Morgunblaðið - 30.05.1957, Page 3
Mmmtudagur 30. maí 1957
morcvvht 4ðið
3
Stjórnarliðer fella tillögu, sem
þeir segjast vera að efni sammála
Erla þorsteinsdóttir
komin heim og heldur
söngskemmtanir
Gera mismunandi grein fyrir
atkvæðum sínum
í" GÆR voru afgreidd sex frv. sem lög frá Neðri deild Alþingis.
* Voru það frv. um hlutafélög, stofnlánadeild sjávarútvegsins,
Háskóla íslands, menningarsjóð og menntamálaráð, skemmtanaskatt
og Þjóðleikhús og vísindasjóð.
ERLA ÞORSTEINSDÓTTIR, dægurlagasöngkona, er nýkon-in frá
Danmörku og ætlar að halda hljómleika í Reykjavík og einnig
úti á landi. Haukur Morthens, dægurlagasöngvari, mun einnig koma
fram á þessum hljómleikum með Erlu.
Athyglisverð atkvæðagreiðsla
fór fram um breytingartil-
lögu Bjarna Benedkitssonar við
frumv. um hlutafélög, sem þeir
Geir Gunnarsson og Björn Jóns-
son eru flutningsmenn að. Frum-
varpið sjálft felur í sér að þegar
eigendur hlutabréfa eru ríki,
ríkisstofnanir, sveitafélög, stofn-
anir þeirra eða samvinnufélög,
skuli þeir hafa aukinn atkvæðis-
rétt í hlutafélögum, þannig að
þeim heimilast að fara með meira
en y5 samanlagðra atkvæða.
Breytingartillaga Bjarna Bene-
diktssonar hljóðar svo:
„Lögin taka þó ekki til þeirra
hlutafélaga, sem þegar hafa verið
stofnuð".
Viðhaft var nafnakall um til-
löguna, en hún var felld með 17
atkvæðum gegn 11. Einn greiddi
ekki atkvæði en 6 voru fjar-
staddir. Flestir þingmanna aðrir
en kommúnistar, sem atkvæði
greiddu á móti tillögunni, skír-
skotuðu til greinargerðar er
Skúli Guðmundsson gerði fyrir
atkvæði sínu, en hún hljóðar svo:
Þar sem ég lít svo á að þó
að frv. þetta verði að lögum
þá muni ákvæði þess ekki geta
breytt atkvæðisrétti í hlutafé-
lögum sem til eru áður en lög
þessi öðlast gildi, þá tel ég
þessa brtill. óþarfa og segi neí.
Ólafur Jóhannesson: Það
er að mínu viti augljóst mál
að ákvæði frv. þessa þó að lög-
um verði ná ekki til atkvæðis-
réttar í þeim hlutafélögum,
sem til eru við gildistöku iag-
anna. Tillagan staðfestir að-
eins þann skilning, sem ég tel
vafalausan eftir venjulegum
og eðlilegum lögskýringarregl
um. Tel ég því tillöguna þarf-
lausa, en engu spilla og greiði
ekki atkvæði.
Þeir Bjarni Benediktsson og
Ólafur Thors gerðu svofellda
grein fyrir atkvæðum sínum:
Bjarni Benediktsson: Herra
forseti. Vera kann að þær yfir-
lýsingar, sem hér hafa komið
fram og greinargerðir frá ein-
stökum þingmanna verði lald-
ar máli skipta um lögskýringu
og skal ég ekki lítið gera úr
því. Hitt er víst að á fyrri
stigum þessa máls var hjá
minnsta kosti sumum stuðn-
ingsmönnum þessa frv. og í
nefndinni þegar málið var
rætt, allt annar skilningur
uppi. Ég benti þá á að þetta
þyrfti að athuga nánar og ör-
uggt er ekki um skilninginn
nema breytingartillagan sé
samþykkt. Ég tel því vissast
að samþykkja hana, jafnvel þó
ég telji nú sýnt að þingdeildin
muni samþykkja frumvarpið i
þeirri trú að skilningur ákvæð
Keppa við Akur-
eyringa
Á SUNNUDAGINN, sjómanna-
daginn, keppir fjögurra ræðara
S-'eit, auk stýrimanns, frá Róðrar-
félagi Reykjavíkur, við róðrar-
klúbb Æ skulýðsfélags Akureyrar-
kirkju á Akureyri. Hefur sá
klúbbur venjulega komið til Rvík-
ur til þess að keppa og vann
hann síðast er sveitirnar kepptu,
1955.
Stýrimaður sveitar Róðrarfé-
lags Reykjavíkur er Gunnar Ólafs-
son, en ræðrararnir eru allir úr
Islandsmeistarasveitinni.
isins verði sá sem brtill. segir
til um. Engu að síður er ör-
uggast að samþykkja hana og
segi ég því já.
Ólafur Thors: Með tilvísun
til þess að hér eru tveir þjóð-
þekktir lögfræðingar, laga-
prófessorar fyrrv. og nú-
verandi, þar sem annar telur
nauðsyn á að samþykkja þetta,
hinn telur það að minnsta
kosti skaðlaust og sennilcga
þörf, eða ekki fjarri þvi, þá
segi ég eindregið já.
SÝNINGAR Á ÞREM STÖÐUM
Á laugardaginn 1. júní, verða
kl. 4 reistar tjaldbúðir í námunda
við Skátaheimilið, K.R.-húsið og
Víkingsheimilið við Bústaðahverfi.
Á öllum stöðunum munu skátar
sýna tjöldun, matreiðslu, hjálp í
viðlögum, frágang á tjaldstað, við-
legubúnað og fleira. Þessar sýning
ar verða endurteknar á sömu stöð-
ur kl. 5 og kl. 6. Aðgangur er
ókeypis að sýningunum og einnig
námskeiðunum sem haldin verða.
Jafnhliða þessum útisýningum
verða á sama tíma innisýningar í
Skátaheimilinu, K.R.-húsinu og
Víkingsheimilinu. Þar verður
sýndur alls konar útilegubúnaður,
Lúðvík Jósefsson var hins veg-
ar á allt öðru máli en allir aðrir
þingmenn, sem grein gerðu fyrir
atkvæðum sínum, en hann lét
svofellda skýringu fylgja sínu
atkvæði:
Ég segi nei við þessari til-
lögu, en vil taka það fram með
atkvæði mínu vegna þeirra
greinagerða, sem hér hafa
verið gefnar að ég tel fylli-
lega réttmætt að gera með
lagabreytingu þessari ákvæði,
sem einnig taka til núgildandi
eða nú stofnaðra félaga og mót
mæli alveg fyrir mitt leyti
þeirri lögskýringu, að ekki sé
hægt með lögum frá Alþingi
að breyta eins þessum lögum,
sem í gildi eru eins og öðrum.
Málið hlaut endanlega af-
greiðslu í deildinni sem lög frá
Alþingi.
tjöld, svefnpokar, fatnaður, skór,
áttavitar, bækur og fl. Sýning-
arnar verða allar endurteknar á
sunnudaginn 2. júní, á sama tíma
á sömu stöðum.
Á sýningunum gefst unglingum
12 ára ,og eldri kostur á að rita
nöfn sín á lista til þátttöku í
námskeiðunum sem fram fara á
mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag. Námskeiðin hefjast kl. 8,30
öll kvöldin. Munu kvenskátar
kenna stúlkum en skátapiltar
drengjum á námskeiðunum. Að
lokum fer svo fram sameiginleg
varðeldahátíð fyrir alla þátttak-
endur á fimmtudagskvöld 6. júní
þar sem verður ýmislegt til
skemmtunar.
Erla Þorsteinsdóttir hefur dval-
ið í Danmörku undanfarin ár og
sungið á hljómplötur hjá hinu
þetta hljómplötufyrirtæki „OD-
EON“. Einnig hefur Erla sungið
víðsvegar á skemmtistöðum í Dan-
mörku, við góðar undirtektir.
Erla er nú komin heim til að
gefa hljómplötuaðdáendum sínum
tækifæri að hlusta á sig og má
vafalaust fullyrða að margir,
yngri, sem eldri hafi áhuga á að
sjá og heyra uppáhalds söngkonu
sína á sviði, þar sem þeim hefur
ekki gefist kostur á því fyrr, að
nokkru sinnum undanteknum að
skemmtistaðnum „Jaðri“ fyrir
í gær kvöddu deildaforsetar
þingmenn, en það hafði Bern-
harð Stefánsson raunar gert í
fyrradag í Efri deild.
Einar Olgeirsson óskaði þing-
mönnum Neðri deildar góðrar
heimferðar og þess að allir
mættu þeir hittast heilir á þingi
næsta haust. Þakkaði hann ágætt
samstarf og umburðarlyndi, er
honum óvönum hefði verið sýnt
í starfi sínu.
Bjarni Benediktsson ávarpaði
forseta og kvað ástæðulaust að
leyna því, að gremir hefðu orð-
ALLSÖGULEG afgreiðsla var á
þingi í gær á frv. til laga um
breytingu á lögum um félagsheim-
ili. Frv. þetta felur í sér að bæta
á Félagsheimilasjóð verkalýðsfé-
lögum og búnaðarfélögum. Við af-
greiðslu málsins í Efri deild á
* fundi er haldinn var kl. 3 í gær
nokkrum árum.
Hauk Morthens þarf ekki að
kynna nánar í blaðagreinum, þar
sem hann hefur notið sívaxandi
vinsælda nú um margra ára skeið
sem dægurlagasöngvari.
Undirleik á hljómleikum þess-
um annast hljómsveit Kidda Vil-
helms, en hana skipa Magnús
Pétursson, píanó, Gunnar Egils-
son, clarinett, Ragnar Einarsson,
guitar, Gunnar Ingólfsson, guitar
og hljómsveitarstjórinn Kiddi Vil-
helms, trommur, auk bassaleikara.
Kynnir verður Jónas Jónasson,
útvarpsþulur.
ið með mönnum á þessu þingi
og teldu a. m. k. sumir, að for-
seti hefði á stundum getað betur
beitt valdi sínu en raun varð á.
Hins vegar kvaðst hann ekki
draga í efa persónulegan velvilja
forseta óg röggsamur hefði hann
verið í fundarstjórn. Kvaðst hann
mæla það fyrir munn allra þing-
deildarmanna er hann árnaði
honum heilla og þakkaði sam-
starfið. Risu þingmenn síðan úr
sætum sínum til samþykkis, en
forseti þakkaði.
var samþykkt svofelld breytingar-
till. frá Jóni Kj artanssyni:
„Á meðan félagsheimilasjóður
getur ekki fullnægt hlutverki sínu
sakir fjárskorts skulu félagsheim
ili í sveitum og kauptúnum sitja
fyrir um styrki úr sjóðnum".
Tillaga þessi var á fyrri fund-
inum samþykkt með 7 atkvæðum
gegn 6. Málið gekk síðan til Neðri
deildar og var það afgreitt þar
með þeirri breytingu að fyrrgreint
ákvæði var fellt úr frv.
Kom málið síðan til Efri deild-
ar á ný og fundur þar haldinn kl.
6 síðdegis. Flutti Jón Kjartansson
þá tillögu sína á ný og mælti með
henni ásamt Sigurði Bjarnasyni,
en gegn henni mæltu Gylfi Þ.
Gíslason, Hern.ann Jónasson og
Eggert Þorsteinsson.. Var tillagan
loks felld með 9 atkvæðum gegn 7.
Ennfremur felldi stjórnarliðið
brtill. frá þingmönnum Sjálfstæð-
isflokksins í báðum deildum um að
hluti af hagnaði áfengisverzlun-
arinnar skyldi renna til Félags-
heimilasjóðs.
Frv. var síðan afgreitt sem lög.
íslandsdeild P.E.N
stotnuð í gœr
MIÐVIKUDAGINN 29. þ. m. var
stofnuð íslandsdeild P.E.N., sem
er alþjóðafélag rithöfunda, rit-
stjóra og skálda. Stofnendur voru
rúmlega 20 en fundurinn sam-
þykkti að nýir meðlimir sem bæt-
ast félaginu fyrir næsta aðalfund,
sem haldinn verður í október n.k.
skyldu sömuleiðis teljast stofnfé-
lagar. Formaður félagsins var ein
róma kosinn Gunnar Gunnarsson
og meðstjórnendur Guðmundur G.
Hagalín, Helgi Hjörvar, Tómas
Guðmundsson og Kristján Karls-
son.
A5ur 33 klst. — uú 6 klst.
Fyrir nokkrum dögum var þess minnzt að 30 ár voru síðan Lindberg fiaug aleinn í krílis-flugvél
yfir Atlantshafið. Afmælisins var minnzt með því að bandarískur flugliðsforingi Robinson Risner
flaug hina sömu leið á Sabre-orrustuflugvéi. — Lindberg var 33 klst. að fljúga frá New York til
Parísar, en Robinson tók ferðin aðeins 6 klst. — Hundruð þúsunda manna þyrptust út á Le Bour-
get-flugvöllinn á sínum tíma 1927 til að fagna Lindberg. En flugvallarstjórinn einn fagnaði komu
Robinsons til sama flugvallar 1957. Sjást móttökurnar á myndinni.
Ufilífsfræðsla fyrir unglinga
á vegum Æskulýðsráðs Reykjavikur
og skátafélaganna í Rvk um helgina
UM NÆSTU helgi gangast Æskulýðsráð Reykavíkur og skáta-
félögin í Reykjavík fyrir því, að veita unglingum í Reykja-
vík og nágrenni fræðslu um útilíf og útilegustörf. Verða haldin
námskeið í þessu tilefni og unglingum kenndur ferðaútbúnaður og
ýmislegt fleira. Fréttamenn áttu í gær viðtal við undirbúningsnefnd
þessara starfsemi, en hana skipa fulltrúar frá öllum skátafélögum
í Reykjavík og Æskulýðsráði Reykjavíkur og hafði Jón Oddgeir
Jónsson orð fyrir nefndinni.
Síðustu deildalundir Alþingis
Störfum Jbess lýkur á föstudag
IGÆR voru síðustu fundir í deildum þess Alþingis er nú situr.
en gert er ráð fyrir fundi í Sameinuðu þingi á föstudaginn
á venjulegum fundartíma og að þar með ljúki þingstörfum.
Felld tillaga um nð félagsheimUi
í dreifbýli ganga fyrir um styrki