Morgunblaðið - 30.03.1957, Side 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Laugard. 30. marz 1957
i. Romains
ÞJÓÐLEIKHÚSSTJÓRI skýrði frá því á fundi með blaðamönnum
í gær, að næsta viðfangsefni Þjóðleikhússins yrði Dr. Knock
eftir Jules Romains, sem er einn helzti rithöfundur Frakka. Hann
skrifaði þetta leikrit 1923. Það er ádeila í léttum stíl. Leikritið
hefir verið leikið í Ríkisútvarpið, en verður frumsýnt í Þjóð-
leikhúsinu á miðvikudag.
Ólikt hafasf
þeir oð
Dáðar þessar myndir eru tefcnar
sanxa daginn, 7. nóv. 1956. Sú
efri í veizlu í sendiráði Rússa í
Washington í dýrlegum fagnaði.
★ ★ ★
Sú neöri er frá Budapest. Hún
SÝNINGIN TEKUR 3 KLST
Dr. Knock er í þremur þáttum.
Leikstjóri er Indriði Waage, en
aðalhlutverkið leikur Rúrik Har-
aldsson. Aðrir leikendur eru:
Arndís Björnsdóttir, Regína
Þórðardóttir, Þóra Borg, Baldvin
Halldórsson, Bessi Bjarnason,
Flosi Ólafsson, Helgi Skúlason,
Indriði Waage, Klemenz Jónsson,
Lárus Pálsson og Ólafur Jónsson.
Þýðinguna gerði Eiríkur Sigur-
bergsson, Lárus Ingólfsson mál-
aði leiktjöld, en búningar eru
saumaðir á saumastofu Þjóðleik-
hússins, sem er undir stjóm
Nönrni Magnússon.
sýnir lík Ungvcrja sem féll þewt-
an dag fyrir byssukúlum Rússa.
— EOKA-menn
Framh. af bls. 1.
blaðamenn í dag, að nú hefði
Kýpurbúum verið gefinn kostur
á því að stilla algerlega til frið-
ar á eyjunni. Bað hann eyjar-
skeggja að láta ekki aftur fara
í sama horfið svo að ógnaröld-
in hæfist á ný. Bauð hann öll-
um uppreisnarmönnum að gefa
sig fram — og lofaði, að þeir
skyldu ekki beittir neinum órétti.
Gríska stjórnin hefur fagnað
því mjög, .að Makarios skuli nú
Bílaverkstæði og
bíll brenna
BÍLAVERKSTÆÐI Byggingafé-
lagsins Brú inn i „Defensorsstöð',
eins og það hét í gamla daga,
eyðilagðist að mestu af eldi í
gærmorgun. Lítill bíll var þar
inni og eyðilagðist hann sömu-
Jéiðis. Þá bernddist einn maður
/nokkuð á hendi.
Tveir menn sem á verkstæðinu
vinna voru við að taka benzín-
geymi undan litla bílnum. Mun
benzín hafa farið úr geymnum
og lekið ofan á ljósaperu í vinnu-
ljósi, sem lá á gólfinu. Við þetta
virðist mönnum sem peran hafi
sprungið í lampanum, en um leið
varð af bál mikið. Mennirnir
voru báðir undir bílnum, en eld-
urinn blossaði upp. Annar þeirra,
Stefán Jóhannsson, berndist all-
mikið á hendi, en hinn maður-
inn slapp ómeiddur.
Eldurinn breiddist óðfluga út
um verkstæðið og brann það allt
að innan.
laus úr haldi — og segir í frétt-
um frá Aþenu, að griska stjórn-
in muni nú fús til þess að ræða
við stjórnir Bretlands og Tyrk-
lands um farmtíð Kýpur.
Leiðtogi tyrkneska minnihlut-
ans á Kýpur er ekkí jafnhrifinn.
í kvöld átti hann tal við John
Harding — og á eftir skýrði leið-
toginn frá þvi, að Harding hefði
gefið honmn fullnægjandi trygg-
ingu fyrir því, að réttur tyrk-
neskra manna á Kýpur yrði ekki
fyrir borð borinn þrátt fyrir
stefnubreytingu Breta gagnvart
grískumælandi eyjarskeggjum.
í útvarpsræðu í kvöld skoraði
Harding á Grivas, foringja EOKA
og menn hans að gefa sig fram
og óttast eigi hefndir af hálfu
Breta.
í dag hefir mikil gleði ríkt með-
al grískra manna á Kýpur. Fólk
hefur flykkzt til kirkna og kap-
ellna til þc.kkargj örðar fyrir feng
ið frelsi Makariosar. Börnum var
gefið frí úr skólum og fjölda-
fundir hafa verið haldnir — og
hinn fjarverandi erkibiskup
óspart hylltur.
Á einum stað veittust eyjar-
skeggjar í kvöld að Bretum og
kröfðust þess, að Makarios fengi
að hverfa heim. Annars hefur
ekki komið til neinna átaka og
brezkar húsmæður streymdu í
dag í verzlanir án öryggisvarða.
Fréttaritarar telja, að svo geti
farið, að gleðin ríki ekki lengi
á Kýpur — og grískumælandi eyj
arskeggjar muni nú krefjast þess,
að Makarios fái að hverfa til eyj-
arinnar.
Kvikmyndasýning
ÍSLEN ZK-AMERÍ SKA félagið
efnir til kvikmyndasýningar í
Gamla-Bíói kl. 2 í dag, laugardag.
Fyrst verður sýnd ný frétta-
mynd um frímerki og frímerkja-
söfnun. Ennfremur er þáttur um
Venezúela og hinar stórstígu fram
farir, sem þar hafa átt sér stað
hin síðari ár.
Þá er fögur litkvikmynd frá
hinum stórfenglegu Grand Cany-
on gljúfrum í Bandaríkjunum,
sem talin eru með merkilegustu
náttúrufyrirbærum í heimi.
Að lokum verður sýnd stór-
fróðleg mynd, sem tekin hefur
verið af Hafrannsóknarstofnun
Flóridafylkis. Gefur kvikmynd
þessi gott yfirlit um sjávarlíf og
sjávargróður svo og fiskirann-
sóknir, sem eiga sér stað á þess-
um slóðum.
Aðgangur að kvikmyndasýning
um Íslenzk-ameríska félagsins er
ókeypis og öllum frjáls meðan
húsrúm leyfir.
t þessum kösoum er fyrsti íslenzki regnbogasilungurinn, sem sendur
er á markaðiim frá íslandi. Er hér um að ræða árangur af löngu
og þroílausu starfi Skúla Pálssonar í Faxalóni, sem á undanfömum
árum hefur verið að koma sér upp regnbogasilungsbúi. Þessi sil-
ungur fer nú til Bandaríkjanna og var verið að setja hann um
borð, er ljósmyndara Mbl. bar þar að. í þessari fyrstu sendingu
héðan fóru lúmlcga eitt tonn af silungi.
Dáin augnalok
Unga skáldkonan heimsfræga þó hefur ritstjóri tímaritsins
Francoise Sagan hefur lagt ekki lesið hana. Ragnar í
síðustu hönd á nýja skáld- Smára las ekki heldur Brekku
sögu. Voru ljósmyndarar við- kotsannál áður en hann gaf
staddir, þegar hún skrifaði hanu út.
lokaorð sögunnar. Eitt átti
hún þó eftir. Það var að taka
ákvörðun um • hvað sagan
ætti að heita.
Líklega skíri ég hana „Dáin
augnalok“, sagði hún.
Skáldkonunni hafa verið
boðnar 2 milljónir króna í rit-
laun. Svo hátt býður banda-
rískt tímarit, sem vill fá verk-
ið sem framhaldssögu. Og
Væri blaðamaður
Irúiofaður....
í GÆRKVÖLDI vora braut-
skráðar frá Hjúkrunarkvenna-
skóla íslands nokkrar ungar
hjúkrunarkonur. Hér er um að
ræða annan hóp nemenda frá
skóla þessum eftir að hann fluttt
í hin nýju húsakynni. Einn af
tíðindamönnum blaðsins hafði
hug á því, að vera þar viðstadd-
ur. Því hringdi hann í skólastjór.
ann í gærdag og spurðist fyrir um
möguleika á nærveru.
Skólastýran var þess ekki fý*.
andi að hafa fréttahauka við
þessa athöfn, að því er hún sjálf
sagði. Hún kvaðst einfær um
að senda frá skólanunt tilkynn-
ingu um lokapróf hjúkrunar-
nemenda. En skólastýran bætti
við að væri blaðamaður trúlof.
aður einhverjum nemanum,
myndi hún ekki amazt við þó
hann mætti. En nú varð blaða.
maðurinn, sem jafnan, að svara
réttu til, að (því miður) væri
ekki um slíkt að ræða, svo vitað
væri. — Svo fór um sjóferð þá.
Leikrifið er effir eiff kunnasfa skáld Frakka,
‘wée*
Dr. Knock næsta viðfangs-
efni Þjóðleikhússins