Morgunblaðið - 19.09.1957, Blaðsíða 19
#lmmtudag«r 10. sept. 1957
MORGVNBLAÐ1Ð
19
Frá utantör KR-inga:
Krislleifur setti persónulegt
mel í hverri keppni -1 ísl. met
FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN KR, sem 9 talsins fóru til Norðurlanda í
keppnisferð, eru komnir heim fyrir nokkru. Frá keppni þeirra á
einstökum stöðum hefur nokkuð verið sagt jafnóðum. En blaðið
hitti að máli þá Benedikt Jakobsson, þjálfara og fararstjóri, og
Þórð B. Sigurðsson, og beindist spjallið að förinni í heild.
Góðar móttökur
KR-ingar kepptu fyrst í Hals-
ingborg í Svíþjóð, síðan í Gauta-
borg, þá í Álaborg, í Kaupmanna
höfn og síðast í Málmey. Á öllmn
stöðunum voru fleiri eða færri
hópar erlendra „topp-manna“,
allt að 8 hópar á sumum.
Móttökur rómuðu þeir félagar,
og sögðu að ef hægt væri að
kvarta, þá væri það helzt yfir
því, hversu íburðurinn var mik-
ill. Sviar láta erlenda gesti sína
ekkert skorta, en hafa lítið sam-
band við þá. Danirnir báru þá á
örmum sér og voru innilegri. —
Alls staðar var mikill skari á-
horfenda að mótunum í 'Svíþjóð,
allt upp í 12.000. Þar eru frjáls-
íþróttir vinsælastar. Minni er
áhugi almennings í Danmörku. Á
Kaupmannahafnarmótinu kom
inn 501 kr. (dönsk) og fór allt
til að greiða kostnað við komu
KR-inga.
Kristleifur
1000 m hlaupi, 2:29,1, sem er 3.
bezti timi íslendings. Eitt Islands-
met setti hann í förinni — í 3
km hlaupi.
Árangur KR-inga í förinni var
þessi:
Pétur Rögnvaldsson: 15,1 og
síðar 15,2 í 110 m grindahlaupi,
12,14 m í kúluvarpi og 36,53 m
í kringlukasti.
Guðjón Guðmundsson: 16,2 í
110 m grhl., 11,6, 11,2 og 11,1 í
100 m hlaupi, 55,6 sek. og 54,8
síðar (bezti tími íslendings í ár
og 1/10 frá ísl. metinu) í 400 m
grhlaupi, 56,1 sek. í 440 yards
grhlaupi, 50,0 og síðar 51,8 sek.
í 400 m hlaupi.
Jón Pétursson: Tvívegis 1,80
m í hástökki.
Kristleifur Guðbjörnss.: 3:58,8
í 1500 m hlaupi, 1:56,3 í 800 m
hlaupi, 8:38,0 og síðar 8:34,8 (ísl.
met) í 3000 m hlaupi og var þá
millitími i 2 km 5:41,2, sem er
unglingamet. Hann náði 53,9 sek.
400 m hlaupi og 2:29,1 mín. í
1000 m hlaupi.
Gunnar Huseby: 15,14, 15,00,
15,95, 15,51 og 15,56 í keppni í
kúluvarpi á ýmsum stöðum. —
42,14, 39,11 og 41,36 í kringlu-
kastskeppnum.
Guðm. Hermannsson: 14,89,
15,21, 15,42 og 14,50 í kúluvarpi
og 38,91 og 39,40 í kringlukasti.
Svavar Markússon: 1:52,8 og
síðar 1:53,1 og 1:53,0 í 800 m hl.,
1:53,3 í 880 yarda hlaupi, 3:53.8
og 3:54,7 í 1500 m hlaupi og 4:10,7
(ísl. met) í míluhlaupi.
Ingi Þorsteinsson: 17,7 í 110 m
grindahlaupi.
Þórður B. Sigurðson: 50,81 m
í sleggjukasti og síðar í sömu
grein 50,54, 50,05 og 49,27 m.
Sveit KR náði 3:27,9 i 4x400 m
boðhlaupi í Kaupmannahöfn.
Svavar
Athy glisverðast
Þeir félagar sögðu að mílu-
hlaup Svavars hefði verið mesti
viðburður í þessari för KR-inga
Þar seiti Svavar glæsilegt net.
En hann gekk nærri sér og hafði
ekki að fullu náð sér, fyrr en
hópurinn fór heim, en Svavar
varð eftir og ætlaði að keppa á
fleiri mótum.
En ánægjulegast var að fylgj
ast með Kristleifi Guðbjörnssyni,
þessum unga efnismanni. Hann
setti persónulegt met í hverju
hlaupi, sigraði í hinu fyrsta eftir
hörkukeppni og í hinu síð
asta setti hann unglingamet
um
ísfirðingar rœða
2. deUdarkeppninnar
hinn sögulega úrslitaleik
VEGNA þéirra blaðaskrifa, sem i
orðið hafa vegna úrslitaleiks 2.
deildarkeppninnar, vill íþ - nta-
bandalag ísfirðinga taka fram
eftirfarandi:
Í.B.Í., hefur tekið þátt í 2. deild
arkeppninni í þau þrjú_ ár st-m
hún hefur farið fram. í ár v»r
óskað eftir þátttökutilkynningum
um miðjan marz og tilkynntu
þátttöku á Norður- Austur- og
Vestursvæðinu auk ísfirðinga,
Siglfirðingar, Skagfirðingar og
Neskaupstaður. En er mótið
skyldi haldið, gengu úr skaftinu
Sigfirðingar og Neskaupstadur,
svo að aðeins fór fram einn leik-
ur, sem ísfirðingar unnu. á 'S aður
svæðinu sigruðu Keflvíkingar. Ur
slitaleikur var ákveðinn í Reykja
vík laugardaginn 27. júlí kl. 3.
ísfirðingar höfðu ætlað sér með
flugvél til Reykjavíkur á föstu-
dag 26. júlí, en að morgni ia.;s
dags var vélin tekin til skoðunar
og var reiknað með að hún gæti
hafið flugferðir síðar um dagmn.
En kl. 7 um kvöldið var floKknum
tilkynnt að ekkert yrði úr flug-
ferð þann dag og óvíst um fíug
daginn _ eftir. Fyrirsjáanlegt var
því að ísfirðingar gátu ekki mætt
til leiks, ef nota átti flugferð. Var
þess því farið á leit að leiknum
yrði frestað, fékkst það eftu
nokkurt þóf, en aðeins um tvo
tíma, eða til kl. 5. Nú var ekki
annað til bjargar, en að reyna að
komast landleiðina. Var lagt af
stað með bát frá ísafirði kl. 9 um
kvöldið inn að Arngerðareyri og
þar tekinn bíll til Reykjavíkur,
var ekið alla nóttina og komið til
Reykjavíkur kl. 10 um morgun-
inn. Má geta nærri, hvernig pilt-
arnir hafa verið upplagðir til að
keppa, eftir 13 tíma erfitt íerða-
lag ósofnir. Leikurinn fór síðan
fram kl. 5 eins og fyrirhugað var
og lauk með jafntefli eftir
tveggja tíma baráttu.
Nú hittist svo vel á að völlur-
inn var laus á mánudagskvöld og
ákvað þá mótsstjórnin (K.R.R.)
að leikurinn skyldi fara fram
þann dag.
Daginn eftir, er svo leikurinn
auglýstur í hádegisútvarpi, en á
sama tíma er auglýstur leikur í
Njarðvík milli Akureyringa og
Keflvíkinga, var það gestaleikur
milli þessara bæja. Urðu Ísíirð-
ingar sem von var hissa á þessu
og spurðust fyrir hjá fon.— nni
K.R.R., hverju þetta sætti. Svar-
aði formaðurinn því til að mót-
stjórn hefði ákveðið úrslitaleik-
inn á mánudagskvöld og yrði
þeirri ákvörðun ekki breytt nema
með samkomulagi milli ísfirðinga
og Keflvíkinga. Fyrst á sunnu-
dagskvöld hafa Keflvíkingar sam
band við ísfirðingana, um mögu-
leika á frestun leiksins.
ísfirðingar sögðu sem var að
þeir hefðu ekki efni á að koma
aftur til Reykjavíkur til að
keppa, sökum þess að fyrirhuguð
var þriggja vikna ferð til Noregs
og Danmerkur, en bentu Kefl-
víkingum á að f resta heldur gesta
leiknum, sem þeir höfðu í hendi
sér að gera, ekki sízt þar sem
Akureyringar höfðu óskað eftir
frestun á þeim leik. Einnig kváð-
ust ísfirðingar reiðubúnir að
fresta leiknum, ef Keflvíkingar
kæmu til ísafjarðar seinna um
sumarið og léku leikinn þar. Kefl
vikingar kváðust ekki geta tekið
ákvörðun um þetta að svo stöddu,
en sögðust láta okkur vita dag-
inn eftir, kvað þeir aldrei gerðu.
Daginn eftir kom varaformaður
K.S.Í. til fundar við ísfirðingana,
samkvæmt beiðni formanns K.S.Í.
Kvað varaformaður það sína
persónulegu skoðun, að setja
bæri leik í íslandsmóti ofar
gestaleikum einstakra félaga,
jafnframt bað hann okkur að
vera tilbúna að svara því, er
á völlinn kæmi um kvöldið og
Keflvíkingarnir mættu ekki til
leiks, hvort við tækjum stigin,
eða hvort við vildum gefa Kefl-
víkingum tækifæri til að leika
við okkur seinna um sumarið á
ísafirði. Klukkan að verða átta
um kvöldið mæta ísfirðingarnir
úti á velli. Er þangað kemur sjá
þeir að völlurinn er ótilhafður,
*
ttafréttir Bð Ufðll
Helsingfors (NTB). — Á^
frjálsíþróttamóti í Ábo 17. sept.
sigraði Finninn Vuorisalo bæði
Pirie og Derek Ibbotson á 2 ensk
um mílum. Vuorisalo háði harða
keppni við Pirie og vann á síð-
ustu metrunum. Tími hans var
8:38,8 mín sem er nýtt finnskt
met. Pirie hljóp á 8:39,0 og Ibbot
son hljóp á 8:41,2. í fjórða sæti
var Englendingurinn John Disl-
ey.
í 800 m hlaupi vann Englend-
ingurinn Johnson á 1:47,9, en Sal-
onen Finnlandi hljóp á 1:48,7.
spurðu þeir einn vallarstarfs-
mann er þar var hverju þetta
sætti, kvað hann hafa verið
hringt út á völl og sagt að búið
væri að fresta leiknum. Urðum
við ísfirðingar sem von var hissa
á þessum vinnubrögðum, í sam-
bandi við frestun leiksins, þar
sem okkur hafði ekkert verið um
það tilkynnt.
Rétt fyrir kl. 9 þetta sama kvöld
kom einn af stjórnarmeðlimum
K.S.Í. út á völl og lét okkur vita
að formenn K.S.Í. og K.R.R.,
hefðu í sameiningu ákveðið að
fresta leiknum, og að því er hann
taldi án þess að hafa haft sam-
ráð við sina meðstjórnarmenn.
Ísfirðingar höfðu þá beðið tvo
daga í Rvík til að leika þenn-
an umrædda leik. Engin skýring
hefur komið á frestun þessari,
hvorki frá K.S.Í., eða K.R.R., en
formaður K.S.Í. sendi nokkru
síðar einkabréf til Í.B.Í., þar sem
hann segist hafa átt þátt í frest-
un leiksins til að firra vandræð-
um, enda verði þetta mál bezt til
lykta leitt með því að Keflvíking
ar komi til ísafjarðar síðar í
sumar og leiki þar úrslitaleikinn.
Nú gerist ekkert í málinu fyrr
en í byrjun september, að við
förum að spyrjast fyrir um hve-
nær leikurinn eigi að fara fram,
síðan eiga sér stað símtöl milli
formanns Í.B.Í. og ýmissa stjórn-
armeðlima K.S.Í. Niðurstaðan á
þeim samtölum varð sú að ísfirð-
ingar voru fúsir til að leika leik
inn hvar sem væri á landinu, ef
þeir fengju ferðakostnaðinn
greiddan, og síðast er þetta á-
réttað miðvikudaginn 11. sept.,
en þá um kvöldið ætlaði stjórn
K.S.Í. að ákveða leikinn. Dag-
inn eftir fáum við skeyti frá K.
S.Í., þar sem okkur er falið að
sjá um leikinn, sem fara eigi
fram á laugardag eða sunnudag.
Strax og okkur barst skeytið var
leikurinn auglýstur og Keflvík-
ingum tiikynnt um hann, jafn-
framt var þeim bent á heppilegar
ferðir m.a. bílferð. En svo heppi-
lega vildi til að veður var mjög
gott um þessa helgi, þannig að
ICeflvíkingum var í lófa lagið að
koma með flugvél vestur, ef þeir
hefðu haft vilja til að mæta til
leiks. Málin standa því þannig,
að ísfirðingar eru búnir að mæta
tvisvar sinnum til leiks, án þess
að Keflvíkingar hafi látið sjá sig.
ísafirði, 16. sept. 1957.
íþróttabandalag ísfirðinga.
Ráðamenn ensku deildakeppn-
innar hafa sett fram tillögur til
breytinga á sviði fjármála deild-
anna. Þessar breytingar þýða
aukin laun fyrir knattspyrnu-
mennina. Fá þeir auknar prósent
ur af upphæðum sem félögin
kaupa leikmennina fyrir og auk
þess hærri upphæðir þegar þeir
fara inn á atvinnubrautina. Til-
gangurinn með þessum breyting-
um er sá, að koma í veg fyrir
peningagreiðslur „undir borðið“
sem fram hafa farið.
Eftir nýju reglunum skal
lægsta kaup atvinnumanns,
hversu gamall sem hann er vera
1040 sterlingspund á ári fyrir
utan aukagreiðslur fyrir hvern
leik, sem þeir leika.
| Vilhjálmur annar
í langstökki
í Búkarest
í BLAÐINU í gær var frá því
skýrt að Hilmar Þorbjörns-
son hefði sigrað í 200 m hlaupi
á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti
í Búkarest. Var sú fregn frá
NTB í Oslo.
í gær barst FRl skeyti frá
ísl. flokknum, þar sem sagði
ennfremur að Vilhjálmur
hefði orðið annar í langstökki
— stökk 7,20 metra.
í skeytinu sagði ennfremur:
Góð líðan — góð ferð. Kveðj-
ur.
I. O. G. T.
St. Frón nf. 227
Fundur í kvöld á Fríkirkjuvegi
kl. 8,30. Rætt um vetrarstarfið.
Sagðar ferðasögur o. fl. Kaffi
eftir fund. — Æ.t.
St. Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kl. 8,30. Hag-
nefndaratriði annast br. Stór-
templar B. Bjarklind. Félagar eru
beðnir að fjölsækja. — Æ.t.
Maðurinn minn
GUÐJÓN EYLEIFSSON
andaðist á Landsspítalanum 16. september. Jarðarförin
ákveðin síðar.
Stefanía Guðjónsdóttir og börn.
r Móðir okkar
GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 20. sept.
kl. 1,30 e. h.
Þeim, sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á
minningarsjóð Hvítabandsins.
Elín Jósefsdóttir, Jakobína Jósefsdóttir,
Guðm. Vignir Jósefsson, Magnús Jósefsson.
Faðir okkar
JÚLÍUS GUÐBRANDSSON
andaðist á Landakotsspítalanum 9. þessa mánaðar.
Jarðarförin hefir farið fram í kyrrþey, eftir ósk hins
látna. ■*
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Fríða Júlíusdóttir Wobbi.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
MAGNÚS VIGFÚSSON
fulltrúi, Kvisthaga 3, verður jarðsunginn frá Neskirkju
föstudaginn 20. september klukkan 3 e. h.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Ragnheiður Guðbrandsdóttir,
Gróa Magnúsdóttir, Jónas Sigurðsson,
Þorbjörg Daníelsdóttir, Þórarinn Sigurðsson,
og barnabörn.