Morgunblaðið - 30.05.1957, Side 1
24 síður
44. árgangur
120. tbl. — Fimmtudagur 30. maí 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
öuiles vill tafarlaust hefja vigbúnaðareftirlit
Gæti orðið fyrsta
spor til afvopnunar
Washjngton 29. maí — Einkaskeyti frá Reuter.
Á BLAÐAMANNAFUNDI í dag lýsti Dulles utanxíkisráð-
herra eftirfarandi yfir:
— Bandaríkjastjórn leggur á það megináherzlu, að víg-
búnaðarefirtlit úr lofti verði hafið hið skjótasta yfir ein-
hverju takmörkuðu svæði. Slíkt vígbúnaðareftirlit gæti orðið
fyrsta upphaf að afvopnun.
— Það er stórkostlega þýðingarmikið að hefja fyrstu
aðgerðir til að stöðva hið gegndarlausa herbúnaðarkapphlaup.
Hér skiptir ekki í sjálfu sér mestu máli, hve víðtækt víg-
búnaðareftirlit yrði í fyrstu, heldur er aðalatriðið að það
„hefjist“, hvert sem byrjunarsvæðið verður, og að það hefj-
ist sem allra fyrst.
Dulles lýsti því yfir á blaða-
mannafundinum, að Bandaríkja-
stjórn hefði enga fasta skoðun á
því, á hvaða svæði vígbúnaðar-
eftirlitið skyldi fyrst hefjast. Það
væri að sjálfsögðu samkomulags-
atriði við Rússa. Hins vegar kvað
hann Mið-Evrópu vera hið ólík-
legasta svæði til að hefja eftir-
litið yfir, því að þar blönduðust
flókin þjóðernisleg vandamál
saman við efnið.
UPPHAP AFVOPNUNAR
Fulltrúi Bandaríkjastjórnar á
afvopnunarráðstefnunni Harold
Stassen hefur fengið fyrirmæli
frá stjórn sinni um að gera allt
sem í hans valdi stendur til að
koma á byrjun vígbúnaðareftir-
lits. Þetta þýðir ekki að Banda-
ríkjamenn telji sig nú þegar geta
hætt á víðtæka afvopnun. Hún
verður ekki framkvæmd svo
tryggt sé fyrr en eftirlitið getur
hindrað sviksamlega framkvæmd
afvopnunar og tryggt að árás
verði ekki framkvæmd að óvör-
um.
„Kattarþvottur"
Adenauers
Bonn, 29. maí.
Frá Reuter.
JAFNAÐARMENN í Þýzkalandi
taka illa yfirlýsingu þeirra Eisen-
howers og Adenauers varðandi
sameiningu Þýzkalands. M. a.
sagði Fritz Heine leiðtogi þing-
flokksins, að yfirlýsing þeirra væri
aðeins kattarþvottur gerður til að
breiða yfir algert skipbrot utan-
ríkisstefnu Adenauers. Sagði
Heine að það væri augljóst, að
Sameiningarmál Þýzkalands og af
vopnunarmálin væru nú orðin að-
skilin og þar með væri stefna Ad-
enauers hrunin. — Reuter.
Þrír flokkar mynda stjórn
Stjórnmálafréttaritarar banda
rískra blaða segja að Banda-
ríkjastjórn hneigis- helzt að
því að vígbúnaðareftirlitið
hefjist yfir Norðurskautssvæð
inu. Miðja þess verði Norður-
heimskaut og verði eftirlits-
svæðið markað við breiddar-
bauga, þannig að í fyrsta
áfanga verði heimilað að taka
myndir úr iofti yfir Alaska,
Norður-Kanada, Grænlandi,
Frh. á bls. 2.
Stjórnarmyndunin í Danmörku undir forsæti H. C. Hansens hefur vakið nokkra furðu, því úrslit
kosninganna voru einmitt ósigur fyrir stefnu H. C. Hansens. En bæði Radikali flokkurinn og Réttar-
sambandið vöidu þann kost að taka upp samstarf við jafnaðarmenn. Þessi mynd var tekin í fyrra-
dag af leiðtogum stjórnarflokkanna: Jörgen Jörgensen, foringi Radikaia flokksins; H. C. Hansen,
foringi jafnaðarmanna; og Viggo Starcke, foringi Réttarsambandsins.
ítalska stjórnin
sty&ur NATO af alhug
RÓMABORG, 2 9. maí: — Hinn
nýi forsætisráðherra Italíu Adone
Zoli kynnti hina nýskipuðu ríkis-
stjórn sína í dag fyrir ítalska þing
inu. Hann flutti stefnuskráryfir-
lýsingu stjórnarinnar og kvað
hana mundu styðja Atlantshafs-
bandalagið af heilum hug cg vinna
að auknu stjórnmálabandalagi
Evrópu-ríkjanna. — Reuter.
Kjarnorkan ryður sér til
rúms sem aflgjafi skipa
TOR HELLSTEN, verkfræðingur kjarnorkunefndar Svíþjóðar,
flutti nýlega fyrirlestur á þingi norrænna vélstjóra, sem haldið
er í Gautaborg. Hefur fyrirlestur þessi vakið athygli, því að verk-
fræðingurinn leiddi sterk rök að því að frá og með árinu 1962
yrði farið að nota flutningaskip knúin kjarnorkuhreyflum.
Framh. á bls. 2.
Eru Msír-menn a& heSja hryðju-
verkaöidu í sjálSu Frakkiandi ?
Franskir stjórnmálamenn ekki taldir
Öruggir um líf sitt
S jávarútvegsráð-
herrann notaði ekki
ræðutíma sinn
Fjármálaráðherrann fylltist bölsýni
og tæpti á gengislækkun
¥jAÐ vakti mikla athygli í útvarpsumræðunum frá Alþingi 1
fyrrakvöld, að í síðustu ræðuumferð var svo dregið af fulltrúa
kommúnista, Lúðvík Jósefssyni sjávarútvegsmáiaráðherra, að
hann treysti sér ekki til þess að tala nema hálfan ræðutíma flokks
síns. Var auðsætt að manninum fannst hann bókstaflega ekkert hafa
til að tala um. Mun enginn lá honum það, því ekki hafa ráðherrar
kommúnista af mörgum afrekum að státa í stjórnartíð sinnL
og
manna eru búsettar í París
hafa blandað sér innan um borg
Framh. á bls. 2
BOLSVNl
FJÁRMÁLARÁÐHERRANS
í síðustu ræðuumferð vakti
það einnig mikla atyhgli, að eftir
að Eysteinn Jónsson fjármála-
ráðherra hafði útmálað með fögr-
um orðum öll þau stórvirki, sem
vinstri stjórnin væri að fram-
kvæma til góðs fyrir þjóðina var
skyndilega sem hann dytti ofan
í kolagröf svartsýni og böl-
hyggju.
París, 29. maí.
PARÍSAR-LÖGREGLAN hefur framkvæmt leit í íbúðum fjölda
Alsír-manna í borginni eftir morðið á Ali Chekkal s.l. sunnu-
dag. Chekkal var leiðtogi þeirra Alsír-manna sem vilja friðsamlega
sambúð við Frakka og hefur fordæmt hryðjuverk múhammeðs-
trúarmanna í Alsír. Hann var myrtur er hann var að ganga út af
íþróttavelli í París, þar sem hann var að horfa á úrslitaleikinn í
Frakklandsmeistarakeppninni í knattspyrnu. Það var ungur Alsír-
maður, Mohammed ben Sadok, sem framdi morðið og var hann
handtekinn.
TILRÆÐI I STRASSBORG
Nokkrum dögum áður hafði
Alsír-maður gert tilræði við Tre-
meaud fylkisstjóra í Strassborg,
en hann var fyrir nokkrum ár-
um fylkisstjóri í Alsír og mun
hafa átt að hefna fyrir aðgerðir
hans þá.
STJÓRNMÁLAMENN
í HÆTTU
Franska lögreglan óttast að
leynihreyfing Alsír-búa sé að
skipuleggja morð-herferð gegn
frönskum áhrifamönnum. Er
mjög örðugt að hindra tilræði,
vegna þess að tugþúsundir Alsír-
Bondoríkjamenn íhugo fækkun
herliSs í bækistöðvum erlendis
Washington, 29. maí
¥>ULLES utanríkisráðherra sagði á blaðamannafundi í dag,
H að rósturnar fyrir framan bandaríska sendiráðið í Taipei
á Formósu myndu ekki breyta viðhorfi Bandaríkjastjórnar
gagnvart kínversku þjóðernissinnastjórninni.
Hann gat þess að atburðirnir á Formósu myndu verða til
að flýta endurskoðun sem staðið hefur yfir varðandi bæki-
stöðvar bandaríska hersins í öðrum löndum. Fer athugun nú
fram á því, hvernig hægt sé að fækka herliði í þessum bæki-
stöðvum án þess að draga úr varnarmætti þeirra.
Ráðherrann talaði nú um
þau „áföll“, sem að landi og
þjóð steðjuðu nú, erfiðleika á
öflun f jármagns og hættuna á
því að öll hin viturlegu úr-
. ræði ríkisstjórnarinnar rynnu
út i sandinn. Lét hann í ljós
ótta um að Sjálfstæðismönn-
um tækist að „brjóta skörð í
víglínur“ stjórnarinnar. —
Mættu stjórnarflokkarnir þá
„ekki víla fyrir Sér að gera
þær ráðstafanir, sem þarf að
gera til þess að hægt sé að
halda þjóðarbúskapnum í
góðu horfi“.
VAR RÁÐHERRANN AÐ
BOÐA GENGISLÆKKUN?
Þetta voru ummæli fjármála-
ráðherra undir lok ræðu hans. —
Var beinlínis á honum að skilja,
að stjórnin hefði ekki ennþá gert
þær ráðstafanir, „sem þarf til
þess að hægt sé að halda þjóðar-
búskapnum í góðu horfi“.
Margir töldu að í orðum
ráðherrans fælist jafnframt
boðskapur um gengisfellingu
á næstunni. Stjórnin mætti
Frh. á bls. 2.