Morgunblaðið - 12.01.1958, Síða 2
2
MOP.C. r’ P T 1ÐÍÐ
Sunnudagur 12. Jan. 1958
Frú Auður Auðuns, forseti hœjarstjórnar:
f>crð, sem snýr að œsku
Reykjavíkur
ÞAÐ vekur gjarna hjá manni
nokkra forvitni eða eftirvænt-
ingu þegar nýir frambjóðendur
koma fram á sjónarsviðið fyrir
kosningar, að heyra hvað þeir
hafa til málanna að leggja. Og
það er eðlilegt að konum leiki
sérstaklega hugur á að heyra mál
flutning þeirra tiltölulega fáu
kvenna, sem í framboði eru. Því
las maður með nokkurri forvitni
í Tímanum sl. sunnudag ræðu,
sem þar birtist og konan, sem
skipar 3. sæti á Framsóknarlist-
anum, hafði flutt á fundi í þeim
flokki.
Fyrir fólk, sem gætt er ein-
hverri kímnigáfu, gat hin gífur-
yrta fyrirsögn og inngangsorð
verið til stundarskemmtunar, en
þar er t. d. af fjálgleik talað um
„Miklubraut loforðanna“ og „mó-
grafir svikanna", sem „mold
blekkinganna" muni tæpast duga
til að fylla. Það er ekki öldungis
á frúnni að heyra, að hún sé til í
að „taka þráð þrenningarinnar
og þræða þær með nál einingar-
innar og sauma saman sínar and-
legu sálarholur“ (þ. e. gloppurri-
ar á kærleiksþelinu) líkt og seg-
ir í sýnishorni af gamalli prédik-
un, þý^ að þegar hinum fjálglega
orðaða inngangi sleppir og sá
eiginlegi pistill hefst, er
skemmst af að segja að hann er
allur í ósviknum Tíma-stíl, uppi-
staðan heift og ívafið óhróður
um ráðamenn Reykjavíkur. —•
Hefur frúnni tekizt furuð vel að
tileinka sér það lágkúrulegasta
úr bæjarmálaskrifum Tímans.
enda þar ærnu af að taka og ekki
öllu sem geðslegustu. Þrátt fynr
þetta hallast ég þó frekar að því,
að frúin hafi samið þessa ræð l
sína í anda þess að „man má
tude med de ulve man er ib-
landt“ eins og Danir segja, því
að vissulega hefur hún lent í ó-
yndislegum félagsskap, heldur en
hinu, að slík heift og óvild sé
henni að öllu leyti eiginleg.
í greininni kveðst frúin sér-
staklega ætla að ræða um börn-
in — framtíð Reykjavíkur. Ekki
er hún þó í því sambandi að
burðast neitt við að veifa hug-
sjónum framan í lesendur né
heldur að leggja nokkuð nýtt eða
uppbyggilegt til málanna fyrir
börn bæjarins, heldur er óll
greinin rætin viðleitni til að ó-
frægja ráðamenn bæjarins, og þá
fyrst og fremst borgarstjóra
Þannig birtist umhyggja frúar-
innar fyrir yngstu borgurunum.
Og í ófrægingarherferðinni er
ákafinn svo mikill, að frúnni
sést ekki fyrir og er svo sein-
heppin að beina bræði sinni aðal-
lega gegn tveim stofnunum, sem
öðrum fremur hafa orðið vinsæl-
ar af bæjarbúum, en þær eru
vöggustofan að Hlíðarenda og
Laufásborg, sem heitir á hennar
máli aflóga höll, sem ríkismenn
hafi þurft að selja, og má sú nafn
gift vera til íhugunar þeim
mörgu mæðrum, sem í erfiðleÍK-
um hafa notið góðs af starfsemi
þeirrar stofnunar.
Þótt segja megi að þessi nauða
ómerkilega grein sé tæpast svara
verð, tel ég þó rétt að víkja að
örfáum orðum hennar.
Er þá fyrst að minnast á Hlíð-
arenda, sem bærinn keypti á sín-
um tíma. Frúin deilir hart á þá
ráðsmennsku að sett var á stofn
vöggustofa í húsinu, sem hafi
orðið óhóflega dýr í stofnkostn-
aði, og vill vitanlega kenna hinu
slæma íhaldi um. Líklega er
henni ókunnugt um að það var
fyrir eindregin og einróma til-
mæli barnaverndarnefndar að í
þetta var ráðizt. Og þegar frúin
heldur því fram að heldur hefði
átt að nota húsið sem dagheimili
'uður Auðuns.
fyrir börn, sem hefði mátt gera
með sáralitlum tilkostnaði, þá
mælir hún af algerri vanþekk-
ingu, því að húsið þurfti mikilla
viðgerða og lagfæringar við, til
hvers sem það hefði verið notað
og í því liggur að verulegu leyti
sá stofnkostnaður vöggustofunn-
ar, sem frúnni blæðir í augum.
Þá kemst hún að þeirri niður-
stöðu að húsið sé afleitlega stað-
sett fyrir vöggustofu vegna ryks
frá umferð. En um leið vill hún
ólm að þarna hefði verið sett á
stofn dagheimili fyrir börn úr
Langholtsbyggð, væntanlega til
þess að gefa þeim kost á hæfi-
legum skammti af ryki. Þannig
rekur sig eitt á annars horn. —
Annars má friða frúna með því,
að forstöðukona vöggustofunnar
kannast ekki við þá rykplágu,
sem óskhyggja greinarhöfundar
vill þarna vera láta.
Um leikvellina segir frúin að
þeir séu of fáir og fábreytilegir
Skyldi hún yfirleitt vita um
fjölda leikvalla í bænum, eða t.
d. um það að á þessu kjörtíma-
bili einu hafa verið teknir í notk-
un 7 nýir gæzluvellir auk
tveggja sumarvalla og að á sama
tíma hefur verið komið á smá-
barnagæzlu á 7 stöðum í bæn-
um?
Þá ræðst hún á skólabyggingar
bæjarins, það sé byggt of stórt
og of mikið íborið og sé svei mér
kominn tími til að fara að byggja
einfalda skóla og huga að því að
börnin þurfi ekki að sækja þá
um óravegu. Frúin veit bersýni-
lega ekki að haustið 1956 voru
að tilhlutan borgarstjóra endur-
skoðaðar fyrri áætlanir um skóla
þörf í Reykjavík, og gerð heild-
aráætlun um skólahverfaskipt-
U tankjorstaðakosning
ÞEIR, sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslu-
mönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavik
hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum
sendiráðum og ræðismönnum, sem tala ísienzku.
Kosningaskrifstofa borgarfógetans í Reykjavík er í pó-t-
húsinu, gengið inn frá Austurstræti. Skrifstofan er opin liá
kl. 10—12 f. h., 2—6 og 8—10 e. h. daglega.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Vonarstræti 1,
veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utankjór-
fundaratkvæðagreiðslu. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10
daglega. Símar: 17100 og 2 47 53. Upplýsingar um kjörskra
í síma 1 22 48
ingu og staðsetningu nýrra skóla,
og síðan í samræmi við þá á-
ætlun hafin bygging nýrra skóla
og áætlað að hefja byggingu
fleiri til viðbótar á þessu ári. Og
það er að heyra að frúin þekki
ekki hvernig þessir nýju skólar
eru að gerð. Hún hefur bersýni-
lega „misst af strætisvagninum'*
En þess er vart að vænta að frú-
in sé vel að sér í þessum málum,
þegar samherjarnir eru svo upp-
lýstir að í Tímanum í gær er því
lýst blákalt yfir á næstöftustu
síðu, að Breiðagerðisskóli og Há-
gerðisskóli séu ein og sama bygg-
ing!
Þegar öllu er á botninn hvolft
held ég að frúin hafi farizt ó-
hönduglega að sannfæra lesendur
um það, að illa sé búið að æsku
Reykjavíkur af hálfu bæjaryfir-
valdanna. Allir sem vilja líta
óvilhallt á, sjá að hér er mikið
fyrir æskuna gert sem og vera
ber, þó að við getum öll verið
sammála um að gjarna vildum
við geta gert þar enn betur.
Tölur fjárhagsáætlunar og
bæjarreikninga tala sínu máli um
hug forráðamanna Reykjavíkur
til æsku bæjarins. Milljónatugum
er varið til leikvalla, barnaheim-
ila, dagheimila, vinnuskóla, tóm-
stundastarfsemi, íþróttastarfsemi,
skátastarfsemi, sumardvalar
barna, músíkkennslu og lúðra-
sveita barna o. s. frv. Fyrir utan
slíkar fjárveitingar eru svo
rekstrarframlög til skólanna og
minnast má á að í frv. að fjár-
hagsáætlun fyrir yfirstandandi
ár er áætlað til bygginga nýrra
barna- og gagnfræðaskóla 9%
millj. kr. meðan flokksbróðir
Framsóknarfrúarinnar, Eysteinn
fjármálaráðherra og hans lið
streitist við að skera niður fram-
lög á fjárlögum til skólabygginga
og yfirleitt öll framlög, sem
snerta Reykjavík.
Hver sá Reykvíkingur, sern
ann æsku bæjarins, spornar við
því í lengstu lög að Framsóknar-
flokkurinn fái valdaaðstöðu í bæj
arstjórn Reykjavíkur.
Vatnsæðar í Reykjavík
lengdar um tæpa 18 km
Mikið unnið að úrbótum á vatnsskorti
Á SÍÐASTA kjörtímabili hafa
miklar aukningar og endurbætur
verið gerðar á Vatnsveitu
Reykjavíkurbæjar.
Almenningur hefur líka orðið
þess mjög var, að vatnsskortur,
sem sums staðar gerði vart við
sig hefur víða annað hvort horf-
ið með öllu eða mjög lagazt og
er unnið að því áfram að bæta
þar úr, sem enn er ábótavant. Á
sumri komanda kemur upp hin
nýja dælustöð vatnsveitunnar,
sem auka mun á þrýstinginn í
kerfinu og mun þá bera enn
minna á vatnsskorti en verið hef-
ur. —
Á árunum 1953—1957 varð
mikil aukning á vatnsæðakerfinu
llng ská Idakynn ing
í Háskólanum í dag
KYNNING Stúdentaráðs á verk-
um ungskálda fer fram í Hátíða-
sal Háskólans kl. 4 e. h. í dag.
Verk ellefu ljóðskálda og
tveggja tónskálda verða kynnt.
Öllum er heimill ókeypis aðgang-
ur. —
Listkynning
Morgunblaðsins
LISTAVERK þau eftir Jón Engil-
berts listmálara, sem nú eru til
sýnis í sýningarglugga Morgun-
blaðsins eru öll nema tvö til
sölu. Geta menn snúið sér til
afgr. Morgunblaðsins varðandi
kaup á þeim.
FH og KR að Háloga-
landi í kvöld
í KVÖLD klukkan 8 hefst að
Hálogalandi keppni í handknatt-
leik milli FH og KR. Verða
leikirnir þrír, fyrst mætast flokk-
ar félaganna í 2. aldursflokki
kvenna, síðan í 3. flokki karla
arnir saman að því að safna um
16 þúsund krónum, en það er
framlag sem Handknattleikssam-
bandið varð að krefjast af þeim
til að af förinni gæti orðið.
Það leikur ekki á tveim tung-
um að ævinlega er tvísýnt um
úrslit til síðustu mínútu er meist-
araflokkar FH og KR mætast.
FH hefur oftar farið með sigur
af hólmi, en einhvern tíma mun
að því koma að þeir verði sigr-
aðir, þó þeir hafi engum af sín-
um síðustu leikum tapað. Ef
til vill er stundin upp runnin í
kvöld En hvort svo er eða ekki,
þá er víst að þarna verður um
að ræða mjög spennandi keppni
og' tvísýnan leik. Handknattleiks
unnendur þyrpast því að Háloga-
landi, bæði til að sjá góðan leik
og eins til að styrkja þá er verja
eiga heiður íslands í Þýzkalandi
í febrúar—marz n. k.
í bænum. Á þeim tíma var það
lengt um 17,84 km» Voru þá
lagðar vatnsæðar í gömul hverfi,
sem ekki höfðu vatn áður og
ennfremur voru lagðar æðar til
úrbóta á vatnsskorti og þá um
leið tekið allmikið úr notkun af
þrengri pípum og gildari pípur
lagðar í staðinn. Lagnir í ný
hverfi námu tæplega 11 km. en
aðrar lagnir til úrbóta vatns-
skorti námu tæpum 7 km. að
lengd.
Eins og skýrt hefur verið frá
áður eru nú hinir gömlu Gvend-
arbrunnar bráðlega fullnýttir og
er nú þegar farið að gera ráð-
stafanir til að leita eftir vatni
í námunda við hið gamla vatns-
ból Reykvíkinga og starfa nú sér-
fróðir menn að þeim málum, jarð
fræðingar og verkfræðingar í
þjónustu vatnsveitunnar.
Reykjanesskóli tek-
inn lil slarfa
ÞÚFUM, ísafjarðardjúpi, 11. jan.
— Héraðsskólinn í Reykjanesi
hófst 4. þ. m. Verða í skólan-
um í vetur um 50 nemendur víðs
vegar að af landinu. Smíðakenn-
arar í vetur við skólann verða
Páll skólastjóri og Ingimundur
Magnússon frá Bæ. Bóknáms-
kennari er séra Baldur Vilhelms-
son. Þá verður einnig handa-
vinnukennari fyrir stúlkur.
Heilsufar í héraðinu er gott og
samgöngur ótruflaðar jafnan.
—P. P.
80.544 farþegar um
Kefiavíkurflugvöll
1957
SL. ár var mikil umferð um
Keflavíkurflugvöll. í skýrslu frá
flugvallarstjóranum segir, að alls
hafi 80.544 farþegar haft viðdvöi
á vellinum úr 1832 farþegaflug-
vélum. Þá nam vörumagn það er
um völlinn fór 1.659.201 kílói, og
póstur 323.892 kg.
Flestar lendingar höfðu þessi
félög:
Pan American World Airways
422 vélar, British Overseas Air-
ways Corp. 178, K.L.M. Royal
Dutch Airlines 175, Trans World
Airlines 161, Flying Tiger Line
Inc. 131, Maritime Central Air-
ways Ltd. 122, Slick Airways 82
og EL-AL: Israel Airlines 77.
Kópa-
vogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi er að
Melgerði 1. Opin frá kl. 10 til 10
daglega. Símar: 19708 og 10248.
Stuðningsmenn D-listans í
Kópavogi. Hafið samband við
skrifstofuna.
Hörður Felixson, fyrirliði KR
skorar hér. í kvöld mæta KR-
ingar vörn íslandsmeistaranna.
og loks í meistaraflokki karla,
en það eru tvö beztu handknatt-
leikslið landsins í karlaflokki.
Ágóði allur rennur í fararsjóð
þeirra er valdir verða til heims-
meistarakeppninnar. Vinna pilt-
Kosningaskrifstofa Sjáffstæðisflokksins
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
er í Vonarstræti 4, V.R. Skrifstofan er opin frá kl. 10_10
daglega. Símar skrifstofunnar eru 17100 og 2 47 53. Upp-
lýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 1 22 48
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru beðnir að hafa
samband við skrifstofuna og gefa upplýsingar um þá, sem
verða fjarverandi á kjördegi.