Morgunblaðið - 30.03.1957, Side 16
16
MORCUTSBLÁÐIÐ
Laugard. 30, marz 1957
FRÁ S.U.S. RITSTJÖRAR: GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON OG SVERRIR HERMANNSSON
Ekki til
Moskvu
SAMKVÆMT frétt, sem barst
frá Stúdentaráði Háskóla íslands
í gær, hefir það samþykkt að slíta
sambandi við kommúníska stúd-
entasambandið I. U. S. í Prag en
til þess var stofnað af rauða bræð
ingnum, sem réði meirihluta
Stúdentaráðs á árunum 1953—
1956. — Ástæðan fyrir þess-
um sambandssiitum er fyrst
og fremst sú, að stjórn hins
kommúníska stúdentasambands í
Prag, I.U.S., sá ekki ástæðu til að
mótmæla hinu svívirðilega þjóð-
armorði Rússa í Ungverjalandi,
þar sem stúdentar urðu þó mjög
ifyrir böðulsbarðinu. Þvert á móti
hefur stjórn I.U.S. haldið að sér
höndum og samþykkt þær að-
gerðir með þögn sinni.
Á því leikur enginn vafi að
mikiil meirihluti íslenzku þjóð-
arinnar er stúdentunum algerlega
sammála um að slíta beri öllu
sambandi við hin austrænu stúd-
entasamtök. Það er ennfremur
vitað, að mikill meirihluti þjóð-
arinnar vill ekkert menningar-
samband hafa við böðla Ung-
verjalands fyrr en þeir liafa gert
yfirbót sem mark er takandi á,
m.a. með því að veita þeim þjóð-
um frelsi og sjálfstæði, sem þeir
hafa með ofbeldi innlimað í riki
sitt. Þeim mun óskiljanlegra og
um leið hörmulegra, er til þess
að vita, að íslenzkir listamenn,
íþróttamenn og enn fleiri skuli
heiðra þá með heimsóknum sín-
um. Látum vera þótt einstaka ís-
lenzkir aftaníossar Kremlverja
leggi þangað leið sína. Af því get-
ur þjóðin enga óvirðingu hlotið
fram yfir þá sem fyrir er, að
hafa slíkt fólk hér í landinu, að
ekki sé talað um í æðstu valda-
stöðum. Hitt er miklu alvarlegra
þegar heilir hópar íþróttamanna
hyggjast ganga á vit morðingj-
anna. Það er að vísu skiljanlegt
að menn langi í ferðalag, að
skemmta sér, en þeir verða að
hafa gát á að ferðalagið verði
þeim og þjóð þeirra ekki til
skammar.
Samrýmist það t.d. hug -ís-
lendinga í garð Rússa eftir at-
burðina í Ungverjalandi, að ein
i fremstu röð islenzkra söng-
kvenna skemmtir þeim nú með
•öng sínum? Þessu má svara með
annarri spurningu: Hefði það
samrýmst hug íslendinga í garð
Þjóðverja í síðustu heimsstyrjöld
að listamenn vorir styttu þeim
stundir? Svarið er í báðum til-
fellum algerlega neikvætt. Það
hefur að vísu verið bent á það
að list væri alþjóðleg, hafin yfir
öll stjórnmál. Slík rök eru innan-
tómt kjaftæði. Ein þjóð hlýtur þó
að sýna annarri sóma með því að
senda henni listamenn sína til
yndisauka. Það er heldur ekkert
einkamál tveggja þjóða þegar
Rússi drepur Ungverja fyrir að
krefjast þess að fá að lifa frjáls
i sínu eigin landi. Það er alþjóð-
legur glæpnr, framinn gagnvart
öllum heiðarlegum frelsisunnandi
mönnum heims cn að vísu í þágu
hins alþjóðlega kommúnisma.
Á múrum Kremlar blása lúður-
þeytarar til manníagnaðar. Til
Moskvu skal æskulýð heims boð-
ið í sumar að skemmta sér við
leik og söng meðan blóð fórnar-
larnba ofbeldismannanna er enn
eigi storknað á götum Búdapest-
borgar. Þess er óskandi að ís-
lenzkur æskulýður beri gæfu til
að hafna slíku heimboði.
Pétur Sæmundsen
formaður Heimdallar
iýrri starfsemi S.U.S. vel tekið
Frá samkomunni i Valhöll
á fimmtudagskvöldið
IFYRRAKVÖLD var haldið í Valhöll, félagsheimili Sjálfstæðis-
manna, samkoma fyrir unga Sjálfstæðismenn utan af landi.
Þátttaka var góð og þótti samkoman takast vel í alla staði.
UPPHAF AÐ NYRRI
STARFSEMI
Stjóm S.U.S. hefir, eins og frá
.var skýrt hér í blaðinu á mið-
vikudaginn, haft í athugun að
undanförnu, að hefja nýja starf-
semi á vegum samtakanna, þ.e.
að koma á fót föstum samkomum
með ungu Sjálfstæðisfólki utan
af landi. Hefur stjórnin litið svo
á, að ekki væri unnt að slá því
föstu í hvaða og hvað föstu
Aðalfundur Heimdallar
Skýrsla formanns bar með sér að ötullega
hefir verið unnið að málefnum félagsins
s.l. ár. — Félagatala er nú nálega 3 þús.
'SUNNUDAGINN 24. marz sl.
var haldinn aðalfundur Heimdall
ar, f.u.s. Formaður, Pétur Sæ-
mundsen, setti fundinn. Fundar-
stjóri var kjörinn Sverrir Her-
mannsson, viðskiptafræðingur, en
fundarritari Birgir Isl. Gunnars-
son, stud. jur.
Formaður flutti skýrslu um
störf félagsins sl. ár og bar hún
með sér að unnið hefur verið
ötullega að málefnum þess.
Almennir umræðufundir voru
tveir haldnir: Séra Sigurður Ein-
arsson, Holti, hafði framsögu á
fyrri fundinum um „Játningar í
austurvegi", en Pétur Benedikts-
son, bankastjóri, á hinum síðari
um „Frelsisbaráttuna austan járn
tjalds“. Báðir þessir fundir voru
mjög fjölmennir.
Félagið gekkst fyrir stjórn-
málanámskeiði, sem stendur
raunar enn yfir. Hefur það tekizt
mjög vel.
Leshringir hafa starfað innan
félagsins og aðallega fjallað um
bókmenntir. Ennfremur þjóðfé-
lagsmál og önnur áhugamál þátt-
takenda.
Skákkennsla hefur farið fram
á vegum félagsins og hafa fær-
ustu menn annazt kennsluna, þeir
Friðrik Ólafsson, Baldur Möller
og Ingi R. Jóhannsson. Hafa
kennslustundir þessar verið mjög
vel sóttar.
Þá hefur Heimdallur haldið
kvöldvökur og kynningarkvöld,
svo sem venja hefur verið til.
Ennfremur fullveldisfagnað 1.
desember og jólafagnað.
Félagið hefur staðið fyrir fjöl-
mennum ferðalögum til hinna
ýmsu staða á landinu, svo sem
Framh. á bls. 23
formi starfsemi þessi skuli vera
fyrr en séð verður hver áhugi
unga utanbæjarfólksins er á
þessari starfseml. Eftir fyrstu
samkomunni að dæma má vænta
mikils af þessari starfsemi og
bárust óskir um það frá mörg-
um samkomugestum að stofnsett
yrðu í Reykjavík varanleg sam-
tök fyrir unga Sjálfctæðismenn
utan af landi.
DAGSKRÁ SAMKOMUNNAR
Samkoman í Valhöll í fyrra-
kvöld hófst á því að Ásgeir
Pétursson, formaður S.U.S.,
mælti inngangsorð. Ræddi hann
um félagslíf unga fólksins í
Reykjavík og um framtíð þeirr-
ar starfsemi, sem nú væri að
hefjast. Lýsti hann yfir því, af
hálfu stjórnar S.U.S., að hún
væri reiðubúin til þess að efla
þessa starfsemi og greiða fyrir
henni á allan hátt, en taldi að
það unga fólk, sem hlut ætti að
máli yrði sjálft að ráða miklu
um framtíð starfseminnar. Taldi
hann það góðs vita, hvað mörg
ný andlit sæjust í fundarsalnum.
HEKLUMYND —
BÓKMENNTAERINDI
Næst flutti Kristmann Guð-
mundsson skáld, erindi um ís-
lenzkar bókmenntir. Fjallaði það
um þátt bókmenntanna í lífsbar-
áttu þjóðarinnar á erfiðum tím-
um. Að því búnu flutti skáldið
allmörg kvæði eftir ýmsa höf-
unda.
Þá var sýnd kvikmynd af
Heklugosinu. Guðmundur jarð-
fræðingur Kjartanssoá hafði
komið á samkomuna og skýrði
hann myndina og flutti auk þess
nokkur formálsorð.
Var skemmtikröftunum þakk-
að fyrir fræðsluna og skemmtun-
ina með öflugu lófataki.
Loks var svo kaffidrykkja fyr-
ir samkomugesti og ræddu menn
þá sín í milli um þessa nýju
starfsemi og voru sammála um
að henni bæri að halda áfram.
Samkomunni lauk kl. 11,15 um
kvöldið.
Fréttir frá S.U.S.
Á SÍÐASTA fundi stjórnar Sam-
bandg, ungra Sjálfstæðismanna
var ákveðið að efna til fulltrúa-
ráðsfundar sambandsins nú í vor.
Er ráðgert að halda fundinn
um mánaðamót maí-júní, hér í
Reykjavík. Er nauðsynlegt að
stjórnir Sjálfstæðisfélaganna, inn
an vébanda SUS, hefji sem fyrst
undirbúning að þátttöku í fund-
inum, einkum að ákveða um val
fulltrúa á fundinn.
Verður öllum stjórnum innan
samtakanna sent sérstakt bréf
um þetta, þar sem verður
gerð grein fyrir ýmsu því, sern
varðar fulltrúaráðsfundinn, svo
sem reglunum um fulltrúaval. Þá
verður einnig nánar tiltekinn
fundartíminn.
Þá eru stjómirnar einnig
Myndin sýnir tvö börn að leika
sér á þríhjólum sínurn. Þau eru
vel búin enda hefir sízt verið
þörf á því eins og veðráttan
hefir verið hér sunnanlands í
vetur. „Bráðum kemur bctri
tíð með blóm í haga". Ekki er
nema tæpur mánuður þar til sum
ardagurinn fyrsti rennur upp.
Hann er fyrst og fremst dagur
barnanna, dagur hins unga lífs
á landi voru.
minntar á að svara fljótt bréfi
sambandsstjórnarinnar viðvíkj-
andi trúnaðarmannakerfi SUS,
en nauðsynlegt er að öll svör við
því hafi borizt fyrir miðjan næsta
mánuð.
Þá er í ráði að taka upp nýjan
fastan þátt hér á sambandssíð-
unni í Morgunblaðinu, þ.e. frétta-
þætti frá hinum ýmsu félögum
ungra Sjálfstæðismanna. Verður
þar greint frá því, sem mark-
verðast gerist í starfi félaganna.
Væri gott að fá sem fyrst allar
þær upplýsingar, sem í þessu
sambandi var beðið um í bréfi
sambandsstjórnarinnar frá 24. þ.
m. Er sérstaklega minnt á að
æskilegt væri að fá Ijósmyndir
af stjórnunum, annað hvort hóp-
myndir eða ef þær eru ekki til,
þá myndir af einstökum stjórnar-
mönnum.
Ráðgert er að vormót sambandg
ins hefjist síðari hluta aprílmán-
aðar. Er nú verið að undirbúa tvö
mót, á Akranesi og í Kjósinni.
En þau verða að sjálfsögðu fleiri.
í fyrrakvöld hófst starfsemi 6
vegum SUS, sem miklar vonir
eru bundnar við. En það er að
stofna til kynna og nánara sam-
bands með því unga Sjálfstæðis-
fólki, sem dvelst hér í bænum
vetrarlangt, við nám eða önnur
störf — en á heimkynni sín úti á
landi. Hefur verið ákveðið að
ganga svo frá dagskrám þessara
kynningarkvölda, eins og móts-
ins í Valhöll í gærkvöldi, að
þau hafi bæði fræðslugildi og
séu auk þess hollar og góðar
skemmtistundir.
Er sagt frá þessari samkomu
nánar á öðrum stað í blaðinu.
Stjórn SUS hefur nú ákveðið
að næsta sambandsþing ungra
Sjálfstæðismanna verði haldið
næsta haust hér á Suð-Vestur.
landi.
Verður nánar tilkynnt um
fundarstað og tíma þegar stjórn-
in hefur ákveðið um það.
(Frétt frá stjórn S.U.S.)