Morgunblaðið - 30.03.1957, Qupperneq 3
Laugard. 30. marz 1957
MORGVNBLAÐ1Ð
3
BANDARÍSKI rithöfundurinn John Steinbeck er löngu heims-
kunnur fyrir skáldsögur sínar, sem þýddar hafa verið á fjölda
tungumála. Á íslenzku hafa m. a. komið út „Þrúgur reiðinnar",
„Mýs og menn“, „Máninn líður“, „Ægisgata“, „Kátir voru karlar“
og „Perlan". Hin nýja framhaldssaga Morgunblaðsins, „Austan
Edens“, er eitt nýjasta verk hans og hefur hlotið miklar vinsældir í
Bandaríkjunum. Sagan var kvikmynduð fyrir þremur árum, og fóru
þar með aðalhlutverk James Dean, hið látna átrúnaðargoð banda-
rískrar æsku, og Julie Harris, ein mesta núlifandi leikkona Banda-
ríkjanna.
Steinbeck á að baki sér við-
burðaríkan æviferil. Hann er
fæddur árið 1902 og fór snemma
á flakk. Vann hann fyrir sér með
ýmsu móti og kynntist því lífi
af eigin raun, sem síðar varð
efniviður skáldverka hans. Um
skeið stundaði hann háskólanám,
en sneri sér snemma að ritstörf-
um. Fyrsta bók hans, „Cun of
Gold“, kom út árið 1929. Það
var sjóræningjasaga, sem gaf
lítil fyrirheit um hið verðandi
skáld. Árið 1932 birtist smá-
sagnasafnið „Pastures of Heav-
John Steinbeck
•n“, þar sem hann lýsti heim
kynnum sínum í Kaliforníu. En
frægð vann hann sér fyrst með
skáldsögunni „Tortilla Flat'
(1935 — „Kátir voru karlar"),
sem er bezta verk hans til þessa.
Þar lýsir hann af djúpri mann
þðkkingu og skemmtilegri kímni
hópi frumstærða sérvitringa
hafnarbæ í Kaliforníu.
Steinbeck hefur skrifað mikið
um þjóðfélagsmál, og margar
beztu baekur hans lýsa af mikilli
samúð og næmum skilningi kjör-
um og örlögum lítilmagnans í
mannfélaginu. Má þar nefna „In
Dubious Battle“ (1936), „Of Mice
and Men“ (1937 — „Mýs og
menn“) og „The Grapes of
Wrath“ (1939 — „Þrúgur reið-
innar“), sem er umfangsmesta
og frægasta verk hans. í því
fjallar hann um bændurna í
Oklahoma, sem flosnuðu upp af
jörðum sínum í þurrkunum
miklu og kreppunni, sem af þeim
leiddi, og fóru til Kaliforníu í
leit að nýju og betra lífi. í sög-
unni er mikill örlagaþrungi og
nöpur þjóðfélagsádeila.
HERNÁMSSAGA —
KVIKMYNDIR
Árið 1942 reit Steinbeck skáld-
sögu, sem að nokkru var byggð
á þýzka hernáminu í Noregi í
síðari heimsstyrjöld, „The Moon
is Down“ („Máninn líður“). Hún
var þýdd ólöglega á dönsku og
norsku á stríðsárunum.
Eftir styrjöldina hafa komið út
nokkrar skáldsögur eftir Stein-
beck, en hann hefur jafnframt
samið kvikmyndahandrit. Hann
samdi t. d. handritið að hinni
frægu kvikmynd „Viva Zapata",
sem Elia Kazan gerði.
RÍK FRÁSAGNARGÁFA
Steinbeck er meðal fremstu
rithöfunda Bandaríkjanna, en
höfuðverk sín samdi hann á ár-
unum 1930—40. Skáldskapur
hans einkennist af mannkærleika
og djúpri réttlætiskennd. Stíll
hans er einfaldur og raunsær, og
hann hefur óvenjulega lifandi
frásagnargáfu, svo sem auðsætt
er af sögunni, sem hefst í Morg-
unblaðinu í dag. Þar lýsir hann
viðkvæmum og framgjörnum
unglingi, draumum hans og von-
brigðum á leiðinni til manndóms.
Hún er án efa byggð á æskuraun-
um höfundarins sjálfs.
s-a-m.
Ungur þingsveinn bjargar tveim
drengjum úr bráðri lífshættu
Duttu r vök í Tjörmnni og voru
að sökkva í vafn og íeðju
OÞetta er hinn veglegi togari NorS
firðinga, Gerpir, sem nú heim-
sækir höfuðborgina í fyrsta
skiptL Er hann nú í slipp til mál-
unar. Gerpir var byggður í V-
Þýzkalandi, og þykir cinstaklega
glæsilegt skip, eins og myndin
i-eyndar ber með sér. Ljósm. Mbl.
Flaut vatnið fljótlega um háls
hans. Stóð hann nú þarna ráða-
laus með vin sinn á bakinu og
hrópaði á hjálp.
i
FYRRADAG vildi það til, að tveir drengir, báðir 7 ára,
vorú hætt komnir, er þeir duttu niður um vök á Tjörn-
inni fram undan Búnaðarfélagshúsinu. Hefðu drengirnir senni-
lega farizt þarna í vökinni ef ungur þingsveinn, Magnús Jóns-
son, hefði ekki bjargað þeim á síðustu stundu er þeir voru
að sökkva í kaf í vatn og leðju.
VORU MEÐ SKIP Á VÖKINNI
Drengirnir sem í vökina duttu
voru Sigurður Kjartansson, Von-
arstræti 2 og Ólafur Kvaran til
heimilis í Landsímahúsinu. Voru
þeir að sigla skipi á vökinni,
um hláfellefu leytið um morgun-
inn, en misstu það og strandaði
það hinum megin við vökina,
fjær landi. Fóru drengirnir eftir
ísröndinni til þess að bjarga leik
fanginu en er þeir voru nærri
komnir að því, brast ísinn undan
þeim og féllu þeir báðir í vatn-
ið. Voru þeir þá staddir um það
bil miðja vegu milli Hólmans og
lands.
SUKKU í LEÐJUNA
Til að byrja með náði vatnið
drengjunum upp undir hendurj
en þeir sukku fljótlega í leðj-
una með fæturna. Ólafur litli
sem er lægri vexti en Sigurður,
tók það til bragðs að klifra upp
á bakið á Sigurði, og gat hann
þannig haldið höfðinu upp úr
Fjölmenn úlför Þur-
íðar Bjarnadóttur
í GÆR fór fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík útför frú Þuríð-
ar Bjarnadóttur, en hún var
ekkja hins þjóðkunna manns, ís-
ólfs Pálssonar tónskálds. Þau
hjón voru bæði fædd og uppalin
á Stokkseyri.'og bjuggu þar lengi.
Þaðan fluttust þau til Reykjavík-
ur, þar sem þau áttu heima
síðan.
Séra Árelíus Nfelsson talaði í
kirkjunni og jarðsöng. Dóm-
kirkjukórinn söng. Þórarinn
Guðmundsson lék einleik á fiðlu
og Kristinn Ingvarsson lék á
orgelið. Leikin voru og sungin
lög eftir mann hinnar látnu, ísólf
Pálsson og son þeirra, dr. Pál
ísólfsson, tónskáld.
Stokkseyringar búsettir í
Reykjavík báru kistuna úr kirkju
en nokkrir ættingjar hinnar
látnu síðasta spölinn í kirkju-
garði, en hún var jarðsett við
hlið manns síns í gamla kirkju-
garðinum. Frú Þuríður Bjarna-
dóttir var fædd 2. júlí 1872. Var
hún því 84 ára að aldri er hún
lézt. Mann sinn missti hún fyrir
16 árum. Mikið fjölmenni fylgdi
hinni látnu merkis- og heiðurs-
konu til grafar, enda áttu þau
hjón fjölmennan hóp ættingja og
vina.
vatninu. En þá tók Sigurður litli
að sökkva enn dýpra í leðjuna.
Gunnar Gunnarsson
Þorvaldur Skúlason
Tvær bækur í smábókaflokkmim
TVÆR nýjar bækur koma út í
dag í smábókaflokki ísafoldar og
Helgafellsforlaganna, Aðventa
Gunnars Gunanrssonar í nýrri út-
gáfu og með myndum eftir Gunn-
ar, son skáldsins og bók um Þor-
vald Skúlason, listmálara, eftir
Valtý Pétursson. Skrifar Valtýr
langa ritgerð um málarann og er
útdráítur úr henni á ensku. Þá
eru í bókinni sextán eftirmyndir
af abstraktmálverkum og eitt
málverk í litum. Framan á kápu
er mynd af Þorvaldi þar sem
hann er að vinna við eitt af mál-
verkum sínum. Báðar þessar bæk
ur eru prentaðar í Víkingspernti
og kosta aðeins kr. 20,00 í bóka-
búðum.
Námskeið í skreyl-
ingum verzlunar-
glugga
EINS og fyrr hefur verið frá
skýrt, ákvað stjórn SÖLUTÆKNI
að efna hér í bænum til þriggja
vikna námskeiðs í skreytingu
verzlunarglugga og réði hún
norskan kunnáttumann Per Skjön
berg að nafni, til þess að veita því
forstöðu. Samkomulag varð um
að námskeiðið yrði samræmt
markmiðum Handíða. og mynd-
listaskólans og haldið í húsakynn
um hans. Eftir að birtar höfðu
verið auglýsingar um námskeið-
ið, kom í ljós, að fleiri vildu
sækja um það en fengu, en tak-
marka varð þátttakendafjölda við
tölu þeirra 40, sem fyrstir stað-
festu umsóknir sínar.
Námskeiðið var sett í gærkvöldi
kl. 20:30 af Sigurði Magnússyni
formanni Sölutækni, sem bauð
kennara og nemendur velkomna
og gerði grein fyrir þeirri tlhög-
un, sem ákveðin er, en kennslan
verður bæði fræðileg og verkleg.
Skjönberg mun flytja fyrirlestra
og sýna skuggamyndir daglega og
koma upp nokkrum sýningar-
gluggum í kennslustofunni, en
auk þess mun hann heimsækja
þátttakendur á vinnustöðum
þeirra og leiðbeina þeim þar.
Lúðvík Guðmundsson skóla-
stjóri bauð kennara og nemend-
ur velkomna í híbýli skólans, en
að því loknu hóf Per Skjönberg
kennslu sína.
HJALPIN KEMUR
Um sama leyti og óvænlegast
horfði fyrir þeim félögum í vök-
inni var þingsveinninn Magnús
Jónsson, sem er mn 14 ára, send-
ur úr Alþingishúsinu út í Bún-
aðarbankahús. Varð honum litið
út á Tjörnina og sá þá á höfuðið
á Ólafi upp yfir skörina. Brá
hann fljótt við. Skreið eftir ísn-
um út til drengjanna og kippti
þeim upp úr vökinni. Sýndi
Magnús með þessu mikið snar-
ræði og áræði. Bjargaði hann
drengjunum báðum til lands, en
á leiðinni brast ísinn hvað eftir
annað undan þeim og var Magn-
ús holdvotur og forugur upp und-
ir hendur að björgunarstarfinu
loknu. Báðum drengjunum kom
hann samt heim til sín og varð
engum þeirra meint af volkinu.
SÝNDI MIKIÐ SNARRÆÐI
Má telja víst, að sorglegur at-
burður hefði gerzt þarna í vök-
inni, ef Magnús hefði ekki borið
að á þessari stundu. Enginn tók
eftir börnunum sem voru um það
bil að fara í kaf í vatn og leðju.
Má því vissulega þakka kjarki
og snarræði Magnúsar að bet-
ur tókst til en á horfðist.
irennur
Bíll L
í bílskúr
KEFLAVIK, 29. marz. — Um
kl. 1 í nótt varð þess vart að
eldur var kominn upp í bílskúr
við húsið Sunnubraut 13 hér í
bænum. Var eldurinn mjög bráð-
ur, og má heita að skúrinn hafi
staðið í björtu báli þá er slökkvi-
liðsmenn komu á vettvang. Um
skeið var næsta hús í nokkurri
hættu og sprungu rúður í þeírri
hlið þess er að skúrnum veit.
Baldur Júlíusson, 'Sunnubraut 13,
átti þennan skúr og bíl sem í
honum var, Studebaker ’47 gerð
og eyðilagðist bíllinn einnig.
AKRANESI, 30. marz. — í gær
var hrein ördeyða hjá bátunum
— alls höfðu þeir 50 lestir. Sá
hæsti var með 8 lestir en sá lægsti
með 900 kg. Sem vonlegt eru að-
eins fáir bátar á sjó í dag, þótt
blíðskaparveður sé.
Akurey kom hingað í morgun
eftir tveggja vikna veiðiför. Var
hún með 280 lestir. Er aflinn
þorskur, ýsa og karfi. Þorskur-
inn fer til herzlu, hitt til vinnslu
1 frystihúsunum. Oddur.
HAFNARFIRÐI — Dágóður afli
hefir verið hjá netabátunum sið-
ustu daga, og hefir aflanum ým-
ist verið skipað hér á land eða
fyrir sunnan. — Ágúst og Bjarni
riddari voru hér inni í vikunni
og munu hafa verið með um og
yfir 200 tonn af fiski, sem fór
í herzlu og frystihús. Surprise
kom af veiðum í gær og var með
fullfermi eða á fjórða hundrað
tonn. — G. E.
John Steinbeck, höfundur
nýju framhaldssögunnar