Morgunblaðið - 06.10.1957, Síða 2
s
mnncrnvnr aoið
Sunnudagur C. okt. 1957'
Gamla Gasstöðín — húsin og geymirinn bráðlega rifin.
Gasstöðin og geymirinn rifin
- aðalslökkvistöðin verður þar
AÐALSLÖKKVISTÖÐ Keykjavíkur mun rísa af grunni í mikilli
byggingu, sem reist verður þar sem nú er hin gamla Gasstöð
Reykjavíkur, en hún verður rifin, svo og gasgeymirinn.
Þegar að því dró að Gasstöðin
yrði lögð niður, var farið að
hugsa fyrir því hvaða stofnun
bæjarins skyldi fá hina stóru og
góðu lóð þar og /ar fljótt að því
hallazt að flytja þangað slökkvi-
stöðina. Þar verður stöðin mjög
miðsvæðis í hinni ört stækkandi
borg, helztu aðalgöturnar um bæ
inn og í úthverfi hans liggja
þarna rétt hjá og þaðan er stutt
til hafnarhverfisins.
Á fundi bæjarráðs er haldinn
var á föstudag var lögð fram
greinargerð frá slökkviliðsstjóra
bæjarins, húsameistara bæjarins
og skipulagsstjóra um hvernig
gasstöðvarlóðin skuli hagnýtt fyr
ir slökkvistöð, og með þeirri til-
lögu að aðalslökkvistöð bæjarins
verði þar. Gasstöðvarhúsið gamla
er svo óhentugt að ekki er mögu-
leiki á að hagnýta það neitt í
sambandi við byggingu slökkvi-
stöðvarinnar og sama máli gegn-
ir um gasgeyminn mikla. Leggja
þeir til að mannvirki þessi verði
seld til niðurrifs.
Þeir leggja og til að lóð vöru-
bílastöðvarinnar Þróttar verði
lögð undir gasstöðvarlóðina.
A horni Rauðarárstígs og
Hverfisgötu leggja nefndarmenn-
irnir þrír til að byggt verði mik-
il skrifstofubygging, sem ekki að
eins verði fyrir rekstur og starf-
semi slökkviliðsins, því að nokk-
ur hluti þess á að vera 8—10
hæðir. — Fyrir aftan þessa
stórbyggingu verði port er veit
út að Skúlatorgi, sem sumir kaila
í dag Hörputorg, en þar verði inn
keyrsla fyrir bíla slökkviliðsins
Hernoðnrástand
í Bnenos Aires
BUENOS AIRES, 5. okt,—Stjórn
Argentínu hefur lýst yfir hern-
aðarástandi í Buenos Aires vegna
verkfallshótana flestra verkalýðs
sambandanna í landinu.
í gær voru sjö leiðtogar verka-
lýðshreyfingarinnar handteknir
fyrir að stofna til æsinga og hafa
mörg verkalýðsfélög ákveðið að
hefja mótmælaverkföll. Alvar-
legust er hótun slátrara og kjöt-
iðnaðarmanna, sem ætla að hefja
verkfall á mánudaginn og skal
það standa óákveðinn tíma. —
Krefjast verkfallsmenn að hinir
handteknu verði tafarlaust látnir
lausir. Alls munu 170 manns hafa
verið handteknir s. 1. nótt.
Margir eru þeir verkalýðs-
foringjar, sem vilja fara varlega
í sakirnar. Telja þeir að aftur-
haldsöfl í argentínsku stjóminni
séu að reyna að æsa verkalýðs-
félögin upp til óeirða svo fengin
sé átylla til róttækari aðgerða
gegn þeim. —Reuter.
Friðun vatnasilungs
Landbúnaðarráðuneytið hefur
nýlega ákveðið, að vatnasilung-
ur, annar en murta, skuli vera
friðaður fyrir allri veiði frá 27.
sept. til 31. janúar á hverjum
vetri. Ákvörðun þessi er tekin
samkvæmt tillögu frá veiðfmála-
stjóra og styðst við lögin um lax-
og silungsveiði, sem sett voru í
vor. Ástæða er til að vekja at-
hygli á, að bannið nær bæði til
netja- og stangaveiði, og er það
breyting frá því, er áður var.
Viðskiptasamningur við
Tékka undirritaður
Bœjakeppnin kl. 4 í dag
í DAG kl. 4 fer fram bæjakeppni milli Reykjavíkur og Akraness
Vrerður leikurinn háður á Melavellinum. Verður þetta áttundi leik-
ur þessara aðila. Akranes hefur sigrað 4 sinnum, Reykjavík tvisvar,
en jafntefli orðið einu sinni. Akurnesingar hafa skorað 24 mörk,
en Reykvíkingar 15. — Lið Reykjavíkur:
Björgvin Hermannsson (Val),
Hreiðar Ársælsson (KR), Guðmundur Guðmundsson (Fram),
Páll Aronss. (Val), Halld. Lúðvígss. (Fram), Hinrik Láruss. (Fram',
Árni Njálsson (Val), Guðmundur Óskarsson (Fram),
Dagbj. Grímss. (Fram), Þorbj. Friðrikss. (KR), Sk. Nielsen (Fram).
Eftir bæjakeppnina fer fram
úrslitaleikur í Reykjavíkurmóti
2. fl. B milli KR og Fram, en lið-
in hafa skilið jöfn í síðustu 5
leikum sínum.
Fyrir leikinn fer fram hinn ár-
legi leikur milli úrvalsliða úr
Austurbæ og Vesturbæ í 3. fl. og
hefst hann kl. 2.45. Lið Vestur-
Handknattleikur
hjá ÍR
ÞESSA dagana er vetrarstarfsemj
íþróttafélaganna í Reykjavík að
hefjast. Ein af vinsælustu íþrótta-
greinunum, sem aðalega eru æfð-
ar vetrarmánuðina, er handknatt-
leikur karla og kvenna.
Hjá ÍR hafa stúlkur ekki æft
handknattleik undanfarin ar. en
nú hefur stjórn Handknattleiks-
deildar ÍR ákveðið að mynda
kvennaflokk. Um tíma var hand-
knattleikur kvenna mjög vinsæll
innan ÍR, t. d. urðu ÍR stúikur
Reykjavíkurmeistarar 1949. —
Fyrsta æfing kvennaflokks IR
verður í ÍR-húsinu við Túngötu
á mánudaginn kl. 18,30—19,30.
Þær stúlkur, sem áhuga hafa á
því að iðka handknattleik hjá ÍR
í vetur geta einnig látið skrá sig
í ÍR-húsinu.
bæjar verður: Ögmundur Einars
son (Þróttur), Þór Jónsson (KR)
Eysteinn Guðmundsson (Þrótt-
ur), Gísli Sigurðsson (KR),
Björgólfur Guðmundsson (KR),
Þórður Ásgeirsson (Þróttur),
Gunnsteinn Lárusson (Þróttur),
Jón Sigurðsson (KR), Sigurður
Óskarsson (KR), Magnús Jóns-
son (KR) og Pétur Sigurðsson
(KR). Varamenn: Gísli Þorkels-
son og Óskar Jónsson (KR) og
Ómar Magnússon og Haukur Þor-
valdsson (Þrótti).
Lið Austurbæjar: Sigurður
Elísson (Fram), Ólafur Ragnars
son (Val), Hrannar Haraldsson
(F), Reynir Jóhannsson (F), Hall
grímur Þorsteinsson (F), Hans
Guðmundsson (Val), Skúli Guð
mundsson (F), Einar Guðmunds
son (F), Davíð Helgason (Val),
Bergsteinn Magnússon (Val), og
Helgi Magnússon (Val). Varam.:
Helgi Númason (Val), Ólafur
Geirsson, Ingólfur Óskarsson og
Þorgeir Lúðvíksson (Fram).
Æfingar að hefjast hjá
skylmingafél. Gunnloga
SKYLMINGAFÉLAGIÐ Gunnlogi er um þessar mundir að hefja
vetrarstarfið og verða æfingar þrisvar í viku í fimleikasal Mið
bæjarskólans. Kennari verður nú sem fyrr Klemenz Jónsson, en
hann hefur nú kennt þessa íþrótt í 10 ár hérlendis, en áður lærði
hann í Englandi.
Skylmingaíþróttin er karlmann
leg íþrótt og alhliða. Ungir sem
gamlir geta stundað hana. Margir
fslendingar eru orðnir sænulegir
í skylmingum, en það er galli að
ekki er æft yfir sumartímann.
Það má ekki slaka á svo langan
tíma, Þá tapast mýkt, sem er svo
nauðsynleg í þessari íþróttagrein.
Áhöld eru nokkuð dýr og
áhaldabrot tíð. Félagið leggur
áhöld til og kostar þá þátttakan
100 kr. á mánuði eða 8 krór.ur
æfingastundin. — Formaður
Gunnloga er Garðar Steinason,
en aðrir í stjórn Kristján Guð-
laugsson og Rafn Hafnfjörð.
HINN 1. október var undirritað-
ur i Prag nýr viðskiptasamning-
ur milli íslands og Tékkóslóvakíu.
Samninginn undirrituðu formenn
íslenzku og tékknesku samninga-
nefndanna þeir Þórhallur Ás-
geirsson og Frantisek Schlegl.
Gildir samningurinn í þrjú ár til
31. ágúst 1960, en vörulistar, sem
jafnframt var samið um, gilda í
eitt ár frá 1. september 1957 til
31. ágúst 1958.
Samningurinn er svo til sam-
hljóða viðskiptasamningi þeim,
sem gerður var árið 1954 til
þriggja ára og rann út 31. ágúst
1957. Vörulistamir eru einnig lít-
ið breyttir frá því sem áður var,
og er gert ráð fyrir því, að and-
virði viðskiptanna verði svipað
því, sem verið hefur á síðasta
ári.
í samningnum er gert ráð fyr-
ir sölu til Tékkóslóvaldu á fryst-
um fiskflökum, frystri og saltaðri
síld, fiskimjöli, lýsi og ýmsum
öðrum afurðum svo sem húðum,
görnum, osti, kjöti, ull og niður-
soðnum fiskafurðum. Á móti
þessu er gert ráð fyrir, að íslend-
ingar kaupi frá Tékkóslóvakíu
ýmsar vörutegundir svo sem
vefnaðarvörur, skófatnað, pappírs
vörur, gler og glervÖrur, asbest-
vörur, búsáhöld, vélar og tæki,
miðstöðvarofna, bifreiðir, hjól-
barða, járn og stál, rafmagns-
vörur o. fl.
(Frá utanrikisráðuneytinu).
Fleiri hneffir fylgja á effir
sapði rússneskur vísindamaður á fundi
jarðeðlisfræðiráðsins
WASHINGTON, 5. okt. — Þegar fulltrúi Rússlands á alþjóðaráð-
stefnu jarðeðlisfræðiársins, sem haldin er í Washington, gekk inn 1
fundarsalinn i dag, var hann hylltur af þingheimi og formaður
jarðeðlisfræðiráðsins, Joseph Catlett, lýsti því yfir í stuttu ávarpi,
að merk tíðindi hefðu gerzt, þar sem Rússar hefðu nú skotið fyrsta
gervihnettinum á loft.
30—35 æfðu í fyrra
Klemenz skýrði blaðinu svo
frá að 1948 hafi hann stofnað
einkaskóla í skylmingum. Nokkr-
ir nemenda hans stofnuðu svo
félagið Gunnioga og réðist hann
til félagsins sem kennari við stofn
un þess 1951.
í fyrra sagði Klemenz, æfðu
30—35 menn að staðaldri. Áhugi
manna er venjulega mestui í byrj
un en úthaldið hefur viljað
bresta. Til að ná tökum á skylm-
ingum verður að æfa minnst 4
ár. Undirstöðuatriði tekur langan
tíma að kenna og sumir gefast
upp.
Fulltrúi Rússa, sem heitir dr.
A. R. Blagonarov, skýrði frá því
í stuttu erindi, að skömmu áður
en hann hefði farið frá Rússlandi,
hefðu starfsmenn hans þar verið
að ljúka undirbúningi undir það
að skjóta gervihnettinum upp.
Enn þó hefði ekki verið afráðið
þá hvorum af tveimur hnöttum
yrði skotið upp
Kvað vísindamaðurinn að um
tvo hnetti hefði verið að velja,
Hussein leifar sfuSnings
hjá Saud
AMMAN, 5. okt. — Hussein kon-
ungur af Jordan tilkynnti í dag,
að hann myndi senda sérstaka
sendinefnd til Saud Arabíukon-
ungs til viðræðna um ákveðin
vandamál. Viðræðuefnin eru tal-
in vera sambúð Jórdana annars
vegar og Sýrlendinga og Egypta
hins vegar. Kvarta Jórdanir yfir
stöðugum áróðri og undirróðurs-
starfsemi sem eigi rætur að
rekja til nágranna þeirra.
F jórar flugvélar veð-
urleppiar á Akureyri
AKUREYRI, 5. okt. — S. 1. nótt
gistu fjórar flugvélar Akureyrar-
flugvöll, sökum þess að þær gátu
ekki lent í Reykjavík. Meðal
þeirra var Viscount-vél frá Flug-
félaginu, sem var að koma frá
London.
Að undanförnu hafa farið fram
lagfæringar á Akureyrarflugvelli
til þess að Viscountvélar geti lent
þar og hafið sig til flugs. Er
Akureyrarflugvöllur eini vara-
flugvöllur þessara véla á Norður-
landi.
Auk þess voru þrjár Douglas-
vélar veðurtepptar fyrir norðan,
ein sem kom frá Egilsstöðum,
önnur frá Fagurhólsmýri og með
henni voru m. a. 20 börn, sem
voru að koma úr sveit í Horna-
firði. Þriðja vélin var í flutn-
ingum milli Akureyrar og Reykja
víkur. Alls voru 70 manns með
þessum flugvélum og tókst að
koma þeim fyrir í hótelum og í
einkahúsum í bænum.
Viscount-vélin þurfti í dag að
taka eldsneyti hér nyrðra og var
það nokkrum erfiðleikum bundið,
þar sem tæki þurfti að fá með
bíl sunnan úr Reykjavík til þess
að setja eldsneytið á vélina. Þetta
tókst og fór flugvélin frá Akur-
eyri kl. 2 í dag. —vig.
annar hefði verið nokkru þyngri
með allmiklu af mælitækjum. Nú
virtist honum af fregnum, að létí-
ari hnettinum hefði verið skotið
upp, en í honum væri ekkert
nema radíó-senditæki. — Þessi
gervihnöttur myndi því ekki
senda neinar vísindalegar upplýs
ingar. Hann væri aðeins fyrsta
sporið. Miklu fleiri hnettir
myndu fylgja á eftir, búnir
margvíslegum mælitækjum. Dr.
Blagonarov taldi að þessi fyrsti
hnöttur myndi haldast á lofti í
2—30 daga. Það færi eftir þétt-
leika loftsins f 900 km hæð. For-
stjóri Smithsonian-stofnunarinn-
ar bandarísku telur hins vegar að
hnötturinn geti haldizt á lofti í
20 ár.
— Gervihnöttur
Frh. af bls. 1
Greint er frá þvi, að erfitt sé
að segja, hve lengi hnötturinn
geti haldizt við, menn vita ekki
nægilega um þéttleika og mót-
stöðu loftsins í svo mikilli hæð.
Að því mun þó koma að dregur
úr ferð hnattarins og aðdráttar-
afl jarðar fer að hafa áhrif á
hann. En þegar að því kemur
mun núningurinn víð andrúms-
loftið verða svo mikill, að hnött-
urinn mun brenna upp til agna.
Rússar segja að þessi atburður
sé þáttur í alþjóða-jarðfræðiár-
inu. Kveðast þeir hafa í hyggju
að skjóta fleiri gervihnöttum upp
í himinhvolfið á næstunni. Verða
þeir stærri og þyngri og bera
ýmis tæki til vísindalegra rann-
sókna.
Að lokum er skýrt frá því í
rússnesku tilkynningunni, að
rússneskur vísindamaður að nafni
Tsiolkovsky hafi lagt grundvöll-
inn að geimferðum á 19. öld. Seg-
ir í tilkynningunni, að þetta sé
fyrsta stigið að ferðum manna
til himintunglanna og sé þetta að
þakka „frjálsu og vÖkulu“ starfi
sósíalismans.
Rússneska útvarpið hefur
greint frá því að verið sé að gera
tilraunir með að skjóta eldflaug-
um til tunglsins og er áætlað að
fyrsta eldflaugin verði send þang
að árið 1962.
TUNIS, 5. okt. — 11 manns létu
lífið, 135 særðust og 150 fiski-
bátar gereyðilögðust í jarð-
skjálfta sem kom í dag á eynni
Kreten, skammt frá Sfax í Suður-
Túnis. Samfara jarðskjálftanum
var ofsarok og úrhellisrigning.
Urðu miklar skemmdir á húsum
í öllu Sfax-héraðinu.