Morgunblaðið - 19.09.1957, Síða 1
20 síðuc
Maunoury afstýrir stjórnar-
kreppu í Frakklandi
Makaríos erkibiskup og leiðtogi frelsishreyfingarinnar á Kýpur er kominn til New York til að
flytja mál Kýpur-búa á 12. Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, sem hófst á þriðjudaginn. — Á
myndinni sést Makaríos með formælendum Grikkjg á þinginu, Kristianosi Palamas aðalfulltrúa
Grikkja hjá S. Þ. (t. v.) og E. A. Tossizza utanrík isráðherra Grikkja.
Faubus fyrir réft á föstudag
Frétfir i stuttu máli
BONN, 18. sept. — Adenauer, for
sætisráðherra Vestur-Þýzkalands
getur ekki þegið boð sænska for-
sætisráðherrans um að koma í
opinbera heimsókn til Svíþjóðar
í byrjun október, samkvæmt
góðum heimildum í Bonn. Hins
vegar er ekki ólíklegt að hann
feri í opinberar heimsóknir bæði
til Svíþjóðar og Danmerkur síð-
ar á árinu. Adenauer fer í einka-
heimsókn til Svíþjóðar 5. okt., en
þá mun sonur hans, George,
ganga að eiga sænska stúlku,
Ulla-Britt Jeansson í Kalmar.
NEW York, 18. sept. — Belgískl
fulltrúinn á Allsherjarþingi S.Þ.
lagði tU í dag, að tekið yrði til
athugunar, hvort S.Þ. gætu ekki
hafið upplýsingaherferð til þess
að vara íbúa heimsins við liætt-
unum, sem stafa af vígbúnaðar-
kapphlaupinu, og þá einkum af
kjarnorkuvopnum. Fór hann þess
á leit, að þetta mál yrði tekið á
dagskrá þingsins. Hann kom einn
ig fram með drög að tillögu um,
að afvopnunarnefndin leggi fram
álit sitt og uppástungur um það,
hvaða upplýsingum þyrfti helzt
að koma á framfæri við almenn-
ing.
BONN, 18. sept. — Vestur-þýzkir
Jafnaðarmenn telja ekki ástæðu
til að gera neinar breytingar á
f lokksst j órninni vegna úrslit-
anna í kosningunum á sunnudag-
inn. Þetta kom fram á fundi
ílokksstjórnarinnar í dag.
NEW YORK, 18. sept. — Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
kaus í dag formenn nefndanna
sjö, sem skipta með sér störfum,
meðan þingið situr. Formaður
fyrstu eða pólitísku nefndarinnar
var kosinn Djalal Abboh frá íran;
formaður sérstöku pólitísku nefnd
arinnar Emilio Arenales Catalan
frá Guatemala; formaður efna-
hagsnefndarinnar Jiri Nosek frá
Tékkóslóvakíu; formaður félags-
LITTLE ROCK, 18. sept. — Dóms
málaráðherra Bandaríkjanna
stefndi í dag 200 manns fyrir rétt,
sem bera eiga vitni gegn Faubus
fylkisstjóra í væntanlegum rétt-
arhöldum. Meðal þessara manna
var fræðslumálastjórinn í Arkans
as og leiðtogar samtaka hvítra
manna, sem hafa unnið að því
að útiloka börn blökkumanna frá
Skip sekkur
KAÍRÓ, 18. sept. — Egypzka far-
þegaskipið „Aida“ sökk á Rauða-
hafi í gærkvöldi um 200 sjómílur
suður af Súez. öllum 70 farþeg-
um og eigum þeirra var bjargað
í land á sunnudag af norska olíu-
flutningaskipinu „Bergehus". —
„Aida“ rakst á blindsker við
„Bræðraeyjar" fyrir nokkrum
dögum, en bjargaðist ekki þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir áhafn-
arinnar. í gærkvöldi var áhöfn-
in, 41 maður, tekin um borð í ind-
verskt skip, og tveim stundum
síðar sökk skipið.
BONN, 38. sept. — Bankavextir
i Vcstur-Þýzkalandi hafa verið
lækkaðir úr 41,-2% í 4% til að
koma í veg fyrir fjárflótta frá
öðrum ríkjum Vestur-Evrópu til
Vestur-Þýzkalands í gróðabralls
skyni, en gullstraumurinn þang
að hefur valdið ýmsum ríkis-
stjórnum í álfunni erfiðleikum
og áhyggjum. Er þetta i þriðja
sinn á 12 mánuðum, sem innláns-
vextir í Vestur-Þýzkalandi ersi
lækkaðir.
málanefndarinnar frú Aase Lio-
næs frá Noregi; formaður gæslu-
verndarnefndarinnar Thanat Kho
man frá Thaílandi; formaður fjár
veitinganefndarinnar W.H.J. van
Asch van Wyck frá Hollandi og
formaður laganefndarinnar Santi
ago Perez frá Venezuela.
Ríkjasambandið í Malaja hefur
nú verið tekið upp í Samein-
uðu þjóðirnar, og eru meðlima-
ríkin þá orðin 82.
skólum hvítra barna í fylkinu.
Fylkisstjórinn á að koma fyrir
undirrétt sambandsstjórnarinnar
í Washington á föstudag, og verð-
ur hann þá krafinn sagna um
beitingu fylkishersins til að koma
í veg fyrir að svertingjabörn
sæktu skóla hvítra barna, en það
er brot á fyrirskipun hæstarétt-
ar Bandaríkjanna. í gær voru
hermenn úr fylkishernum enn á
verði við skólana, en þeim hafði
verið fækkað niður í 15.
í borginni Nashville í Tennes-
see-fylki, þar sem óeirðir brut-
ust út í síðustu viku, hafa börn
blökkumanna nú hafið nám í sex
skólum hvítra barna án nokkurra
árekstra.
Bangkok, 18. sept.
í KVÖLD var ekki enn vitað með
vissu, hvar Songgram forsætis-
ráðherra Thailands er niður
kominn. Einn af undirmönnum
hans kom aftur til Bangkok i
dag eftir að hann hafði fylgt
ráðherranum til strandar. Kvað
hann Songgram hafa sagt, að
hann hefði ákveðið að bjóða nýja
kosti, sem væru 'illum aðilum
fyrir beztu, en hann skýrði ekki
nánar, hvað í þessum ummælum
felst.
Talið er, að Songgram sé ann-
aðhvort á leið til Kambódíu eða
til alþjóða flughafnarinnar i
Saigon. Aðrir álíta, að báturinn,
sem ráðherrann er á, sé enn und-
an ströndum Thailands og sé á
leiðinni til flotahafnar, þar sem
sonur hans er yfirmaður.
Talsmaður herstjórnarinnar I
Thailandi, sem nú hefur öll völd
í sínum höndum, sagði, að hún
hefði ákveðið í samráði við dóms
málaráðuneytið að setja á lagg-
irnar bráðabirgðastjórn, sem
stjórni landinu í 3 mánuði, en
síðan fari fram almennar kosn-
ingar. Þá er það til athugunar,
hvort herinn og löggjafarnefnd
dómsmálaráðuneytisins eigi að
semja nýja stjórnarskrá og út-
PARÍS, 18. sept. — Alvarlegri
stjórnarkreppu í Frakklandi var
afstýrt í dag, þegar Bourges-
Maunoury forsætisráðherra á-
kvaS að kalla saman leiðtoga
þingflokkanna á föstudaginn til
að ræða um áætlun stjórnarinn-
ar í Alsír-málinu, en hún felur í
sér ýmsar endurbætur á stjórn-
arháttum þar.
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum fór landvarnaráðherrann,
André Morice, sem er andvígur
öllum umbótum í Alsír, með
lausnarbeiðni sína í vasanum á
stjórnarfundinn í dag, og sagt er,
að aðrir ráðherrar séu reiðubún-
ir að feta í fótspor hans.
Forsætisráðherrann bjargaði
hins vegar stjórninni með því að
leggja til, að leiðtogar þingflokk
anna, sem styðja stjórnina, yrðu
kallaðir saman með það fyrir
augum að komast að einhverju
samkomulagi um Alsír-málið.
Þannig hefur stjórnarkreppunni
verið afstýrt í bili, en fyrir því
er engin vissa, að stjórninni sé
borgið.
Bourges-Maunoury þarfnast
stuðnings bæði íhaldsflokksins,
sem ekki á ráðherra í stjórn
hans, og Jafnaðarmanna, sem
eiga ráðherra í stjórninni, ef
hann á að fá áæthin sína um
Alsír samþykkta á þingi. í-
haldsmenn eru andvigir einu höf
uðatriði áætlunarinnar, sem sé
myndun sérstaks ríkisráðs í Al-
sír, enda þótt slíkt ráð fengi
nær engin pólitísk völd. Hins
vegar álíta Jafnaðarmenn, að á-
ætlunin gangi ekki nógu langt til
að hljóta stuðning Múhameds-
trúarmanna í Alsír.
Margir telja, að ætlun forsæt-
isráðherrans með því að kalla
saman flokksleiðtogana sé sú að
reyna að fá samkomulag um á-
ætlun, sem sé óljósari og sveigj-
anlegri en áætlunin, sem nú ligg
ur fyrir. Búizt er við, að ráð-
herrann muni leggja áherzlu á
það, að Frakkar sýni öðrum þjóð
nefna 123 nýja meðlimi til þjóð-
þingsins í stað þeirra, sem nú
sitja þar.
Sandys hættur við heimsókn
Brezka sendiráðið í Bangkok
tilkynnti í dag, að Duncan Sand-
ys landvarnaráðherra hefði hætt
við opinbera heimsókn sína til
Thailands til að auka ekki á inn-
anlandserfiðleika landsins, en
hann ætlaði að koma þar við á
leið sinni frá Ástralíu.
Varnabandalag Asíuríkjanna,
SEATO, hefur aflýst hátíðahöld-
um í sambandi við ráðstefnu hern
aðarsérfræðinga í Bangkok, sem
átti að hefjast á morgun ,en ráð
stefnan mun eiga sér stað, að því
er sagt er.
Aukið samstarf við Vestur-
veldin
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum mun herstjórnin í Thai-
landi halda áfram samstarfi við
Vesturveldin og jafnvel leggja
ríkari áherzlu á það en Song-
gram gerði.
Fyrrverandi innanríkisráð-
herra og lögreglustjóri Thailands,
Sriyanond hershöfðingi, sagði í
Genf í dag, að hann væri þess
um vilja sinn til að gera eitthvað
fyrir hina innfæddu Alsirbúa, áð
ur en Alsír-málið verður tekið til
umræðu á Allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna.
í verðlagsmálum á stefna stjórn
arinnar einnig í vök að verjast.
Einn af formælendum bænda »
þinginu tók til máls í dag og skor
aði á bændur að ryðjast inn í
þinghúsið með heykvíslar sínar.
Þessi áskorun vakti engin mót-
ínæli á þingfundinum.
Hákon VII
þungf haldinn
OSLÓ, 18. sept. Hákon VII Nor-
egskonungur, sem nýlega varð
85 ára gamall, hefur verið þungt
haldinn undanfarna daga. Hefur
hann fengið æðastíflu í hægra
fót, og síðustu tvær vikurnar hef-
ur hann einnig þjáðst af bronkít-
is. Eru læknar mjög uggandi um
heilsu konungs.
Ólafur ríkisarfi hefur gegnt
störfum konungs, síðan Hákon
mjaðmarbraut sig fyrir tveimur
árum, skömmu áður en hann
átti 50 ára konungsafmæli.
Rússnesk nefnd
í Sýrlandi
DAMASKUS, 18. sept. — f dag
kom til Damaskus rússnesk sér-
fræðinganefnd, skipuð 18 meðlim
um, sem á að semja við Sýr-
landsstjórn um einstök atriði í
efnahagsaðstoð Rússa við Sýr-
lendinga. Formaður þessarar
nefndar er Peter Nikitin, sem
er varaformaður nefndar þeirr-
ar, sem hefur umsjón með efna-
hagssambandi Rússa við önnur
lönd.
Pibul Songgram
fullviss, að Songgram værl ein-
hvers staðar í Thailandi. Hers-
höfðinginn, sem kvaðst vera 1
sumarleyfi í Svisslandi, bar til
baka orðróm um, að hann hefði
flúið frá Thailandi. Á flugvellin-
um tók á móti honum eiginkona
Songgrams fyrrverandi forsætis-
ráðherra, sem hefur ekki heyrt
neitt frá manni sínum, síðan
stjórn hans var velt úr sessi.
Formenn þingnefndn S.Þ. kosnir
Songgram fer huldu höfði