Morgunblaðið - 30.05.1957, Blaðsíða 10
MORCTJNBL4Ð1F
Fímmtudagur 30. ma! 1957
M
Yinstri stjórnin hefur
fallið á prófinu
Engin ríkisstjórn hefur verið svo slórvirk
i nð gnngn n bnk orðn sinnn
Ræða Gunnars Thoroddsens
i eldhúsdagsumræðunum á Álþingi
HERRA forseti!
Góðir hlustendur!
Um þessar mundir ganga marg
ir unglingar á fslandi undir lands
próf. Sumum gengur vel og öðr-
um miður.
í dag og í gær er íslenzka ríkis-
stjórnin að ganga undir sitt lands
próf, og mun marga fýsa að vita,
hvort hún hefur staðið sig vel,
eða svo illa, að hún falli á prófi.
Vitanlega eru það margar
greinir, sem hver ríkisstjórn
hefur með höndum. Eg skal nú
rekja nokkrar þeirra, og svo
skuluð þið, góðir hlustendur,
vera prófdómendur, íhuga
frammistöðuna og meta úrlausn-
irnar.
ORÐIÐ ÍSLANDI TIL
ÁLITSHNEKKIS
Þess er fyrst að geta, að ein
frumskylda hverrar ríkisstj. er
að gæta álits og sæmdar íslands
út á við. íslenzku þjóðinni hafði
tekizt á undanförnum árum að
afla sér vináttu og trausts meðal
vestrænna þjóða, sem við eigum
mesta samleið með um lýðfrelsi
og mannréttindi. Ályktun Al-
þingis frá 28. marz í fyrra um
brottflutning varnarilðsins, álykt
un, sem er undirstaðan að núv.
stjórarsamstarfi, varð -strax til
þess að valda íslandi álitshnekki.
Öll meðferð málsins, m. a. það,
að gera slíka ályktun án nokk-
urs samráðs við Atlantshafs-
bandalagið, eins og til var skilið
í samningum, veikti traust þess-
ara vinaþjóða á íslandi. En hálfu
meira álitstjón varð þó sjálf
stjórnarmyndunin í júlí s. 1., þeg-
ar Framsóknar- og Alþýðuflokk-
urinn tóku kommúnista með sér
í ríkisstjórn. Atlantshafsbanda-
lagið er stofnað sem varnar-
bandalag, fyrst og fremst gegn
ofbeldi og kúgun kommúnism-
ans. ísland varð fyrsta og eina
ríkið innan bandalagsins til þess
að taka kommúnista im. í ríkis-
stj. Lýðræðissinnar á Vestur-
löndum töldu þetta tiltæki reg-
inhneyksli. Þegar kommúnism-
inn opnaði augu fjölda manna um
víða veröld fyrir hinu sanna eðli
sínu með aðförUnum í Ungverja-
landi á s. 1. vetri, hefðu þessir
tveir flokkar átt að sjá sóma
sinn í því að varpa kommúnist-
um fyrir borð. Ekki gátu þeir
sýnt þann manndóm, sem þó
hefði að nokkru létt af þeim
þeirri ábyrgð, sem þeir höfðu
tekist á hendur.
Þegar svo ríkisstj. ákvað að
hætta við brottflutning varnar-
liðsins og ganga þannig frá aðal-
kosningaloforði sínu, þá var því
máli teflt svo smekklega af ís-
lenzkum stjórnarvöldum, að út
á við munu flestir hafa talið
vera beint samband milli samn-
inganna um varnarliðið og fjár-
hagsaðátoðar frá Bandaríkjunum.
Nú segir hæstv. ríkisstj.:
Hvernig má það vera, að traust
íslands út á við hafi minnkað,
þegar núv. ríkisstj. hefur tekist
að afla lána til framkvæmda eins
,og Sogsvirkjunarinnar?
SOGSVIRKJUNIN
Vissulega er það mikið fagn-
aðarefni að framkvæmdir við
Sogsvirkjunina geta nú hafist, en
málgagn stærsta stjórnarflokks-
ins virðist ekki líta svo á, að
lánsféð sé fengið fyrir fjármála-
dugnað ríkisstj. eða aukið láns-
traust, því að í forystugrein
blaðsins 9. desember s. 1. segir
svo: „Nú hefir það gerst í beinu
framhaldi af nýju hernámssamn-
ingunum, að Bandaríkin hafa allt
í einu lýst sig fús til að hlaupa
undir bagga með lán til Sogs-
virkjunarinnar.. Það liggur í aug
um uppi, að hér er náið samband
milli þess, sem gerzt hefur í her-
námsmálunum og þessa óvænta
lánstilboðs". Þessi eru orð eins
aðalstjórnarblaðsins, og þau eru
vitnisburður um það hvernig
a. m. k. nokkur hluti sjálfs stjórn-
arliðsins lítur á málið. Og allur
hefur þessi málatilbúningur orð-
ið okkur til lítillar sæmdar.
f þeirri grein að tryggja virð-
ingu, sæmd og álit íslenzku þjóð-
arinnar út á við getur núv. ríkis-
stj. ekki fengið góða einkunn.
SAMDRÁTTUR í ATVINNU-
LÍFINU
Önnur frumskylda hverrar
stjórnar er að beita sér fyrir stöð-
ugri og nægri atvinnu. Hvernig
er umhorfs i atvinnulífi íslend-
inga nú? S. 1. sex ár hefur að vísu
verið skortur á atvinnu í sum-
um byggðarlögum á vissum árs-
tímum, en á Suð-vesturlandi hef-
ur verið full atvinna fyrir alla
þá, sem sæmilega heilsu hafa.
Nú er svo komið síðustu mán-
uði, að aftur er farið að bera á
atvinnuleysi í höfuðborginni og
nágrenni hennar. Á ýmsum svið-
um atvinnulífsins er um greini-
legan samdrátt að ræða. Form.
Iðju, félags verksmiðjufólks í
Reykjavík segir í yfirlýsingu, sem
hann birti í morgun, að fyrir efna
hagsaðgerðir ríkisstj. fari nú fram
stórfelldar uppsagnir í verk-
smiðjum og mörgum verksmiðj-
um sé sumpart búið eða verið að
loka.
Örvun atvinnulífsins á öllum
sviðum og aukning framleiðsl-
unnar er aðalráðið til að bæta
lífskjör fólksins. En til þess að
svo megi verða, þarf að ríkja
bjartsýni í athafnalífinu og traust
á ríkisstj. Nú skortir mjög á
slíkt traust og bjartsýni á ís-
landi. Þvert á móti er svartsýni
og uggur í mönnum og óvissa um,
hverjar byrðar verða næst á þjóð
ina lagðar: nýjar álögur, tollar,
ný höft og hömlur, sem lama
atvinnulífið.
Þriðja stóra viðfangsefni ríkis-
stj. og náskylt því, er ég nú
nefndi, er nauðsyn þess að
tryggja jafnvægi í efnahagslíf-
inu.
Tilraunir hæstv. ríkisstj. í þeim
efnum hafa mjög farið í handa-
skolum, og nú hefur vísitölunni
verði sleppt lausri, vísitöluskrúf-
an sett í gang að nýju. í stað
þess, að fyrir kosningar var lofað
nýjum úrræðum til varanlegrar
viðreisnar í efnahagsmálum, þá
er það aðeins hið gamalkunna
úrræði, sem stjórnarflokkarnir
hafa gripið til, að hækka skatta
og tolla á öllum almenningi og
á atvinnurekstrinum sjálfum,
sem verður að greiða stórhækkuð
gjöld til að styrkja sjálfan sig.
HÆKKUN UM 400 MILLJ. KR.
Hæstv. sjútmrh. talaði um það
hér áðan af vandlætingu, að
bæjarstjórn Reykjav. hefði hækk
að rafmagnsverð í Reykjavík
um 6% og valdi það nokkurri
hækkun vísitölu. Hér er málum
blandað. Um þetta hefur bæjar-
stjórn Reykjavíkur enga ályktun
gert, heldur leiðir þessi hækkun
beinlínis af hækkun vísitölunn-
ar samkvæmt löggiltri gjaldskrá.
Það er einnig rétt að geta þess,
að jólagjafir ríkisstj. hafa stór-
hækkað allan tilkostnað Raf-
magnsveitunnar við framkvæmd-
ir og raflagnir í bænum.
Hæstv. fjmrh. hneykslaðist
mjög á því, að bæjarstjórn
Reykjavíkur hefði hækkað út-
svörin að meðaltali síðustu ár um
30 millj. á ári. Það er eðlilegt,
að hæstv. fjmrh. hneykslist á
slíku, því að á einu ári hefur hon-
um tekist að hækka gjöldin í
ríkissjóð og útflutningssjóð um
400 milj. kr.
Hinar góðkunnu jólagjafir ríkis
stj. voru vandlega útreiknaður
þannig, að sem bezt yrði laumast
fram hjá vísitölunni. Hafi nokkru
sinni verið ástæða til að tala um
rangfærslu vísitölunnar, þá er
það nú. En stórfelldar hækkanir
verða á margs konar nauðsynj-
um, og það er bersýnilegt, að
mörg atvinnu- og þjónustufyr-
uuunar Thorodds^
irtæki almennings horfa fram á
hallarekstur og hann verulegan
á þessu ári.
í efnahags- og atvinnuprófinu
hefur frammistaða stjórnarinnar
því verið ákaflega vesæl.
ENGINN VINNUFRIÐUR
Fjórða prófraun ríkisstj. er sú,
hvernig henni hefur tekist að
halda vinnufriði í landinu. Eitt
meginatriðið í núv. stjórnarsam-
starri átti að vera samvinna
verkalýðssamtaka og ríkisvalds
um að tryggja vinnufriðinn. í
þessum umræðum hefur hv. þm.
Gullbr.- og Kjósarsýslu greint
ýtarlega frá því, hvílíkur mis-
brestur hér hefur orðið á, þar sem
hver vinnustöðvunin og kaup-
hækkunin hefur rekið aðra. Nú
í dag standa sakir svo, að margar
stéttir eiga í vinnudeilum og
alveg óvíst, hvort ekki dynja yfir
margvíslegar vinnustöðvanir nú
á næstu vikum. Meðal þejrra
stétta sem nú eiga í kaupdeilum
eru prentarar, verkfræðingar,
verzlunar- og skrifstofufólk,
nokkrir starfshópar á siglingaflot
anum, starfsstúlkur á barna-
heimilum, mjólkurfræðingar og
fleiri. Þetta er þá allur vinnu-
friðurinn ,sem mest hefur verið
gumað af.
Ekki getur prófseinkunn ríkis-
stj. orðið há í þessari grein.
GJALDEYRISSKORTUR
í fimmta lagi eru gjaldeyris-
málin eitt af viðfangsefnum
hverrar ríkisstj. í skemmstu máli
er frá því að segja, að nú eftir
10 mánaða stjórn núv. ríkisstj.
er gjaldeyrisskorturinn orðinn
slíkur, að gjaldeyrir fæst ekki
til þess að festa kaup á tækjum
í bráðnauðsynleg og gjaldeyris-
sparandi mannvirki, sem allir
virðast þó sammála um að eigi
að hafa forgangsrétt. Því miður
virðast gjaldeyrisvandræðin ekki
vera stundarfyrirbæri, heldur
litlar horfur á, að úr rætist á
næstu mánuðum.
STJÓRNIN HÉLT AÐ SÉR
HÖNDUM í HÚSNÆÐIS-
MÁLUM
Sjötta prófraun ríkisstj. er
lausn húsnæðismálanna. Frv.
ríkisstj. um þau mál hefur vald-
ið miklum vonbrigðum. Mest er
gumað af hinum mikla bygg-
ingarsjóði og hve stórkostlegt fé
hann fái til útlána. Byggingar-
sjóðurirtn er aðallega nafnbreyt-
ing á varasjóði veðlánakerfisins,
en ekki nýmæli, og langmest af
fé sjóðsins er þegar fast í skulda-
bréfum og kemur því ekki til
útlána á næstu árum nema að
litlu leyti.
Ríkisstj. Ólafs Thors beitti sér
fyrir lagasetningu til lausnar á
lánum til húsbyggiga. Á þeim 9
mánuðum, sem veðlánskerfið
starfaði í tíð þeirrar stjórnar, var
lánað að meðaltali 8V2 millj. kr.
á mánuði. Síðan núv. ríkisstj.
tók við, hefur á 10 mánuðum ver-
ið lánað um 3,8 millj. kr. á
mánuði að meðaltali. Eftir að
veðlánakerfið hafði verið lögfest
var auðvitað til þess ætlast, að
ríkisstj. á hverjum tíma ynni að
því að tryggja áframhaldandi
fjármagn til þessa kerfis. En þeg
ar núv. stjórn tók við, þá hélt
hún að sér höndum lengi vel og
ætlaðist til að allt gengi að sjálfu
sér.
BYGGINGARKOSTNAÐUR
HÆKKAR
En ríkisstj. hefur afrekað ann-
að. Hún hefur valdið því, að
síðan í desembermánuði hefur
byggingarkostnaður hækkað í
landinu um 10—15%. Þetta er
vissulega vel af sér vikið á stutt-
um tíma og góðar gjafir til þeirra
þúsunda efnalítilla manna, sem
eru að reyna að koma þaki yfir
höfuð sér, að fá þannig beina
hækkun á byggingarkostnaði á
hálfu ári um 25—35 þús. kr. á
meðalíbúð.
f sjöunda lagi vil ég nefna
einn af hornsteinum lýðræðis-
ins, sem er orðheldni og áreið-
GÓÐIR VINNINGAR
Vinningar í happdrættinu eru
tveir. Fyrsti vinningur er Flug-
ferð frá Reykjavík til London og
heim aftur, en annar vinningurinn
er ferð með Gullfossi til og frá
Leith í Skotlandi.
Miðinn kostar fimm krónur og
eru happdrættismiðar til sölu hjá
Moskvu, 28. maí.
Frá Reuter-NTB.
RÚSSNESKA Sovétlýðveldið,
scm er stærsta „lýðveldi“ Sovét-
ríkjanna, hefur farið fram úr
mörgum auðvaldsríkjum í iðn-
aðarþróun sinni, að því er for-
sætisráðherrann þar, Mihail Jas-
nov, sagði í ræðu, sem hann hélt
þegar Æðstaráð Sovétríkjanna
kom saman í Kreml í dag. Hann
lýsti því yfir, að Rússneska Sov-
étlýðveldið framleiddi tvo þriðju
hluta af öllum iðnaðarvörum
Sovétríkjanna.
Jasnov sagði, að stungið
hefði verið upp á því, að 70
efnahagsráð yrðu sett á lagg-
irnar víðs vegar í lýðveldinu,
í samhljóðan við endurskipu-
anleiki stjórnmálaflokka og
stjórnmálamanna. Ef út af því
bregður, þá er sjálfur grunnur
lýðræðisins í hættu. Eg veit enga
ríkisstj. á fslandi, sem hefur ver-
ið svo stórvirk sem þessi í því að
ganga á bak orða sinna, þeirra,
er hún gaf fyrir kosningar. Má
þar nefna framkomu Alþýðu- og
Framsóknarflokksins í varnar-
málunum, stjórnarmyndun þess-
ara flokka með kommúnistum,
þvert ofan í gefin loforð, úrræða-
leysið í efnahagsmálum, hring-
snúning kommúnista varðandi
uppbótarsæti Alþfl., svo að dæmi
séu nefnd. Ekkert grefur eins
undan lýðræði og þingræði, og
ekkert veikir eins traust almenn-
ings á Alþingi eins og það, þeg-
ar almenningur sér að orðum
stjórnmálaleiðtoganna er ekki að
treysta og þau eru að engu höfð.
HLUSTENDUR FELLA
DÓMINN *
Góðir hlustendur. Ég hef látið
ríkisstj. ganga hér undir lands-
próf í 7 greinum. Ég þarf ekki að
fella neinn dóm því að ég veit,
að þið, hlustendur góðir, eruð
einfærir um að gefa ríkisstj. eink-
unnir í þessum greinum. Ég veit
það líka, áð sú einkunnagjöf
mun hjá miklum þorra fslend-
inga verða á þá leið, að ríkisstj.
falli á prófinu.
Nú er það að vísu svo um ungl-
inga, sem ekki gengur vel á prófi,
fyrir óheppni eða aðrar sakir, að
oftast eru líkur til að þeim fari
fram og þeir nái sér á strik í
næsta skipti. En því miður verð
ég að viðurkenna, að ég hef
litla sem enga von um að hæstv.
ríkisstj. bæti ráð sitt. Ég er frem
ur hræddur um að hún versni
með aldrinum. En hvað á þá að
gera? Vitanlega er ekki til nema
eitt ráð. Það er að kjósendur
landsins noti fyrsta tækifæri til
að gefa ríkisstj. og ráðherrum
hennar lausn í náð, svo að þeir
geti snúið sér að öðrum verkefn-
um, sem þeir kunna að vera hæf-
ir til að sinna, en séu ekki lengur
að föndra við stjórn landsins,
sem reynslan hefur sýnt að er
þeim algerlega um megn.
Erni Baldvinssyni, Verzlunarsparl
sjóðnum. Dregið verður í happ-
dx-ættinu þann 17. júní á lýðveld-
ishátíð sem félagið gengst þá fyrir
í London.
Formaður Islendingafélagsins í
London er nú Jóhann Sigurðsson
forstöðumaður íslenzku ferðaskrif-
stofunnar í London.
lagningu Krúsjeffs, þar eð
ráðuneytin gætu ekki lengur
annað þeim fjölmörgu vanda-
málum, sem fyrir lægju.
Jasnov kom með tillögu um að
stofna nýtt ráðuneyti fyrir olíu-
framleiðsluna, en formaður
Æðstaráðsins í Basikirija-lýð-
veldinu, sem er eitt af mikilvæg-
ustu olíusvæðum Sovétríkjanna,
var andvígur þeirri tillögu og
taldi að hún mundi leiða af sér
ný höft og taka alltof mikið af
sérmenntuðum mönnum til ó-
nauðsynlegrar vinnu. Jasnov
lagði jafnframt til, að nokkur
ráðuneyti yrðu lögð niður í Sov-
étlýðveldinu. Búlganin og Krú-
sjeff voru viðstaddir fundinn.
Flugferð eða skipsferð
til London
Happdrœtti íslendingafélagsins þar
TSLENDINGAFÉLAGIÐ í London hefur efnt til happdrættis tll
I ágóða fyrir starfsemi sína. Undanfarið hefur verið allmikið starf
í félaginu og framkvæmdir á þess vegum. Félagsmenn munu nú
vera um hundrað talsins, námsmenn í London og íslendingar sem
þar dveljast og í nágrenni borgarinnar. Eru í félaginu allmargar
íslenzkar konur giftar í Englandi. Munu margir sem um skeið hafa
-dvalizt í London minnast félagsins með þakklæti og hlýhug.
Deiit um ráðuneyts
1 Æðstaráðinu