Morgunblaðið - 12.04.1957, Side 19

Morgunblaðið - 12.04.1957, Side 19
Fostudagur 12. aprfl 1957 MORCTJy fíLÁÐIÐ 19 í FYRRADAG lauk heim- sókn Peter Freuchens og koonu hans hingað til lands. Áður en þau héldu af landi brott, fóru þau í flugferð með einum Fax- anna austur í Hornafjörð og hafði flugvélin viðkomu á Kirkjubæjarklaustrl og Fagurhólsmýri. Var dr. Sigurður Þórarinsson Xeið- sögumaður Freuchens. Var hið bezta veður og þótti þeim hjónum þessl flugferð mjög skemmtileg. Einnig var flogið lnn yfir Gríms- vötn á Vatnajökli. Er þessi mynd I flugferyjunni Sigrúnu Þorleifs- tekin af Fretuchen-hjónunum og I dóttur. Eveiktn í benzínbrúsa og urðu sex mönnum uð bunu EOS ANGELES: — Kvöld eitt í fyrri viku biðu sex menn bana í krá einni í útjaðri Los Angeles, er þrír ölvaðir menn vörpuðu benzínbrúsa inn í krána — og kveiktu síðan í. 15 manns voru staddir þarna inni — og hlutu þeir sem eftir lifðu meiri og minni brunasár. Hafði eigandi veitingahússins áður um kvöldið varpað þre- menningunum á dyr vegna ó- sæmilegrar framkomu þeirra við kvenmann, sem var einn gest- anna. Gerðu mennirnir þá tilraun til þess að komast aftur inn, en var jafnskjótt varpað út. Nokkr- um andartökum síðar komu þeir aftur í dyragættina, vörpuðu stórum benzínbrúsa inn á gólfið, og einn þeirra kastaði logandi eld spýtu í brúsann, sem var opinn. Varð þá mikil sprenging, og flóði benzínið logandi út um allt gólf krárinnar — með fyrrgreindum afleiðingum. ★-★-★ Maður nokkur, sem gekk fram hjá í þessu, sá, er óbótamennirnir hlupu að bifreið þar rétt hjá — og óku á brott hið snarasta. Skaut maður þessi þrem skotum á eftir þeim, en án árangurs. Um nóttina fann lögreglan mennina. Játuðu þeir að hafa komið í veitingahúsið, en neit- uðu hins vegar óhæfuverkinu. f Kaliforníu liggur dauða- sök við athæfi sem þessu. Kreml BELGRAD og MOSKVU, 11. apríl. — Forystumenn kommún- istaflokksins albanska kcmu i dag til Moskvu til viðræðna við ráðamenn í Kreml. Á móti sendi- nefndinni tóku þeir Bulganin, Krúsjeff og Voroshilov. í tilkynn ingu frá Moskvu segir, að við- ræðurnar hefjist strax í kvöld. í Belgrad er það álitið, að tæki- færið verði notað til þess að ráð- ast á stefnu Júgóslava eins og gert var í yfirlýsingunni eftir komu Kadars til Moskvu á dög- unum. — Reuter. LONDON, 11. apríl. — Stjórnar- andstaðan hefur lýst vantrausti á brezku stjórnina og farið fram á það, að hún leiti trausts þings- ins í næstu viku. Sænskir sjómcnn krefjast hækkunar innflutiimgstolla á fiskflökum STOKKHÓLMI, 11. apríl. — Enn hafa komið frarn kröfur um það í Svíþjóð, að takmarkaður verði jnnflutningur á frosnum fiskflök- um. Að þessu sinni er það full- trúi sambands sjómanna á suð- urströndinni — í Karlskrona — sem setur fram kröfur þessar Segir hann nú ákveðið að kaupa mikið magn af fiski frá Noregi og Danmörku, en innflutn ings-„kvótinn“ sé þegar fullur. Segir hann, að stjómarvöldunum beri að gæta hagsmuna sænskra sjómanna, þar sem þeir geti ekki keppt við erlenda sjómenn. Það hljóti að varða hag Sviþjóðar, að Dagskrá Alþingis EFRI DEILD: 1. Húsnæðismálastofnun o. fl. 2. Heilsuverndarlög. 3. Kosningar til Alþingis. NEÐRI DEILD: 1. Skattur á stóreignir. 2. Umferðarlög. 3. Vísitala byggingarkostnaðar. 4. Happdrætti háskólans. 5. Eftirlit með skipum. $. Fasteignaskattur. ekki sé höggvið það nærri sjó- mönnunum sem raun ber vitni. Samtök sjómanna hafa einnig krafizt þess, að innflutningstoll- ar á innfluttum þorsk- og kola- flökum verði hækkaðir úr 45 aurum í 60 aura á kg. - Makarios Framh. af bls. 1. unnar mundi aldrei fást nema með fullkomnu samkomulagi milli Breta og Kýpurbúa. Grundvöllur fyrir slíku sam komulagi mundi hins vegar ekki fást fyrr en herlögum yrði aflétt á Kýpur, hann og prelátarnir fengju að hverfa heim, og landsstjórinn léti hætta öllum aftökum. ★-★-★ Blaðamenn spurðu Makarios að því, hvort hann fordæmdi hermdarverk EOKA á Kýpur, en hann svaraði því til, að hann hefði engu við að bæta fyrri yfirlýsingu í því sambandi. Þá var hann spurður, hvort brezka stjórnin hefði boðið honum til umræðufundar um Kýpurmálið. „Nei“ — var svar hans. Hussein Framh. af bls 1 Aðrar fregnir frá Jórdaniu eru mjög óljósar. Ástandið er mjög alvarlegt — og talið er, að Hussein sé nú í raun og veru fangi í höll sinni. Það er ekki einungis konungdómur hans sem er í veði, heldur og tilvera Jórdaníu sem ríkis. Allt er nú komið undir hern- um — hvort hann styður kon- unginn, eða hann gengur í lið kommúnista og fylgifiska þeirra. Þær fregnir fljúga í Amman, að æðsti yfirmaðwr hersins hafi gengið í lið með andstæðingum konungs. Ef svo er, þá má heita að síðasta von Husseins um stuðning hersins sé úti, því að raun- veruleg stjórn hersins er í höndum Egypta — samkvæmt fyrra samkomulagi Jórdana, Sýrlendinga og Egypta um sameiginlega stjórn hera land anna. ★ Tass-fréttastofan rússneska seg ir í kvöld. að Bandaríkjamenn hafi fellt jórdönsku stjórnina. — Þeir hafi Hussein alveg í hendi sér — og séu nú að reyna að þvinga Jódani til þess að veita „Eisenhower-áætluninni" við- töku. M.S DRÖNNING ALEXANDRINE fer frá Reykjavík til Færeyja og Kaupmannahafnar, laugardaginn 20. apríl n.k. Pantaðir farseðlar óskast sóttir fyrir 16. apríl. Til- kynningar um flutning óskast sem fyrst. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen Erlendur Pétursson. Sinfóniuhljómsveit íslands TÓNLEIKAR í kvöld kL 8,30 í Þjóðleikhúsinu Stjórnandi: Olav Kielland Einleikur: Jórunn Vsðar Viðfangsefni eftir Brahms, Schumann o. fl. Aðgöngumiðar seldir í Þjóðleikhúsinu „Syngjandi páskar“ Vegna sívaxandi aðsóknar og fjölda áskorana, hefur verið ákveðið að halda sérstaka miðdegissýningu á morg- un (laugardag) kl. 14,30 í Austurbæjarbíói. Er hér um einstætt tækifæri að ræða fyrir þá, sem ekki hafa getað sótt miðnætursýningarnar. Aðgöngumiðar hjá Eymundsson, blaðasölunni Laugavegi 30 og í Austurbæjarbíói. Fólki er ráðlagt að tryggja sér miða áður en það er orðið um seinan, því að eftirspurn er mikil. Félag íslenzkra einsöngvara Augfýsing Athygli söluskattskyldra aðila í Reykjavík skal vak in á því, að frestur til að skila framtali til skatt- stofunnar um söluskatt og útflutningssjóðsgjald, svo og farmiðagjald og iðgjaldaskatt samkv. 20.— 22. gr. laga nr. 86 frá 1956, fyrir 1. ársfjórðung 1957 rennur út 15. þ.m. Eyrir þann tíma bar gjaldendum að skila skattinum fyrir ársfjórðunginn til tollstjóraskrifstofunnar og afhenda henni afrit af framtali. Reykjavík, 10. apríl 1957. Skattsjórinn í ReRykjavík Tollstjórinn í Reykjavík. Félagslíl „Valur“ — Skíðaskáli Áskriftarlisti liggur frammi að Hlíðarenda fyrir þá er óska að dvelja yfir páskana í skíðaskála félagsins. Tilkynningar þurfa að berast fyrir föstudagskvöld. — Nefndin. Ferðafélag Islands efnir til tveggja 5 daga skemmti ferða yfir páskana, að Hagavatni og á Langjökul, og í Þórmörk. — Gist verður í sæluhúsum félags- ins. Lagt af stað í báðar ferðirn- ar á fimmtudagsmorgun (skír- dag), kl. 8 frá Austurvelli og kom ið heim á mánudagskvöld. — Upp lýsingar í skrifstofu félagsins, Túngötu 5. Sími 82533. Vinna Hreingerning-r — Gluggalireinsun Sími 7897. — Þórður og Geir. Hreingerningar Vanir menn. Fljót og góð vinna. — Sími 7892. — Alli. Hreingemingar Sfmi 2173. — Vanir og liðlegir menn. — Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir GUÐLAUG ÓLAFSDÓTTIR Blönduhlíð 27, andaðist á heimili sínu að kvöldi hins 10. apríl. Jarðarförin ákveðin síðar. Ingólfur Helgason, börn og tengdaböm. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför SIGRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR Vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för mannsins míns og föður okkar GUÐJÓNS JÓNSSONAR Laugaveg 132. Þuríður Sigurðardóttir og böm. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar INGVARS BJARNASONAR Steinunn Gísladóttir, Svava Ingvarsdóttir, Hulda Ingvarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.