Morgunblaðið - 02.07.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
144. tbl.
Þriðjudagur, 2. júlí 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jarðeðlásiræðiárið
hólst í fyrrakvöld
ic LONDON, 1. júlí. — í gærkvöldi kl. 8 hófst hið svonefnda
jarðeðlisfræðiár, og tóku þá um 10.000 vísindamenn til óspilltra
málanna. Hér er um að ræða umfangsmestu tilraun sögunnar til
að uppgötva hina huldu krafta jarðarinnar og þau geimöfl, sem
hafa áhrif á hnöttinn.
Þetta óhemjumikla fyrirtæki, sem mun taka hálft annað ár
og kosta um 7500 milljónir króna, felur í sér rannsóknir á jörðinni,
höfunum og himingeimnum. Menn frá 64 þjóðum taka þátt í rann-
sóknunum og eru þeir útbúnir öllum hugsanlegum tækjum og
hjálpargögnum, allt frá „gervitunglum“ niður í snjóþrúgur.
ic Jarðeðlisfræðiárið hófst um þessi mánaðamót sökum þess, að
næstu 18 mánuði verða mjög miklar „truflanir" á sólinni, samkvæmt
útreikningum vísindamanna. Slík tímabil eru með 11 ára millibili.
Það, sem gerist á sólinni, hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á veðurfar
og margt annað á jörðinni og umhverfis hana, og eru því líkur á
mörgum og merkilegum niðurstöðum af þessum rannsóknum.
if í gær talaði Eisenhower forseti í sjónvarp um þýðingu þessara
rannsókna, og Filippus hertogi af Edinborg, maður Elisabetar Breta-
drottningar, lýsti jarðaeðlisfræðiárinu í 5 stundarfjórðunga sjón-
varpi, sem var endurvarpað til Belgíu, Italíu og Svisslands. Síðar
verður þessi þáttur sýndur á kvikmynd víða um heim.
it Fjöldi þjóða á athuganastöðvar víðs vegar við suðurpólinn
og annars staðar þar sem gott er til fanga í vísindalegu tilliti.
ií Næstu 18 mánuðir eiga efiaust eftir að leiða margt nýstárlegt
í ljós, og þess vegna verður fylgzt með rannsóknunum gaumgæfi-
lega hvarvetna í heiminum.
Fréttir í stuftu máli
ic London 1. júní. í mörgum
löndum Evrópu var mældur
meiri hiti en nokkru sinni fyrr.
í París fórust yfir 50 manns af
völdum hitabylgjunnar, þar
mældist meiri nátthiti en nokkru
sinni áður, 22 gráður á Celsius.
Víða hafa skoliið á geysilegar
rigningar af völdum hitans, og
þær hafa aftur orsakað stórflóð.
Annars staðar, eins og t. d. í
Prag, hefur orðið alger vatns-
þurrð. Þar í borg týndu margar
konur háum hælum undan skóm
sínum, þegar þeir festust í mal-
bikinu á götunum.
if London, 1. júlí: Forsætis-
ráðherra Pakistan, sem er stadd-
ur á ráðstefnu forsætisráðherra
samveldislandanna í London,mun
heimsækja Hussein konung í
Amman á heimleiðinni í boði
konungs.
ic Washington, 1. júlí. Banda-
ríska jarðeðlisfræðinefndin var-
aði í dag flugvélar og skip með
ratsjá við því, að allt samband
við þau kynni að rofna vegna
sprenginga á sólinni.
ic Amman, 1. júlí. Stjórnin í
Jórdaníu tilkynnti í dag, að olíu-
boranir munu hefjast þar í landi
innan skamms, og munu banda-
rísk fyrirtæki hafa umsjón með
þeim.
it Beirut, 1. júlí. Eftir kosn-
ingarnar í Libanon hafa
stjórnarflokkarnir, sem eru
hlynntir Vesturveldunum, 53
í fulltrúadeild þingsins, en þar
sitja alls 66 menn.
★ Alsír, 1. júlí. Hersveitir
stjórnarinnar drápiu 50 uppreisn-
armenn og tóku 17 til fanga í
þriggja daga herferð fyrir norð-
an Maillot. Á síðast liðnum 48
tímum voru 10 franskir hermenn
og lögreglumenn drepnir.
★ Cameron, 1. júlí. í bænum
Cameron í Louisianafylki í Banda
ríkjunum létu yfir 500 manns líf-
ið í geysilegum flóðum, sem komu
yfir bæinn fyrir helgina. Enn
stendur vatnið meira en mann-
hæðarhátt á götunum og hafa
þar safnazt saman moskító-flug-
ur og aðrir hættulegir smitberar.
Um 7000 manns urðu heimilis-
lausir.
ic Peking, 1. júlí. Hinn *opinberi
kínverski saksóknari sagði á
fundi kínverska þjóðþingsins í
dag, að regla og löðhlýðni í al-
þýðulýðveldinu væri meiri nú
en nokkru sinni á síðustu ára-
tugum. Gagnbyltingarmenn geta
ekki lengur beitt sér eins og þeir
gerðu áður, enda hefur fækkað
í fylkingum þeirra. Á árinu 1956
minnkuðu almenn afbrot um
52,8%, en gagnbyltingarstarfsemi
minnkaði um 42,7%, sagði ákær-
andinn. Þeir, sem eru sýknaðir
af ákærum, eru sendir á sérstakar
stofnanir, sem sjá um „endurupp-
eldi“ þeirra.
Sænsku konungshjónin hrifust mjög
af stórfenglegri fegurð Þingvalla
Ifonungsfylgdin í Almannagjá. —
Gangan af gjárbarmi á Lög-
berg var konungshjónunum til
mikillar ánægjiu.
Hér sést konungsfylgdin i
Almannagjá.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Gengu af gjárbarmi á Lögberg í
glampandi sólskini - Kveðja í deg
Tj’NGINN mun betur geta lýst Þingvallaför sænsku konungs-
hjónanna í gær, í hinu bezta veðri, en konungur sjálf-
ur, er hann þakkaði hádegisverð þann er ríkisstjórnin hélt
hinum tignu gestum í Valhöll. Um leið og konungurinn færði
þakkir sínar og drottningar, baðst hann afsökunar á hve seint
þau hefðu komið í Valhöll. — Ég get gefið á því skýringu
til afsökunar, sagði konungur, og hún er sú, að hér er svo
fagurt. — í glampandi sólskini stóðu konungshjónin og
fylgdarlið á barmi Almannagjár og horfði yfir hinn fagra,
sögufræga stað. í stað þess að aka niður að Lögbergi, þar
sem einnig var staldrað við, gengu konungshjónin niður Al-
mannagjá og á Lögberg, en þar blakti íslenzki fáninn tignar-
lega í norðaustan andvaranum, og þangað barst að vitum
gestanna birkiilmurinn innan úr Þingvallaskógi. Víst er, að
Þingvallaförin mun verða meðal þess allra minnisstæðasta
frá komu konungshjónanna hingað, en þau kveðja landið
árdegis í dag.
Samveldis-
ráðstefnan
Á London, 1. júlí. Á ráðstefnu
forsætisráðherra samveldisland-
anna var rætt um afvopnun í dag.
Var forsætisráðherrum hinna 10
samveldislanda skýrt ýtarlega
frá tillögum Bandaríkjanna um
afvopnun, en þær verða senni-
lega lagðar fyrir afvopnunar-
nefndina, þegar hún kemur sam-
an á morgun. Macmillan forsæt-
isráðherra Breta og Lloyd utan-
ríkisráðherra skýrðu ráðstefn-
unni frá sjónarmiðum Breta.
Nehru forsætisráðherra Ind-
verja talaði síðar og lagðist gegn
tillögum Vesturveldanna um af-
vopnun í áföngum, en krafðist
afvopnunar hið fyrsta og um leið
algers banns við tilraunum með
kjarnorkuvopn. Nehru var eini
forsætisráðherrann, sem gagn-
rýndi tillögur Vesturveldanna, en
hins vegar taldi hann gott, að
aðrar þjóðir en Bandaríkjamenn
og Rússar ættu kjarnorkuvopn,
meðan slík vopn væru til.
Lagt var af stað austur til
Þingvalla klukkan rúmlega 11.
Hvarvetna alla leiðina upp í Mos-
fellsdal var fólk við veginn, sem
veifaði til konungsfylgdarinnar.
Útsýnið var eins gott og það get-
ur bezt verið á sólbjörtum degi.
Falleg börn, útitekin og hraust-
leg, stóðu við heimreiðir bæj-
anna, en á túnum var víða verið
að slá eða vinna við hey.
HEIMSÓKN TIL SKÁLDSINS
Það segir ekki af ferðum fyrr
en komið er upp að Gljúfra-
steini, húsi Nóbelsverðlauna-
skáldsins. Konungsvagninn og
bíll forsetafrúar og drottningar
óku þar hiklaust heim í hlað. —
En skáldið, frú Auður og
dæturnar, Sigríður og Guðný,
í léttum sumarkjólum, fögnuðu
hinum óvæntu gestum og buðu
til stofu. Konungshjónin höfðu
þarna upp undir 10 mín. viðdvöl.
Drottningin dáðist mjög að út-
saumuðu veggteppi eftir frú
Auði, og konungurin'n kom strax
auga á fjöl sem hangir yfir dyr-
um í anddyri, en það er ættar-
gripur ristur höfðaletri og er eign
skáldsins. — Konungshjónin skoð
uðu vinnustofu og bókasafn Kilj-
ans, og síðan var gengið út á
svalir hússins, en þaðan dásöm-
uðu konungshjónin hið fagra út-
sýni yfir dalinn og út til hafs-
Framh. á bls. 3.