostur væri að auknum vinnufriði og sátt- fýsi í þjóðfélaginu. NÚ er þetta fyrsta stjórnmála- félag íslenzkra kvenna orðið tvítugt og innan vébanda þess eru nú yfir 1000 reykvískar konur. Á árunum eftir stofnun þess urðu til sjálfstæðiskvennafélög víðs- vegar um landið að miklu leyti fyrir atbeina þessa fyrsta sjálf- stæðiskvennafélags, og innan skamms fóru konur í öðrum stjórnmálaflokkum að dæmi Hvatarkvenna og stofnuðu með sér félagssamtök. Og árangur starfsins hefur ekki orðið smár. Nú eru sjálfstæðis- konur bæði á þingi og í bæjar- stjórn og skipa með hverju árinu æ fleiri trúnaðarstöður í þjóð- félaginu, jafnframt því sem gengi Sjálfstæðisflokksins eykst. Og áhuginn er gífurlegur, sagði María Maack, við mig í gær þeg- ar við spjölluðum saman um félagsstarfið. Konur eru þess óð- Sjálfstœðiskvennafélagið Hvöt 20 ára Á tuttugasta tímamóti þínu í trausti og gleði vinir hylla þig. Er vorsins dýrð þig vefur Ijósi sínu og vcnir benda þér á framastig. Svo ung og frjáls þú æ að starfi gengur og tslands dætur hefja merki þitt. í þeirra hjörtum bærist sterkur strengur að styðja og vernda óskabarnið sitt. Maria Maack, núverandi formaður Hvatar fúsar að vinna Sjálfstæðisflokkn- um allt það gagn sem þær mega Og víst er að þær hafa átt drjúg- an þátt í að efla fylgi hans hér í bæ á undanförnum árum og gera sigra hans hér svo glæsi- lega sem raun ber vitni. Ég ræddi góða stund við stjórn Hvatar, þær Maríu Maack, Helgu Marteinsdóttur og Kristínu L. Sigurðardóttur, um starfssögu félagsins og þá atburði sem hæst ber í félagsstarfinu. Allar hafa þær verið lífið og sálin í félag- inu í þessa tvo áratugi og hvöttu kvenna mest til stofnunar þess. HVÖT var stofnuð 15. febr. 1937. Frú Guðrún Jónasson var einróma valinn fyrsti formaður félagsins, en aðrar í stjórn voru þessar konur: Ágústa Thors, Kristín L. Sigurðardóttir, Helga Marteinsdóttir, María Maack, Guðrún Guðlaugsdóttir, Sesselja Hansdóttir. Varastjórn skipuðu: AVARP ÞEGAR Sjálfstæðískvennafélagið Hvöt var stofnað, greindi mcnn nokkuð á um, hvort til bóta myndi verða, að konur mynduðu með sér sérfélög. Færðu báðir aðilar frambærileg rök fyrir máli sínu, sem ég hirði ekki að greina, enda hefir reynslan fyrir löngu staðfesi, að frum- kvöðlar málsins höfðu rétt fyrir sér. Hvöt hefir nú starfað af kappi í fulla tvo áratugi og jafnan reynzt Sjálfstæðisflokknum hin traustasta máttar stoð. Hvöt hefir eigi aðeins háð baráttuna til sóknar og varnar Sjálfstæðisstefnunni í höfuðstað landsins, heldur hafa Hvatar-konur einnig beitt sér fyrir stofnun Sjálf- stæðiskvennafélaga víðs vegar um landið og nú nýverið átt drýgstan þátt í stofnun landssambands þessara félaga. Hvatarkonur hafa jafnan tekið ríkan þátt í allri flokks- starfseminni í Reykjavík. Ég geri á einskis hlui, þótt ég staðhæfi, að engir liðsmenn hafa barizt vasklegar en kon- urnar fyrir að varðveita og efla vald Sjálfstæðisflokksins. Og ég mæli ekki meir en efni standa til, þótt ég segl, að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki fara einn með völdin í Reykjavík, ef Hvatarkonur hefðu nokkru sinni látið sinn hlut eftir liggja, þegar bardaginn var harðastur. Fyrir alli þetta, fyrir hina öflugu baráttu fyrir göfugum og þjóðhollum hugsjónum, leyfi ég mér í nafni miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins að færa Hvatarkonum einlægar þakkir allra Sjálfstæðismanna um land allt. Við vitum, að við megum treysta þeim hér eftir sem hingað til. Enda er það sannast sagna, að þótt oft sé þörf er nú nauðsyn. Við berj- umst einir gegn öllum og verðum einir að sigra alla. Ekki aðeins til þess að sanna ágæti stefnu okkar í framkvæmd, heldur einnig og einkum til þess að forða þjóðinni úr heljargreipum rauðliða, sem nú eru að leiða hana fram á glötunarbarminn. Heill Hvöt tvítugri. Dýrleif Jónsdóttir, María Thor- oddsen, Svava Jónsdóttir, Ásta Eggertsdóttir og Sigríður Bjarna- dóttir. Það sem vakti fyrir þeim kon- um, sem gengust fyrir þvi í önd- verðu að félagið væri stofnað var að skipuleggja samtök þeirra kvenna, sem fylgdu Sjálfstæðis- flokknum að málum til þess að vinna ötullegar málum hans fylgi. Ljóst var að konur gátu haft mikil áhrif á gang mála og úr- slit kosninga en þeir möguleik- ar höfðu ekki áður verið nýttir svo sem mátti. Strax í upphafi kom í ljós að geysilegur áhugi var hjá reyk- vískum konum á því að efla með sér samtök til styrktar Sjálf- stæðisflokknum eins og bezt kem- ur í ljós þegar þess er gætt að 315 konur teljast stofnendur Hvatar. Á þeim tíma sem félagið er stofnað voru bæjarstjórnar- Frh. á bls. 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.