Morgunblaðið - 12.04.1957, Síða 16

Morgunblaðið - 12.04.1957, Síða 16
16 MORCVNBLAÐIÐ Föstudagur 12. april 1957 SA i ustan Edens eftir John Steinbeck I 12 i Hún brosti til Adams og hanh lokaði augrunum. 4. KAFLI. I. Charles stóð við afgreiðslúborð ið í þorps-kránni og skellihló að gamansögunum, sem nokkrir um- ferðasalar, er þorpið gistu, sögðu. Hann tók upp tóbakspunginn sinn með hinum fáu silfurpeningum, er hann átti, og keypti drykk handa mönnunum, svo að þeir héldu áfram að segja sögur og stóð glottandi og neri húðflegna hnúnana. Og þegar umferðasal- arnir, sem þáðu veitingarnar með beztu lyst, lyftu o'lösum og sögðu: „Þína skál“, ljómaði Char les í framan af hamingju og hreykni. Hann pantaði aftur í glösin handa þessum nýju vinum sínum og svo f?>r hann með þeim á annan stað, þar sem fjölbreytt- ari gleðskapar var von. Þegar Cyrus haltraði út í nátt- myrkrið, brann honum í brjósti áköf reiði til yngri sonarins. títi á veginum hóf hann árangurs- lausa leit, en hélt því næst til veit 1) Andi býst til vamar upp við gildan trjástofn. 2) Á meðan. *— Það var mín sök, að þú □-------------------□ Þýðing: Sverrir Haraldsson □-------------------□ ingastofunnar, en þá var Charles farinn þaðan fyrir stundu. Ef Cyrus hefði fundið son sinn þá um nóttina, hefði hann senni- lega drepið hann, eða að minnsta kosti gert tilraun til þess. Að sjálfsögðu frétti Charles það fljótlega að faðir hans hans væri að leita að honum, vopnaður hlað inni haglabyssu. Hann fór því huldu höfði í tvær vikur og þegar hann sneri loks heim aftur, hafði drápsgirni föðurins breytzt í rétt- láta reiði og Charles bætti fyrir brot sitt með aukavinnu og falskri uppgerðaauðmýkt. Adam lá rúmfastur » fjóra daga, svo stirður og helaumur, að hann gat varla hreyft sig án þess að kveinka sér. Á þriðja degi leg- unnar sannaði faðirinn hin hern- aðarlegu áhrif sín, svo að ekki varð um villzt. Hann gerði það til misstir Anda. Nú verð ég að hjálpa þér við að finna hann. — Nei, vinur minn. Nú ferð þú heim til Maríu og barnanna þess að þóknast sínu eigin stæri- læti, en jafnframt hugðist hann rækja með því skyldur sínar við Adam. Inn í húsið — inn í svefn- herbergi Adams, komu riddaraliðs höfuðsmaður og tveir liðþjálfar í bláum einkennisfötum, en úti í húsagarðinum biðu tveir óbreytt- ir hermenn og gættu hestanna. Og þarna í rúminu var svo Adam skráður til herþjónustu, sem ó- breyttur riddaraliðsmaður. Hann undirritaði skjalið og vann eiðinn í viðurvist föður síns og Alice. Og augu föðurins voru tárvot. Þegar hermennirnir voru farn- ir, sat Cyrus langa stund við rekkju sonar síns. „Ég lét skrá þig í riddaraliðið af sérstökum ástæðum", sagði hann. „Lífið í hermannaskálunum er ekki gott til langframa. En riddaraliðsins bíða mikil ætlunar- verk. Ég er búinn að fullvissa mig um það. Þú lendir brátt í bardög- um við Indíánana. Þess verður ekki langt að bíða. Ég get ekki sagt þér hvernig ég veit þetta. En það er a. m. k. stríð í vænd- um“. „Já, sir“, sagði Adam. 2. Mig hefur alltaf furðað á því, að það skuli venjulegast vera menn éins og Adam, sem verða að gegna hlutverki hermannsins. 1 fyrstu hafði hann megnustu and úð á ba ‘dögum og því fór víðs- f jarri að sú andúð hyrfi með tím- anum — eins og hjá mörgum — heldur fór óbeit hans á öllu ofbeldi og yfirgangi sífellt vaxandi, eftir því sem hann kynntist því betur. Oftar en einu sinni grunuðu yf- irmennimir hann um skróp og og vertu nú ekki að þræta við mig. 3) Þeir kveðjast, en Markús hugsar. Þetta verður erfið leit. Eins og að leita að saumnál í hey- látalæti, enda þótt hann slyppi við beina ákæru. í þessi fimm ár, sem Adam gegndi herþjónustu, vann hann fleiri nytjaverk en nokkur annar maður í herdeild- inni, en kæmi það fyrir, að hann yrði óvini að bana, þá var það al- gert óviljaverk og slys. Á þessum árum var stríðið við Indíánana álíka hættulegt og að reka nautahjarðir til blóðvallar — kynflokkarnir voru knúðir til uppreisnar, bornir ofurliði og brytjaðir niður, en hinir fáu sem lífi héldu, urðu að taka sér ból- festu á óræktarhrjóstrum, þar sem aðeins beið þeirra örbirgð og sultur. Þetta var að vísu ekki fal- legt framferði, en vegna þróunar landsins og framfara, var það ó- hjákvæmilegt. 1 augum Adams, sem ekki sá býli og bújarðir framtíðarinnar, heldur aðeins höggna og sundur- tætta mannsbúka, var þetta gagns laust og viðbjóðslegt. Þegar hann skaut úr hermannarifflinum sín- um, með þeim fasta ásetningi að hitta ekki skotmarkið, var hann að bregðast sinni eigin sveit og svíkja hana, en slíkt lét hann sig einu gilda. Hatur til alls, sem of- beldi gat kallazt, óx og efldist hið innra hjá honum, unz það varð að hégilju, líkri öðrum þeim hé- giljum er koma í bága við hugs- un og skynsemi. Honum varð það ómögulegt með öllu, að særa nokk urn mann eða deyða, hvernig sem á stóð og hver sem í hlut átti. Samt kom það aldrei fyrir, að Adam væri brugðið um hugleysi eða löðurmennsku. Þrisvar fékk hann opinbert hrós fyrir fram- göngu sína og að lokum var hann sæmdur fyrir frábæra hreysti. Því meiri sem andúð hans varð á hvers konar ofbeldi, þeim mun ákveðnar beindist hugur hans í gagnstæða átt. Oft tefldi hann lífi sínu og limum í tvísýnu við að hjálpa sjúkum og særðum. Oft vann hann sjálfboðavinnu í sjúkra skýlunum, jafnvel þegar hann var örþreyttur eftir erfið skyldustörf. Og aldrei var hann svo hvíldar- þurfi, að hann skoraðist undan því að hjálpa og hjúkra, þegar þess var þörf. Félagarnir umgeng ust hann með vinsamlegu umburð- arlyndi og þeim óljósa beyg, er menn hafa á hvötum og tilhneig- ingum, sem þeir ekki skilja sjálfir. Charles skrifaði bróður sínum oft — um jörðina og þorpið, um veikar kýr og fylfullar hryssur, um nýkeypt beitilönd og hlöðu, sem eldingu laust niður í, um Alice sem dáið hafði úr tæringu og föðurinn sem flutti til Washing ton, þar sem beið hans vellaunað starf hjá samtökum uppgjafa-her- manna. Hann sagði frá einstæð- ingsskap sínum og vandræðum og hann setti margt það á blað, er hann sjálfur vissi ekkert um. Þann tíma sem Adam var að heiman, þekkti hann bróður sinn betur en nokkru sinni áður eða síðar. I gegnum bréfaviðskipti þeirra J bundust þeir hollustutengslum, sem þeir hefðu ekki talið hugsan- leg áður. Það var sérstaklega eitt bréf frá Charles, sem Adam geymdi, ekki vegna þess, að hann skyldi það til fullnustu, heldur af því að það virtist hafa hulda merkingu, sem hann fékk ekki skilið. stabba. 4) Langt í burtu hafa úlfarnir umkringt Anda og ætla að fara að ráðast á hann. „Kæri bróðir“, stóð í bréfinu. „Ég tek mér penna í hönd í þeirri von, að þú sért heill heilsu“. — Þannig byrjuðu öll bréfin frá Charles. „Þú hefur ekki ennþá svarað síðasta bréfinu mínu, en ég þykist vita, að þú hafir öðrum, gagnlegri störfum að sinna — ha, ha. — Rigningin kom í þetta skipt ið fyrr en venjulega og eyðilagði alveg eplauppskeruna fyrir mér. Það verður víst ekki mikið af þeim til matar, næsta vetur, en ég ætla nú að safna eins miklu og mér er mögulegt. Ég gerði húsið hreint í kvöld, svo að það er allt blautt og angandi af sápu, en kannske lítið hreinna. Geturðu skil ið, hvernig mömrnu tókst að halda öllu svona hreinu? Húsið er ekki lengur það sama og áður. Eitt- hvað hefir setzt á það. Ég veit ekki hvað það er, en það verður ekki þvegið eða skúrað af. Ég hefi þó a. m. k. dreift óhreinindunum jafn ar yfir. Ha, ha. Skrifaði pabbi þér nokkuð um ferðalag sitt? Hann fór alla leið til San Francisco í Californíu, á hermálaráðstefnu. Sjálfur her- málaráðherrann ætlar að mæta þar og pabbi á að fiytja honum kveðju ávarp. En slíkt er bara daglegur viðburður fyrir pabba. Hann hef- ur hitt forsetann þrisvar sinnum og jafnvel borðað kvöldverð í Hvíta húsinu. Gaman væri að sjá Hvíta húsið. Kannske getum við brugðið okkur þangað, þegar þú kemur heim. Pabbi gæti eflaust hýst okkur í nokkrar nætur og hann langar ’íka auðvitað til að sjá þig aftur. Líklega væri bezt fyrir mig að fara að svipast um eftir konu- efni. Þetta er ágætis bújörð og þótt ég sé að vísu ekki neitt freist andi mannsefni, þá gætu nú stúlk urnar samt hlotið það sem lakara væri. Hvað finnst þér? Þú hefur ekkert skrifað um það, hvort þú ætlir að setjast að hér heima, þeg- ar þú losnar úr hernum. Ég vona að svo verði. Ég sakna pín“. SHlltvarpiö Föstudagur 12 apríl: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 15,00 Miðdegisútvarp. 18,00 Leggj um land undir fót: Börnin feta í spor frægra landkönnuða (Leið- sögumaður: Þorvarður Örnólfs- son kennari). 18,30 Framburðar- kennsla í frönsku. 19,00 Þingfrett ir. 19,30 Létt lög (plötur). 20,30 Daglegt mál (Arnór Sigurjónsson ritstjóri). 20,35 Kvöldvaka: a) Jón Gíslason póstmaður flytur frásöguþátt af Clafi Snóksdalín ættfræðingi. b) Lög eftir Pál ís- ólfsson (plötur). c) Snorri Sig- fússon fyrrum námsstjóri les kvæði eftir Jón Björnsson rit- stjóra. d) Ólafur Þorvaldsson þingvörður flytur síðari hluta frásagnar sinnar: Sendimaður landsverzlunarinnar. 22,10 Passíu sálmur (46). 22,20 Upplestur: „Maður kemur og fer“, smásaga eftir Friðjón Stefánsson (Höfund ur les). 22,35 „Harmonikan". — Umsjónarmaður þáttarins Karl Jónatansson. 23,15 Dagskrárlok. I-augardagur 13. apríl: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigur jónsdóttir). 14,00 Heimili og skóli: Benedikt Tómasson lækn ir talar um heilsugæzlu í skólum. 15,00 Miðdegisútvarp. 16,30 Veð- urfregnir. — Endurtekið efni. — 18,00 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 18,30 Út- varpssaga barnanna: „Snjógæsin'* eftir Paul Gallico; II. (Baldur Pálmason). 18,55 Tónleikar (plöt- ur). 20,30 Upplestur: Haraldur Björnsson leikari les tvær finnsk- ar þjóðsögur. 20,50 Tónleikar: Söngur frá þriðja og fjórða ára- tug aldarinnar. — Guðmundur Jónsson flytur skýringar. 21,30 Leikrit: „Fyrir orrustuna við Canne“ eftir Kaj Munk, í þýðingu Guðjóns Guðjónssonar. Leikstjóri: Lárus Pálsson. 22,10 Passíusálm- ur (47). 22,20 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárlok. Fyrirliggjandi Úrval af hálsklú fum Kr. Þoivoldsson & heildverzlun Þingholtsstræti 11, Co. sími 81400 /dtf/rt &t/y —shampoo freyðir undursamlega Eina shampooiS sem býður yður þeiia úrval ---------- Heildverzlunin HEKI.A hl, Hverfisgötu 103 — sími 1275. BLÁTT fyrir þurrt hár. HVITT fyrir venjulegt hár. BLEIKT fyrir feitt hár. MARKÚS Eftir Ed Dodd ýHM-M-M....THIS IS SOINS TO BE A •J03... UKE HUNTINS A NEEDUE INI A HAYSTACKf ' 1 But, far away, andy BRACES HIMSELP AS THE WOLVES NARROW THEIR DEADLY CIRCLE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.