Morgunblaðið - 19.09.1957, Síða 6

Morgunblaðið - 19.09.1957, Síða 6
9 MORCVTSBl AÐIÐ Fimmtudagur 19. sept. 195 < Maðurinn, sem ætlnði að endurreisa nazistaflokk snýr nú vonsvikinn ó faraut Sjötugur 'i dag: Sigurður Sigurðsson sýslumaður og bœjarfógeti á Sauðárkróki AÐ er athyglisverð stað- reynd í úrslitum þýzku þingkosninganna á sunnu daginn, að enn einu sinni hefur þessi þjóð, sem eitt sinn studdi Hitler til valda, afneitað nazism- anum rækilega. Að vísu er nazistaflokkurinn bannaður í Vestur-Þýzkalandi. Það bann hefur hins vegar ekki hindrað, að stofnaður hefur verið flokkur þar í landi, sem er form- lega löglegur, en almenningur veit þó að er í eðli sínu aðeins samkunda gamalla nazista. Þetta er hinn svonefndi Þýzki ríkisflokkur (Deutscha Reichspartei, skammstafað DRP). t kosningunum 1949 hlaut hann um 2% atkvæða. í kosningunum 1953 1,3% og nú lækkaði fylgi hans niður í 1%. Hann hefur aldrei komið neinum fulltrúum á þing og er með öllu áhrifalaus. Fyrir nokkrum árum var flokk ur þessi eða brot úr honum nefnt mjög í Þýzkalandi í sambandi við það að einn af hershöfðingjum Otto Strasser Hitlers, Otto Remer, hélt hávaða- sama fundi með heil-hrópum og Hitlerskveðjum. En starfsemi flokksins reyndist rins og hver önnur sápukúla. Nú er Þýzki ríkisflokkurinn svo firrtur öllu fylgi, að vafasamt er að hann bjóði oftar fram, heldur leggist hann í pólitíska gröf. ★ Annað tákn um þetta sama fylgisleysi nazista í Þýzkalandi er það, að Otto Strasser, hinn 59 ára gamli nazistaleiðtogi, hefur sótt um innflytjendaleyfi til Kanada. ítrekaðar tilraunir hans til að skapa sér pólitíska for- ustuaðstöðu í nýnazistaflokk hafa farið út um þúfur. Þeir Strasserbræður, Gregor og Otto, voru bæjerskir auðmenn, sem snemma gerðust leiðtogar í nazistaflokknum. Þeir tóku þátt í Múnchen-uppreisninni 1923 og voru síðan ásamt Hitler fremstu leiðtogar hins vaxandi flokks. Þar kom að missætti varð milli þeirra og Hitlers. SS-menn myrtu Gregor en Otto flýði land. Hann fór fyrst til Tékkóslóvakíu, en 1939 fluttist hann til Kanada sem innflytjandi. Hann bjó í höfuð- borginni Ottawa og tók að snúa sér að viðskiptum þar í landi, en varð lítt ágengt. Meiri tekjur hafði hann jafnvel af því að skrifa endurminningar sínar. Gaf hann út í Ameríku minningabók um skipti sín við Hitler. Bar Otto Strasser í bætifláka fyrir nazistíska stjórnmálastefnu. — Sagði hann að það væri bara meinið, að Hitler hefði náð völd- unum, hann hefði svikið hugsjón- ir nazismans, og teflt stefnunni í mesta voða. ★ Að heimsstyrjöldinni lokinni fór Strasser strax að langa heím aftur. Það var þó ekki fyrr en 1950, sem hann fékk leyfi til að hverfa aftur til Þýzkalands. — Heimkoma hans var með allmikl- um bægslagangi. Kvaðst hann líta björtum augum til framtíð- arinnar, hann væri ákveðinn í að leggja inn á braut stjórnmál- anna og taka þar til sem frá var horfið. Lét hann í það skína, að hann væri sjálfkjörinn leiðtogi nýs nazistaflokks, sem að vísu yrði allmjög frábrugðinn hinum gamla flokki Hitlers. Um leið og Framh. á bls. 15 í DAG er Sigurður Sigurðsson sýslumaður Skagfirðinga og bæj- arfógeti á Sauðárkróki sjötugur. Sigurður er fæddur 19. sept. 1887 í Vigur í ísafjarðardjúpi sonur Sigurðar prests og alþing- ism. í Vigur. Séra Sigurður var sonur Stefáns bónda á Heiði í Gönguskörðum í Skagaf. og konu hans Guðrúnar dóttur Sigurðar Guðmundssonar hreppstjóra á Heiði er orti „Varabálk". Þeir Stefán á Heiði og Sigurður hreppstjóri tengdafaðir hans voru í tölu forustumanna Skagfirð- inga um sína daga. — Stefán á Heiði var sonur Stefáns bónda í Keflavík í Skagaf. Sigurðssonar yngra bónda í Keflavík Sigurðs- sonar bónda í Keflavík Hallgríms sonar. Hallgrímur faðir Sigurðar í Keflavík bjó á ýmsum stöðum Egg í Hegranesi Steini á Reykja- strönd o.v. Hann var mikilhæfur maður og var jafnan hreppstjóri í þeim hreppum, þar sem hanri bjó. — Hallgrímur var sonur Halldórs lögréttu- manns og annálaritara á Seylu Þorbergssonar sýslumanns á Seylu Hróflssonar sterka lög- réttumanns á Algeirssvöllum Bjarnasonar. Sigurður sýslumað- ur er því Hrólfungur, kominn í beinan karllegg af Hrólfi sterka eins og hér hefir verið rakið. Kona séra Sigurðar í Vigur og móðir Sigurðar sýslumanns var Þórunn Bjarnadóttir bónda á Kjaransstöðum Brynjólfssonar kominn af Birni Stephensen dómsmálaritara á Esjubergi syni Ólafs stiptamtmanns Stefánsson- ar. Læt ég þetta nægja til að kynna lesendum af hvaða bergi Sigurður sýslumaður er brotinn. Sigurður varð stúdent árið 1908 og cand. juris. frá Háskóla ís- lands 1914. Yfirdómslögmaður á ísafirði 1914—1921 og gengdi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Full- trúi í fjármáladeild Stjórnarráðs ins frá 1921—1924. Settur bæjar- fógeti í Vestmannaeyjum 1924. Skipaðúr sýslumaður í Skagafjs. shrifar ur daglega lífinu ¥ MORGUNBLAÐINU 30. ág. sá k ég að „Áhorfandi" hefur lesið grein mína í „einu dagblaðanna" í sumar og langar mig til að biðja um að nokkur orð verði birt frá mér til skýringar. Birting nafna afbrotamanna ANN virðist ekki hafa séð það sem ég lagði mesta áherzlu á, nefnilega það að birt- ing nafna mundi verða til þess að forða ungum mönnum frá því að lenda út á afbrotabrautina. En ég sé ekki betur en þetta dæmi, sem hann tekur af þessum unga manni, sem brotlegur hafði gerzt, sanni mitt mál algerlega. Hann taldi líf sitt vonlaust og tilgangs- laust eftir að hafa verið stimplað- ur. Ég er viss um það að þessi maður hefði aldrei gerzt brot- legur, ef hann hefði vitað fyrirfram að hann yrði stimplað ur. Það er þetta sem ég tel þjóð- félaginu hættulegt, að menn megi treysta því að fullri leynd sé haldið yfir afbrotum. Hitt veit ég og viðurkenndi í áðurnefndri grein að það væri sárt fyrir þá sem fyrir því yrðu og vandamenn þeirra. En trú mín er sú að ef til þeirrar nýbreytni kæmi að allir vissu það fyrirfr am að nöfn þeirra yrðu birt, þá yrði fáum fórnað fyrir marga og á ég þar við þann sem „Áhorfandi“ þekkti og ekki fann til þess að hann hefði neitt af sér gert fyrr en hann sá nafn sitt í blöðum En þeim yrði fórnað fyrir marga, og á ég þar við þá sem ekki mundu hætta sér út í að gerast brotlegir vegna þess að þeir vissu það fyrir fram að þeir yrðu stimplaðir. Að rekja orsakir til þjóðfélagsins ætla ég ekki að ræða hér, það yrði of langt mál fyrir þennan vettvang. Virðingarfyllst, Pétur Jónsson Reykjahlíð, Mývatnssveit Berin að vestan ÚSMÆÐUR hér í bænum, eru mjög daprar yfir berjaleys- inu sem vonlegt er. Það er ekki lítið búsílag, að eiga berjasaft og berjasultu til vetrarins. En sem betur fer, er ekki jafnlítil berja- spretta alls staðar á landinu. Á Vestfjörðum hafa verið mikil ber í sumar og Vestfirðingar hafa reynzt okkur Sunnlendingum vinir í raun hvað þetta snertir, og sent hverja berjasendinguna á fætur annarri til Reykjavíkur, auðvitað sérstaklega til vina og kunningja en aðrir notið af. Það er haft eftir starfsmanni einum hjá Flugfélagi íslands, sS ef komi pakki frá Vestfjörðum til flug- afgreiðslunnar, þá þurfi ekki að því að spyrja, að það séu ber, áður hafi það verið brauð. En í eitt skiptið brást þetta á napurlegan hátt. Hjón nokkur voru látin vita af því, að þau ættu pakka frá Vestfjörðum á aígreiðslu Flugfélagsins og beð- in að sækja hann. Þau töldu víst að þetta væru ber. Maðurinn snaraðist í mjólkurbúðina og keypti pottflösku af indæfum rjóma og ók síðan af stað eftir berjunum. Þá vildi svo óheppi- lega til, að bíllinn hans bilaði á leiðinni. Hann stöðvaði kunn- ingja sinn á götunni, og bað hann nú að aka sér í snarhasti út á flugvöll, honum lægi á, því það væri komin „berjasending að vestan“. Hann skyldi launa hon- um ómakið með því að bjóða hon um í berin þegar heim kæmi. Hinn var ekki seinn á sér, og ók út á flugvöllinn. Pakkinn var nokkuð stór og hann var varlega meðhöndlaður á leiðinni, til þess að berin kremdust ekki. Þegar heim kom voru höfð snör hand- tök. Frúin dreif skálar, sykur og rjóma á borðið og nú var komin hin langþráða stund að pakkinn yrði opnaður. — En vei, í pakk- anum voru engin ber, heldur gamlir skór sem húsbóndinn hafði gleymt í sumar í sumarfrí- inu sínu, sem hann eyddi ásamt fjölskyldu sinni fyrir vestan. 1. des. 1924 og hefir gegnt því starfi síðan, jafnaframt bæjar- fógeti á Sauðárkróki frá 24. maí 1947. Þetta er náms og starfsferill Sigurðar sýslum. í stórum drátt- um. — Eins og þetta stutta yfir- lit ber með sér hafa örlög eða atvik hagað því svo að meir en þrjá fjórðu af starfsævi Sigurðar sýslumanns að loknu embættis- prófi hefir hann dvalizt hér í Skagafirði og þessu héraði og málefnum þess hefir hann helg- að krafta sína samhliða embættis störfum sínum. Þegar Sigurður sýslumaður fluttist hingað í héraðið með fjöl skyldu sína í desember 1924 var hann nálega öllum hér ókunnur. Skagfirðingar vissu það eitt að hann var af góðu bergi brotinn, Skagfirðingur í föðurætt í marga ættliði og átti því allfjölmennt frændalið í héraðinu. Auk þess var hann tengdasonur einnar að- sópsmestu kempu héraðsins á þeim árum, séra Arnórs í Hvammi. Um komu Sigurðar sýslum. til Skagafjarðar má segja að hann kom, sá og sigraði. Á mjög skömmum tíma tókst honum að ávinna sér traust og vínáttu fjölda manna í héraðinu. Ég hygg að miklu hafi valdið um þetta að samhliða góðum hæfi- leikum og skyldurækni í embætt isstörfum fundu Skagfirðingar þar sem hann var kynborinn Skagfirðing sem skildi þá og samlagaðist þeim á skömmum tíma. Sigurður sýslumaður hefir í des.mán. n.k. verið sýslumaður okkar Skagfirðinga í 33 ár og hef- ir þá gegnt lengur sýslumanns- störfum í Skagaf. en nokkur annar sýsiumaður á undan hon- um s.l. 300 ár, eða lengur. Em- bættisstörf sín hefir hann rækt af alúð þrátt fyrir langvinnan heilsubrest, og er talinn í röð fremstu starfandi sýslumanna. Jafnframt þessum störfum hef- ir hann verið oddviti sýslunefnd- arinnar og fjárhaldsmaður og reikningshaldari sýslunnar. Einn ig þau störf hafa, farið honum prýðilega úr hendi að dómi allra | sýslunefndarmanna Skagfjs. Loks j hefir hann gegnt margvíslegum öðrum trúnaðarstörfum, þannig hefir hann setið í stjórn Búnað- arsamb. Skagf. frá stofnun þess í stjórn Sögufélags Skagf. einnig frá stofnun þess. Ennfremur hef- ir hann ávallt setið í stjórn Héraðsbókasafnsins, Héraðs- skjalasafnsins og Sjúkrahússins, svo nokkuð sé nefnt. Sigurður sýslumaður kvæntist árið 1915 Stefaníu Arnórsdóttur, frá Hvammi í Laxárdal, gáfaðri konu og glæsilegri. Þau áttu 9 börn sem öll eru á lífi: Margrét gift í Svíþjóð, Sigurður listmál- ari Rvík, Stefanía skrifstofu- stúlka Rvík, Arnór sýsluskrifari Sauðárkróki, Stefán eand. jur. fulltrúi föður síns á Sauðárkróki, Hrólfur listmál|iri Rvík, Guðrún listmálari gift í Danmörku, Árni prestur Hofsósi og Snorri skógfr. Rvik. Frú Stefanía andaðist 14. júní 1948. Sigurður sýslum. er nú stadd- ur á miklum tímamótum. Hann þokast nú yfir í sveit öldunganna en ein afleiðing þess er að hann hverfur bráðlega frá embættis- störfum og flytur burt úr hérað- inu. Þegar ég á þessum tímamótum lít yfir nær 33 ára samstarf okk- ar er margs að minnast og margt að þakka. í þessum minningum ber hæst í huga mínum hversu Sigurður sýslum. hefir ávallt ver ið reiðubúinn til að beita sér fyr- ir eða ljá lið hverju því máli er horft hefir til framfara fyrir sýslufélagið, og viðráðanlegt hef ir verið fjárhag þess. Þessi af- staða hans og liðveizla hefir orð- ið framfaramálum sýslunnar mikill styrkur og komið mörgu góðu til leiðar fyrr og síðar. Verð ur það seint full þakkað. Að endingu þakka ég Sigurði sýslum. samstarfið á liðnum ár- um, og ég hygg að ég mæli fyrir munn allra Skagf. er ég þakka honum fyrir störf hans og óska honum allra heilla á ókomnum árum. J. Sig. ★ Á SÝSLUFUNDI Skagafjarðar- sýslu s.l. vor flutti Hermann Jón* son sýslunefndarmaður Haganes- hrepps Sigurði sýslumanni eftir- farandi ávarp frá sýslunefndinni: „Þar sem nú er að þvi komið, að oddviti sýslunefndar, Sigurður Sigurðsson, sýslumaður, slíti hin- um síðasta fundi, sem gert er ráð fyrir að hann stjórni, leyfi ég mér, fyrir mína hönd og okk- ar sýslunefndarmanna allra, að þakka honum af alúð giftursam- lega stjórn sýslufunda í Skaga- fjarðarsýslu síðastliðinn 33 ár. Jafnframt þakkar sýslunefnd- in honum forgöngu og vinnu að ýmsum stórmerkum málum, sem sýslunefndin öll þessi ár hefir haft til meðferðar, og mörg hafa valdið straumhvörfum í atvinnu- heilbrigðis- og menningarmálum sýslunnar, og síðast en ekki sízt hyggilega og ráðdeildarsama fjármálastjórn sýslusjóðsins. Bað hann sýslunefndarmenn að rísa úr sætum sínum, um leið og hann bað honum blessunar nú og alla tíma. Tóku sýslunefndar- menn undir það með ferföldu húrrahrópi. Sýslumaður, ávarpaði síðar sýslufundinn með þessum orðum: „Nú þegar að því er komið, að ég í síðasta sinni slíti aðalfundi sýslunefndar Skagfirðinga, eftir 33 ára setu í nefndinni, vil ég votta öllum sýslunefndarmönn- um, ásamt fundarriturum nefnd- arinnar, sem ég hef unnið með, fyrr og síðar, hjartanlegar þakk- ir mínar fyrir góða og hugljúfa samvinnu og mér auðsýnda góð- vild og drengskap. Bið ég sýslunefndinni og sýslu- félaginu blessunar um allan ald- ur. Megi heill og heiður jafnan fylgja gjörðum sýslunefndar Skagfirðinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.