Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 11
I Sunnudagur 22. des. 1957 MORCVIS BLAÐ1Ð n Auk KR. 300.000.oo I VINNINGUM íslendingar eru ein mesta flugþjóð í heimi. Fáar þjóðir eiga jafn mikið undir flugsam- göngum, enda tala tölur sínu máli. Á árinu, sem nú er að líða, flytja flugvélar Flug- félags íslands um 80.000 farþega, eða sem svarar helmingi allra landsmanna. Þessar tölur bera ljósan vott um hina öru þróun í flugsamgöngum okkar. Flugfélag íslands hefur ávallt stefnt að því marki að veita sem bezta þjónustu með bættum flugvélakosti og tíðari ferðum til sem flestra staða. Vegna mikillar fjárfestingar í sambandi við flugvélakaup og aukinnar þjónustu, erfélagið hyggst veita í æ ríkari mæli í framtíðinni með því að efla enn frekar flugsamgöngur innan- lands og milli landa, verður ekki hjá því komizt, að Flugfélag íslands afli sér aukins fjár- magns. Með hliðsjón af framangreindu hefur stjórn félagsins ákveðið að leita stuðnings lands- manna. Hefur Alþingi og Ríkisstjórn í því skyni heimilað Flugfélagi íslands útgáfu happdrætt- isskuldabréfa að upphæð kr. 10.000.000.00. Gefin verða út 100.000 sérskuldabréf, hvert að upphæð kr. 100,00. Verða þau að fullu endurgreidd 30. des. 1963, með 5% vöxtum og vaxtavöxtum, eða samtals með kr. 134.00. Hvert skuldabréf gildir jafnframt sem happdrættismiði, og verður eigendum sérskuldabréf- anna úthlutað í 6 atr vinningum að upphæð kr. 300.000,00 á ári. Vinningar verða greiddir í farseðlum með flugvélum Flugféla^s í^*ands innanlands eða milli landa, eftir vali. Útdrátt- ur á vinningum fer fram einu sinni á ári, í fyrsta skipti í apríl 1958. SOLUST AÐIR 1 vinningur á kr. 10.000 1 -------- - — 8.000 1 - — 7.000 1 -------- - — 6.000 5 - — 5.000 0 - — 4.000 i0 ----------- - — 3.000 10 ------- - — 2.000 14 - — 1.000 | Fyrst í stað verður sölu skulda- \ \ bréfanna hagað sem hér segitr: \ • Aðalsöluumboð verður hjá afgreiðslum og \ \ umboðsmönnum Flugfélags Islands víðs vegar j S um land. Auk þess munu Landsbanki fslands, í S títvegsbanki Islands og Búnaðarbanki Islands, s | svo og útibú þeirra annast sölu happdrættis- \ ■ skuldabréfanna. Ennfremur Verzlunarspari- • S sjóðurinn og Samvinnusparisjóðurinn. í Samtais kr. 300.000 V Gefið HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF Flugfélags íslands í jólagjöf og eflið um leið íslenzkar flugsamgöngur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.