Morgunblaðið - 12.04.1957, Page 2

Morgunblaðið - 12.04.1957, Page 2
2 MORCVNBLAD1Ð Fostudagur 12. aprfl 1957 Framleiðslugela sjávarins af lífrænum efnum könnuð Sagt frá næsta leiðangri Ægis. SJÁVARÚTVEGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ tilk. í gær að Ægir muni eins og undanfarin ár, fara í síldarrannsóknarleiðangur seint í næsta mánuði og verður skipið við almennar hafrannsóknir og síldarleit í úthafinu fyrir austan og norðaustan land. Þessi mynd var tekin um borð í rannsóknaskipinu Ægi í gær- morgun, skömmu áður en það lagði af stað í rannsóknaleiðang- urinn. Eru á myndinni, auk Þór- arins Björnssonar skipherra, fiski fræðingarnir Ingvar Hallgrims- son, sem er lengst til vinstri, Unnsteinn Stefánsson leiðangurs- stjóri er hægra nieginn við skip- herrann og Jakob Jakobsson er ungi maðurinn í Ijósa jakkanum. Hinir mennirnir þrír verða fiski- fræðingunum til aðstoðar við rannsóknarstörfin. Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Fiskifræðingar rannsaka hið minnkaða aflamagn Á VEGUM Fiskideildar Atvinnu- deildarinnar var farinn í lok febrúarmánaðar rannsóknarleið- angur með Maríu-Júlíu í Faxa- flóa og suður fyrir land, en það er þáttur í hinum kerfisbundnu rannsóknum í Faxaflóa. Þá hefir gögnum verið safnað frá Vestmannaeyjum, Keflavík, Akranesi, Dalvík og Húsavík. 8 OG 12 ÁRA FISKUR Lokið er úrvinnslu ullra gagna frá janúar og mestum hluta gagnanna frá febrúar frá Vest- mannaeyjum. Hingað til hafa tveir árgangar borið uppi veið- ina: 8 ára fiskur og 12 ára. Var búizt við að hvor um sig myndi vera um 35% aflans í heild, en í göngunum frá Vestm.eyjum er meðaltalið hingað til 22% af 8 ára og 32% af 12 ára fiski 8 ára fiskurinn á þó væntanlega eftir að aukast hlutfallslega. þegar líð- ur á vertíðina. Auk þessara ár- ganga tveggja var heldur meira af 6 og 7 ára fiski, en við var búizt, en óvarlegt er að draga af því neinar ályktanir fyrr en vertíðin er öll. Árgangurinn frá 1945, sem nú er 12 ára hefur borið uppi þorsk- veiðina síðan 1954 og hefur enzt betur en gert var ráð fyrir, og mun það að einhverju leyti stafa af göngum hans frá Grænlandi. Þróunin i aldursdreifingu þorsksins í þeim sýnishomum sem athuguð hafa verið hingað til gefur ekki til kynna þá minnk un í aflamagninu, sem raun er á orðin þessa veriíð. í byrjun apríl mun m. a. verða gerð at» hugun á hitaskilyrðum á hrygn- ingarstöðvum þovskins og fæst þá væntanlega úr því skorið hvort afbrigðilegt hitastig hafi ráðið einhverju um breyttar fiskigöng- ur. (Frá siávarútvegsráðuneytinu). Síldveiðitilraunir og karfarann- sóknir VÉLSKIPIÐ Fanney er nú farið út og mun gera tilraunir til síld- veiða með flotvörpu. Á s.l. hausti var, sem kunnugt er, gerð tilraun með kanadiskum flotvörpum til síldveiða en veðurfar var þá afar óhagstætt. Tilraunum þessum verður nú haldið áfram fvrir Suðvestur-, Suður- og Suðausturlandi og verð ur notuð hin kanadiska nylon- varpa auk annarrar vörpu, sem búin hefir verið til hér. Ingvar Pálmason skipstjóri stjórnar þessum veiðitilraimum. Undirbúningur er þegar hafinn. að því að togari verði leigður til leitar að karfamiðum. Fyrirhug- að er að leita á svæðinu milli íslands og Grænlands svo og í hafinu fyrir sunnan og suðaustan ísland. Jakob Magnússon fiskifræðing- ur verður með skipi því, sem fer Nýtt Bæjarbókasafiis útibú opnað í Hólmgarði Auk sérfræðinga á sviðl dýra- svifs-, síldar- og sjórannsókna, verður í leiðangrinum séfræð- ingur í plöntusvifi, og verða nú í fyrsta skipti í íslenzkum leið- angri gerðar rannsóknir á fram- leiðsugetu sjávarins á lífrænum efnum. Víða erlendis þykja nú slíkar rannsóknir sjálfsagður þáttur í almennum hafrannsókn- um. Þá er og fyrirhugað að gera tilraunir til að merkja síld í út- hafinu, og verður í þvi skyni höfð með herpinót og bátar. Skipstjóri á „Ægi“ verður eins og undanfar- in ár Þórarinn Bjömsson, en leið angursstjóri í þessum leiðöngrum verður Unnsteinn Stefánsson, efnafræðingur. Frá júlíbyrjun og til loka síld- arvertíðarinnar norðanlands mun Leitað að rúss- neskum sjó- mönnum STRANDGÆZLUFLUGBÁTUR- INN Rán fór í fyrrinótt héðan frá Reykjavík og norður að ís- röndinni, til að leita þar af litl- um opnum báti með fimm rúss- neskum selveiðimönnum innan- borðs. — Höfðu þeir á einn eða annan hátt orðið viðskila við skip sitt fyrir einum fimm dög- um. Leitin bar ekki árangur, en flugmennirnir flugu eins lágt yfir og fært Vcu-, en skyggni var ekki sem bezt. Leituðu þeir á stóru svæði, þar sem fjöldi norskra og rússneskra selveiðiskipa var. Var leitarsvæðið um 150 mílur beint norður af Straumnesi. Skellinöðru stolið Á MÁNUDAG um þrjúleytið. var stolið skellinöðru frá Barónsstíg 12. Hjólið er grátt að lit, gerð N.S.U. og nr. R-472. Skellinaðran var ólæst. Allir þeir, sem upplýs- ingar geta gefið, eru beðnir að hafa samband við rannsóknarlög- regluna.Eigendur skellinaðra eru áminntir um að læsa hjólum sínum, þegar þeir skilja við þau, þvi nær allar skellinöðrur, sem stolið hefir verið, hafa verið ólæstar. „Ægir“ annast síldarleit fyrir veiðiflotann á líkan hátt og und anfarin ár. Síldarleitinni stjórnar Jakob Jakobsson, fiskifræðingur en honum til ráðuneytis verður Ingvar Pálmason, skipstjóri. Þá mun einnig verða hafður vel útbúinn bátur til aðstoðar Ægi við síldarleitina. Varð milli báia og handleggsbrotnaði KEFLAVÍK, 11. apríl. — í fyrra dag vildi það slys til, er mb Júl- íus Björnsson frá Dalvík var að koma úr róðri, að einn hásetinn, Reimar A. Þorleifsson, varð fyrir því að handleggsbrotna og merj- ast illa á handlegg. Slysið varð með þeim hætti, að Reimar sem stóð frammi í stafni skipsins, hugðist taka högg af bátnum, er hann kæmi við bryggjuna. Einar Þveræing- ur, lá við bryggjuna og rakst „>bóma“ hans á Júlíus, en Reimar varð á milli með handlegginn. Var hann fluttur í sjúkrahúsið hér. — Reimari leið í dag vel eftir atvikum. —Ingvar. Læknar í verkfalli GAUTABORG, 10. apríl: — Um helmingur sjúkrahúslækna hér í borg, ft'óf verkfall í gær. Sögðu læknarnir um leið upp stöðum sínum og fóru að „praktísera“ upp á eigin spýtur. Segir frétta- ritarinn, að það gangi vel. Þeir læknar, sem eftir eru, vinna á svo kölluðum stríðsvöktum og ganga yfirlæknar þar jafnt og aðrir. Orsök verkfallsins er 25% launaskerðing, auk nýs ákvæðis, sem mælir svo fyrir, að uppsagn- artími lækna lengist úr 1 ári í 3 ár. — Útlit er fyrir, að verkfallið standi lengi yfir. —G.Þ.P. ÁKRANESI, 11. apríl: — Hér er sama ördeyðan og að undanförnu. í dag er aflinn almennt 1—2 tonn hjá línu bátunum. Nokkrir bátar eru nú búnir að taka net um borð. 2 trillubátar hafa verið á netum. Fékk annar þeirra í dag 30 fiska í 7 net en hinn 300 kg. í 12 net. — Oddur. í G Æ R D A G var opnað úti- bú frá Bæjarbókasafninu, sem verður fyrir hina ört vaxandi byggð Bústaða-, Smáíbúða- og Raðhúsahverfin. Er bókasafnið mjög miðsvæðis í Hólmgarði 34, í björtum og rúmgóðum stofum. Auk bókasafns er þar lesstofa fyrir nær 40 manns. 1 gærdag sýndi Snorri Hjartar- son, forstjóri Bæjarbókasafnsins, blaðamönnum þetta nýja bóka- safn. Er það til húsa að Hólm- garði 34, eins og fyrr segir, en í því húsi eru verzlanir fyrir Bústaðavegshverfið. Bókasafnið hefir til umráða 2 stórar stofur, auk herbergis bóka varðar, sem verður Ólafur Hjart- ar, en hann er lærður bókavörð- ur frá Lundúnum. Er bókasafnið búið góðum húsgögnum og bóka- hillur safnsins, en þar eru um 4000 bindi, eru skilmerkilega merktar. Sagði Snorri Hjartarson að þetta bókasafn hefði verið til húsa í Austurbæjarskólanum, en það hefði nú verið lagt niður. Hefði aðsókn verið lítil að því og mjög farið minnkandi. — Kvaðst Snorri vera mjög ánægð- ur með þetta útibú og ætla mætti að það myndi verða mikið sótt í svo fjölmennum hverfum, sem eru í næsta nágrenni. MINNI AÐSÓKN Snorri Hjartarson sagði, að vetur sem leið, hefði verið minni aðsókn að Bæjarbókasafninu og útibúum þess en t. d. í fyrravet- ur. Ekki væri gott um það að segja hvað kynni að valda, en reynslan væri sú að aðsóknin væri misjöfn ár frá ári. Karlmenn eru í meirihluta les- stofugesta, sagði Snorri, en aftur á móti eru bókaútlán til kvenna mun meiri en til karla. Og í þessu sambandi sagði hann svo frá því, að vafalítið væru þeir Kiljan og Jón Trausti mest lesnir af inn- lendum höfundum, en einnig mjög Guðrún frá Lundi. Um út- lenda höfunda væri vitað, og engin áhöld um, að þar skarar langt fram úr öðrum höfundum Frank Slaughter (Líf í læknis hendi o. fl.).Vinsælustu barna- bókahöfundarnir eru Stefán Jóns son og Jón Sveinsson. 1 sumar verður bókasafnið opið þrisvar í viku, á mánu- dögum, miðvikudögum og föstu- í dögum. Hin vistlega lestrarstofa í HólmgarfH 34.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.