Morgunblaðið - 02.07.1957, Síða 20

Morgunblaðið - 02.07.1957, Síða 20
VEÐRIÐ N.-A. stinningskaldi, þurrt veð- ur og léttskýjað með köflum. Svíakonungur í Þjóðminjasafninu. Sjá bls. 8. Arnarhreiður iundið í Dýraiirði ÞINGÉYRI, 1. júlí. — Um síð- ustu helgi fannst arnarhreiður hér í Dýrafirði. Yöru tveir ungar í því, státnir og bústnir. Voru það skátar af 5. skátamóti Vestfjarða, sem haldið var hér í Botni í Dýra- gert i.okkurn usla í varpi bænda og jafnvel ráðizt á lömb, þykir Dýrfirðingum þó vænt um fund hreiðursins og hyggja ekki á að hrekja arnarhjónin á braut. — Fréttaritari. A sunnudagskvöldið var hátíða- sýning I Þjóðleikhúsinu. Sýnt var Gullna hliðið. — Áður en sýning hófst voru konungshjónin hyllt þar sem þau voru í forsetastúk- unni ásamt forsetahjónunum. — Hér sjást þeir á Þjóðleikhúströpp unum forsetinn, konungurinn og þjóðleikhússtjórinn. Enn græðir Hamrafellið! Siglir fyrir miklu hœrri farmgjöld en almennt gilda á markaðnum Lúðvík gerði einnig háa samninga við vini sína Rússa SÍÐAN 6. júní hafa flutnings- gjöld fyrir svartolíu verið í kringum 28 sh. 10 pence miðað við leiðina Svartahaf—Reykja- vík. Frá því Súez-skurðurinn opnaðist hafa flutningsgjöld á hreinum olíum verið um 33 sh. 6 pence. Þær olíur eru nú fluttar með „Hamrafellinu“ skv. hinum Sóður afli í Dýrafirði ÞINGEYRI, 1. júlí. — Trillubátar hafa fiskað vel undanfarið, en síðustu dagana hefur þó dregið talsvert úr aflanum. Þegar mest veiddist var aflinn að meðaltali um ein lest á mann eftir sólar- hringsróður. Fiskurinn er frem- ur smár. Bátarnir hafa róið hér út úr firðinum. Vinna er með mesta móti. — Fréttaritari. nýgerða samningi fyrir 65 sh. eða tæplega tvöfalt markaðsverð. Munar þarna um 72 kr. á hverja smálest eða 1 milljón 150 þús. ísl. krónum á hvern Hamrafellsfarm. Þá hefur Lúðvík Jósefsson gert samning við vini sína Rússa um flutninga á svartolíunni fyrir 60 sh. á hverja smálest. Er það álíka mikið hærra á hverja smálest en markaðsverðið er nú, eins og hjá Hamrafellinu. Græða því hvor um sig góða milljón á hverri ferð. Laxá óvenju fær ÁRNESI, S-ÞING. 1. júli. — Laxá í Þingeyjasýslu er nú óvenju tær og vatnslítil. Lax er nú geng- inn upp alla ána. Veiði hefir þó verið fremur treg til þessa, en laxveiðimenn telja útlitið gott. Sumarför Varðar um Árnes- Skreiðin fSutt beint til Atríku ¥ GÆRKVÖLDI var lokið við að ferma þýzkt skip skreið hér á 1. höfninni. Skipið siglir með farminn beint til Nigeriu, og mun það vera í fyrsta skipti, sem' skreiðarfarmur er fluttur beint frá íslandi suður til markaðslanda í Afríku. Fimm manns slasast í bílslysi hjá Akranesi Bíllinn raksf á símasfaur, kasfaðisf yfir veginn og niður í skurð Akranesi, 1. júlí: LA U S T fyrir kl. 10 í gærkvöldi, varð bílslys hér skammt fyrir utan kaupstaðinn. Fólksbíll héðan frá Akranesi sem í var sex manns ók á símastaur, hentist yfir veginn og niður í djúpan skurð. Fólkið slasaðist allt meira og minna, nema einn maður sem gat náð í hjálp. Fólkinu var ekið í sjúkrahúsið hér og var þar gert að sárum þess. firði sem fundu hreiðrið, er þeir voru að ganga á f jallið. Var hreiðrið alveg uppi undir brún fjallsins í klettabelti vestanvert við botn fjarðarins. Arnarhjón þessi eru búin að sjást á hverju ári hér í Dýrafirði mörg undanfarin ár. Hafa þau senni- lega átt hréiður þarna á hverju vori, þótt ekki hafi verið komið að því fyrr. Þótt örnin hafi stundum Fólkið ætlaði á dansleik í Bif- röst þetta kvöld. Voru fjórar stúlkur í bílnum og tveir karl- menn. Hafði ein stúlkan fengið bílinn að láni hjá föður sínum og ók hún. Mun bíllinn hafa lent í lausri möl á veginum og rakst hann all harkalega á símastaur. Við áreksturinn kastaðist bíllinn skáhallt yfir veginn, lenti á ræsis- brún og stakkst síðan beint á end an niður í djúpan skurð. Sem fyrr segir slapp annar karlmannanna óslasaður. Tókst honum að opna hurðina og hjálpa hinu fólkinu út úr bílnum. Hljóp hann síðan í logandi spretti, til þess að ná í sjúkrabíl. Hitti hann fljótlega vörubíl á veginum og ók hann þegar til Akraness til þess að ná í sjúkrabíl. í milli- tíðinni hafði annan vörubíl borið að slysstaðnum. Tók hann slas- aða fólkið og ók því til sjúkra- hússins. Mætti sá bíll sjúkrabíln- um á leiðinni og snéri honum við. í sjúkrahúsinu var gert að sár- um fólksins. Karlmaðurinn sem slasaðist skarst mikið í andliti, einkum á nefi. Þurfti að sauma skurðina saman. Stúlkan sem bílnum ók fótbrotnaði og marðist einnig mjög mikið á fótum. Önn- ur stúlka marðist einnig á fótum, þriðja stúlkan hlaut stóran skurð á vinstra gagnauga og sú fjórða stóran skurð á höfuðið. Ekki voru meiðsli fólksins þó talin lífshættu leg og fékk það allt að fara heim til sín nema stúlkan sem fót- brotnaði. Hún liggur í sjúkra- húsinu. Bíllinn stórskemmdist. — Oddur. Þetta þýzka skip heitir Anton Castens og er frá Hamborg. Hafa G. Helgason og Melsted og Þór- oddur E. Jónsson tekið skipið á leigu til flutninganna, en þessir tveir aðilar hafa tryggt sölu á skreiðinni til Nigeriu. Skipið er 1,000 lesta og flytur í þessari ferð tæplega 10,000 skreiðarböggla eða um 450 lestir. Samkv. upplýsingum, er full- trúar G. Helgas. og Melsted gáfu blaðinu, hefur skipið fermt skreið á mörgum höfnum á Norðurlandi, Vestfjörðum og hér sunnaniands. Skipið heldur héðan til Lagos og Port Harcourt í Nigeriu. Að þessu sinni hefur farmurinn ekki verið seldur einni dreifingarmiðstöð, eins og yfirleitt áður, heldur fjölda kaupmanna. Á þann hátt er frekar tryggt, að verðsveiflur verði ekki á markaðinum, þegar stórir farmar berast. Hafa útflytjendur þessir aflað markaðs fyrir mun meira skreið- armagn og verður þessum útflutn ingsháttum haldið svo fremi að nægilegt magn verði fyrirliggj- andi hér til útflutnings. Auðsætt er, að mikill hagur mun vera að því að flytja skreið- ina beint á markaðinn miðsð við það, að hingað til hefur henni verið skipað upp í höfnum á meg- inlandinu. Bæði er uppskipunar- kostnaður mikill og dýrara að flytja hana þannig — með tveim skipum. Auk þess eru ekki á hverju strái skip, sem hægt er að fá til flutninganna frá megin- landinu til Afríku. t>ing n.k. sunnudag HIN ÁRLEGA skemmtiferð Varðarfélagsins verður farin næst- komandi sunnudag, 7. júlí. Að þessu sinni verður feröazt um Árnesþing. Sumarferðir Varðar hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. Hafa þessi ferðalög verið mjög eftirsótt og verið stærstu hópferðir sumarsins. Fjöldi fólks á því hinar ánægjuiegustu endur- minningar frá ferðum þessum svo sem förinni um sögustaði Njálu og förinni um Borgarfjörð á síðastliðnu sumri. Það munu því margir hugsa gott til þeirrar ferðar um Árnessýsiu, sem nú er ákveðin. Er það ekki að ófyrirsynju, því að óvíða er að finna slíka náttúru- fegurð og hvergi þá sögustaði landsins, sem merkari eru þeim, sem farið verður um í för þessari. Ekið verður um ölfus, Flóa, Skeið og inn í Þjórsárdal. Þar verða skoðaðar rústirnar í Stöng, Gjáin og Hjálparfoss. Þaðan verður svo ekið upp Hreppa að Brúarhlöðum. Komið verður við í Skál- holti og skoðuð hin nýju mannvirki þar. Þaðan verður ekið um Grímsnes upp með Sogi og umhverfis Þingvallavatn. Kunnugur leiðsögumaður verður með í förinni. Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu klukkan átta fyrlr hádegi stundvíslega. Gert er ráð fyrir að koma heim fyrir mið- nætti. Farmiðar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu næstu daga í skrifstofu félagsins, sem verður opin til kl. 7 e. h. Verði er mjög stillt í hóf og kostar farmiðinn aðeins kr. 150.00. Innifalið er hádegisverður og kvöldverður. Ráðlegast er fyrir fólk að tryggja sér farmiða tímanlega. Myndin var tekin í gærkveldi á þilfari „Anton Castens", þegar verið var að ljúka við að ferma skipið. Fremri lestin er þegar full, eins og myndin sýnir. * (Ljósm. Studio).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.