Morgunblaðið - 09.03.1957, Page 9

Morgunblaðið - 09.03.1957, Page 9
Laugardágur 9. marz 1957 MORGUIVBLAÐIÐ 9 — HVÖT 20 ÁRA Breiðagerðisskólinn. Álman, sem nú þegar er byggð og sýnd er á nppdrætti. Til hægri sést á miðálmuna, sem er í byggingu. ðttfó § • mmm k~i Hér sést grunnmynd af kennsluálmu með 5 stofum, í Breiðagerðisskólanum. Kins og uppdrátturing sýnir er hver stofa eining út af fyrir sig. Er gengið beint af leikvcllinum inn í sérgang, sem fylgir hverri kennslustofu. Hér er um nýmæli að ræða hérlendis, sem hefur reynzt vel þann tíma, sem skólinn hefur starfað, og er því fyrirhugað að hafa sama fyrirkomulag í Vogaskóla. Auk þess er hægt að ganga eftir endilöngu húsinu. í hverri stofu er krókur, þar sem tiltekinn hópur nemenda getur unnið að sérverkefnum. — Tii vinstri á uppdrættinum eru hreinlætisherbergi. Til hægri við þessa álmu, sem liggnr frá austri til vesturs kemur miðálman, sem liggur frá norðri til suðurs, en til hægri við hana kemur nokkru lengri álma af sömu gerð og sú álma, sem byggð er. Nýi skólinn við Breiðagerði í hyggingu I FYRRA var hafin bygging Hér sést þverskurður af álmuimi, sem nú er reist af Breiðagerðis- barnaskóla við Breiðagerði. Á sl. skólanum. Sést að birtan kemur frá tveim hliðum imi í skólastof- sumri var önnur kennsluálman, una sem gefur jafna og góða birtu og er hentugt vegna loftræsingar. með 5 stofum byggð. Nú er í bygg ingu miðálma skólahússins en þar verða 6 kennslustofur, dyra- varðaríbúð og húsnæði fyrir stjórn skólans. Ætlunin er að ljúka þessari álmu í sumar. Síð- an er eftir að byggja þriðju álm- una en þar verða 10 kennslustof- ur og sundlaug. Ennfremur er eftir að byggja fimleikasal. Skól- inn fullbyggður mun verða nær 12000 rúmmetrar að stærð og rúma um 1000 börn. • Fyrirhugað er að skól'nn, sem byggja á í Vogunum verði að nokkru byggður eftir sömu teikningu og Breiðagerðisskóli, þannig að sá hluti Vogaskólans, sem er fyrir nemendur á barna- skólastigi verði byggður eins og sú álma Breiðagerðisskólans, sem þegar er búið að reisa. í sumar verða væntanléga byggðar 8 stofur af þeirri gerð í Vogaskóla. í Vogaskólanum er áætlað að verði 28 almennar kennslustofur. Séð inn í hluta af kennslustofu í Breiðagerðisskóla. Frh. af bls. 8 kosningar í Reykjavík í aðsigi, þær sem fóru fram 1938. Þar vann flokkurinn glæsilegan kosn- ingasigur, fékk 9 menn kjörna í bæjarstjórn Reykjavíkur sem hann hefir haldið æ siðí Ekki skal um það fullyrt hver þáttur starf Hvatarkvenna var í þessum kosningasigri flokksins, en víst má telja að ekki hefir það starf gert sigurinn minm en hann reyndist. Þegar frá upphafi félagsins voru haldnir félagsfundir mán- aðarlega, um ýmis stjórnmála- efni og hefir sú venja haldizt æ síðan. Hafa fundir félagsins jafn- an verið prýðilega sóttir og félagsstarfið með afbrigðum lif- andi og ötult og konur mjög áhugasamar. í byrjun var mark- mið og stefna félagsins mörkuð, sem fyrr segir, og hljóðaði stefnu skráin svo: MARKMIÐ félagsins er að vinna að eflingu Sjálf- stæðisflokksins á grundvelli einstaklingsframtaksins til hagsbóta öllum landsmönnum. Einkum vill félagið taka þetta fram: 1- að unnið sé að samúð og auknum skilningi á heil- brigðismálum og öðru er viðkemur heilsuvernd þjóð arinnar, með því t. d. að heilbrigðislöggjöfin verði endurbætt og heilbrigðis- ráð verði stofnað, er hafi eftirlit með heilbrigðismá! um í landinu. 2. að uppeldismálin verði tekin til rækilegrar rann- sóknar og að leitazt verði við að þroska einstaklings- eðli og sjálfstæða hugsun barna og unglinga og glæða ættjarðarást þeirra á öll- um sviðum. 3. að unnið verði að því að stofnuð verði sjálfstæðis- félög kvenna um allt land. 4. að unnið sé að auknum skilningi og samúð milli verkafólks og atvinnurek- enda. Eins og af þessu sést hafa sum baráttumál Hvatar þegar verið farsællega framkvæmd. En höfuð verkefnið er ávallt hið sama og tekur aldrei enda: að vinna 'Sjálfstæðisflokknum aukið fylgi. Stofnun Hvatar er að því leyti sögulegur viðburður í íslenzkri félagsmálasögu að það er fyrsta stjórnmálafélag kvenna. En önn- ur fylgdu brátt í kjölfarið og sjálfstæðisfélög kvenna voru stofnuð að tilhlutan Hvatar- kvenna sem tókust ferðir á hend- ur út um land í þeim tilgangi. Sama árið, 1937, er stofnað Sjálf- stæðiskvennafélag í Hafnarfirði en síðan á ísafirði, Bolungarvík, Siglufirði, Vestmannaeyjum, Akureyri, Keflavík og nú síðast í Kópavogi. Á öllum þessum stöðum hafa þau verið lyftistöng fyrir starf flokksins og unnið að sigrum hans. Þá ber einnig að geta þess að fyrir frumkvæði Hvatar var stofnað landssamband þessara Sjálfstæðiskvennafélaga hér í Reykjavík vorið 1956 og var frú Kristín L. Sigurðardóttir kjörin formaður þess, en hún sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í nær 7 ár. Félagsstarfið hefir frá upphafi verið fjölbreytt, fundir og skemmtanir á vetrum en skemmti og kynnisfarir um landið á sumr- um sem hafa jafnan verið mjög vinsælar og fjölmennar. Formaður Hvatar varð frú Guðrún Jónasson og gegndi hún því starfi með afburða dugnaði og áhuga samfleytt í 18 ár. Þá tók við formennskunni María Maack, og er hún nú formaður. Afmælisins minnast Hvatarkon- ur með fagnaði í Sjálfstæðishús- inu nú á mánudaginn 11. marz. ÞEGAR ég ræddi við Maríu Maack um félagsstarfið og framtið Hvatar, spurði ég hana að því að lokum, hvað hún teldi framtíðarverkefni þessa þrótt- mikla félags Sjálfstæðiskvenna hér í höfuðborginni. Mér sýndist á henni að spurn- ingin hefði verið óþörf, það lægi inga og alþjóðar, svaraði María. í augum uppi hvert markmið Ég er bjartsýn á framtíðina, félagsins væri. Við munum halda félaginu vex afl og styrkur með áfram að berjast fyrir hugsjón- hverju ári, og góðum málum @r um og stefnu Sjálfstæðisflokks- ávallt gott að vinna. ins, frelsi og farsæld einstakl- ggs. Enn sigrar Fordinn SEX enskir Ford-bílar komu fyrstir að marki í 650 milna erfiðri keppni, sem fram fór hjá Lagos-klúbbnum í Nígeríu í des. s. L Það var Zephyr Mark I sem var í fyrsta sæti og Prefect í öðru, en meðal bifreiðanna sem tóku þátt í keppninni voru Morris, Vauxhall, MG, Standard, Opel, Fiat, Renault, Simca og Volkswagen. Þess er skemmst að minnast, d’Honneur" fyrir glæsilegt útlit að það var einnig Ftrd Zephyr, sem sigraði í hinni frægu Alpa- keppni, sem fram fór síðast I haust sem leið. Á Gullströndinni fer árlega fram erfið keppni, sem tekur um tvo daga og er ekið hæstum við- stöðulaust. Fyrir skemmstu lauk þessari keppni með því að Ford- Consul Mark I sigraði. — í brezku Naíional Rally varð Ford Anglia fyrst að marki og er það þriðja árið í röð, sem hún sigr- ar í þeirri keppni. • Á hinni 9. alþjóðlegu bifreiða- sýningu, sem fram fór í Róma- borg fyrir áramót, hlaut Ford Zodiac Mark II „Grand Prix og er það talinn mikill sigur, því Italía hefur ætíð verið viður- kennd sem heimaland bifreiða- teiknara. Þess má geta að ítalsk- ur maður hefur á undanförnum árum gert allar teikningar af bif- reiðum Ford-verksmiðjanna. Sendiherra í iran HINN 6. marz s. 1. afhenti Magnús V. Magnússon íranskeis- ara trúnaðarbréf sitt sem sendi- herra fslands í íran með búsetu í Stokkhólmi. (Frá utanríkisráðuneytinu).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.