Morgunblaðið - 24.01.1958, Blaðsíða 1
20 saður
45. árgangur.
19. tbl. — Föstudagur 24. janúar 1958.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
GeysifjÖlmennur fundur Sjálfstæðismanna i gærkvöldi
Gerum skyldu okkar við framtíð Reykfavíkur
Tryggjum D.-listanum sigur og höfuðborginni samhenta meiri-
hlutastjórn
Kosningafundur Sjálf-
stæðisfélaganna í gær-
kvöldi var geysif jölmenn
u»r og bar allur svip mik-
ils sóknarvilja og þeirrar
eindregnu ákvörðunar
Reykvíkinga að tryggja
höfuðborginni örugga
meiirihlutastjórn Sjálf-
stæðismanna í kosning-
unum á sunnudaginn
kemur. Voru salir Sjálf-
stæðishússins troðfullir
og fjöldi fólks varð að
standa í anddyri hússins.
Áskorunum ræðumanna
til fólksins um að vinna
sem ötullegast að sigri
D-listans va»r tekið með
dynjandi lófataki.
Höldum höfuðstaðnum
Vinnum Iandið
Fyrstur tók til máls Ólafur
Thors, formaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Hann komst m. a. svo að
orði, að stjórnendur Reykja-
víkur gætu sagt við fólkið:
Dæmið mig eftir verkum mín
um. Sýnið mér traust og veit-
ið mér hrautargengi vegna
fortíðar minnar, en einkum
þó vegna þess, að sú fortíð er
trygging fyrir því, að fyrir-
heit þau, sém ég í dag gef um
að verja öllum starfskröftum,
þreki, vitsmunum og reynslu
til þess að verja Reykjavík
inga áföllum af ásókn of
stjórnar, óstjórnar, öfundar
og illvilja þeirra, sem nú fara
með stjórn landsins, verða
efnd.
Ólafur Meddi síðan um
stjórn Sjálfstæðismanna í
Reykjavík og stjórn vinstri
flokkanna á landsmálum og
sagði loks: m. a.:
Sjálfstæðismenn! Höld-
um höfuðstaðnum. Vinnum
landið.
Við verðskuldum ekki
heitið Sjálístæðismenn, ef
við ekki launum borgar-
stjóra og bæjarfulltrúum
okkar frábær störf og ágæt
afrek í þágu okkar og allra
Reykvíkinga með því að
Frh. á bis. 9.
Frá fundi Sjálfstæðisfélaganna í gærkvöldi.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Ásakanir Þjóðviljans:
Gylfi Þ. Gíslason „jb væ//r” umboöslaus á
ráöstefnum erlendis
Ráöageröir rikisstjárnarinnar um aö
„flytja inn urvinnuieysi''
RÁÐAGERÐIRNAR um frí-'
verzlunarsvæði Evrópu eru
einhver merkasti nýjungin,
sem nú er uppi í alþjóðamál-
um. Fyrir íslendinga getur
þessi nýskipan, ef á kemst,
haft úrslitaþýðingu.
Gylfi Þ. Gíslason er sá ráð-
herra, se,m þessi mál heyra undir,
og hefur hann nú þegar tekið þátt
í fleiri en einni ráðstefnu um þau
suður í París. Vitanlega hefur
hann ekki sótt þá fundi „sem ein-
staklingur með takmörkuðu um-
boði“, eins og Lúðvík Jósefsson
sáttafundina í farmannadeilunni
í sumar. Gylfi hefur þvert á móti
farið á fundina í umboði allrar
ríkisstjórnarinnar og talað þar í
hennar nafni og á hennar ábyrgð.
Nú nýlega er Gylfi kominn af
einum slíkum fundi og var nokk-
uð skýrt frá árangri hans hér í
blaðinu í gær. En þá bregður svo
við, að Þjóðviljinn birtir í gær
stóra grein með rosa-fyrirsögnum
þar sem segir:
„Þátttaka íslands í markaðs-
bandalagi atvinnuleysislanda auð
valdsins í Vestur-Evrópu er ó-
hugsandi.
Slíkt myndi jafngilda því að
hætta að flytja út fisk en flytja
inn atvinnuleysi“.
í upphafi greinarinnar segir svo:
„Nokkrir hagfræðingar, sem
ekkert vit hafa á efnahagsmálum
íslands og ekkert umboð neinna
til að tala um þau, hafa verið að
þvæla undanfarið um markaðs-
bandalag sex auðvaldsríkja í
Vestur-Evrópu, og umtalað frí-
verzlunarsvæði fleiri Vestur-
Evrópuríkja".
Öll greinin er í þessum dúr
með stóryrðum og hótunum. Ekki
fer á milli mála, að meðal hinna
vit- og umboðslausu hagfræðinga,
sem hafa að sögn Þjóðviljans ver-
ið að þvæla um málið, er sjálfur
menntamálaráðherra, prófessor
dr. Gylfi Þ. Gíslason. Og hefur
hann þá einkum „þvælt“ um mál-
ið á alþjóðaráðstefnum suður í
París.
Eins og fyrr segir er óhugsandi
annað en Gylfi hafi talað í um-
boði allrar ríkisstjórnarinnar á
Parísarfundinum. Skeytin á
Gylfa hitta þess vegna ekki síður
þá Lúðvík Jósefsson og Hannibal
Valdimarsson en Gylfa sjálfan.
Hér er enn eitt dæmi þess ó-
trúlega glundroða, er ríkir innan
stjórnarherbúðanna. Vandséð er
og í hverjum tilgangi Þjóðv ger-
ir nú þessa árás á ríkisstjórn
sjna. Eftir frammistöðu hans í
varnarmálunum og lánamálunum
að undanförnu dettur engum i
hug, allra slzt kommúnistum
sjálfum, að taka nokkurt mark á
hótunum hans.
Þjóðviljinn hefur látið það gott
heita, að Hermann Jónasson fór
suður til Parísar og lýsti því þar
yfir í viðurvist 60 ráðh. sem votta
að heriim
j-iinn umboðslausi
stöddu“. Forvitni Þjóðviljans er
ekki einu sinni svo mikil, að hann
spyrji um, hvað Hermann sagði
a.ö.l. í ræðunni eða í hverra nafni
hann gaf þessa yfirlýsingu.
Þá hefur Þjóðviljinn ekki einu
orði fundið að því, að lán tii ís-
lands frá Bandaríkjamönnum var
með þeim hætti tengt yfirlýsingu
Hermanns, að það fékkst ekki,
þrátt fyrir mikla eftirgangsmuni,
fyrr en rúmri viku eftir Parísar-
ræðuna. Vita menn ekki önnur
áþreifanlegri dæmi þess, að hönd
selji hendi en hvernig úr lánveit-
ingunni greiddist strax eftir yfir-
lýsingu Hermanns.
Ekki hefur Þjóðviljinn heldur
neitt að athuga við það, þótt
Bandaríkjastjórn segi í opinberri
skýrslu, að hún hafi á fjárhags-
árinu 1957 veitt íslandi 136%
millj. króna í „varnar-styrk“.
Hefur Þjóðviljinn og að undan-
förnu berum orðum hælzt um yf-
ir þeim lánum, sem svona eru til
komin.
Þegar þetta er íhugað, er ekki
kyn, þótt flestir telji stóryrði
Þjóðviljans nú merki um sérstak-
an stuðning kommúnista áður en
yfir lýkur við þær ráðstafanir,
sem hann nú segir, að myndu
„jafngilda því að--------flytja
inn atvinnuleysi".
Leggið hönd
á plóginn
★ í bæjarstjórnarkosningunum vinnst mikill sigur aðeins
með miklu starfi.
★ Allt Sjálfstæðisfólk er því hvatt til að taka virkan þátt
í baráttunni með því að gerast sjálfboðaliðar á kjördegi.
★ Skiásetning á sjálfboðaliðum fer fram í skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins allan daginn í dag og á morgun. —.
— Sími 17100. —