Morgunblaðið - 30.03.1957, Blaðsíða 15
Laugard. 30. marz 1957
MORGUNBLAÐIÐ
15
íþrottamyndir
ur ymsum
áttum
Næstu Olympiuleikar fara sem kunnugt er fram í Rómaborg 1960. Þegar er hafinn mikill untlir-
búningur undir leikina, sem sennilega verða hmir fjölmcnnustu er fram hafa farið og búizt
er við meiri áhorfendaskara en áður hefur þekkzt. — Hér er mynd af byggingu stórs íþrótta-
svæðis við Tiziano götuna — Colosseum nútímans. Ef til vill á þessi bygging eftir að verða fornleifar
og verða fræg sem rúst gamallar byggingar þar scm fólk fyrir 1—2000 árum kom saman til keppni
í íþróttum.
Góður sund-
úrungur
Keilvíkingu
Unnu glæsilegan
sigur á skólamótinu
KEFLAVÍK, 27. marz. — Áhugi
á sundíþróttinni hefur jafnan
▼erið mikill hér í Keflavík, enda
hefur árangurinn verið eftir því.
Gagnfræðaskóli Keflavíkur tók
þátt í sundmóti Framhaldsskól-
anna sem haldið var í Sundhöll
Reykjavíkur 21. marz sl. 1 móti
þessu tóku þátt allir framhalds-
skólar Keykjavíkur auk Mennta-
skólans á Laugarvatni, Iðnskólans
i Akranesi og Gagnfræðaskólans
hér. Meðal keppnisgreina var
akriðsund kvenna og vann Gagn-
fræðaskóii Keflavíkur sundið. Var
tími sveitarinnar 2:35,5 mín. Önn
i»r var sveit Gagnfræðaskóla
Laugarness á 2:40,7 mín. og
þriðja B-sveit Gagnfræðaskóla
Keflavíkur.
I»á var keppt í fjðrum einstakl
Ingsgreinum: Björgunarsundi,
bringusundi, baksundi og skrið-
sundi. Heildarstigatala úr öllu
sundinu var sú að Gagnfræðaskóli
Keflavíkur hlaut 55 stig, Gagn-
fræðaskóli Laugarness 29 stig,
Verzlunarskólinn 15 stig, Gagn-
fræðaskóii Austurbæjar 11 stig og
aðrir minna. Var því Gagnfræða-
skóli Kefluvikur nærri því eins
stigahár og hinir allir skólarnir
til samans er fengu 65 stig. Á
þessu sundmóti færðu stúlkurnar
hér skóia sinum til eignar bikar,
sem keppt hefur verið um
sl. þrjú ár. Þess má og geta að
4 fyrra framhaldsskólasund-
mðti sem var í des. s-1. unnu þær
einnig bikar til eignar, höfðu unn
ið hann þrjú skipti í röð. Þjálfari
stúlknanna fyrir skólamótin hefur
verið Hafsteinn Guðmundsson,
sundhallarstjóri. — Ingvar.
Svigkeppni Reykja-
víkurmófsins í Jósefs
dál í dag
1 dag fer fram í Jósefsdal svig
keppni Skíðamóts Reykjavíkur.
Verður keppt í öllum flokkum.
Keppnin hefst M. 10 árdegis'
í kvennaflokki og drengja
flokki. Kl. 2 e.h. hefst svo keppni
í karlaflokkum. Ferðir eru upp
eftir frá BSR
Dr. Roger Bannister, sá er fyrst-
ur liljóp míluna undir 4 mín.,
er hér fagnandi með konu sinni
er Moyra heitir og er af sænsk-
um ættum. Heldur hún á ný-
fæddri dóttur þeirra. Innan
skamms mun Bannister klæðast
einkennisbúningi brezks her-
manns og mun ljúka herskyldu
svo sem lög krefjast.
Skíðaunnendum í Evrópu þótti snjórinn í vetur lítill, en mörgum’
þótti það gott ekki sízt vegna Súez-deilunnar og olíuvandræð-
anna. En margir leituðu tU hátt liggjandi staða, þar sem unnt
var að iðka vetraríþróttir. Mynd þessi er tekin við Kreuzeek-
biet sem er nokkra km frá Framisch í Bayern. Það er staður
fyrir þá er bæði vilja vera á skíðum og njóta fagurrar náttúru.
Alþ/óðaskákmót stúdenta:
10 þjóðir hoia þegar
tilhynnt þdtttöhn
Mótið hefst í Reykjavik 11. júlí
EINS OG KUNNUGT ER fer alþjóðaskákmót stúdenta fram í
Reykjavík í sumar. Mótstíminn hefur verið ákveðinn 11. til
26. júlí. Þátttökutilkynningar eru nú óðum að berast og hafa eftir-
taldar þjóðir þegar tilkynnt þátttöku sína: Rússar, Tékkar, Pól-
verjar, Rúmenar, Ytri-Mongólar, Finnar, frar, Englendingar, Aust-
ur-Þjóðverjar, fslendingar. Verið getur að fleiri tilkynningar berist
s.s. frá Norðurlöndum og Bandaríkjunum.
* í KR-HÚSINU
Sennilegt er að teflt verði í
KR-húsinu, en það er sem kunn-
ugt er stærsta íþróttahús lands-
ins, en stórt húsnæði þarf, þvi
keppt er á fjórum borðum og
verður því, séu þátttökuþjóðirn-
ar 10 (eins og þegar er vitað),
teflt á 20 borðum í senn. Verði
þátttökuþjóðirnar fleiri en 16
talsins, verður keppt í riðlum
og síðan til úrslita í tveimur
flokkum. Annars verður ekki um
riðlaskiptingu að ræða.
i
Árni Snævar, Friðrik Ólafsson,
Jón Böðvarsson. Einnig á sæti í
nefndinni Kurt Vogel, form.
fræðslu- og íþróttadeildar al-
þjóða stúdentasambandsins
(IUS).
*-* 4. MÓTIÐ
Þetta er 4. alþjóðamót stúd- j
enta. Hin fyrri hafa verið í Osló, i
Lyon og Uppsölum, en þar fór j
mótið fram 1956. Þar kepptu ís-
lendingar meðal 16 þátttökuþjóða
og urðu efstir í B.-riðli eða í
9. sæti.
ic UNDIRBÚNINGSNEFND
Það er Skáksamband íslands
sem hefur skipulag mótsins und-
ir höndum ásamt stúdentaráði
Háskólans. Sérstök undirbúnings
nefnd hefur starfað að undirbún-
ingi og í henni sitja: Pétur Sig-
urðsson háskólaritari form., Þór-
ir Ólafsson ritari, Bjarni Felix-
son, gjaldkeri, Baldur Möller,
Númsbeíð fyiir
kBOttspynm-
dómora
Knattspyrnudómarafélag Rvík-
ur hefur ákveðið að efna til dóm-
aranámskeiðs. Innritun þátttak-
enda fer fram í Valsheimili á
fundi félagsins n.k. mánudagskv.
kl. 8,30. Þar verða allir sem
ætla sér að taka þátt í námskeið-
inu að mæta.
★ BÆKLINGUR MEB
ÚRVALSSKÁKUM
Alþjóðastúdentasamtökin i
Prag IUS, hafa nú gefið út
bækling með úrvali skáka er
tefldar voru á Uppsalamótinu.
Skýringar við skákirnar hefur
J. Sajtar ritað, en hann er einn
kunnasti skákmaður Tékka. í
formála er gerð stutt grein fyrir
sögu stúdentamótsins og ýmsu
er máli skiptir í sambandi við
það. Þá prýðir fjöldi mynda
bæklinginn. Af þessum úrvals-
skákum Uppsalamótsins eru tvær
leiknar af íslendingum. Er það
skák Friðriks Ólafssonar gegn
Szabo Rúmeníu en 'Friðrik vann
þá skák. Þá er og vinningsskák
Guðmundar Pálmasonar gegn
Rolland frá Frakklandi.
Bæklingur þessi er nú kominn
hingað til lands og er til sölu
í Sjómannaskólanum þegar ein-
vígisskákir Friðriks og Pilniks
eru tefldar þar og mun síðar
koma í bókaverzlanir.